Tíminn - 18.03.1983, Side 1
Daníel Ágústfnusson, sjötugur - Sjá íslendingaþætti Tímans
FJÖLBREYTTARA
OG 8ETRA BlAfi!
Föstudagur 18. mars 1983
64. tölublað - 67. árgangur
■ „Það hefur samist um það
við Seðlabankann að hann ætl-
ar að auka lán sín út á skreiðar-
birgðir um 50 til 60 milljónir
samtais og sum fyrirtæki sem
eiga miklar skreiðarbirgðir og
eru í slæmri greiðsiufjárstöðu
vegna þess að þau hafa ekki
getað losnað við þær birgðir,
fá þessa aðstoð fyrst og
fremst," sagði Steingrímur
Hermannsson, sjávarútvegs-
ráðherra, þegar Tíminn ræddi
við hann í gær, um hvað yrði
gert nú á næstunni, til þess að
aðstoða ofangreind fyrirtæki.
„Auk þessa hef ég átt ítar-
legar viðræður við viðskipta-
bankana um rekstrarlán út-
gerðarinnar, sem hafa dregist
gffurlega mikið aftur úr,“ sagði
Steingrímur, „en þau hafa á
fimm árum hækkað um svona
265%, en framfærsluvísitala
hækkað á sama tíma um hátt í
500%. Rckstrarlánin þyrftu að
hækka um 70% til þess að ná
verðbólgunni. Ég verð að segja
það, að ég er ákaflega óánægð-
ur með það, að menn skuli
ekki viðurkenna þá staðreynd,
að í aflabresti, þá er lágmark
að halda rekstrarlánunum að
raungildi svipuðu og verð-
bólgu. Ef menn gera það ekki,
þá eru menn nú bara að biðja
um stöðvun. Ég hef verið að
vinna að- þessu og vona að
þetta markmið náist.“
-AB
Metsala fyrstu tvo mánuði ársins hjá lceland Seafood í USA:
MAGNAUKNINGIN 42%!
■ Sala Iceland Seafood Corp-
oration, sölufyrirtækis Sam-
bandsins og frystihúsanna í
Bandaríkjunum, var mjög góð
fyrstu tvo mánuði þessa árs.
Samanborið við sömu mánuði í
fyrra var magnaukningin 42%,
en í dollurum var hún meiri, eða
46%.
„Mánuðurnir, hvor um sig,
voru metmánuðir hvað varðar
sölu í sögu fyrirtækisins,“ sagði
Guðjón B. Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Iceland Seafood,
í samtali við Tímann í gær. „Að
vísu gefur þessi prósentuaukning
ekki alveg rétta mynd, því janúar
og febrúar voru í lakara lagi í
fyrra.“
Aðspurður um hverju hann
þakkaði þennan árangur svaraði
Guðjón að mjög góð sala hefði
verið undanfarið hjá viðskipta-
vinum Iceland Seafood í Banda-
ríkjunum. Einnig væri viðskipta-
vinum fyrirtækisins smátt og
smátt að fjölga og svo væri
neysla fisks vestanhafs greinilega
að aukast.
Guðjón sagði að það færi ekki
á milli mála að það myndi hafa
áhrif ef skreiðarmarkaðirnir
verða áfram lokaðir og samdrátt-
ur verður í sölu á saltfiski. Hitt
væri annað mál að þorskafli
Islendinga yrði líklega um 100
þús. tonnum minni í ár en hann
var á árinu 1981, og það myndi
vitaskuld vega að verulegu leyti
upp á móti samdrættinum á
skreiðar- og saltfiskmörkuðum.
-Sjó.
Forsætisráðherra afhentir undirskriftalistarnir f dag:
ERIIHÁTT f 2 ÞÚSUND
■ Undirskriftalistar þeir sem
stuðningsmenn dr. Gunnars
Thoroddsen, forsætisráðherra
hafa verið með í gangi á aðra
viku, verða afhentir forsætisráð-
herra í dag, en samkvæmt
heimildum Tímans hafa nú
hátt í tvö þúsund menn undir-
ritað áskorun á forsætisráð-
herra að hann bjóði sig fram til
alþingiskosninga.
Heimildir Tímans herma að
stuðningsmenn forsætisráð-
herra hafi tvíeflst í undir-
skriftasöfnuninni eftir að
niðurstöður af fulltrúaráðs-
fundi Sjálfstæðisfélaganna lágu
fyrir, þar sem listi Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík var sam-
þykktur, en sáttatillögu sem
fól í sér að dr. Gunnari Thor-
oddsen yrði boðið 3. sæti list-
ans og Geir Hallgrímssyni
2. sæti hans var vísað frá. Segir
heimildarmaður blaðsins að
við þetta hafi stuðningsmenn
forsætisráðherra styrkst í þeirri
trú að forsætisráðherra myndi
bjóða sig fram til alþingiskosn-
inganna, því þessi afstaða full-
trúaráðsins hafi beinlínis verið
högg á útrétta sáttahönd
Gunnarsarmsins.
-AB
Aðstoð við fyrirtæki í sjávarútvegi ákveðin eftir helgi:
„GÆTI TRdAD AÐ ÞETTA
YRDU UM 100 MIUJÖNR
— sagði Steingrímur Hermannsson, sjávarútvegsráðherra
■ „Við göngum frá því nú eftir
helgi, hvernig fyrirtæki í sjávar-
útveginum fá aðstoð vegna hag-
ræðingar og fjárhagslegrar
endurskipulagningar, en ég hef
verið á fundum bæði með ríkis-
stjórninni og bankamönnum þar
sem við höfum rætt, á grundvelli
„SEÐLABANK-
INN ÆTLAR
AÐAUKA
LÁNÚTÁ
SKREIÐAR-
BIRGÐIR
UM 50-60
MILliÓNIR”
þeirrar úttektar á fyrirtækjunum
sem hófst í hitteðfyrra, með
hvaða hætti þessi fyrirgreiðsla
verður veitt,“ sagði Steingrímur
Hermannsson, sjávarútvegsráð-
herra, er Tíminn spurði hann í
gær, hvort hann hefði endanlega
gengið frá því með hvaða hætti
fyrirtækjum þeim sem hér um
ræðir, yrði veitt aðstoð og lána-
fyrirgreiðsla.
„Þctta er auðvitað framhald af
því starfi sem unnið var í fyrra
og hittcðfyrra," sagði Stein-
grímur, „þegar gerð var úttekt á
stöðu fjölmargra fyrirtækja í
útgerð, og þá voru veittar 73
milljónir til slíkra fyrirtækja og
þessi lánafyrirgreiðsla er beint
framhald af því, og ég gæti trúað
að þetta yrðu um 100milljónir.“
Steingrímur sagði að það væri
talsvert mismunandi hve háar
upphæðir kæmu í hlut hvers
fyrirtækis, og svo væri skuld-
breytingin komin inn í þetta en
hún væri upp á 500 milljónir.
„Sum fyrirtæki hafa í gegnum
skuldbreytinguna fengið nokkuð
góða aðstoð.“
-AB
Marían-
ellu
minnst
■ El Salvadornefnd Alþýðu-
flokksins og fulltrúi Mannrétt-
indanefndar El Salvador hér á
landi boðuðu í gær til fundar
við Bakarabrekkuna og hófst
hann kl. 17.30. I»ar var mót-
mælt mannréttindabrotum
stjórnvalda í El Salvador og
morðinu á MaríaneUu Garcia
VUIas. Fundurínn var fjölsótt-
ur og á eftir gengu menn að
bandaríska sendiráðinu, þar
sem Villas var minnst með
cinnar rnínútu þögn og mótmæU
aflient fuUtrúa sendiráðsins.
(Tímamynd Ámi).