Tíminn - 18.03.1983, Page 20
■ Verðlagsráð heimilaði um 10
prósent hækkun á smásöluálagn-
ingu á fundi sínum á miðviku-
daginn. Var álagningarheimild
þar með færð í sama horf og hún
var í fyrir setningu bráðabirgða-
laganna 21. ágúst í sumar.
„Verðlagsráð taldi að kostnaðar-
auki í verslunarrekstri væri orð-
inn það mikill í kjölfar launa-
hækkana í ágúst og svo aftur í
mars að forsendur 30% reglunn-
ar svokölluðu væru ekki lengur
fyrir hendi, „sagði Georg Ólafs-
son, verðlagsstjóri í samtali við
Tímann í gær.
Á fundinum á miðvikudag var
ennfremur heimiluð hækkun á
unnum kjötvörum sem kemur í
kjölfar hækkunar á landbúnað-
arvörum um síðustu mánaða-
mót. Er hækkunin á bilinu 20.6-
23.9 af hundraði.
dropar
Hvorum fylgir
nú Jón?
■ Á aðalfundi Verkaiýðsfé-
lagsins Einingar, sem haldinn
var á Akureyri þann 13. sl. var
samþykkt að skora á stjórn
Útgerðarfélags Akureyringa
og bæjaryfirvöld að beita sér
fyrir því að bæta við skipakost
félagsins, einkum með tiUiti til
þess mikla samdráttar sem hef-
ur átt sér sér stað á vinnumark-
aðinum og allt útlit er fyrir að
haldi áfram enn um sinn.
Formaður Einingar er auð-
vitað toppkratinn Jón Heiga-
son og því spyrja menn hvar
hann hafi geymdar skorinorðar
samþykktir Alþýðuflokksins
um að hamla gegn stækkun
fiskiskipaflotans með öllum til-
tækum ráðum?
Borgarstjóri
Morgunblaðsins
Davíö Oddsson hafði um
það orð þegar hann varð borg-
arstjóri í Reykjavík, að hann
hygðist vera borgarstjóri ailra
borgarbúa en ekki bara íhalds-
ins.
Eitthvað hefur þetta skolast
til hjá honum að undanförnu,
og komið skýrt í Ijós, að hann
telur sig einungis borgarstjóra
íhaldsins og Morgunblaðsins.
Nýjasta dæmið um þetta er
undirritun samnings um kaup
á hluta af Viðey. Þegar þessi
undirritun fór fram á miðviku-
- daginn var kailað á blaðamann
og Ijósmyndara frá Morgun-
blaðinu, en undirrituninni
haldið vandlega leyndri fyrir
öðrum fjölmiðlum. Fréttin
birtist því í Morgunblaðinu en
hvergi annars staðar.
Samkvæmt heimildum
Dropa mun Davíð sjálfur hafa
tekið þá ákvörðun að hafa
einungis Morgunblaðsmenn
viðstadda undirritun þessa
sammngs. Það er því hans
ákvörðun að vera aðeins borg-
arstjóri Morgunblaðsins.
Krummi
...heyrði í hadegisfréttum út-
varpsins að borgarstjóri Mogg-
ans líkti kaupverði Viðeyjar
við viðgerðarkostnað á gervi-
grasvelli!
Faereyinga:
„Astæða
tiladherda
eftirlitið”
Ólafur um
laxveiðar
SMÁSÖLUÁLAGNING HÆKKAR UM 10%
■ „Ég er útaf fyrir sig ánægður
með það sem kemur fram í
þessari fréttatilkynningu fær-
eysku landsstjórnarinnar," sagði
Ólafur Jóhannesson, utanríkis-
ráðherra í samtali við Tímann í
gær, er hann var inntur álits á
frétt frá færeysku landsstjórn-
inni, sem birt var í Tímanum í
gær.
Utanríkisráðherra sagðist
vera ánægður með það atriði, að
það væri sett inn í laxveiðileyfin
hjá Færeyingum að þeir ættu að
veiða innan landhelgi sinnar, og
að við lægi leyfissvipting.
Utanríkisráðherra var spurður
hvort ástæða væri þá til þess að
herða eftirlit með veiðum, þarna
austur af landinu og sagði hann
þá: „Ég get ekki alveg sagt um
það. Víssulega er ástæða til þess
að herða eftirlitið, en það er nú
Landhelgisgæslan sem verður að
ákveða slíkt, og hún hefur sjálf-
sagt í ýmis horn að líta.“
Ólafur sagðist eiga von á því
að viðræður á milli færeyskra og
íslenskra stjórnvalda um lax-
veiðar Færeyinga færu fram inn-
• an skamms.
-AB
Eftir hækkunina er verð á einu
kílói af vínarpylsum 104,80, en
var áður 86,90 og verð á kjötfarsi
fer úr 55.50 f 67.70 svo dæmi séu
tekin.
- Sjó
Opið virka daga
9-19.
Laugardaga 10-16
HEDD
Skemmuvegi 20 Kopavogi
Simar (91)7 75 51 & 7 80 30
■ Það er fögur sjón í margra
augum að sjá jafn marga -nýja
bíla samankomna á einum stað
og sjá má á þessari yfirlitsmynd
af bílageymslu Eimskips,
Sundaporti, en hún var tekin
úr flugvél í gærdag. Samt er
líklegt að margur bílasalinn
viídi vita bifreiðarnar annars
staðar niður komnar, því sumir
bílarnir eru búnir að standa
þarna óhreyfðir í meira en ár.
Ekki eru þetta þó allir óseldir
bílar í höfuðborginni, —inni í
Bórgarskála eru um það bil
1000 í viðbót. Stöðugt bætist
við og síðasta bílasendingin
kom með Álafossi sl. þriðju-
dag. Stefnan virðist því vera sú
hjá umboðunum að kaupa inn
hcldur meira en selst.
(Tímamynd Ámi Sæberg)
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land allt
Ábyrgð á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
Gagnkvæmt
tryggingafé/ag
abriel
r HÖGGDÉYFAR. u ■
y .Qjvarahlut| r , Sími 36510.
Hamarshöfða 1'
Lá við árekstri varnarliðsvélar og farþegavélar:
„MISTÖK FLUGMANNS OG
77
FIUGUMFEREMRSTJORANSI
— segir Grétar Óskarsson, framkvæmdastjóri loftferðaeftirlitsins
■ Þarna kom tvennt til, mistök
flugmannsins á varnarliðsvéiinni
og mistök flugumferðarstjórans
sem átti að vakta radarinn,"
„sagði Grétar Óskarsson, fram-
kvæmdastjóri loftferðaeftiriits-
ins, þegar hann var spurður
hvað út af hefði borið þegar
næstum varð árekstur milli Arn-
arflugsvélar og herflugvélar frá
varnarliðinu á Keflavíkurflug-
velli yfir Vestmannaeyjum fyrr
í vikunni.
„Verið var að þjálfa nýjan
flugmann um borð í varnarliðs-
vélinni og þar af leiðandi fylgdust
þeir ekki nógu vel með ferð
vélarinnar. Lentu þeir út af af-
mörkuðu æfingasvæði, sem þeim
var ætlað og stefndu beint á móti
Arnarflugsvélinni. Flugvélarnar
fóru í sömu línu á móti hvor
annarri í að minnsta kosti tvær
mínútur áður en vakthafandi
flugumferðarstjóri varð þess var.
Hann kallaði strax og hann áttaði
sig á hvað var á seyði, í varnar-
flugsvélina og skipaði flugmann-
inum að beygja til hægri. í þann
mund sem hann var að beygja,
varð Arnarflugsflugmaðurinn
var við vélina fyrir framan sig og
beygði hann einnig til hægri,
„sagði Grétar.
Grétar sagði að vélarnar hefðu
verið í næstum sömu hæð, 12000
fetum, og þegar þær hefðu kom-
ist næst hvor annarri hafi aðeins
um 300 fet í hæð skilið á milli
þeirra, en lengdarskilnaðurinn
hefði verið nokkur hundruð fet.
Grétar sagði að óvíst væri um
framhald þessa máls þar sem
rannsókn væri enn ekki að fullu
lokið. Taldi hann að bandaríski
herinn fengi mál síns manns til
meðferðar en mál flugumferð-
arstjórans sem átti að vakta
radarinn yrði tekið fyrir héma
heima.
Flugumferðarstjórinn sem
vakta átti radarinn var enn við
vinnu í flugturninum á Keflavík-
urflugvelli í gær.
“ Sjó