Tíminn - 26.04.1983, Side 4

Tíminn - 26.04.1983, Side 4
ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1983 14 fþróttir enska knattspyrnan Nú skeiðar Norwich upp stigatöfluna! í»i — sigradi Liverpool á Anfield Road 2-0 um helgina - Watford lá á Old Trafford I Brian Talbot (t.v.) fór ekki eins halloka um helgina eins og hann fer á þessi mynd. Hann skoraði öll mörk Arsenal á Highbury gegn Manchester United, þau voru þrjú. ■ Norwich, lið sem er búið að vera botnlið í allan vetur hefur tekið umtals- verðan sprett undanfamar vikur. Nú síðast á laugardag sigraði liðið Liver- pool nokkuð sannfærandi á Anfield Road, og gerði að veruleika fyrsta ósigur meistaranna á heimavelli í 27 leiki. Þetta var einnig 9. leikur Nor- wich í röð án taps, og er liðið nú með 49 stig, og nánast úr fallhættu. Á meðan þetta gerðist á laugardag, sigr- aði Manchester United Watford á Old Trafford, og getur enn náð Liverpool að stigum og markahlutfalli, þó sá möguleiki sé heldur langsóttur. I ann- arri deild tryggði Queens Park Ran- gers sér fyrstu deildar sæti, með 1-0 sigri á Leeds. Liverpool er enn með 81 stig í fyrstu deild. Manchester United hefur 63 stig, og sá möguleiki er fyrir hendi, þó eins og áður er sagt langsóttur sé, að Manchester United næli í Englands- meistaratitilinn. Fari menn að leika sér með tölur kemur það í ljós, að ef Liverpool tapar öllum leikjunum sem það á eftir í deildinni, þeir eru alls fjórir, og Manchester United vinnur alla leikina sem það á eftir, þeir eru sex, eru félögin jöfn að stigum. En það er ekki nóg fyrir Manchester United. Liverpool hefur 54 mörk í plús, en Manchester United 20. Þannig yrðu úrslit í leikjum liðanna sem eftir eru að verða algjört „frík“ ef svo á að fara að Manchester United verði meistari. Þess vegna segist það hér, eins og oft hefur verið sagt áður að Liverpool eru orðnir Englandsmeistarar, ef „fríkúr- slit“ koma ekki á löngu færibandi. Aðdáendur Liverpool, sem þegar eru búnir allflestir að óska sínum mönnum til hamingju með Englands- meistaratitilinn, alla vega í huganum, biðu eftir þvt á laugardaginn að reka upp endanlegt siguröskur. En tæki- færi til þess kom bara alls ekki. Allt gekk Liverpool í óhag þennan daginn, og á 52. mínútu leiksins varð Mark Lawrenson, hinum írska varnarmanni Liverpool það á að stinga sér og skalla hörkufyrirgjöf frá Mark Barham, með þeim afleiðingum að knötturinn sveif í netið hjá Bruce Grobbelaar, sem enga vörn gat við þessu veitt. Hetjulegir varnartilburðir urðu að martröð. Liverpool lék öflugan sóknarbolta það sem eftir var leiks, til þess að jafna þó ■ Vel getur farið svo, að skoska stórliðið Aberdeen nái einkar athygl- isveðri þrennu á þessu keppnistíma- bili. Aberdeen er komið í úrslit Evrópukeppni Bikarhafa, leikur þar gegn Real Madrid, er komið í úrslit skosku bikarkeppninnar, hvar það leikur gegn St. Mirren og hefur nú ágæta stöðu í skosku deildinni, er í þriðja sæti, fjórum stigum á eftir Dundee United, og þremur á eftir Celtic, en á tvo leiki til góða. Það iagaði stöðu Aberdeen mjög í skosku úrvaisdeildinni, að liðið sigraði topp- liðið Celtic á laugardag, 1-0, þó svo að Dundee United skytist á toppinn með 4-0 sigri á botnbaráttuliðinu Kilmar- nock. Mark McGee skoraði mark Aber- deen með skalla, og það var nóg til að ekki væri meira, eitt stig í viðbót er nefnilega nóg fyrir meistaratignina. En það fór á annan veg, á 72. mínútu innsiglaði Martin O’Neil sigur Norwich með sérlega skemmtilegu marki, skoti af 30 metra færi sem klauf loftið og hafnaði efst í markhorninu hjá Grobb- elaar. Rúmlega 37 þús. áhorfendur sáu leikinn, og sáu ekki fleiri mörk en þessi tvö. Cunningham byrjar vel Laurie Cunningham, sem Manchest- er United fékk að láni hjá Real Madrid, þar sem strákur hefur átt við mikil meiðsli að stríða og ekki komist í lið sl. 8 mánuði, byrjar vel í lánstúrn- um. Cunningham skoraði fyrsta mark Manchester United gegn keppinaut- unum frá Watforde, á 50. mín. eftir að Steve Sherwood markvörður hafði ekki haldið fastri hornspyrnu frá Wilkins. Tólf mínútum síðar var Frank Stapleton felldur innan vítateigs og Ashley Grimes skoraði örugglega úr vítaspyrnunni, 2-0 og ekki fleiri mörk. Þessi sigur Manchester United kemur áreiðanlega til með að vega þungt í baráttunni um annað sætið í fyrstu deild. Þar er Watford reyndar enn, en Manchester United hefur einu stigi minna, og tveimur leikjum færra. Áhorfendur á Old Trafford voru rúm- lega 43 þús. Leeds-maðurinn reynist vel Terry Connor, nýkeyptur frá Leeds United til Brighton, ætlar að reynast vel, ef svo fer sem horfir. Hann skoraði sigurmark Brighton gegn Co- ventry í Brighton á laugardag, á 79. mín. Þrjú stig þar gefa Brighton þessu liði, sem leikur í maí á Wembley um bikarinn gegn Man. Utd. og heyr nú' harðvítuga fallbaráttu í 1. deild, nýja og betri von um að halda sæti sínu í deildinni. Von sem þó var skyggð samdægurs með 3-1 sigri Luton á Swansea, og 1-0 sigri Birmingham á Everton. Sigurinn var ekki útgjalda- laus, Jimmy Case, sem skorað hefur í þremur síðustu leikjum liðsins í bikar- keppninni, varð að fara út af vegna meiðsla á ökkla, og bakvörðurinn Chris Ramsey var rekinn út af í annað sinn í þessum mánuði. Áhorfendur í Brighton voru rúmlega 14 þús. fyrstaÚnarkið gegn Kilmarnock á 14. mín., og þr'iðja fyrir leikhlé. John Holt skoraði í millitíðinni, og Paul Sturrock bætti ffóíða markinu við rétt fyrir leikhléT , Rangers sem er úr leik hvað varðar meistaratitla þetta árið, hélt áfram baráttunni fyrir UEFA sæti með góð- um árangri, sigraði Morton 2-0. John McUonald skoraði á 34. mín., og Ian Redford bætti við öðru eftir leikhlé. Frank McCavennie skoraði þrennu í 4-0 sigri St. Mirren á Motherwell, stórar tölur af eða á hjá Jóhannesi Eðvaldssyni og félögum þessa dagana, á meðan Hibernian varð að láta sér lynda jafntefli, án marka gegn Dund- ee. v Það var allt útlit fyrir jafntefli án marka í Birmingham, þegar Robert Hopkins skallaði boltann í mark Ever- ton tveimur mínútum fyrir leikslok, og rúmlega 11 þúsund áhorfendur í Birm- ingham gátu fagnað sigri sem gaf liðinu þrjú dýrmæt stig í botnfenjabarátt- unni. Talbot gerði þrjú Brian Talbot var í essinu sínu með Arsenal á laugardag. Hann skoraði öll þrjú mörk Arsenal á Highbury gegn Manchester City, sem siglir hraðbyri niður stigatöfluna, og er nú komið á verulega hættulegt svæði. Tvö fyrstu mörk Talbots voru lögð upp af Kenny Sansom, á 24. og 70. mín., og það þriðja fimm mínútum fyrir leikslok skoraði Talbot viðstöðulaust eftir hornspyrnu. Tæplega 17 þús. áhorf- endur sáu leikinn á Highbury. Stoke hafði lengi vel forystu gegn Southampton 1-0 eftir mark George Berry á 59. mínútu, og allt leit út fyrir heimasigur. En þremur mínútum fyrir leikslok missti markvörður Stoke, Pet- er Fox boltann frá sér og David Wallace jafnaði. Leikmaður Stoke og fyrrum stjarna Southampton og enska landsliðsins, Dave Watson, var heiðr- aður sérstaklega fyrir leikinn þar sem hann lék þarna í síðasta skipti fyrir Stoke, áður en hann gengur í raðir Vancouver Whitecaps í Bandaríkjun- um. Áhorfendur tæplega 15. þús. Walsh byrjaður aftur Paul Walsh, sem ekki hefur skorað í 13 deildarleikjum fyrir Luton vaknaði hressilega til lífsins á laugardag, skor- aði öll þrjú mörk Luton sem dugðu til þess að sökkva Swansea þennan daginn, enda ekkert þeirra gert fyrr en í síðari hálfleik. Walsh skoraði á 55. og 74..mínútu, fimm mínútum fyrir leiks- lok skoraði Bob Latchford sitt 30. mark á keppnistímabilinu fyrir Swan- sea, en mínútu síðar átti Walsh síðasta orðiö. Rúmlega 11 þús. áhorfendur. West Ham er á mikilli uppleið þessa dagana, hefur leikið hvern góðan leik- inn af öðrum undanfarið. Álaugardag- inn sigraði West Ham Aston Villa, sem þrátt fyrir þetta tap gæti blandað sér í baráttu Man Utd. og Watford. Dave Swindlehurst skoraði gott mark á 58. mínútu í sínum fyrsta leik eftir meiðsli nú í smátíma, og 13 mínútum fyrir leikslok bætti Billy Bonds um betur, tók klasSasendingu frá Alan' Devonshire, og skoraði með föstu lágu skoti, 2-0. Finninn skoraði á fyrstu mínútu Aki Lahtinen, tengiliðurinn snjalli frá Finnlandi, sem leikur með Notts County skoraði strax á fyrstu mínútu í leik County gegn hinu Nottingham liðinu, Forest. Nottingham Forest sigr- aði þó, Kenny Swain jafnaði á 13. mín., og Mark Procton skoraði sigur- markið átta mín síðar. Rúmlega 25 þúsund áhorfendur í Nottingham. Derek Statham, landsliðsvarnar- maður Englands tiltölulega nýbakað- ur, gerði slæm mistök sem Steve Archi- bald færði sér vel í nyt á 29. mín. og sjötta tap West Bromwich Albion varð staðreynd, Tottenham fór með stigin. Tæplega 15 þúsund áhorfendur. John Wark skoraði tvisvar fyrir Ipswich á laugardag gegn Sunderland. Wark skoraði fyrsta mark Ipswich á 36. mínútu, Paul Mariner bætti öðru við á 44. mín, en Nick Pickering svaraði fyrir Sunderland á 68. mín. Wark var aftur á ferðinni á 77. mín., og Robert Turner átti síðasta orðið fyrir Ipswich einni mínútu fyrir leiks- lok. Áhorfendur í Ipswich voru rúm- lega 16. þús. Enn sömu á botninum Swansea með 37 stig, Brighton með 39 stig og Birmingham með 40 eru enn líklegust til að falla í aðra deild, þegar litið er á stigatöfluna. Þó er eins líklegt að Manchester City falli, eins og málum er komið, þeir eru næst fyrir ofan ásamt Luton með 44 stig. City hefur þó leikið einum leik fleira en öll hin fjögur. Sunderland og Coventry eru líka á hættusvæði, bæði með 45 stig. Queens Park Rangers eru nú með 78 stig í annarri deild, og geta ekki annað en verið meðal þriggja efstu, þegar upp verður staðið. Þeir eiga fimm leiki eftir. Úlfarnir höfðu fyrir helgina 69 stig og Fulham 66, bæði áttu eftir fimm leiki. Úlfamir gerðu markalaust jafn- tefli við Middlesbrough, og Fulham tapaði 1-0 fyrir Leicester, og Leicester hefur nú 64 stig, og virðist til alls líklegt. Ian Wilson skoraði sigurmark Leicester eftir 62 mínútna leik, aðeins nokkrum sekúndum eftir að mark Fulham, sem Gordon Davies hafði skorað var dæmt af. Nú skilja liðin bara tvö stig. NÆR ABERDEEN ÞREMUR TITLUM? — á enn góda möguleika á skoska meistaratitlinum lpggjífpá grænröndóttu. Hjá Dundee Úniftd var Derek Stark í stuði, skoraði Urslit ■ Úrslitin á laugardag urðu þessi: 1. DEILD: Arsenal-Manchester City 3-0 Birmingham-Everton 1-0 Brithton-Coventry 1-0 Ipswich-Sunderland 4-1 Liverpool-Norwich 0-2 Luton-Swansea 3-1 Manchester Utd.-Watford 2-0 Nottingham For.-Notts County 2-1 Stoke City-Southampton 1-1 West Bromwich-Tottenham 0-1 West Ham-Aston Villa 2-0 2. DEILD: Barnsley-Blackburn 2-2 Bolton-Camhridge 2-0. Burnley-Cheisea 3-0 Crystal Pal.-Grimsby 2-0 Fulham-Leiccster 0-1 Middlesbrough-Wolves 0-0 Newcastle-Charlton 4-2 Oldham-SheRicld 1-1 Q.P.R-Leeds 1-0 Rotherham-Derby 1-1 Shrewsbury-Charlisle 2-1 Stadam Staðan eftir leiki heigarinnar er þcssi: 1. DEILD: Liverpool 38 24 9 5 85-31 81 Watford 38 20 4 14 67-50 64 Manc. Utd. 36 17 12 7 48-28 63 Aston Villa 38 19 4 15 54-46 61 Nott.For. 38 17 8 13 54-47 59 Tott. Hotspur 37 16 9 12 55-46 57 Stoke City 38 16 8 14 52-53 56 Southampton 38 15 11 12 51-52 56 WestHam Utd. 37 17 4 16 59-54 55 Everton 38 15 9 14 57-46 54 Ipswich Town 38 14 11 13 58-45 53 Arsenal 37 14 10 13 50-50 52 Norwich City 38 13 10 15 47-53 49 West Bromw. 38 12 11 15 47-48 47 Notts C. 39 13 7 19 51-67 46 Coventry C. 38 12 9 17 43-53 45 Sunderland 38 11 12 15 43-56 45 Luton Town 37 11 11 15 61-74 44 Manch. City 39 12 8 19 45-67 44 Birmingh. C. 38 9 13 16 34-53 40 Brighton 38 9 12 17 36-63 39 Swansea C. 38 9 10 19 47-62 37 2i DEILD: Q.P.R 37 24 6 7 70-30 78 Wolves 38 19 13 6 61-37 70 Fulham 38 19 9 10 60-41 66 Leicester 38 19 7 12 68-41 64 Newcastle 38 16 12 10 66-49 60 Leeds Utd. 37 13 17 7 46-40 56 Oldham 39 12 19 8 57-44 55 Shrewsbury 38 14 13 11 46-45 55 Barnsley 38 14 12 12 56-49 54 Sheff. Wed. 37 13 14 10 52-41 53 Blackburn 38 13 11 14 53-54 50 Cambridge 38 11 11 16 37-54 44 Grimsby 38 12 8 18 43-66 44 Carlisle 38 11 10 17 64-65 43 Derby 38 8 19 11 45-52 43 Middlesbr. 38 10 13 15 43-65 43 Charlton 38 12 7 19 56-81 43 C. Palace 37 10 12 15 37-46 42 Bolton 38 11 9 18 41-56 42 Chelsea 38 10 11 17 48-59 41 Rotherham 39 9 13 17 39-64 40 Burnley 36 10 6 20 51-60 36 Skotland ■ Úrslit í skosku úrvalsdeildinni urðu þessi um helgina: Aberdeen-Celtic 1-0 Dundee Utd.-Kilmamock 4-0 Hibemian-Dundee 0-0 Rangers-Morton 2-0 St. Mirren-Motherwell 4-0 Staðan í skosku úrvalsdeildinni er nú þessi: Dundee Utd. . 33 21 8 4 79-32 50 Ceitic...... 33 22 5 6 77-33 49 Aberdeen ... 31 21 4 6 61-24 46 Rangers..... 32 11 12 9 43-34 34 St. Mirren ... 32 9 11 12 41-44 29 Hibernian ... 32 7 14 11 34-42 28 Dundee ...... 32 8 11 13 38-46 27 Motberwell .. 32 10 4 18 36-68 24 Morton...... 33 6 8 19 30-66 20 Kilmamock .. 32 3 9 20 25-78 15

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.