Tíminn - 20.11.1983, Blaðsíða 23

Tíminn - 20.11.1983, Blaðsíða 23
SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983 23 umsjón: Friðrik Indriðason ÞARMAGUSTUR VANN í FYRSTU UMFERÐ ■ Þarmagustur sigraði í fyrstu umferð. Nú-Tímamynd Árni Sæberg ■ Það var hljómsveitin Þarmagustur sem vann í furstú umferð Músíktilrauna SATT og Tónabæjar sem haldin var s.l. fimmtudagskvöld en í tveimur næstu sætum komu svo 3/4 og Tídon, raunar mættu ekki fleiri hljómsveitir til leiks en þessar þrjár. „69 á salerninu" og sextán- manna bræðslusveitin „Afsakið" létu sig vanta. Kannski hafa þeir fyrmefndu ekki komist út vegna þrengsla. Ef marka má þetta fyrsta kvöld virðist þungarokkið, eða bárujárnsrokkið vera nokkuð vinsælt meðal ungmenna í bransanum, Þarmagustur og 3/4 voru allavega á þeirri línu en hvorug var með söngvara og instrúmental þungarokk er ekki það allra traustasta sem maður getur heyrt. Tappi tíkarrass var gestur kvöldsins og komu þeir fram fyrstir, hlutur sem kynna hefði mátt betur en manni skilst að þannig verði formið á þessu. Raunar luku þeir þessum tónleikum einnig, þ.e. léku á undan tilkynningunni um úrslit. Undirritaður mætti á svæðið þegar Tídon var að ljúka leik sínum, nokkuð þungmelt rokk með „fjútúrístískum" (erfttt orð) pælingum sem aðallega komu fram í mikilli og háværri keyrslu á hlóðgerfli. Þarmagustur var næst og sögðust þeir leika fönk, reagge og kuldarokk, þeir hefðu alveg eins getað kallað þetta þarmarokk, allavega voru meðlimir sveitarinnar kynntir sem þarmur eitt, þarmur tvö o.sv. frv., út að endaþarmi sem lék á hljóðgerfil. Raunarvil ég kalla allt gumsið þungarokk en það sem háði þeim allverulega var skortur á söngvara. Ef þeir fá sér söngvara í yfirviktarflokki (Meatloaf-flokknum) með hrjúfa, grófa viskýrödd er hérna komið vel í meðallagi gott þungarokksband en þeir reyndu að bjarga þessu með því að láta gítarinn „væla“ röddina og tókst oft á tíðum vel til. Hljómsveitin 3/4 sögðust leika alls- kyns rokk en þeir voru að mestu á svipuðum nótum og gusturinn, með meiri keyrslu að vísu og söngvara sem var veikasti punkturinn hjá þeim, hefur alltof veika rökk í þetta og fellur ekki að tónlistinni nema rétt í öskrunum. Ásgeir Tómasson var kynnir kvöldsins og það kom m.a. fram hjá honum að hugsanlega verður úrslitakvöld þessarar keppni haldið á Kjarvalsstöðum.. er þessi tónlist á uppleið?... Svo er eitt atriði sem ástæða er að gagnrýna við þessa keppni og það er að maður frétti að enginn af þátttökuhljóm- sveitunum hefði fengið hjjómprófun (það er sándtékk á fagmálinu strákar) og ættu forsvarsmenn keppninnar að sjá til þess að það breyttist hið snarasta. FRI Síðbúin kveðja Rúnars ■ Hljómplötuútgáfan Geimsteinn gefur út nýja hljómplötu um þessar mundir með G Rúnari Júlíussyni, og bcr hún nafnið Síðbúin kveðja. Hljómplata þessi hefur nokkra sér- stöðu vegna þcss að hún er gerð í minningu erlends tón og textaskálds að nafni Tim Hardin og eru öll lög og Ijóð á plötunni samin af honum og öll sungin á frumntálinu. Tim Hardin fæddist í Ameríku 23. des. 1940 og lést 29. des. 1980 í íbúð sinni í Hollywood, aðcins 40 ára gamall, vegna ofneyslu eiturlyfja. Hann cr og var þekktur fyrir stórgóð lög og ljóð um ástina og flcira. En markmið mcð útgáfu þessari er að varðveita og viðhalda ycrkum þcss- um sem mörg hver eiga eftir að verða sígild, eins og öll göð verk. Þetta cr önnur sólóplata G Rúnars Júlíusson- ar, sú fyrsta kom út 1976 og hét Hvað dreymdi sveininn. G Rúnar sér að mestu leyti um allan hljóðfæraleik og söng á skífu þessari fyrir utan aðstoð nokkurra valinkunnra manna cins og Þóris Baldurssonar, Vignis Bcrmann og Lec, guitar, Griffins. í næsta Nútíma ■ 1 næsta Nútíma verður stjórn- laust viðtal við jazzhljömsveitina Gammana en þeir Björn Thoroddsen og félagar.bíða nú eftir bráð- inni...“ eins og það er orðað í viðtalinu... Við munum að sjálfsögðu mæta á „athyglisverðustu“ tónleika. ársins sem verða þann 23. þessa mánaðar í MH þar scm Dularfulla sjónvarpið mætir auk hljómsveitarinnar Kukl, með söngvarann Einar Örn á video- skjá gegnum gerfihnött frá London. Dularfulla sjónvarpið var raun statt hér fyrir nokkru aö hlaða batteríin úr íslenskum orkustöðvum og hafa iof- að mögnuðum tónleikum... INNRÁS ■ Nakið ofbeldi - KISS gerir árás án andlitsfarða. Tif að koma í veg fyrir áformaða yfirtöku rauðskinna, studda af Kúbustjórn, sendu forseti U.S.A. og rokkumboðsmaðurinn Ronald „Hrukkur“ Raygun lOlstu KISS bryndeildina stormandi til Neasden Granada. Fyrstu myndimar bárust skömmu áður en við fórum í prentun og sú hér fyrir ofan sýnir KISS ná tangarhaldi á ströndinni skammt frá Norður-hringnum. Árás þcirra var hrottaleg, gekk gegn Genfarsáttmálanum um notkun augn- skugga en mannfall var talið í lág- marki, tveir dyraverðir og ein miðavél. Með útvarpssendingum Radio Free Willesden, á þaki Granada, trufluðu byltingarmenn bardagann með stöðu- gum flutningi á þjóðsöng Albaníu og gömlum Mekong-hit lögum. Þetta hafði lítið mannfall í för með sér en þó nokkuð tap á heyrn. Með tilfinningarn- ar á suðupúnkti gaf Ronald Raygun eftirfarandi yfirlýsingu: Rússar reyna við stráka með sæta rassa“. Er nóttin færðist yfir Granada skipt- ust útverðir enn á skotum og ábending- um um hárgreiðslu. UR ERLENDU POPP- PRESSUNNI: • Sting fór fyrir skömmu í upptökup- rófanir fyrir hlutverk Pontíusar Pf- latusar í kvikmynd Martins Scorsese um Jesú... • Söngvari Pere Ubu, David Thomas scm hér tróð upp fyrir nokkru var nýiega með tónleika í Hollywood þar sem’hann kom fram ásamt segulbandi og sern fyrr söng hann og hélt fyrir- lestra um hvc feitir hlutir eins og feitt fólk eru ekki teknir alvarlega... • Yoko Ono heldur að sonurinn Sean sé Kristur endurkominn. Skrýtið. Við töldum að Þorsteinn Pálsson væri það... • John Travolta mun ekki leika hlut- verk Jim Morrison í kvikmynd um þann kappa en hefur hinsvegar fengið aðalhlutverk í myndinni Fire (eins og í Light My..) sem byggirá lífiogdauða Rimbaud elskandi rokkhetju, sem lætur It'fið við dularfullar kringumstæð- ur. Giorgio Moroder mun semja tón- listina en á meðan er „Revolting" að breyta allskonar fólki í samskonar heilsuræktarfrík með persónulegri undirskrift sinni á leikfimisbúninga - skínandi, sleipa, s\'arta gaila með JT stöfunum fyrir ofan vinstri geirvörtu- na... • Ýmislegt slúður cr að komast í hámæli um að Rolling Stones ætli að koma fram við opnunarathöfnina á næstu Olympíuleikum í Los Angeles... • Kvikmyndaleikstjórinn Larry Buc- hanan er með mynd í bígerð sent á að sýna að andlát Jimi Hendrix og Janis Joplin voru í rauninni politísk morð til að koma í veg fyrir áhrif þeirra á hugsanir ungra hippa en ekki eins og áður hefur verið gefið í skyn vegna ofncyslu eiturlyfja... BYGGT Á NME OG SOUNDS Útgáfu- tónleikar Frakkanna ■ Það gengur ekki þrautalaust að Frakkanna út, iíkur eru á að hún komi koma fyrstu lp plötu hljómsveitarinnar ekki á göturnar fyrr en einhverntímann ■ Frakkamir... Nú-Tímamynd Ámi Sæberg eftir næstu helgi. En hvað um það þeir héldu útgáfutónleika engu að síður í Safari s.l. fimmtudagskvöld, fyrir fullu húsi og eru þeir raunar að leika þar í kvöld einnig en það eru eigendur Safari sem gefa plötuna út. Gestir Frakkanna þetta kvöld voru þeir Björgvin Gíslason, gítarleikari og Ásgeir Óskarsson á ásláttarhljóðfæri en báðir eru þeir með í nokkrum lögum á hinni nýju plötu sem hlotið hefur nafnið 1984 og er hugmynd þeirra um nánustu framtíð mjög í dekkri kantinum, enda varla ástæða til annars ef marka má persónulega reynslu eins og meðlimum hljómsveit- arinnar nýlega. Tónlist Frakkanna er, eins og áður hefur komið fram, nokkuð gamalt rokk með fönkívafi á köflum og öðrum bútum og bitum héðan og þaðan, ekkert byltingarkennt eða í sjálfu sér nýtt, en á heildina litið ætti enginn að vera leiður á að láta það sulla aðeins í hlustum sínum. -FRI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.