Tíminn - 18.11.1983, Blaðsíða 2
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1983
Stórmarkad-
urinn
Mikligarður
opnaður:
■ Gífurleg örtröð var í nýja stórmark-
aðnum Miklagarði í allan gærdag. Þegar
opnað var í fyrsta sinn kl. 10.00 í
gærmorgun biðu milli þrjú og fjögur
hundruð manns við dyrnar og bílastæði
fylltust á svipstundu. Þegar blaðamenn
bar þar að garði eftir hádegið var sömu
sögu að segja. Hundruð manna var statt
innan dyra og langar biðraðir við alla
kassa.
„Þetta hefur verið hreint æðislegt,"
sagði Jón Sigurðsson framkvæmdastjóri
Miklagarðs, þegar við hittum hann í
ösinni. „Planið hér fyrir utan fylltist á
fyrstu 10-20 mínútunum í morgun og
síðan hefur ekkert lát verið á örtröðinni.
Ég hef verið að ræða við viðskiptavinina
og hef ekki heyrt neina óánægjurödd.“
Eru þið með nógu margt fólk til að
sinna þessum fjölda?
„Varla. Það er alveg í það tæpasta.
Það er óvant fólk á kössunum, duglegar
stúlkur, en þær vantarennþáþjálfun. En
viðskiptavinirnir hafa sýnt mikla þolin-
mæði.
Jón sagðist hafa verið að alla fyrrinótt
við að undirbúa fyrir opnunina og lítið
hefði verið um svefn. Þegar við ræddum
saman um hálf þrjúleytið var kjöt í
kjötborðinu að verða búið og Jón sagðist
hafa orðið að kalla út neyðarhjálp í að
skera og pakka meira kjöti.
Ýmsar algengar
vörur ódýrari
„Þetta er óneitanlega stórkostlegt og
óvenjulegt yfir að líta. Ég sagði við
konuna áðan að það eina sem vantaði
upp á að þetta væri eins og í stórmörkuð-
um erlendis væri áfengið,“ sagði Guð-
mundur Jóhannsson þegar við stöðvuðum,
hann með hlaðna innkaupakerru. Ég
veit ekki hvort maður kemur til með að
versla hér að staðaldri, maður sér til.
„Já, ég hef tekið eftir að ýmsar
algengar vörur eru ódýrari, en maður á
að venjast. Ég sá til dæmis áðan kaffi-
könnu sem var helmingi ódýrari en
svipuð kanna sem ég er nýbúinn að
kaupa. En auðvitað get ég ekki sagt um
það hvort það er um að ræða sömu
gæðin.
Þessi ferð er nú aðallega farin fyrir
forvitnissakir, en ég ætla að fylgjast með
framhaldinu, það verður fróðlegt að vita
hvernig þetta þróast," sagði Guðmundur
Jóhannsson.
Synd ef þetta kemur
niður á hverfaverslunun-
um
„Nei, við höfum ekki farið yfir helm-
inginn af verslunarplássinu,“ sögðu Jón-
ína Erlendsdóttir og Hanna Helgason,
þegar við tókum þær tali við kassann.
„Mér líst vel á þetta,“ sagði Jónína og
það er óneitanlega þægilegt að geta
gengið svona að öllum hlutum á einum
stað. Ég ég er svolítið nervös út af
kaupmanninum mínum. Það væri mikil
synd ef þetta kæmi niður á litlu hverfa-
verslununum."
Þær Jónína og Hanna sögðust ekki
geta gert sér grein fyrir því hvernig
verðið í Miklagarði kæmi út, miðað við
smærri verslanir, þar sem þær hefðu
skoðað virtist þeim vera á svipuðu verði.
Hvort þær hugsuðu sér að versla að
staðaldri í Miklagarði? Það er of snemmt
að segja til um það. Kannski stærri
innkaup, en ætli við verslum ekki til
daglegra þarfa áfram á sama stað.
Viö erum í
vettvangskönnun
„Við erum svona að bera þetta saman
við stórmarkaðina í nágrenni við
okkur, Kostakaup og Fjarðarkaup.
Þetta er svona vettvangskönnun hjá
okkur," sögðu Sverrir Jónsson og Guð-
rún Ólafsdóttir, en þau búa í Faxatúni
18 í Garðabæ.
Og hvernig kemur samanburðurinn
út?
„Við erum nú ekki búin að fara mikið
um,“ sagði Guðrún, „en ég er ánægð
með verðið á t.d. sykri og hveiti, mér
virðist það ódýrara en ég á að venjast.“
GIFURLEG 0RTR0D
Komið þið til með að sækja hingað
alla leið úr Garðabæ til að versla?
„Ef verðið er hagstætt þá er það
ekkert mál að koma hingað. Þetta liggur
ágætlega við.“
Vona að það verði
eitthvað eftir handa okkur
Við útgöngudyrnar hittum við Hrein
Sumarliðason kaupmann í kjörbúðinni
Laugarás, sem er matvöruverslun við
Austurbrún. Við spyrjum hann hvernig*
honum lítist á að fá svona stórmarkað
rétt við bæjardyrnar hjá sér.
„Þetta hlýtur auðvitað að taka frá
einhverjum, varla aukast viðskiptin að
marki þótt verslunum fjölgi. Spurningin
er bara frá hverjum þetta tekur viðskipt-
in,“ sagði Hreinn.
Heldur ekki fólk tryggð við sinn
kaupmann, gegnum þykkt og þunnt?
„Ég veit það ekki. En það hefur verið
sagt að það sé þegar búið að taka allt sem
hægt er að taka af hverfakaupmönnun-
um með fyrri stórmörkuðum og að þegar
nýr stórmarkaður bætist við þá þýði það
aðeins að risarnir bítist og dragi tennurn-
ar hver úr öðrum. Ég vona að það sé
eitthvað til í þessu. Ég sagði við Jón
framkvæmdastjóra hérna áðan þegar ég
hitti hann að ég óskaði honum alls
velfarnaðar, en ég vonaði að það yrði
eitthvað eftir handa okkur smærri kaup-
mönnunum.“ - JGK
„Óneitanlcga þægilegt að geta gengið svona að öllum hlutum á einum stað,“ sögðu þær Jónína og Hanna.
, Tímamyndir Árni Sæberg
■ „Verðið virðist lægra en við eigum að venjast", sögðu þau Guðrún Ólafsdóttir
og Sverrir Jónsson.
■ ...„Sagði við konuna áðan að það
eina sem vantaði upp á að þetta væri eins
og í stórmörkuðum erlendis væri áfeng-
ið“, sagði Guðmundur Jóhannsson.
■ „Þýðir aðeins að risamir bítast um
og draga tennurnar hver úr öðrum“,
segir Hreinn Sumarliðason.í kjörbúðinni
við Laugarás.
Biðraðir við alla kassana 14 að tölu og mikið álag á afgreiðslustúlkunum.
■ Að minnsta kosti einu sinni meðan
blaðamaður staldraði við var kallað upp
og tilkynnt að lítil stúlka hefði týnt
mömmu sinni í þrönginni. Það er ekkert
fyrir smáfólkið að finna fylgdarfólk sitt í
víðáttunni ef það hefúr misst af því. En
hér er bamahom þar sem hægt er að una
við spil og shjónvarp meðan þeir full-
orðnu vcrsla.
Tímamyndir Ámi Sæberg