Tíminn - 15.09.1983, Blaðsíða 6
FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1983
BLAÐAUKI
BORGARNES
Hafdís Ólafsdóttir og Jón Stefán Karlsson eru hótelstjórar Hótel Borgarnes
■ Hótel Borgarnes. Að baki viðbyggingarinnar sést í turninn á kirkjunni
Hótel
Borgar
nes:
Stefnt að breytt-
um þjónustuháttum
■ Hótel Borgarnes hefur lengi verið
áningarstaður ferðamanna á Vesturlandi
og nýlega var húsið stxkkað verulega,
bxtt við 20 herbergjum og tveim sölum.
Nú eru 34 herbergi á hótelinu frá eins
uppí þriggja manna og mjög góð aðstaða
fyrir fundahöld og skemmtanir af ýmsu
tagi. Þarna er líka eini matsölustaðurinn
í Borgarnesi.
Hótelstjórar nú eru hjónin Hafdís
Ólafsdóttir og Jón Stefán Karlsson en
þau stjórnuðu áður sumarhótelinu í
Bjarkarlundi. Þau tóku við rekstrinum
1. desember s.l.
I spjalli við blaðamann Tímans sögð-
ust þau Hafdís og Jón vera að fikra sig
áfram með brcytta þjónustuhætti og
nýta þannig bctur þá möguleika sem
nýbyggingin hcfði uppá að bjóða. Þannig
hafa þau tekið annan nýja salinn, sem
er innaf gamla matsalnum, undir veit-
ingasal með þjónustu. í sumar hefur
matsölunni verið tvískipt þannig að í
gamla matsalnum er grillþjónusta fyrir
þá sem þurfa fljóta afgreiðslu en innar
er aðstaða fyrir þá sem vilja láta stjana
við sig og njóta góðs matar í rólegheit-
um.
Hafdís og Jón sögðu að það hefði
verið nóg að gera síðan þau tóku við
rekstrinum. Alltaf væri að aukast að
fundir og ráðstefnur væru haldin í
húsinu og í sumar hef^i verið tekið á
móti ferðahópum allflesta daga vikunn-
ar. Þá væru þarna dansleikir um helgar,
oftast diskótek en í sumar hefði bæði
Þórskabarett og Sumargleðin sótt stað-
inn heim svo nokkuð væri nefnt. Þau
sögðu að það væri áberandi hvað dans-
leikir færu þarna vel fram og engin
vandamál hefðu komið upp á dans-
leikjum.
Hjónin sögðu að Borgarnes ætti fram-
tíð fyrir sér sem áningarstaður ferða-
manna og stefnt væri að því að auka
þjónustu fyrir þá sem vildu ferðast um
Borgarfjarðarhérað með bækistöð í
Borgarnesi.