Tíminn - 02.12.1983, Qupperneq 19
FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1983
19
krossgáta
4220
1) Forstöðumaður. 6) Konu. 8) Glöð 10)
Fugl. 12) Þófi. 13) Féll. 14) Tók. 16)
Sigað. 17) Fugl. 19) ísland.
Lóðrétt
2) Smákænu. 3) Ármynni. 4) Tölu. 5)
Flúð. 7) Einhuga. 9) Fiska. 11) Gubbað.
15) Fita. 16) Elska. 18) Muttering.
Ráðning á gátu No. 4219
Lárétt
1) Tígull. 6) Lán. 8) Sóa. 10) Als. 12)
TT. 13) Ek. 14) Ata. 16) Óku. 17) Ung.
19) Smána.
Lóðrétt
2) íla. 3) Gá. 4) Una. 5) Æstar. 7)
Askur. 9) Ótt. 11) Lek. 15) Aum. 16)
Ógn. 18) Ná.
bridge
■ Viðvörunarreglan er nú orðin mjög
útbreiddur siður en hún gildir þegar
spilari segir sögn sem ekki er hægt að
taka sem eðlilega, t.d. opnun á sterku
laufi sem hefur ekkert með lauf að gera.
Þá er félagi þess sem sögnina gefur
skyldugur til að vara andstæðingana við,
t.d. með því að banka í borðið.
Þessi regla getur þó stundum orðið
erfið viðureignar, t.d. þegarmisskilning-
ur verður í sögnum og annar spilarinn
gefur viðvörun á sögn sem hinn telur
eðlilega. Þar með eru komnar ólögmætar
upplýsingar sem spilarar mega ekki not-
færa sér.
Menn freistast nú samt til þess eins og
eftirfarandi spil frá EM í Wiesbaden í
sumar sýnir.
Norður
S. A763
H.72
T. G98
L.A1086
Vestur
S. K85
H.G1053
T. 105
L. K532
Austur
S. G942
H.AD986
T. 6
L. DG4
Suður
S. D10
H.K7
T. AKD7432
L. 97
Sagnir gengu þannig:
Vestur Norður Austur Suður 1 T
pass 1S pass 3Gr
pass 4 S pass 5T
pass 6T
Þegar suður sagði 3 grönd gaf norður
viðvörun og þegar AV spurðu hann um
þýðingu 3ja granda sagnarinnar svaraði
hann að hún þýddi hækkun í 4 spaða
með jafna hendi.
Þegar suður sagði 5 tígla við 4 spöðum
var kallað á keppnisstjóra sem komst að
því að suður hefði brotið lögin um
óheimilar upplýsingar. Með því að segja
5 tígla var hann að notfæra sér viðvörun
norðurs og upplýsingarnar sem hann
gaf. Suður hafði að vísu gleymt kerfinu,
norður hafði rétt fyrir sér. En ef suður
hefði ekki fengið viðvörun norðurs hafði
hann enga ástæðu til að segja 5 tígla því
4ra spaða sögn norðurs hlaut að vera
byggð á mjög góðum spaða og suður átti
ágætis stuðning þar. Keppnisstjóri
dæmdi því að samningnum yrði breytt í
4 spaða, 3 niður.
Það má geta þess að þetta mál hefði
ekki komið upp á íslandi því hér er í
reglurr, Bridgesambandsins að viðvörun-
arreglan gildir ekki eftir 2 grönd.
myndasögur
Hvell Geiri
'Fujrr*^-
%
Dreki
Svalur
Kubbur
Hva, ekki ræð ég
Má égnota \ yfir þér!
nýja vasaklútinnV\
i
© Bulls
Með morgunkaffin u
- Ég veit ekkert um það hvernig har.n
klæðir þig, fyrr en ég hef séð verðmið-
ann.
—J