Tíminn - 09.08.1983, Blaðsíða 2

Tíminn - 09.08.1983, Blaðsíða 2
iq !■) Lestunar- áætlun Hull/Goole: Jan ........ Jan ........ Jan ........ 22/8 5/9 19/9 Rotterdam: Jan ........ Jan ........ Jan ........ Antwerpen: Jan ....... Jan ....... Jan ....... Hamborg: Jan ...... Jan ...... Jan....... Jan ...... 23/8 6/9 20/9 24/8 7/9 21/9 12/8 26/8 9/9 23/9 Helsinki: Helgafell....................15/8 Helgafell.................... 9/9 Larvik: Hvassafell...................19/8 Hvassafell...................29/8 Hvassafell...................12/9 Hvassafell...................26/9 Gautaborg: Hvassafell...................18/8 Hvassafell...................30/8 Hvassafell...................13/9 Hvassafell...................27/9 Kaupmannahöfn: Helgafell....................18/8 Hvassafell...................31/8 Hvassafell...................14/9 Hvassafell...................28/9 Svendborg: Helgafell....................19/8 Hvassafell................... 1/9 Hvassafell...................15/9 Hvassafell...................30/9 Árhus: Hvassafell...................15/8 Hvassafell................... 1/9 Hvassafell ..................15/9 Hvassafell...................30/9 Gloucester: Jökulfell....................10/8 Skaftafell...................19/8 Skaftafell...................17/9 Halifax, Canada: Skaftafell...................20/8 Skaftafell...................19/9 SKIPAPEILD Sambándsins IPósth. 180 121 Reykjavík .Sími 28200 Telex 2101 * I • ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1983 ■ Ólafur Ragnar Grímsson hjólaöi með göngunni og stýrði framkvæmd hennar. Fridargangan ”83: SEX HUNDRUÐ LÖGDU AF STAÐ EN 34000 VORU A UTIFUNDI m ^ -•< :'V — .. \ r.v . Á ■ Gangan að koma inn í Reykjavík úr Kópavogi. ■ Um 600 manns lögðu af stað frá hliðinu aö Keflavíkurflugvelli kl. 9 á laugardagsmorguninn í Friðargönguna ’83. Gangan stóð í rúma 13 tíma með viðkomu í Vogum, Kúagerði, Straumi, Hafnarfirði og Kópavogi og henni lauk með fundi við Miðbæjarskólann í Reykjavík, þar sem sr. Rögnvaldur Finnbogason flutti ræðu, en hluti fund- armanna tókst í hendur og myndaði keðju sem náði milli sendiráða Banda- ríkjanna við Laufásveg og þess sovéska við Garðarstræti. Talið er að 3-4 þúsund manns hafi verið á fundinum. Þátttaka í aðgerðunum fór fram úr björtustu vonum sögðu aðstandendur göngunnar í gær. Þeir töldu að þessi ganga hefði um margt verið ólík fyrri Keflavíkurgöngum, áberandi hefði verið hve mikið ,var af ungu fólki í þessari aðgerð, sömuleiðis hefði miklu stærra hlutfall kvenna skráð sig í þessa göngu en hinar fyrri. Þá hefði vakið athygli hve margir mættu nú í aðgerðirnar sem aldrei hefðu tekið þátt áður. Hefði þar vafalaust komið tii að kröfur göngunnar voru almennara eðlis en fyrr og fólki verið heimilt að hafa uppi sínar eigin kröfur þótt þær færu ekki í öllu saman við höfuðkröfur göngunnar. Skipuleggjendumir óskuðu þess að komið væri á framfæri sérstöku þakklæti til lögreglunnar fyrir ómetanlega aðstoð, ekki síst hefði hún greitt mjög fyrir þegar verið var að mynda keðjuna, enda hefði það gengið fljótt og snurðulaust fyrir sig. - JGK. Gangan kemur inn í Hafnarfjörð. Tímamyndir: ARI. NORRÆN RÁÐSTEFNA UM umferðarmAl ■ Umferðarfæknisfræði- 0 félag Islands gengst fyrir Norrænni ráðstefnu um umferðarmál í þessari viku. Þetta er önnur ráð- stefnan sem Norðurlöndin halda um þessi mál, og sú fyrsta sem heilbrigðisstétt- ir halda hér á landi. Að þessu félagi standa m.a. heilbrigð- isstéttir, Umferðardeild lögreglunnar, Umferðarráð, Hjálparsveit skáta, Feril- nefnd fatlaðra og Bandalag lamaðra og fatlaðra. Hliðstæð félög eru til á öllum Norðurlöndunum en ísland hefur nokkra sérstöðu að því leyti að fatlaðir hafa aðild að því. A fundi með fréttamönnum kom fram í máli Ólafs Ólafssonar landlæknis og Sturlu Þórðarssonar fulltrúa lögreglu- stjóra að markmiðið með ráðstefnunni væri að vekja umhugsun um umferðar- mál og miðla fróðleik milli Norðurland- anna. Einnig að draga vandamál í umferðinni fram í dagsljósið, og fá betri uppíýsingar um slysavalda. Þessi ráð- stefna verður einnig sérstaklega helguð fötluðum og óvörðum vegfarendum í umferðinni. Um 40 fyrirlestrar verða fluttir á ráðstefnunni sem verður á Hótel Esju. Ráðstefnan hófst í gærmorgun og stend- ur til miðvikudags. - GSH Island á 12 milljón kókdósum ■ Kók-fyrirtækið í Hollandi hefur hleypt af stokkunum söluherferð í samvinnu við nokkur fyrirtæki og þar á meðal Arnarflug. Á 12 milljón dósa hefur verið prentað að fólk skuli safna 12 lokum af dósunum og senda inn og taki það þá þátt í keppni. þar sem vcrðlaun séu m.a. íslandsferð. Þegar fólk sendir svo inn lokin fær það sent þátttökublað, þar sem vmningunumcrlýst. 1. verðlaun er fi-rð til íslands með Arnarflugi scgir á þessu Jalaöi, sem er skreytt landslagsmynd frá íslandi. -Jól.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.