Tíminn - 10.03.1983, Blaðsíða 1
Framboðslisti framsóknarmanna í Reykjavlk ákveðirm - sjá bls. 3
FJÖLBREYTTARA
OG BETRA BLAÐ!
Fimmtudagur 10. mars 1983
57. tölublað - 67. árgangur
Alþýdubandalagið og stjórnarandstaðan leggja fram tillögu
um að þing komi saman innan 18 daga frá kjördegi:
„EF ÞETTA VERÐUR SAMÞYKKT ÞA
HEFIIR MYNDAST NÝR MEIRIHLUT1
segir Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, um tillöguna
■ „Ég lít svo á, að ef þessi
tillaga Alþýðubandalagsins og
stjórnarandstöðunnar verður
saniþykkt í báðum deildum
þingsins, þá sé þar með kominn
nýr meirihluti,“ sagði Steingrím-
ur Hermannsson, sjávarútvegs-
ráðherra í samtali við Tímann í
gær, er hann var spurður álits á
þingsályktunartillögu sem Al-
þýðubandalagið og þingmenn
stjórnarandstöðunnar lögðu
fram í báðum deildum þingsins í
gær, þess efnis að Alþingi lýsti
yfir þeim vilja sínum, að þing
yrði kvatt saman, ekki síðar en
18 dögum eftir kosningar.
„Það liggja fyrir ítrekaðar yfir-
lýsingar Svavars Gestssonar og
Geirs Hallgrímssonar,“ sagði
Steingrímur, „um að þeir vilji
aðrar kosningar sem allra fyrst.
- þ.e. að þing komi saman sem
fyrst, gangi frá stjórnarskrár-
lögunum að nýju og kosninga-
lögunum og síðan verði nýjar
kosningar. Eg lít svo á, að þarna
sé aðeins verið að undirbúa jarð-
veginn fyrir nýjar kosningar,
með þessari tillögu.
Það er að mati okkar fram-
sóknarmanna sjálfsagt að eftir
kosningar verði myndaður hér
meirihluti sem tekur á efnahags-
málunum. Við teljum það vera
skyldu þess þings sem kosið
verður, og sá meirihluti hann
hefði það síðan í hendi sér að
kalla saman Alþingi og ákveða
nýjar kosningar, en það teljum
við að eigi ekki að gera fyrr en
tekið hefur verið á efnahagsmál-
unum.“
Steingrímur var spurður hvort
framsóknarmenn í ríkisstjórn
niyndu segja sig úr ríkisstjórn cf
þingsályktunartillaga Alþýðu-
bandalagsins og stjórnarand-
stöðunnar í þessu máli fengi
samþykkt á þinginu: „Ég vil
ekkert um það segja á þessu
stigi, en þegar og ef þar að
kcmur, þá munum við greina frá
okkar afstöðu á þinginu."
Tíminn hefur það eftir áreið-
anlegum heimildum, að þing-
flokkur Framsóknarflokksins
hafi í gær á fundi sínum verið á
einu máli um að ef þessi tillaga
verður samþykkt í báðum deild-
um, sem verður að teljast afar
líklegt, þá muni framsóknarráð-
herrarnir allir sem einn segja af
sér ráðherraembættum.
- AB
Viðhorl' forsætisráðhvrra bls.3
Leyfa Nordrrienn Portú-
gölum veiðar og selja
þeim hálfunninn fisk?
„STÓRHÆTTULEGT
FYRIR MARKAÐS-
MAL ÍSLENDINGA
í PORTÚGAL”
■ „Það er ekki rétt að Portúgalir hafi farið fram á veiðileyfi í
landhelgi okkar, lieldur fóru þeir fram á að fá að kaupa fisk úr
íslenskum fískiskipum fyrst fyrir tveimur árum, og svo aftur nú, en
því hefur verið harðneitað, að sjálfsögðu," sagði Steingrímur
Hermannsson, sjávarútvegsráðherra erTíminn ræddi við hann í gær,
um ósk Portúgala um að fá að kaupa fisk úr íslenskum fiskiskipum,
til þess að salta um borð í eigin skipum.
„Við höfum aldrei leyft slíkt,
hvorki þeim né öðrum, enda
væri slík þróun mjög varhuga-
verð,“ sagði Steingrímur.
Aðspurður um það hvers-
konar þrýstiaðgerðum Portúgal-
ir gætu beitt, ef þeim sýndist svo
sagði Steingrímur: „Ja, ég skal
ekkert urn það segja, en ef
Norðmenn fara að leyfa þeim
veiðar í sinni fiskveiðilögsögu,
en Norðmenn hafa ekki tekið
því ólíklega, auk þess sem þeir
tala um að selja þeim lítt unninn
fisk til vinnslu, - þá veikir það
náttúrlega stöðu okkar geysi-
lega, og er í rauninni stórhættu-
legt fyrir okkar markaðsmál í
Portúgal.“
Steingrímur var spurður hvort
hann teldi að til gæti komið
innflutningsbann á íslenskan
saltfisk í Portúgal. Hann sagði:
„Það yrði náttúrlega óskaplegt,
en ég trúi varla að þeir geri slíkt,
en þetta gæti þýtt gífurlega verð-
lækkun á saltfisknum okkar,
jafnvel verðhrun, ef Norðmenn
leyfðu þetta.
Steingrímur sagði að ríkisfyr-
irtækið í Portúgal, sem sæi um
innflutning á saltfiski hefði ný-
lega verið flutt yfir til sjávarút-
vegsráðuneytisins í Portúgal, en
það sagði Steingrímur að benti til
þess að þeir hygðust tengja þenn-
an innflutning eigin veiðum,
meira en þeir hefðu hingað til
gert.
Steingrímur var spurður hvort
um einhverja samvinnu yrði að
ræða á þessu sviði á milli ís-
lenskra og norskra stjórnvalda
og sagði hann þá: „Tómas Árna-
son, ræddi við viðskiptaráðherra
Noregs, þegar hann var úti, og
gerði grein fyrir okkar sjónar-
miðurn, og í framhaldi af því var
lofað að koma til okkar upplýs-
ingum strax og þetta hefði verið
afgreitt í Noregi, en þær höfum
við ekki enn fengið.“ -AB
■ Smátt og smátt verða dagarnir lengri og birtan skiptir um blæ, eins og sést á þessari stemmningarmynd
í Ijósaskiptunum, sem tekin var í gær.
ARNÞOR
MUN FÁ
STÖÐUNA
Menntamála-
ráðherra
mun skipa
hann í em-
bætti í dag
■ Tíminn hefur það eftir áreið-
anlegum heimildum, að Ingvar
Gíslason, menntamálaráðherra,
hafi ákveðið að skipa Arnþór
Helgason, í stöðu deildarstjóra
við Námsbókadeild Blindra-
bókasafnsins, en eins og komið
hefur fram í fréttum, þá lagðist
meirihluti stjórnar safnsins gegn
því að Arnþór, eini umsækjand-
inn um stöðuna, fengi hana, á
þeim forsendum að sjáandi maður
yrði að gegna þessari stöðu, sem
varð til þess að formaður stjórn-
ar safnsins, Halldór Rafnar, vís-
aði málinu til ráðherra, og lýsti
því yfir að ef Arnþór fengi ekki
stöðuna, þá segði hann af sér
formennsku í stjórn safnsins.
Ttminn hefur aflað sér
heimilda fyrir því, að mennta-
málaráðherra hafi kynnt sér öll
gögn í málinu rækilega, og kom-
ist að þeirri niðurstöðu að rök-
semdir meirihlutans gegn því að
Arnþór hlyti stöðuna væru létt-
vægar í þessu niáli, og hann teldi
hann fyllilega hæfan til þess að
gegna stöðunni. Hcrma heimild-
ir T ímans að stjórn safnsins muni
verða greint frá þessari ákvörðun
menntamálaráðherra í dag.
- AB