Tíminn - 11.10.1983, Blaðsíða 4
ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1983
SKORAN TVð
wmsjón: Samúei Öm ErKngsson
BflS HH
■ Kcvin Keegan er kominn í lands-
liðsform, segja breskir íþróttafrétta-
menn. Hann undirstrikaði þetta um
ihelgina með tveimur skallamörkum,
sem færðu Newcastle sigurinn. Ekki
er þó víst að kappinn mundi segja já
takk, ef hann yrði valinn í landsliðið,
því hann sagðist ekki mundu leika
fyrir England framar, þá hann var
fyrirliði og settur út úr hópnum.
- SÖE
og Newcastle
Wed. enn efst
Urslit
■ Úrslit í annarri deild ensku knatt-
spyrnunnar um helgina urðu þessi:
Brighton-Portsmouth .
Cambridge-C. Palace .
Cardiff-Carlisle.....
Derby-Barnsley.......
Fulham-Chelsea ....
Huddersneld-Grimsby
Man. City-Swansea . .
Middlesb.-Blackburn .
Newcastle-Charlton . .
Shcff.Wed.-Leeds . . .
Shrewsbury-Oldham . .
Sheff. Wed. .. . 9 7 2 0 18-7 23
Man. City ... . 9 7 1 1 20-8 22
Chelsea . 8 5 2 1 18-9 17
Newcastle ... . 9 5 2 2 17-10 17
Shrewsbury . . 9 5 2 2 15-10 17
Barnsley .... . 9 4 1 4 17-12 13
Huddersfield . . 8 3 4 1 10-6 13
Portsmouth .. . 9 4 1 4 13-11 13
Charlton .... . 9 3 4 2 8-12 13
Middlesbro .. . 9 3 3 3 12-12 12
Blackburn ... . 9 3 3 3 14-18 12
Brighton .... . 9 3 2 4 17-11 11
C. Palace .... . 8 3 2 3 12-12 11
Fulham . 9 3 2 4 14-15 11
Grimsby .... . 9 2 4 3 10-12 10
Cardiff . 8 3 1 4 7-9 10
Carlisle . 9 2 3 4 6-8 9
Cambridge .. . 8 2 2 4 9-11 8
Leeds . 9 2 1 6 10-19 7
Oldham . 9 1 3 5 5-15 6
Derby . 9 1 2 6 7-22 5
Swansea .... . 8 1 1 6 5-14 4
sigraði — Sheffield
— Man City á
sigurbraut —
Fulham tapadi
3-5 heima
fyrir Chelsea
■ ShefTield Wednesday er enn efst í
annarri deild ensku knattspyrnunnar,
sigraði um helgina Leeds United 3-1
heima. Manchester City er einnig enn
á sigurbraut, sigraði Swansea 2-1
heima, Fulham tapaði 3-5 fyrir Chel-
sea, þar sem Gordon Davies Fulham
gerði þrennu, og Kerry Dixon marka-
skorari Chelsea tvö, og Kevin Keegan
skoraði tvö skallamörk fyrir Newcastle
gegn Charlton í Newcastle. - Ekkert
var leikið í fyrstu deildinni á Englandi
um helgina, vegna yfirvofandi leiks
Englendinga og Ungverja
vikudaginn.
Það voru 26 þúsund manns á Hills-
brough í rigningunni að horfa á leik
ShefField Wednesday og Leeds. Sigur
Sheffield Wednesday í leiknum var
öruggur allan tímann, ef frá er skilinn
tíu mínútna kafli í upphafi síðari
hálfleiks. Leeds, sem hafði verið undir
allan tímann, og gert fátt af viti, náði
þá að skora fyrsta mark liðsins, og
Wednesday hafði ekki nema 2-1 for-
ystu. Það var Frankie Gray sem skor-
aði úr vítaspyrnunni fyrir Leeds.
Leeds sótti svo stíft, en þar kom að
bakvörðurinn gallharði í liði Wednes-
day Mel Sterland, rauk svo upp kant-
inn sex mínútum síðar, gaf fyrir, og
Chris Morris stakk sér og skallaði inn
frábæra sendinguna, 3-1. Þetta var
tuttugu mínútuiji fyrir leikslok, og
eftir þetta hafði Wednesday tögl og
hagldir. - Wednesday sótti stíft frá
upphafi leiksins, en stórleikur Davids
: -'f;
'í.'í
T
Harvey í markinu hélt Leeds á floti.
Gary Shelton skoraði fyrsta markið
eftir þvögu á 30. mínútu, og John
Pearson bætti öðru við í upphafi síðari
hálfleiks aleinn eftir hornspyrnu.
Derek Parlane skoraði fyrsta markið
fyrir Manchester City á Maine Road
eftir 12 mínútur gegn Swansea. Bob
Latchford jafnaði, en Ian Dixon vara-
maður skoraði sigurmark City einni
mínútu fyrir leikslok.
Það var nóg af mörkum á Craven
Cottage, þar sem Fulham fékk Chelsea
í heimsókn. Kerry Dixon, miðfram-
herji Chelsea kynnti sig þokkalega á
Craven Cottage, skoraði tvö mörk,
sem voru hans þrettánda og fjórtánda
á keppnistímabilinu. Joey Jones, Pat
Nevin og Colin Lee skoruðu hin fyrir
Chelsea, en Gordon Davies gerði öll
þrjú mörk Fulham. Þulurinn í BBC
taldi að þessi þrenna Davies ætti eitt-
hvað að bæta úr fyrir Davies, en hann
hefur átt í deilum við stjórn Fulham að
undanförnu.
Kevin Keegan er nú í landsliðsformi
að áliti breskra fréttamanna. Hann var
hetja Newcastle á laugardag gegn
Charlton, skoraði tvö mörk á síðustu
tuttugu mínútunum, mörk sem gerðu
út um leikinn. -Charlton hafði foryst-
una í leiknum þar til á 77. mínútu.
Paul Curtis skoraði með fallegu vipp-
skoti á 30. mínútu. En Keegan var á
ferð, hann skoraði fyrst eftir að Ryan
hafði gefið fyrir, Keegan stakk sér og
skallaði beint í netið sérlega glæsilega,
og annan skalla sendi Keegan stuttu
síðar í netið, nú eftir hornspyrnu og
skallaði hann milli tveggja varnar-
manna í netið. -Keegan brosti út að
eyrum það sem eftir var leiks, mátti
líka vera ánægður, skallamörk eru
ekki auðveldasta verkefni sem stuttir
strákar velja sér.
Micky Morgan skoraði eina mark
leiksins fyrir Portsmouth gegn Bright-
on í Brighton, þar gekk heimamönnum
ekki að skora. Þrátt fyrir að hafa
skorað 11 mörk á síðustu þremur
leikjum vildu Brightonmenn skora og
skora mikið, en það fór allt í vaskinn,
og leikurinn tapaðist. Brighton hefði
þó verðskuldað annað stigið.
-SÖE
■ Ásgeir Sigurvinsson, stjórnar en skorar litið.
Stuttgart auðveldlega áfram:
8 mörk gegn
Kölnarbúum
■ Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn:
Það var lítið gaman að horfa á
Ásgeir Sigurvinsson og VFB Stuttgart
mala áhugamennina frá Köln 8-1. Til
þess var Kölnarliðið allt of lélegt.
VFB Stuttgart lék þennan leik mjög
rólega, lét boltann vinna fyrir sig, og
forðaðist einstaklingseinvígi til að
koma í veg fyrir hugsanleg meiðsli. Og
til að gleðja hina 4500 áhorfendur á
nær troðfullum vellinum skoruðu þeir
líka 8 mörk, og sum ansi snotur.
Ásgeir Sigurvinsson var reyndar ekki
meðal markaskoraranna að þessu
sinni, en hann gladdi þó íslendingana
á vellinum með því að vera bestur
sinna manna ásamt Allgöwcr.
Atvinnumaðurinn Reiff, sem lék með
Köln í Stuttgart um síðustu helgi var
bcstur áhugamannanna.
- MÓ/SÖE
Dregið í 3. umf erð þýsku bikarkeppninnar:
STUTTGflRT FÉKK
HAMBURGER SV.!
— Toppliöin drógust saman — engin óvænt úrslit
í 2. umferð — áhugalið í undanúrslit?
■ Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn:
Önnur umferð þýsku bikarkeppn-
innar var leikin um helgina, og komst
VFB Stuttgart, lið Ásgeirs Sigurvins-
sonar, örugglega áfram og fær HSV í
heimsókn í þriðju umferð keppninnar
sem verður leikin 14. janúar nk.
Úrslitin í annarri umferð voru:
Gladbach-Bielefeld ........... 3-0
Köln-Offenbach ............... 6-2
Braunschweig-Osnabruck ....... 2-1
Aachen-Mannheim .............. 1-0
Freiburg-HSV.................. 1-4
Karlsruher-Kaiserslautern .... 5-4
Augsburg-Bayern Munchen ...... 0-6
Burglengenfeld-Bremen ........ 0-3
Kiel-Uerdingen ............... 1-2
Köln(áhugam,)-Stuttgart ...... 1-8
Charlottenburg-Schalke 04 ..... 0-3
Hcidingsfeld-Hannover 96 ...... 1-3
Bochholt-Stuttgarter Kickers .... 3-1
Neuhaus-Hertha Berlin ......... 0-2
Furth-Ludenscheid.............. 1-0
Isenburg-Göttingen 05 ......... 0-1
Eins og lesendur sjá, voru engin
óvænt úrslit í umferðinni.
Karlsruher, efsta liðið í annarri
deildinni sigraði fyrstu deildarliðið
Kaiserslautern 5-4 eftir framlengingu í
hörkuspennandi leik. Sigurmarkið var
skorað á síðustu sekúndum leiksins.
Um helgina var einnig dregið í 8 liða
úrslit bikarkeppninnar. og er það at-
hyglisvert að fjögur efstu lið Búndes-
lígunnar eiga innbyrðis hörkuleiki.
VFB Stuttgart var mjög heppið fjár-
hagslega. Leikirnir næstu untferð:
Stuttgart-Hamburger Sportverein
Uerdingen-Bayern Munchen
Hannover 96-Köln
Aachen-Werder Bremen
Schalke 04-Karlsruher FC
Fúrth-„Gladbach“
Bocholt-Braunschweig
Göttingen 05-Hertha Berlin
Áhugamannaliðin þrjú, Furth, Boc-
holt og Göttingen 05, eiga öll heima-
leiki og ekki mjög sterka andstæðinga,
þannig að hugsanlega kemst áhuga-
mannalið í fjögurra liða úrslit.
- MÓ/SÖE