Tíminn - 18.04.1983, Blaðsíða 2
12
ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1983
ÞRIÐJUDAGUR 19. APRIL 1983
urnsjón Samúel Orn Erlingsson
Italir dottnir út?
ítalir töpuðu á laugardag í Evrópukeppni
landsliðafyrirRúrnenumO-1 iBúkarest. Eftir
þennan ósigur eru möguleikar ítala til að
komast áfram í keppninni mjög takmarkaðir,
og eru háðir óvæntum úrslitum annarra
leikja. ítalir höfðu áður gert þrjú jafntefli,
m.a. gegn Kýpur, og eru ítalir að vonum
óánægðir með árangur sinna manna, sem
urðu ef einhver skyldi hafa misst af því
heimsmeistarar sl. súmar. Boloni skoraði
mark Rúmena en yfir HO þús. áhorfendur voru
á leiknum. Á laugardag léku einnig Tékkar
og Kýpurbúar, og unnu Tékkar stóran sigur,
6-0. Staðan í riðlinum er nú þessi:
Rúmenía...........4 3 10 6-1 7
Tékkóslóvakía .......4 13 0 10-4 5
Svíþjóð------¦........3 111 3-4 3
ítalía..............4 0 3 1 2-3 3
Kýpur.............5 0 2 3 3-12 2
Italir reiðir
Fjölmiðlar á ítalíu voru mjög reiöir útaf
tapi ítala í Evrópukeppninni gegn Rúmenum,
og sögðu ítölsku blöðin m.a. á sunnudag:
„Hcimsmeistaratitill okkar er nú safngripur,
liðið sem vann hann er ekki lengur til".
Annað blað sagði í aðalfyrirsögn: „Einu sínni
var lið frá ítaiíu sem varð heimsmeistari í
- knattspyrnu". Hætt er við að Enzo Bearzot
og menn hans hafi ekki fengið líkar viðtökur
við heimkomuna, og þær sem þeir fengu sl.
sumar, þegar þeir komu frá Spáni.
Finnar
náðu jafntefli
Finnar léku víð Pólverja á laugardag í 5,
riðli í Evrdpukeppni landsliða í knattspyrnu
í Varsjá. Finnar náðu jafntefli, 1-1, en
Póiverjar skoruðu bæði mörkin, Smolarek
skoraði úr víti, og varnarmaðurinn Janas
gerði sjálfsmark. Staðan í riðlinum er þessi:
Portúgal ............ 2 2 0 0 4-14
Portúgal ............ 2 2 0 0 4-14
Sovétríkín............ I 1 ö 0 2-0 2
Finnland ............ 4 0 13 3-81
Ungverjaland
vann
Ungverjaland vann Luxemborg í Evropu-
keppni landsliða í knattspyrnu i þriðja riðli á
sunmidagmn í Búdapest, 6-2. Staðan í riðii 3
er þessi:
England............4 2 2 0 14-2 6
Ungverjaland........2 2 0 0 12-4 .4
Danmörk...........2 110 4-3 3
Grikkland ..........3 111 2-3 3
Luxemborg .....'....5005 5-25 0
Víkingur vann
tvisvar
¦ Einn leikur var í Reykjavíkurmótiriu í
knattspyrnu á laugardag, Víkingur vann Val
1-0. Vj'kingar léku aftur í gærkvðld í Rcykja-
víkurmótinu og þá gegn Ármanni og sigruðu
1-0. Víkingur eru nú efstir á mótinu með 4
stigeftir21eiki.
Skagamenn
unnu
¦ Skagamenn unnu Hauka 2-0 í Hafnarfirði
á laugardag i Litlu bikarkeppninni f knatt-
spyrnu. Keflavík vann þá Breiðablik í Kópa-
vogí 1-0 í sömu keppni. Þetta voru fyrstu
leikir keppninnar.
Magnús skoraði
¦ Magnús Bergs skoraði gegn Antwerpen i'
teik liðs hans Tongeren gegn Antwerpcn,
Pétri Péturssyni og félögum á sunnudag.
Pétur og félagar sigruðu 2-1. Úrslit urðu
annars þessi:
Waterschei-Seraing........... . . . 0-3
Beveren-Fc Brugge . ............4-0
Antwerp-Tongercn .............2-1
FC Liege- Beerschot . . ..........3-0
Kortrijk-Anerlecht............... 1-5
Ghent-Winterslag ..............2-1
CS Brugge-Lokeren.............3-0
Molenbeek-Standard . . ..........0-2
VIKINGAR MEISTAR
AR 4. SINN I R0D!
¦ Víkingar tryggðu sér íslandmeistara-
titilinn í Laugardalshöll á sunnudags-
kvöldið, þegar þeir sigruðu Stjörnuna í
síðasta leik sínum í íslandsmótinu í
handknattleik 24-18.
Víkingarnir voru vel að sigrinum
komnir, hafa leikið yfírvegað í síðari
hluta úrslitakeppninnar, og eftir slaka
byrjun fyrstu leikhelgina tapaði liðið
sárafáum stigum. Þetta er fjórða árið í
röð sem Víkingar eru íslandsmeistarar,
og frábært starf pólska þjálfarans Bogd-
ans KoValczyk hefur svo sannarlega
borið árangur. En lítum á úrslit leikja
helgarinnar:
Yíkingur
sigraði KR
örugglega
¦ Víkingar hófu leikhelgina af miklum
krafti, voru stigahæstir fyrir helgi með
13 stig, en KR hafði 11, FH 10 og
Stjarnan 2. KR varð fórnarlamb þeirra,
og þoldi greinilega illa spennuna sem
ríkti, mikið í húfi. Víkingar sigruðu KR
á föstudagskvöldið 26-19, eftir að staðan
var 11-8 Víkingum í hag í hálfleik.
Sigur Víkinga i leiknum var aldrei í
hættu, þeir voru allan tímann yfir, og
munaði mest um stórleik Ellerts Vigfús-
sonar markvarðar, sem varði sem ber-
serkur. Jens kollegi hans í KR markinu
varði einnig stórvel eins og hans er von
og vísa, en KR-ingum dugði það þó
ekki. Víkingar voru yfir mcð þetta 2-3
mörk í plús í hálfleiknum lengst af, og í
síöari hálfleik héldu þeir uppteknum
hætti og skoruðu í sókninni, og léku
frábæra vörn. KR sóknin beit því ekki
sem skyldi, og' Víkingar náðu 6 marka
forystu. Voru þó tveimur færri á tiina-
bili, og segir það sína sögu að þeir
skoruðu tvö mörk einmitt þá, uieðan
KR-ingar skoruðu ekki.
Sigurður Gunnarsson var mjög góður
í liði Víkinga, en þó var Ellert Vigfússon
markvörður þeirra sá sem vann þennan
leik öðrum fremur. Liðsheildin virkaði
mjög vel. KR-ingar voru mun slakari,
þar voru bestir Jens markvörður, og þeir
bræður Gunnar og Alfreð Gíslasynir.
Gunnar fékk þó rautt spjald ¦ lokin, en
það skilaði sér ekki í banni eins og
KR-ingar óttuðust, og Gunnar lék alla
leikina um helgina.
Mörkin: Víkingur: Sigurður Gunnars-
son 7(2), Viggó Sigurðsson 4, Þorbergur
Aðalsteinsson 3, Hilmar Sigurgíslason
3, Guðmundur Guðmundsson 3, Páll
Björgvinsson 3, Olafur Jónsson 2 og
Steinar Birgisson 1. KR: Alfreð Gíslason
7, Gunnar Gíslason 5(3), Anders Dahl
Nielsen 2, Stefán Halldórsson 2, Guð-
mundur Albertsson 2, og Haukur Ottes-
en 1.
FH átti í
erfiðleikum
með Stjörn-
urnar
¦ Það lá við að FH-ingar væru áhuga-
lausir gegn Stjörnunni á föstudag, mögu-
leikar þeirra á íslandsmeistaratitilinum
voru heidur í lausu lofti en þó fyrir
hendi, en Stjörnumenn börðust vel að
vanda, og misstu ekki stigin fyrr en
ciginlega rétt í .lokin. FH sigraði í
leiknum 26-24, eftir að Stjarnan hafði
haft yfir í hálfleik 15-13.
Leikurinn var sveiflukenndur mjög í
fyrri hálfleik. FH hafði undirtökin fram-
an af, komst í 11-7, en þá kvaðallt íeinu
við heldur annan tón. Stjörnumenn
skoruðu 6 mörk í röð og staðan allt í einu
14-11 Stjörnum í hag.
í síðari hálfleik tóku FH-ingar sig veru-
lega á og Kristján Arason og Pálmi
Jónsson blómstruðu. Hjá Stjörnunni var
það aftur Guðmundur Óskarsson sem
var aðalstjarnán, hann skoraði 7 mörk
gegn sínum sambæingum, en Guðmund-
ur er upprunninn úr yngri flokkum FH.
Var hann bestur Stjörnumanna. Effháið
var sterkara á lokasprettinum í þessum
leik, og Stjarnan varð að sjá enn eitt
tapið verða að staðreynd. ¦
Mörkin í leiknum skoruðu: FH:
Kristján Arason 8(3), Pálmi Jónsson 8,
Guðmundur Magnússon 3, Hans Guð-
mundsson 3, Sveinn Bragason 2, Finnur
Árnason 1, og Valgarð Valgarðsson 1.
Stjarnan: Guðmundur Óskarsson 7, Ey-
jólfur Bragason 5(1), Magnús Teitsson
3, Guðmundur Þórðarson 3, Eggert
ísdal 3, Björgvin Elíasson 2, og Magnús
Andrésson 1.
FHnáði upp
spennunni
¦ FH-ingar náðu heldur betur upp
spennunni í fyrstu deildarkeppninni á
laugardag, þá sigruðu þeir Víkinga 24-21
í spennandi og skemmtilegum leik. Stað-
an í hálfleik var 12-8 FH í hag.
Víkingar hófu leikinn vel, höfðu frum-
kvæðið og náðu forystu 5-2. En þá hrökk
Effháið í gang og skoraði 3 mörk í röð.
Víkingur hafði yfir 6-5 og 7-6, en FH
komst yfir 8-7. Jafnt 8-8, og þá byrjaði
dálítið vitleysislegt tímabil. Víkingar
léku eins og byrjendur það sem eftir var
hálfleiksins, og FH skoraði 4 næstu
mörk, hefði þó getað skorað 8 á þessu
tímabili, en færin voru mjög illa notuð á
báða bóga. í síðari hálfleik var aldrei um
það að ræða að Víkingar jöfnuðu, mun-
urinn þetta 3-4 mörk, en þó ríkti spenna
í lokin, þá munaði bara tveimur
mörkum, og alít líklegt til að gerast.
FH-ingar héldu þó haus og vel það,
sigruðu 24-21. Pálmi Jónsson var bestur
FH-inga í leiknum, skoraði 6 mörk og
fiskaði boltann oft af Víkingum. Þá var
Kristján traustur. Hann skoraði líka 6.
Aðrir sem skoruðu fyrir FH voru Hans
Guðmundsson 5, Guðmundur Magnús-
son 3, Sveinn Bragason 2, Guðjón
Arnason 1 og Valgarð Valgarðsson 1.
Guðmundur Guðmundsson var bestur
Víkinga, skoraði 5 mörk. Viggó Sigurðs-
son skoraði líka 5,öll úr vítum. Sigurður
Gunnarsson var góður í síðari hálfleik,
skoraði 4 mörk, Þorbergur Aðalsteins-
son 3, Steinar Birgisson 2, Ólafur Jóns-
son 1 og Árni Indriðason 1.
Haraldur Ragnarsson markvöfður FH
varði mjög vel í leiknum, og Ellert
Vigfússon varði einnig vel.
Ahugalaus-
ar Stjörnur
¦ KR sigraði Stjörnuna á laugardag
27-20. Staðan í hálfleik var 13-10 KR í
hag. Stjörnumenn voru í þessum leik
eins og áhugalausir, og er þetta eiginlega
í fyrsta sinn sém merkja hefur mátt
uppgjöf hj'á þessu liði í vetur.
Leikurinn fór jafnt af stað og jafnt
lengst af í flestum tölum þar til kómið var
í 9-9. KR-ingar sigu þá fram úr og 13-10
í hálfleik. í byrjun síðar hálfleiks jöfn-
uðu Stjörnunar og allt.virtist geta gerst,
16-16. En KR-ingar léku vel meðan skin
Stjarnanna smá minnkaði og í lokin
gerðu KR-ingar út um leikinn með vel
útfærðum hraðaupphlaupum sem voru
auðveld yegna áhugaleysis Stjörnu-
manna.
¦ Kristján Arason varð marknliæstur leikmanna í úrslitakeppni fyrsru deildar, eins og í deildinni sjálfri. Hér er hann í
leiknum gegn Víkingi á laugardag. Þessi frábæra mynd Róberts er dæmigerð fyrir leikinn, allt í járaum. FH-ingar settu
nýja spennu ¦' mótið þegar þeir sigruðu Víking, en það dugði ekki, Vflcjngar sigruðu í leiknum sem eftir var.
Mörkin í leiknum: KR Gunnar Gísla-
son 6, AÍfreð Gíslason 6, Anders Dahl
Nielsen 6, Haukur Ottesen 3, Jóhannes
Stefánsson 3, Guðmundur Albertsson 2
og Haukur Geirmundsson 1. Stjarnan:
Eyjólfur Bragason 7, Magnús Teitsson
4, Eggert ísdal 4, Björgvin Elíasson 3,
Guðmundur Þórðarson 1, og Magnús
Andrésson 1.
Víkingarnir
íslands-
meistarar
Það var ,mikil spenna ríkjandi fyrir
Jeik Víkings og Stjörnunnar á sunnu-
dagskvöldið. Víkingar þurftu að vinna
til að tryggja sér íslandsmeistaratitilinn,
en yrði jafntefli höfðu FH-ingar mögu-
leika á að fá aukaleik með sigri á KR. Ef
Víkingar myndu tapa, þá höfðu KR og
FH möguleika, FH á titlinum með því
að sigra 1R, aukaleik við Víking með
jafntefli, en KR aukaleik við Víking ef
þeir ynnu FH.
Eins og einn titrandi Víkingur sagði fyrir
leikinn: „Annað hvort verður þetta stór-
sigur Víkinga, eða allt í járnum og fer
þá einhvern'veginn". Sá fór nálægt því,
leikurinn var í járnum lengst af, en
endaði þó sem stórsigur sem varð stað-
reynd rétt í lokin, en eins marks munur
hafði verið lengi þá. Víkingar sigruðu
24-18. Staðan í háifleik 11-9 Víkingi í
hag.
Víkingar hófu þennan leik eins og
meistarar, eftir að Stjarnan skoraði sitt
fyrsta mark. Komust í 7-2, og 11-6, en
þá vaknaði Stjarnan. I síðari hálfleik
sótti Stjarnan sig mjög og minnkaði
muninn í 13-12, og eins marks munur
lengi 15-14,16-15 og 17-16. Þáfórafstað
Viggó nokkur Sigurðsson sem sýndi
allar sínar bestu hliðar og Víkingur
komst í 20-17. Eftir það fékk ekkert
stöðvað Víkinga, og' auk þess sem þeir
voru mun betri, var með þeim svokölluð
meistaraheppni. Brynjar Kvaran og Ell-
ert Vigfússon vörðu vel í leiknum, og
Eggert Guðmundsson sem var í Vík-
ingsmarkinu hálf an fyrri hálfleik stóð sig
líka vel.
Mörkin: Víkingur: Viggó Sigurðsson
8(1), Þorbergur Aðalsteinsson 5, Guð-
mundur Guðmundsson 3, Ólafur Jóns-
son 3, Hilmar Sigurgíslason 2, Sigurður
Gunnarsson 2, Árni Indriðason 1.
Stjarnan: Eyjólfur Bragason 5, Eggert
ísdal 4, Guðmundur Þórðarson 3, Magn-
ús Teitsson 2, Magnús Andrésson 2,
Björgvin Elíasson 2, Guðmundur Ósk-
arsson 1.
Aumur
leikur
Síðasti leikur íslandsmótsins í hand-
knattleik, það er að segja fyrstu deild
karla var milli FH og KR á sunnudags-
kvöldið. Úrslit í íslandsmótinu orðin
ljós, hvorugt liðið gat orðið meistari
lengur, og leikurinn bar kannske dálítinn
keim af því, alla vega hvað FH varðaði.
í þessum leik réðist hver hlyti silfurverð-
launin í fyrstu. deildarkeppninni, FH
hafði 14 stig fyrir leikinn, en KR 13.
Þetta var léttur sigur hjá KR, lokatölur
26-19 f hálfleik 10-5
KR-ingar höfðu frumkvæðið í
leiknum allan tímann, 4-1 og 7-2 og áfram
var haldið í 10-5. Það sem gladdi augað
í fyrri hálfleik var að markverðirnir,
Haraldur Ragnarsson í FH markinu, og
Jens Einarsson í KR markinu vörðu
snilldarlega. Jens 10 skot í fyrri hálfleik,
Haraldur 14. Á þessu sésthver skotanýt-
ing og sóknarnýting FH er léleg í fyrri
hálfleik, þeir eiga 15 skot sem hitta
markið, en KR-ingar 24.
I síðar hálfleik sama sagan, leikurinn
hálfaumur. KR komst í 14-6, og örlög
FH ráðin í leiknum. Mestur varð munur-
inn 11 mörk, 24-13. FH klóraði aðeins í
bakkann í lokin.
Mörkin KR: Alfreð Gíslason 6, Stefán
Halldórsson 6, Gunnar Gíslason 5,
Guðmundur Albertsson 5, Jóhannes
Stefánsson 2, Anders Dahl 2. FH: Hans
Guðmundsson 5, Guðmundur Magnús-
son 4, Kristján Arason 3, Teódór Sig-
urðsson 2, Pálmi Jónsson 2, Guðjón
Árnason 1, Sveinn Bragason 1, og
Finnur Árnason 1. Markverðirnir vörðu
vel, Jens Einars þó sérstaklega í heild-
ina, alls 19 skot.
Lokastaðan
Úrslit ¦ leikjum úrslitakeppninnar um
helgina urðu þessi:
FH-Stjarnan.............26-24
Víkingur-KR............ 26-19
Uf- Víkiiigur.............24-21
KR-Stjarnan.............27-20
Víkingur-Stjarnan.........24-18
KR-FH................26-19
Lokastaðan varð þannig:
Víkingur.....12 8 1 3 275-261 17
KR........i 12 7 1 4 284-264 15
FH.........12 6 2 4 272-272 14
Stjaraan ____ 12 1 0 11 242-276 2
Markahæstu leikmenn í úrslitakeppn-
inni:
Kristján Arason FH 79/28
Eyjólfur Bragason, Stjörnunni, 70/24
Þorbergur Aðalsteinss., Vík. 62/16
Gunnar Gíslason, KR 60/30
Hans Guðmundsson, FH 59/4
Sig. Gunnarss., \'ík. 59/12
Alfreð Gíslason, KR 55
Hugleiddu þetta strax svo þú þurfir þess ekki seinna
Pað er stáðreynd að meirihluta umferðarslysa
og -óhapþa hefði mátt afstýra með því einu að
fylgja reglum og aka með fullri athygli og skynsemi.
Eftir að slysin hafa átt sér stað er of seint að
spyrja sjálfan sig,
HVAÐ EF: ég hefði virt aðalbrautarréttinn,
miðað ökuhraðann við aðstæður, spennt öryggis-
beltin eða notað ökuljósin?
Hvað ef ég hefði aðeins verið vakandi gagnvart
reiðhjólinu eða gangbrautinni og barninu?
Hvað ef. . .
Láttu ekki umferðina dæma þig til að iðrast og syrgja.
Útrýmum þessarí dauðans óvissu í umferðinni og
fekkum slysum.
SAMVINNU .
TRVGGINGAR
KLÚBBAMMM
AKSTUB
Félög sem vilja þig heila(n) heim!