Tíminn - 12.07.1983, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ1983
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ1983
13
12
íþróttir
Knatt-
spyman f
kvöld:
■ Einn leikur er í 1. deild íslands-
inótsins í knattspymu í kvöld. Er það
leikur Knattspyrnufélags Reykjavíkur
ug Þróttar og fer leikurinn fram á
Laugardalsvellinum og hcfst kl. 20.00.
Einn leikur er svo í 2. deildinni í
kvöld. Er það leikur Víðis og Völsungs
sem fram fer í Garöinum. Sá leikur
hefst einnig kl. 20.00.
Anton sendir
Jóhannesi
Svíana á
vídeó-
spólum:
■ íslcndingar og Svíar leika hér
landsleik, miðvikudaginn 17. ágóst.
Eins og alkunna er, þykja Svíarnir
með mjög sterkt knatlspyrnulandsliö
um þcssar mundir og náð fráhærum
árangri gegn nokkrum sterkustu knatt-
spymúþjóðum hcims. M.a. gert jafn-
tefli við Brasilíu, 3-3.
Anton Bjarnason, sem staddur er i
Sviþjóð, hefór sent Jóhannesi Atlasyni
landsliðsþjálfara, vidcóspólur, nicð 3
síðustu leikjum Svía, þar á meðal
leiknum við Brassana eitruðu.
Mun Jóhannes ætla að „stúdcra"
lcik sænska liðsins, þannig að liægt sé
að koma með krók á móti hragði en
þcir hyggjást taka okkur Islendingana
í karphúsið fræga!
Oddur og
Óskar ekki
í stúði:
■ Á föstudagskvöldiö hljóp Oddur
Sigurðsson í undanúrslilum 200 ni
hlaupsins og hljóp á tímanum 21,65
sek og komst því í undanrásirnar. í
undanrásunum hljóp lianu á 21,64 sck
sem þvi miður nægði honum ekki til að
koinast í úrslit.
Óskar J akohsson komst auöveldlcga
í úrslitakeppnina á kasti upp á 56,90
metra, en þcgar i úrslitakcppnina kom
náöi hann aðcins að kasta kringlunni
54,36 metra, næstuin 10 metrum frá
hans persónulega meti. liafnaði Skari
í 12. sæti, en liann hcfur reyndar ekki
æft kringlukastiö i lengri tima.
Valsmenn með
hópferð á
bikaríeikinn
■ Valur og Akranes leika á miðviku-
daginn að nvju i 16 liöa úrslitum
bikarkeppni KSÍ, en liðin skildu jöfn í
síðustu viku eftir framlcngdan leik.
Nú verður leikið á Akranesi og hefst
leikurinn kl. 20.
VaLsmenn efna til hópferðar á leikinn
' og verður lagt af stað frá Valshcimilinu
að Hlíðarenda kl. 18 stundvíslgga og
ekið síðan til baka strax að leik
loknum. Verð er kr. 150.
2. deiid... 2. deild... 2. deild... 2. deild...
2. deild... 2. deild... 2. deild... 2. deild...
■ Hér standa þeir Heimir Karlsson og Jóhann Grétarsson í ströngu.
Tímamynd: Ari
Baldur Scheving var ekki í essinu sínu í
þessum leik.
Megi Guð og gæfan nú fylgja framherjum
sem varnarmönnum, miðvallarspilurum sem
markvörðum, þannig að fleiri mörk fái að líta
dagsins ljós í komandi leikjum.
Skallaeinvígi Benna og Magga býður upp á svipbrigði!
Tímamynd:Ari.
Meistaramót Islands í sundi:
GUÐRUN FEMA SEITI
GuESUÐSr METI
■ Guðrún Fema Ágústsdóttir setti íslandsmet á Meistaramóti íslands í
sundi, sem fram fór í Laugardalslauginni um helgina. Mikil afrekskona,
Guðrún Fema, missti úr sex vikur í æfingar v/meiðsla en náði þessu samt.
Til hamingju vinan!
HEPPNIN
MEÐ ÍBV LIÐ-
INU Á ÍSAFIRÐI
ÞÓRSARAR UNNU
ÖRUGGAN SIGUR
Á SKAGAMÖNNUM
A UTIVELLI, 2-0
100 M SKRKKSUNDI
■ Það verður að segjast eins og er að það
sæmir illa Íslandsmeisturum að hafa aðeins
skorað 6 mörk í 9 leikjum íslandsmótsins. Einn
sigur, scx jafntefii og tvö töp er árangur liðsins.
Nú síðast varð markalaust jafntefli í Kópavog-
inum þar sem Víkingar og Breiðablik léku. Þó
að leikurinn hafi verið ágætlega leikinn, vilja
áhorfendur fá að sjá mörk.
Víkingar voru ívið sterkari í leiknum án þess
þó að miklu hafi munað á liðunum.Breiðablik
lék undan vindi í fyrri hálfleik en náði þó ekki
að nýta sér Kára nógu vel. Á 15. mínútu fékk
Sigurður Aðalsteinsson dauða færi við markteig
Breiðabliks eftir fyrirgjöf, en hitti ekki
knöttinn. Það hlýtur að vera þessum ágæta
leikmanni mikill höfuðverkur, hve hrikalega
illa honum hefur gengið að nýta sér þau færi
sem hann hefur fengið þegar hann spilar.
það voru löngu innköstin hans Ómars Rafns-
sonar sem sköpuðu mesta hættu við Víkings-
markið, því það er ekki heiglum hent að ná að
vinna skallaeinvígi gegn Jöni Gunnari Bergs,
hinum risavaxna miðverði Breiðabliks.
Það lifnaði dulítið yfir leiknum í síðari
hálfleik og Blikarnir komu meira inn í leikinn
og áttu 2-3 ágætis skot á Víkingsmarkið en
Ögmundur sá við þeim og varði vel. Heimir og
Ómar áttu líka skot að Blikamarkinu en þau
fóru yfir.
Síðustu mínúturnar voru Víkingar meira í
sókn en náðu ekki að skora frekar en fyrri
daginn, lokatölur sem sagt 0-0.
■ ísfirðingar og Vestniannacyingar skildu jafnir á ísafirði er liðin léku þar á
laugardaginn. Hvort lið skoraði tvö mörk.
Vestmannaeyingar léku undan vindi í fyrri hálfleik en höfðu þó ekki neina yfirburði
umfram ísfirðinga. Var hálfleikurinn mjög jafn. Isfirðingar urðu fyrri til að skora og
skoraði þá Kristinn Kristjánsson á 26. mín., en Vestmannaeyingar jöfnuðu með marki
Tómasar Pálssonar á 37. mín. Staðan því 1-1 í hálfleik.
Síðari hálfleikur var að mestu leyti eign ísfirðinga en Vestmannaeyingar áttu þó
nokkur ágæt upphlaup og úr einu slíku skoraði Hlynur Stefánsson laglegt mark eftir
aukaspyrnu. Renndi hann knettinum í bláhornið framhjá Hreiðari Sigtryggssyni, sem
ekki átti möguleika í nákvæmt skotið. En ísfirðingar börðust og gáfu sig hvergi og
léku oft á tíðum nokkuö vel. Á 25. mín. skoraði Jón Oddsson, en það mark var dæmt
af vegna rangstöðu, sem var hárréttur dómur, en það tók Friðgeir dómara langan
tíma að ákveða sig, alltof langan. En ísfirðingum tókst þó að jafna og gerðu það á
88. mín. leiksins. Benedikt Einarsson hét pilturinn sá er jafnaði metin. Skoraði hann
eftir hornspyrnu.
2-2 urðu því úrslitin, en ísfirðingar áttu nú frekar sigur skilinn ef eitthvað er, því
þeir sóttu linnulítið allan síðari hálfleikinn og áttu mörg ágæt marktækifæri. Ámundi
Sigmundsson átti ágætan leik í jöfnu ísafjarðarliði og Kári Þorleifsson stóð sig vel í
ÍBV-liðinu. Ágætur dómari var Friðgeir Hallgrímsson.
- EVK/- Jól.
Frá Andrési Olafssyni á Akranesi:
■ Þórsarar komu heldur hetur á óvart er þcir sigruðu Skagamenn örugglega á
Skipaskaga, með tveimur mörkum gegn engu, nú um helgina. Mörkin skoruðu þeir
Halldór Áskelsson og Guðjón Guðmundsson. Sigurinn var mjög sanngjarn.
Á 13. mínútu fékk Halldór Áskelsson stungubolta inn fyrir Skagavörnina og
vippaði knettinum laglega yfir Bjarna markvörð, 1-0 varð staðreynd. Köld vatnsgusa
framan í piltana af Skaganum! Skagamenn voru þó nærri því að jafna 4 mínútum
síðar er Guðjón Þórðarson lét verja hjá sér af marklínu, skot hans frá markteig,
sannkallað dauðafæri. Á 23. mín. átti Sveinbjörn ágætt skot en rétt framhjá
Þórsmarkinu. Á 45. mínútu skoruðu svo Þórsarar síðara mark sitt og var það
stórglæsilegt. Guðjón Guðmundsson tók þá aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig
Skagamanna. Lét hann þrumuskot ríða af og sleikti það toppinn á varnarvegg ÍA og
þaut í þverslána og inn. Rosalegt!
Á 55. mín. myndaðist mikil þvaga við Þórsmarkið og ýmsir Skagamenn vildu fá
vítaspyrnu, en fengu ekki. Tveim mínútum síðar tekur Guðjón aðra aukaspyrnu en
nú fór knötturinn rétt yfir þverslána. Helgi Bentsson komst laglega gegnum
Skagavörnina á 79. mínútu en skaut rétt framhjá.
Leikslok: 2-0 fyrir Norðanmennina. Akureyringarnir voru mun betri en Skagamenn
sem voru fjarri sínu besta. Bestu menn Þórs voru þeir Þórarinn Jóhannesson,
miðvörður, Guðjón Guðmundsson og Helgi Bentsson sem Skagavörnin hreinlega réð
ekkert við í leiknum.
Sveinbjö.rn var skástur í slöku í A-liði og barðist vel.
Óli Ólsen átti hreint afleitan dag og menn höfðu á orði að hann hefði verið lélegasti
maður vallarins. - AÓl- Jól.
■ Meistaramóti íslands lauk nú um
hclgina í Laugardalslauginni. Árangur
yfir heldina varð ekkert sérstaklega
góður, en taka ber með í reikninginn að
hvasst og kalt var á meðan mótið fór
fram nema síðasta daginn. Eitt íslands-
met var þó sett og gerði það sundkonan
duglega, Guðrún Fema Ágústsdóttir.
Var það í 100 m skriðsundi sem metið
kom og kominn tími til enda fyrra metið
búið að standa frá árinu 1976. Guðrún
synti vegalengdina á 1:03,18, en metið
frá 1976 sem Vilborg Sverrisdóttir átti
var 1:03,27. Einst og fyrr sagði var
veðrið hvað skaplegast á sunnudaginn
enda árangurinn mun betri þá en hina
dagana.
Tryggvi Helgason synti 100 m bringu-
sund á mjög góðum tíma, 1:10,87 en met
hans er 10/100 úr sekúndu betra. Tryggvi
synti einnig mjög vel í 100 m flugsundi.
Þar varð tími hans 1:02,44 mín, aðeins
sekúndu frá meti Skagamannsins Inga
Þórs.
Pálsbikarinn, sem gefinn var af forseta
íslands árið 1958, féll í skaut Tryggva
fyrir besta afrek mótsins, þ.e. tíma hans
í 100 m bringusundinu.
Guðrún Fima sigraði í einum sex
greinum á mótinu, hafi ég talið rétt. Hún
sigraði í 400 m skriðsundi, 800 m
skriðsundi, 100 m bringusundi, 100 m
skriðsundi, 200 m bringusundi, auk þess
að vera í sigursveit Ægis í 4x100 m
fjórsundi kvenna.
Tryggvi og Hugi Harðarson, báðir frá
Selfossi, voru einnig mjög sterkir á
mótinu sigruðu í mörgum greinum hvor.
Miklir afreksmenn.
Elin Harðardóttir sigraði í 200 m
baksundi á tímanum 2:56,07. Eðvarð
Eðvarðsson sigraði svo í 100 m baksundi
eftir mikla keppni Við Huga, Eðvarð
fékk tímann 1:06,08 en Hugi synti á
1:07,71. Anna Gunnarsdóttir varð ís-
landsmeistari í 200 m flugsundi, synti á
2:46,16 mín.
Bryndís Ólafsdóttir, Þór, sigraði í 100
m flugsundi og 100 m baksundi og varð
önnur í 100 m skriðsundinu, á eftir
Guðrúnu Femu auðvitað.
Sveit Selfoss sigraði í 4x100 m fjór-
sundi karla og sveit HSK sigraði í 4x100
m skriðsundi kvenna.
Bestu menn voru þeir Jóhann og Ómar hjá
Breiðabliki en Ögmundur og Gunnar Gunnars-
son bestir í Víkingsliðinu, sem var þó frekar
jafnt.
■ Viðar var á skotskónum
VIDAR SKORADITVÖ BEINT ÚR AUKA-
SPYRNUM OG TRYGGÐIFH SIGURINN!
Víðir-KS 1-1
■ Siglfirðingar jöfnuðu 1-1 á elleftu stundu
í leiknum við Víði sem fram fór í Garðinum
á laugardagskvöld. Þrátt fyrir það hefði ekki
verið ósanngjarnt að þeir hefðu farið með
sigur af hólmi.
Norðanmenn sóttu linnulítið í upphafi
fyrri hálfleiks og voru klaufar að skora ekki
mark eða mörk, en gegn gangi leiksins voru
það Víðismenn sem urðu fyrri til. Þeir
skoruðu á 16. mínútu. Var þar að verki
Guðmundur Knútsson, sem skallaði knött-
inn glæsilega í marknetið hjá Siglfirðingum.
Eins og fyrr sagði jöfnuðu Siglfirðingar á
elleftu stundu með marki Mack Duffield.
Fram-Reynir 3-1
■ Framarar unnu öruggan og sanngjarnan
sigur á Sandgerðingum á Laugardalsvelli í
fyrrakvöld. Þeir skoruðu fyrstu tvö mörkin,
á 17. og 54. mín og í bæði skiptin var að verki
Kristinn Jónsson, miðvallarspilarinn afar-
knái. Reynismenn minnkuðu svo muninn á
60. mínútu með bananaskoti Jóns Guðmars-
sonar, („af ávöxtunum skulu þið þekkja
þá“). Hafþór Sveinjónsson skoraði sfðan 3.
mark Fram á 87. mínútu úr vítaspyrnu. Þess
má geta að Marteinn Geirsson kom inn á í
leiknum og er þetta fyrsti leikur hans í
sumar, en hefur verið frá vegna
meiðsla.
FH-Fylkir
■ Fh-ingar eru greinilega komnir á mikinn
skrið. Þeir sigruðu nú síðast Fylki, með
þremur mörkum gegn einu á Kaplakrikagras-
inu.
Fylkismenn urðu fyrri til að skora. Orn
Valdimarsson fékk stungu inn fyrir vörn FH
á 51. mínútu og skoraði fram hjá markverði
FH. Eftir þetta sóttu FH-ingar nær látlaust
en gekk erfiðlega að komast í gegnum
„þykka“ vörn Fylkis. En Viðar Halldórsson
kom þá eins og frelsandi engill á 81. mín. er
hann skoraði úr aukaspyrnu. Aðeins tveim
mínútum síðar skoraði hann annað og enn
úr aukaspsyrnu. Helgi Ragnarsson skoraði
svo 3 markið úr vítaspyrnu á lokamínútunni.
3-1, lokatölurnar.
Marteinn mættur í slaginn
BRBMBUKSMENN 0G VIK-
INGAR STBNGLEYMDÚ AÐ
RENA SKOTSKÓNA SMA s
O