Tíminn - 18.04.1983, Page 4
14
ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1983
enska knattspyrnan
MAN. UNITED OG BRKHTON
KEPPIl A WEMBUEY 21. MAI
■ Það voru Manchester United og
Brighton sem sáu framundan sér úr-
slitaleik hinn 21. maí næstkomandi,
þegar upp var staðið eftir undanúr-
slitaleikina ■ bikarkeppninni ensku á
laugardaginn. Á meðan United menn
og Brighton menn úðuðu í sig kampa-
vini og nutu sætsúrs bragðsins og
sigursins voru Arsenal menn og Sheff-
ieldmenn með biturt bragð ósigursins
á tungunni. Manchester United komst
í úrslit með því að sigra Arsenal 2-1 á
ViDa Park í Birmingham og Brighton
sigraði Shefficld Wednesday á High-
bnry í Lnndúnum,
Manchester United varð undir í
leiknum gegn Arsenal, og um tíma
virtist vera risinn annar stór dagur
vonbrigða hjá United á stuttum tíma
enda markið þess eðlis sem þeir fengu
á sig. Gary Bailey markvörður United
■ Það þykja ekki orðið nein tíðindi
að heyra um sigur Liverpool um helgar
á Englandi, en öðru máli gegnir uin ef
þetta ágæta lið tapar leik. Það gerist í
fjórða sinn í deildarkeppninni í allan
vetur nú á laugardag. Þá fóru Liver-
poolstrákarnir til Southampton, og
þar voru heimamcnn sterkari og lögðu
þá rauðu að velli 3-2. Þaö verður því
einhver bið á að Liverpool vinni sér
inn þessi 4 stig sem þeir þurfa til þess
að verða 100% öruggir með titilinn,
Manchester United eitt getur náð Li-
vcrpool, getur náð 84 stigum, ef þeir
vinna alla leiki sem þeir eiga eftir, en
Liverpool hefur 81 nú. Livcrpool þarf
að öllum líkindum ekki fleiri stig, þar
eð þó Manchester United sé ágætt liö,
er ólíklegt að það taki slíka rispu, að
vinna 8 leiki í röð. Önnur tíðindi helst
af Englandi um helgina voru að Wat-
ford steinlá á útivelli fyrir Nottingham
Forest, 3-1, Birmingham náði í dýrmæt
stig á botninum, og Manchester City
sigraði nú í fyrsta sinn í nokkurn tíma,
þeir unnu að vísu leik um daginn, en
þá höfðu þeir tapað ótrúlega mörgum
leikjum í röð.
Meðan að yfir 100 þúsund manns
voru að fylgjast með undanúrslita-
leikjum bikarkeppninnar, var deilda-
keppnin í fullum gangi. Þegar United
og Brighton voru að senda korktapp-
ana í loft upp, urðu Liverpool menn
aðeins að bíða með sína tappa, og láta
þá rykfalla örlítið enn inni í geymslu.
Það var í Southampton sem meistar-
arnir lágu, og það í skemmtilegum og-
spennandi „gamaldags" markaleik,
Southampton skoraði fyrst, Stevc
missti frá sér sakleysislega fyrirgjöf,
Júgóslavinn Vladimir Petrovic náði
boltanum og renndi honum fram fyrir
markið þar sem Tony Woodcock þurfti
lítið annað að gera en renna knettinum
í netið af stuttu færi.
En eftir að Brian Robson fyrirliði
Manchesterliðsins jafnaði 10 mínútum
eftir leikhlé var aðeins umferð i' eina
átt í þessum leik, í átt að marki
Arsenal, þar sem George Wood var
til varnar. Eftir margar tilraunir Manc-
hester United, varð það að lokum
unglingurinn í liðinu, hinn 17 ára gamli
Norman Whiteside frá .frlandi sem
skoraði eftirminnilegt mark með
þrumuskoti, og 2-1 sigur strákanna frá
Old Trafford staðreynd.
Jimmy Case, fyrrum eftirlæti í Li-
verpool er orðinn hetja fallbaráttuliðs-
ins Brighton, sem svo mjög hefur
Moran skoraði úr vítaspyrnu eftir að
Bruce Grobbelar markvörður hafði
fellt Martin Foyle. Kenny Dalglish
jafnaði fyrir Liverpool, og Craig John-
ston kom meisturunum yfir. Southam-
pton gafst ekki upp, jafnaði á 17.
mínútu, þar var að verki Nick Holmes,
og hann var ekki hættur, skoraði
sigumarkiðá 42. mínútu, og ekkert var
mcira skorað í leiknum, sem var
skemmtilegur og spennandi, aragrúi
marktækifæra sem ekki var notaður,
og var leiknum mjög hrósað af
enskum.
Watford tapaði 1-3 fyrir Nottingham
Forest í leik hinna glötuðu tækifæra.
Luther Blissett skoraði fyrsta markið í
leiknum fyrir Watford, en það dugði
ekki til, félagar hans fundu ekki
markið, og Ian Bowier jafnaði fyrir
Forest. Stcve Hodge skoraði 2-1 fyrir
Forest og Peter Devinport skoraði
sigurmarkið. Watford var talið betra í
leiknum þrátt fyrir tapið, en það eru
mörkin sem tala.
Alan Brazil ætlar að reynast Totten-
ham gullmoli, hann skoraði tvö mörk
í sigri Tottenham á Ipswich 3-1, einmitt
gcgn sínu gamla liði.
Norwich að komast
í lognið
Tvö mörk í síðari hálfleik sem John
Deehan gerði, færðu Norwich inn á
nokkuð lygnan sjó í fyrstu deild á
laugardag, en þá var leikinn frestaður
leikur Norwich og Sunderland frá því
komið á óvart í bikarkeppninni í
vetur. Case skoraði sigurmarkið gegn
Liverpool á dögunum, í sigri sem hristi
hreinlega Bretlandseyjar eins og
Suðurlandsskjálfti. Case skoraði aftur
í sigri Brighton á Norwich, sigrinum
sem færði Brighton sæti í undanúr-
slitum bikarkeppninar. Case hélt upp-
teknum hætti í þessum leik gegn Sheff-
ield Wednesday, hann skoraði fyrsta
mark Brighton með þrumufleyg af 25
metra færi, og átti stærstan þátt í
sigurmarkinu sem kom nokkru síðar,
átti þrumufleyg að marki Wednesday
og miðframherjinn Michael Robinson
tók við knettinum úr höndum mark-
varðar Wednesday, Bob Boulder, sem
ekki hélt þrumuskoti Jimmys Case, og
skoraði af stuttu færi. Það var Júgó-
slavneski leikmaðurinn með Wednes-
day, Ante Miocevic sem hafði jafnað
fyrr í vetur. Deehan skoraði á 48. og 63.
mínútum, og 43 stig eru nú í höfn hjá
Norwich, og fallhrollurinn ekki eins
yfirþyrmandi eins og áður. Áhorfend-
ur tæp 16 þús.
Fallhrollurinn stendur aðeins nær
þeim í Luton, en samt sigla þeir fyrir
nokkrum byr burt af botninum, liðið
gerði jafntefli á laugardag gegn Notts
County á County Ground í Notting-
ham, og hafði sigrað í tveimur leikjum
í röð þar á undan. Það leit þó ekki
vænlega úr fyrir Luton, Notts County
átti aragrúa tækifæra í fyrri
hálfleik, sem liðið þó ekki nýtti sér og
það var ekki fyrr en í síðari hálfleik að
John Chiedozie braut ísinn. Þetta
mark virtist ætla að ráða úrslitum, en
einni mínútu fyrir leikslok jafnaði Mal
Donaghy fyrir Luton beint úr auka-
spyrnu. Áhorfendur í Nottingham um
10 þús.
Swansea byrjaði vel á móti Stoke á
Wetch Field í Swansea, skoraði fyrsta
markið á 38. mínútu, og var þar að
verki Jeremy Charles. En Swanseá
missti tökin á leiknum eftir þetta
mark, og Stoke jafnaði á 56. mínútu.
Micky Thomas skoraði eftir hom-
spyrnu lans Painter. Áhorfendur á
Vetch Field rúmlega 10 þúsund.
Það var allt útlit fyrir jafntefli í
rólegheita leik, sem í reynd var víst
hálfleiðinlegur á að horfa, í Cöventry,
þcgar Birminghamstrákarnir komu
þangað í heimsókn. Sú varð þó ekki
raunin, því að John Phillips skoraði
sigurmark fyrir Birmingham tveimur
mfnútum fyrir leikslok, og Birming-
ham gat víst örugglega notað þau stig.
millum þrumuskota Case, en það kom
fyrir ekki.
Um leið og Brighton náði úrslitasæt-
inu í bikarkeppninni, og lék þar af
leiðandi ekki í deildinni, féll liðið
niður í neðsta sæti fyrstu deildar, að
vísu með leik til góða. Allt útlit er nú
fyrir að Brighton þurfi að eiga mjög
góða leiki það sem eftir er af deildinni
ef þeir ætla ekki að falla í aðra deild.
Fari svo að Brighton falli en vinni
leikinn 21.maí eru þeir fyrsta liðið í
sögu knattspyrnu á Bretlandseyjum,
sem vinnur bikarinn og fellur í aðra
deild á sama keppnistímabilinu. Þetta
er í fyrsta sinn sem Brighton kemst í
úrslit í bikarkeppninni, en Manchester
United hefur orðið bikarmeistari
fjórum sinnum á 74 ára ferli félagsins og
sækir örugglega fast að ná titlinum í
fimmta sinn.
Sólargeisli á Maine Road
Manchester City hrifsuðu einn sól-
argeisla til sín í svatnættið sem hefur
umlukið þá undanfarið með því að
sigra West Ham á Maine Road í
Manchester. Tvö mörk snemma í
leiknum gerðu út um hann, gullfallegt
skallamark Bobbys Mc Donald á 14.
mínútu og vítaspyrna sem Dennis
Tueart skoraði úr á 21. mínútu. Þessi
sigur gæti reynst nægilega þungur á
metunun til þess að Manchesterliðið
haldi sæti sínu í fyrstu deild, nokkuð
sem ekki var á spánni hjá mörgum í
haust, að City mundi heyja fallbaráttu
nú undir vorið.
Þau þrjú lið sem eru á botninum nú
eru Brighton með 35 stig og á 6 leiki
eftir, og Birmingham og Swansea með
37 stig og eiga bæði eftir 5 leiki. Þau
lið sem eru í töluverðri fallhættu eru:
Luton með 41 stig og á 6 leiki eftir,
Norwich með 43 stig og 6 leiki eftir,
Manchester City með 44 stig og fjóra
leiki eftir, og Sunderland með 44 stig
og 6 leiki eftir.
Queens Park Rangers héldu sæti
sínu á toppi annarrar deildar, án þess
að leika, enda höfðu þeir fyrir fjögurra
stiga forskot. Þeir hafa 72 stig. Úlfarnir
hafa 69, Fulham 63,Leicester heldur
áfram að sækja í þriðja sætið að
minnsta kosti, eru með 61 stig. Fulham
gcrði jafntefli við jafnteflisprinsana á
Elland Road í Leeds, og það gerðu
einnig Úlfarnip heima markalaust gegn
Boltunum. Á meðan sigraði Leicester
Rotherham örugglega 3-1 heima hjá
sér á Millmor Ground.
Urslit
■ staoan ettir teiki helgarmnar er nú
jjcssi:
I. deild:
Liverpool .... 37 24 9 4 85-29 81
Watford..... 37 20 4 13 67-48 64
Manch. Unit. . 34 16 12 6 46-26 60
Aston Villa .. 36 18 4 14 53-44 58
Nott. Forest.. 37 16 8 13 52-46 56
Stoke City ... 37 16 7 14 51-52 55
Southampt... 37 15 10 12 50-51 55
Tottenham .. 36 15 9 12 54-46 54
WestHam .. 36 16 4 16 57-54 52
Everton..... 36 14 9 13 55-45 51
Ipswich..... 37 13 11 13 54-44 50
Arsenal..... 35 13 10 12 46-47 49
West Bromw . 36 12 11 13 47-46 47
Notts County . 38 13 7 18 50-65 46
Covent. City . 37 12 9 16 43-52 45
Sunderland .. 36 11 11 14 41-51 44
Manch. City . 38 12 8 J8 45-64 44
Norwich City. 36 11 10 15 42-52 43
LutonTown . 36 10 11 15 58-73 41
Swans. City .37 9 10 18 46-59 37
Birm. City ... 37 8 13 16 33-53 37
Brighton .... 36 8 11 17 34-62 35
Stadam
i. deitd
Q.P.R. ... 35 22 6 7 68 30 72
Wolves .... 37 19 12 6 61 37 69
Fulham ... 36 18 9 9 59 40 63
Leicester ... 37 18 7 12 67 41 61
Leeds........ 36 13 17 6 46 39 56
Oldham .... 37 12 18 7 55 39 54
Newcastle . 36 14 12 10 58 47 54
Bamsley . . 36 14 11 11 54 46 53
Sheff. Wed . . 35 13 O 9 51 39 52
Shrewsb. . . 37 13 13 11 44 44 52
Blackbum . 37 13 10 14 51 52 49
Cambridge . 37 11 11 15 37 52 44
Grimsby ... 37 12 8 17 43 64 44
Cariislo ... 37 11 10 16 63 63 43
Derby........ 37 8 18 11 44 51 42
Middlesbr. . 37 10 12 15 43 65 42
Chelsea ... 37 10 11 16 48 56 41
Charlton ... 36 11 7 18 50 76 40
Crystal P ... 36 9 12 15 35 46 39
Bolton....... 37 10 9 18 39 56 39
Rotherham . . 37 9 12 16 38 59 39
Burnley ... 35 9 6 20 48 60 33
■ Úrslitin á laugardaginn i ensku
knattspyrnunni urðu þessi:
Bikarkcppni, fjögurra liða úrslit:
Arscnal-Man. Utd. 1-2
Brighton-Sheffidd Wed. 2-1
2. deild:
Coventry City-Birmingham j0-l
Manchestcr City-West Ham 2-0
Norwich City-Sunderland 2-0
Notts County-Luton 1-1
Southampt.-Liverpool 3-2
Swansea City-Stoke City 1-1
Tottenham-Ípswich Town 3-1
Watford-Nottingham For 1-3
2. deild:
Blackburn-Crystal Palace 3-0
Cantbridgc-Shrewsbury 0-0
Carlisle-Burnley . 1-1
Chelsea-Newcastle 0-2
Derby County-Barnslev 1-1
Grimsby-Middlesbrough 0-3
Leeds-Fulham 1-1
Leicestcr-Rotherham 3-1
Wolverhampt-Bolton 0-0
3. deild:
Bradford City—Millwali 0-0
Brcntford-Walsall 2-3
Bristol-Prcston 3-2
Chesterfield-Exeter 1-3
Doncaster-Oxford 0-1
Lincoln-Wrexham 2-0
Newport-Portsmouth 0-3
Orient-Huddersf 1-3
Plymouth-Sheffield 3-1
Reading-Gillingham 0-0
Southend-Bournemouth 0-0
Wigan-Cardiff City 0-0
Skotland
Skoska bikarkeppnin, fjögurra liða
úrslit:
Aberdeen-Celtic 1-0
Rangers-St. Mirren 1-1
Úrvalsdcild:
, Morton-Hibernian 0-1
Staðan í Skotlandi er nnú þessi:
Celtic........ 31 22 5 4 77-30 49
Dundee Utd .. 31 19 8 4 73-32 46
Aberdeen ... 30 20 4 6 60-24 44
Rangers..... 31 10 12 9 41-34 32
St. Mirren ... 31 8 11 12 37-44 27
Hiabemian ..31 7 13 11 34-42 27
Dundee ....... 31 8 10 13 38-46 26
Motherwell .. 31 10 4 17 36-61 24
Norton...... 32 6 8 18 30-64 20
Kilmarnock .. 31 3 9 19 25-74 15
■ Norman Whiteside er yngsti leikmaðursem skorað hefur mark i úrslitaleik bikarsins, og nú sigurmarkið gegn þeim í undanórslitum bikarkeppninnar.
á Wembley. Á myndinni er hann nýbúinn að skora gegn Liverpool í úrslitaleik Þessi 17 ára gamli Iri ætlar að reynast Manchester United drjúgur, ef hann
mjólkurbikarsins. Whiteside skoraði gegn Arsenal í undanúrslitum mjólkur- heldur uppteknuin hætti.
UVERP00L LA Á THE DELL -
FOREST LAGÐI WATTORD
— Botnbaráttan og baráttan um Evrópusætin f algleymingi