Tíminn - 12.04.1983, Blaðsíða 1

Tíminn - 12.04.1983, Blaðsíða 1
Umsjón: Samúel örn Erlingsson Franska liðið Lens á höttunum eftir Atla Eövaldssyni: Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn: ■ Framkvæmdastjóri og þjálfari franska fyrstu deildar liðsins Lens, sem Teitur Þórðarson leikur með í Frakk- landi komu gagngert um síðustu helgi til Diisseldorf til að sjá Atla Eðvaldsson leika með Dusseldorf gegn Schalke 04 í Bundeslígunni. Laugardagskvöldinu eyddu þeir félagar á Inter Conti hótelinu í Dússeldorf, en franska liðið, sem nú er í fimmta sæti í frönsku deildinni mun sækja stíft að fá Atla til liðs við sig. Samningur Atla Eðvaldssonar við Fortuna Dússeldorf rennur út í vor. Fortuna Dússeldorf vill ógjarnan missa Atla, heldur framlengja við hann samn- inginn, en nú er óvíst hvað gerist, þegar Lens er komið í spilið. Teitur Þórðarson hefur leikið með Lens nú í tvö keppnis- tímabil, en hann hefur verið meiddur lengst af í vetur, verið að jafna sig eftir uppskurð í nára sem gerður var rétt fyrir jól. Hvort Atli á að taka stöðu Teits er ekki vitað, en þeir leika sömu stöðu á vellinum, og virðist það því líklegt. MÓ/SÖE völd á vellinum framan af, léku enda góðan handknattleik og þær íslensku áttu ekkert svar við hröðum klippingum og vel útfærðum hraðaupphlaupum dönsku stúíknanna. Eftir að staðan hafði verið 14-6 í hálfieik þeim dönsku í hag, var nokkurt jafnvægi í leiknum og úrslit- in urðu 25-15. íslenskur kvennahandknattleikur á greinilega nokkuð langt í land með að komast á sama pian Og sá danski. Danir hafa, eins og reyndar í karlahandknatt- leik, mun betri boltameðferð, og þar leikur enginn í landsliði nema kunna að reka bolta, eitthvað sem virðist skolast til í unglingaþjálfuninni hér. Dönsku stúlkurnar virtust einnig vera betur þjálf- aðar, sterkari og fljótari en margar okkar stúlkna. Þó eru fáeinar okkar stúlkna sem mundu sóma sér vel í liði af sama styrkleika og það danska, þá ber sérstaklega að nefna markvörðinn Jó- hönnu Pálsdóttur, sem sýndi og sannaði í þessum tveimur leikjum um helgina að hún er markvörður mjög góður á al- þjóðamælikvarða. Pá má nefna Erlu Rafnsdóttur sem er mjög góð í vörn, á línunni og í hraðaupphlaupum, og Guðríði Guðjónsdóttur sem er mjög sterk, þó hún ætti til að vera dálítið mistæk um helgina. En íslenska liðið á framtíðina fyrir sér, og verði haldið rétt á málum þá ættum við að geta sigrað ■ Dönsku stúlkurnar voru mun sterkari en þær íslensku í landsicikjunum um helgina. Þær íslensku voru hálfhnoðaðar í dönsku vörninni. Ttmamynd: Róbert Dani innan fárra ára, þar eð við eigum mikið af efnilegum stúlkum af yngri kynslóðinni. Jóhanna Pálsdóttir markvörður var best íslensku stúlknanna í leiknum á Varmá, sem og reyndar daginn áður í Hafnarfirði. Erla Rafnsdóttir stóð fyrir sínu, svo og Guðríður Guðjónsdóttir. Birte Carlsen var aftur atkvæðamest þeirra dönsku á laugardag, skoraði 5 mörk, og Dorte Pilsgaard skoraði 4. Aðrar skoruðu allar nema markverðirn- ir, og þar liggur ekki síst styrkur danska liðsins, þ.e. í því hve jafnar þær eru. Erla Rafnsdóttir skoraði 5 mörk fyrir ísland, Guðríður Guðjónsdóttir 4, Ing- unn Bernódusdóttir 4 og Ásta Sveins- dóttir 2. Landsliðið sigraði ■ Landsliðið sigraði pressuliðið í körfubolta í gærkvöld með 91 stigi gegn 73, í íþróttahúsinu í Keflavík. Axel Nikulásson skoraði mest fyrir landsliðið 27 stig, Ríkharður Hrafnkelsson 14 og Flosi Sigurðsson 12. Stew Johnson skor- aði mest pressumanna 26 stig, og De- Carsta Webster skoraði 14. ■ Atli Eðvaidsson ■ Það var frekar vonleysisleg viður- eign, síðari landsleikur Islands og Dan- merkur í handknattleik kvenna sem leikinn var á laugardag í íþróttahúsinu á Varmá. Dönsku stúlkurnar höfðu öll FER ATU TIL FRAKKLAN DS? KRISTIN VANN ÞREFALT — á Islandsmótinu í badminton um helgina ■ Kristín Magnúsdóttir TBR sýndi og sannaði um helgina að hún er okkar sterkasti badmintonlcikari um þessar mundir, sem og styrkleikalisti badmin- tonmanna segir til um. Kristín sigraði í einliða og tvíliðaleik kvenna og tvennd- arleik á Islandsmótinu í badminton sem fram fór í Laugardalshöll á laugardag og sunnudag. Broddi Kristjánsson varð einnig mjög sigursæll, sigraði enn einu sinni í einliðaleik, og ásamt Kristínu í tvenndarleik. I tvíliðaleik karla sigruðu nokkuð óvænt Sigfús Ægir Arnason og Víðir Bragason, en ásamt Kristínu Magnúsdóttur lék í tvíliðaleik kvenna Kristín Berglind. Kristín Magnúsdóttir lék til úrslita í einliðaleik kvenna gegn Þórdísi Edwald TBR. Þórdís hafði sigrað Kristínu Berg- lind TBR í undanúrslitum, og Kristín Magnúsdóttir Elísabetu Þórðardóttur TBR. Leikur Kristínar og Þórdísarvar þrjár lotur og sigraði Kristín 5-11, 11-5 og 11-4. Broddi Kristjánsson lék til úrslita í einliðaleik karla gegn Þorsteini. Páli Hængssyni TBR, sem komst nokkuð óvænt í úrslit með því að sigra Guðmund Adolfsson TBR 18-16, 7-15 og 15-5. Broddi sigraði Víði Bragason í undan- úrslitum 15-3 og 15-5. Sigur Brodda var nokkuð öruggur í úrslitaleiknum, 15-11 og 15-2. Sigfús Ægir Árnason TBR og Víðir Bragason ÍA sigruðu nokkuð óvænt og örugglega íslandsmeistarana frá í fyrra, þá Brodda Kristjánsson og Guðmund Adolfsson 15-5 og 15-8, en í tvíliðaleik kvenna var sigur Kristínanna tveggja á Þórdísi Edwald og Ingu Kjartansdóttur nokkuð öruggur, 15-5 og 15-8. í tvennd- arleiknum virtist varla geta farið öðruvísi en fór, þar sem saman voru komin þau Kristín og Broddi, en þar þurfti þó oddalotu þar sem Guðmundur Adolfs- son og Þórdís Edwald léku af krafti. Úrslit urðu 7-15,15-4 og 15-11. Úrslit í öðrum flokkum urðu þau að Árni Þór Hallgrímsson . ÍA varð sigur- vegari í einliðaleik karla og Guðrún Júlíusdóttir TBR í einliðaleik kvenna. Bæði sigruðu í tvíliðaleik, Árni Þór ásamt Ingólfi Helgasyni ÍA, og Guðrún ásamt Helgu ÞórisdótturTBR. í tvennd- arleik sigruðu Haraldur Marteinsson og Særún Jóhannsdóttir TBS. I öðlinga- flokki sigraði Eysteinn Björnsson TBR í einliðaleik og Garðar Alfonsson TBR og Kjartan Magnússon TBR í tvíliðaleik. I , öðlingaflokki sigraði Bragi Jakobsson KR í einliðaleik og einnig í tvíliðaleik ásamt Rafni Viggóssyni TBR. ■ Kristín Magnúsdóttir t.v. og Broddi Kristjánsson t.h. voru stjörnur íslandsmótsins í badminton sem fram fór í Laugardalshöll um helgina. Kristín hlaut 3 gullverðlaun, og Broddi 2 og eitt silfur. ■ Pétur Jóhannsson þjálfari og leikmaður Breiðabliks mátti láta sér nægja að vera á áhorfendapöllunum um helgina. Mynd Gk. „Getum ekki sætt okkur vid þetta” — segir Pétur Jóhannsson, þjálfari Breiðabliks um kærumálið ■ „Við getum ekki sætt okkur við þetta og málið mun verða tekið upp að nýju“ sagði Pétur Jóhannsson þjálfari Breiðabliks í handknattleik er við rædd- um við hann á Akureyri um helgina. Pétur hefur komið mikið við sögu í úrslitakeppninni í 2. deildinni þótt þau afskipti hafi örugglega verið á annan hátt en hann hefði óskað. Pétur hljóp inn á völlinn í leik Breiða- bliks og KA í 2. hluta úrslitakeppninnar. Hann stöðvaði þá Þorleif Ananíasson í hraðaupphlaupi á lokasekúndum leiks- ins er staðan var jöfn. Fyrir þetta dæmdi Aganefnd HSÍ Pétur í 4-leikja bann. „Þegar næsti hluti úrslitakeppninnar hófst hringdi ég í HSÍ fimm mínútum fyrir leik okkar við Gróttu til að forvitn- ast um hvort ég hefði verð dæmdur í bann“ sagði Pétur. „Mér var tjáð að ég fengi fjóra leiki í bann. Ég beið hinsveg- ar eftir tilkynningu um þetta bann frá HSÍ og var með í leikjum okkar gegn KA og Gróttu". Ekki voru KA-menn ánægðir með þetta. Þeir kærðu úrslit þessara leikja sem Breiðablik vann báða og svo fór að dómstóll HSÍ dæmdi Gróttu sigur gegn Breiðablik en breytti ekki úrslitunum í leik KA og Blikanna. Einnig þyngdi dómstóllinn dóminn yfir Pétri þannig að hann fékk fjögurra leikja keppnisbann til viðbótar. Pétur var því áhorfandi á Akureyri um helgina er menn hans voru þar í eldlínunni. Þó komu Blikarnir best út úr leikjum helgarinnar, hlutu alls 5 stig af 6 mögulegum, en dómurinn er stigin voru tekin af Breiðabliki og gefin Gróttu varð til þess að Breiðablik verður að leika í 2. deild að. ári. Þetta nægði hinsvegar KA til þess að hljóta 2. sætið í 2. deild og sæti í 1. deild að ári. gk - Akureyri

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.