Tíminn - 14.02.1984, Qupperneq 3
NGAR LAGÐIR
AÐVELU
— af KR-ingum, 23-22, í
1. deildinni í handknatfleik
Ólympíuleik
Matti Nykaenen
hlaut silfrið
■ Það kom á óvart í stökki af 70 metra palli
á Ólympíuleikunum í Sarajevo, að Finninn
sigursæli, Matti Nykaenen náði aðeins öðru
sæti í kcppninni. Sigúrvegari varð A-Þjóð-
verjinn Jens Weissflog, hann tryggði sér sigur
í síöara stökkinu er hann stökk 87 metra.
Matti stökk aðeins 84 metra, en hann hafði
forystu eftir fyrri umferðina, þá stökk hann
91 metra, en Weissflog stökk 90 metra.
Samanlögð stig Weissflog voru 215,4 en Matti
hlaut 214,(K). Þriðji í keppninni varð annar
Finni, Jari Puikkonen, hann stökk 81,5 og91
metra og hlaut 211,10 stig. í fjórða sæti
hafnaði Stefan Stannarius A-Þýskalandi með
84 og 89 metra og 211,10 stig og fimmti varð
Norðmaðurínn Rolf Aaec Berg, hann stökk
86 og 86,5 metra og hlaut 208,50 stig. - BL
Annar sigur
Marja Liisa '
■ Finnska stúlkan Marja Liisa Haemae-
lainen vann sitt annað gull á OL í Sarajevo á
sunnudag, þcgar hún sigraði í 5 km göngu.
Hún hafði áður sigrað í 10 km göngunni.
Marja hlaut tímann 17:04,0 mín. Önnurvarð
norska stúlkan Berit Aunli á 17:14,1 ntín. og
þriðja varð Kveta Jerivoa frá Tékkóslóvakíu
á 17:18,32 mín. Sovéska sfúlkan Raisa
Smetanina, sem varð önnur í 10 km göngunni
varð að láta sér 11. sætið lynda. - BL
Sandberg vann
í norrænni
tvíkeppni
■ Keppni í norrænni tvíkeppni er í því
fólgin að stökkva af 70 meta palli og ganga 15
km. Sigurvegari í þessari keppni varð Svíinn
Tomas Sandberg, hann náði bcstum árangri í
báðum greinunum og hlaut 422,595 stig.
Annar varð Jouko Karjalainen frá Finnlandi
með 416,900 stig, þriðji Jukka Ylipulli einnig
frá Finnlandi með 410,825 stig og fjóröi varð
enn einn Finni, Raunp Miettinen mcð402,970
stig. - BL
Sovéskur sigur
í skautahlaupi
■ Sergei Fokichev frá Sovétríkjunum sigr-
aði í 500 m skautahlaupi karla, hann skautaði
vegalengdina á 38,19 sek. Annar varð Japan-
inn Yoshihiro Kitazava, hann hlaut tímann
38,30 sek. og þriðji varð Kanadamaðurinn
Gaetan Boucher á 38,39 sek. - BL
Erfið skilyrði
- í 500 m skautahlaupi karla,
Svíinn Tomas Gustafsson sigraði
■ Mikil snjókoma var á mcðan á 500 metra
skautahlaupinu stóð og voru skilyrði af þeim
sökum erfið vegna bleytu á ísnunt. Svíinn
Tomas Gustafsson fékk tíma sem dugði
honum til sigurs, 7:12,28 mín. Eru þetta
fyrstu gullverðlaun Svía á leikunum. - BL
OL-met í
500 m skauta-
hlaupi kvenna
■ Nýtt OL-mct leit dagsins Ijós í 500m
skautahlaupi kvenna. Það setti Cristina Rot-
henburger frá A-Þýskalandi, 41,02 sek.
Önnur varð Karin Anke á 41,28 hún átti fyrra
metið 41,76 sek. Þriðja t' hlaupinu varð
Natalfa Chive frá Sovétríkjunum á 41,50 sek.
-BL
Peter Angerer
skaut beint
í níark
- í 20 km skíðagöngu og skot-
fimi í Sarajevo
■ Peter Angerer var manna hittnastur í 20
km skíðagöngu og skotfimi og missti aðeins
tvö skot, liann hlaut því aðeins tvær refsimín-
útur. Tími Angerers, sem er V-Þjóðverji var
1:11:52,7, en annar varð A-Þjóðverji, Frank-
Peter Roetsch, hann hitti úr öllum skotum
stnum nema þremur og hlaut tímann
1:13:21.4. Þriðji varð Norðmaður, Erik
Kvalfoss, hann fékk tímann 1:14:02.4 oé
mistókst í fimm skotum. - BL
Tvöfaldur
A-þýskur sigur
- íkeppniá
tveggja manna bobsleðum
■ Áhöfnin á sleða A-Þýskalands II, þeir
Wolfgang Hoþpe og Dietmar Schauerhamm- •
er, sigruðu í keppni á tveggja manna bobsleð-
um á 3:25,56 mín. á OL í Sarajevo. í öðru
sætj urðu þeir Bernhard Lehmann og Bogdan
Musioc á A-Þvskalandi 1, þeir fengu tímann
3:26,04 mín. 1 þriðja sæti lentu kapparnir á,
Rússland II. Þcir fengu tímann 3:26,16 og í
fjórða sæti lcnti Rússland I, með tímann
3:26,42. - BL
■ Guðmundur Albertsson átti stór-
leik með KR gegn Víkingi. Hér
laumar hann knettinum gegnum
vörnina og í mark Víkinga, þrátt fyrir
stífa gæslu þeirra Harðar Harðarson-
ar (til hægri) og Guðmundar Guð-
mundssonar.
■ KR-ingar unnu mjög mikilvægan
sigur á Víkingum, 23-22 er liðin mættust
í 1. deildinni í handknattleik, í Seljaskóla
á laguardag. Guðmundur Albertsson
skoraði sigurmark KR úr vítakasti, þegar
ein og hálf mínúta var til leiksloka. Með
þessum sigri eru KR-ingar komnir ■ 5.
sæti deildarinnar með 12 stig og mögu-
leikar þeirra á að komast i fjögurra liða
úrslitin hafa aukist verulega, þó of
snemmt sé að spá nokkru.
KR-ingar höfðu frumkvæðið framan
af og náðu tveggja marka forystu um
tíma, 3-1, 4-2, 5-3. Eftir það var jafnt á
öllum tölum og svo var einnig í hálfleik,
12-12. í upphafi síðari hálfleiks náðu
Víkingar tveggja marka forskoti 15-13,
en KR-ingar jöfnuðu 15-15 og komust
síðan tvö mörk yfir 17-15, 18-16, 19-17.
Þegar 9 mínútur voru eftir af leiknum
náðu KR-ingar þriggja marka mun 21-
Þrettándi
sigur FH
— á íslandsmótinu í hand-
knattleik gegn Val 27-21
■ FH-ingar héldu sigurgöngu sinni
áfram, þegar þeir lögðu Valsmenn að
velli, í Laugardalshöll, á sunnudags-
kvöld, 27-21, á íslandsmótinu í hand-
knattleik.
Leikurinn var jafn framan af og í
hálfleik stóð 11-10 fyrir FH. Framan af
síðari hálfleik hélst jafnræði með liðun-
um allt þangað til staðan var 15-15. Þá
sýndu FH-ingar sitt rétta andlit og
tryggðu sér sigur, 27-21. Besti maður FH
var línumaðurinn snjalli Þorgils Óttar
Mathiesen, Atli Hilmarsson ogHaraldur
Ragnarsson. Markvörður FH átti einnig
ágætan leik. Hjá Valsmönnum var Einar
Þorvarðarson bestur.
Mörk FH: Þorgils Óttar Mathiesen 8,
Kristján Arason 7/2, Atli Hilmarsson 5,
Jón Erling Ragnarsson 2, Pálmi Jónsson
2, Guðmundur Magnússon 1, Valgarð
Valgarðsson 1 og Guðjón Árnason 1.
Mörk Vals: Brynjar Harðarson 7/3,
Valdemar 4, Jakob 3, Steindór 3, Björn
3, og Jón Pétur 1.
-BL
18. Þeir Guðmundur Guðmundsson og
Viggó Sigurðsson minnkuðu muninn í
eitt mark 21-20, en Jakob Jónsson svar-
aði með marki fyrir KR. Víkingar jöfn-
uðu metin 22-22, með mörkum þeirra
Sigurðar Gunnarssonar og Viggós. Þeg-
ar ein og hálf mínúta var eftiraf leiknum
var brotið á Birni Péturssyni í gegnum-
broti og vítakast dæmt. Úr því skoraði
Guðmundur Albertsson sigurmark leiks-
ins. Víkingar reyndu ákaft að jafna,
tókst þeim það ekki. Kom þar til snilldar
markvarsla Jens Einarssonar í marki
KR, sem varði skot frá þeim Sigurði
Gunnarssyni og Hilmari Sigurgíslasyni.
Voru Víkingar óheppnir að skora ekki
úr þeim skotum, þar sem þeir voru í
sannkölluðum dauðafærum. Með þess-
um sigri eru KR-ingar komnir í fimmta
sæti 1. deildar, og möguieikar þeirra um
að leika í úrslitakeppninni í vor, eru
mun meiri en áður. Hvort KR-ingum
tekst að komast í úrslitin í vor skal ósagt
látið.
Það var ekki margt sem gladdi augu
áhorfenda í Seljaskóla á laugardag enda
handknattleikurinn sem leikinn var, ekki
uppá marga fiska. Þó var ekki laust við
að smá spenna myndaðist í lokin þegar
leikmenn liðanna fóru að bera víurnar í
stigin dýrmætu, sem úthlutað er eftir
leiki.
Guðmundur Albertsson, Jakob Jóns-
son og markvörðurinn, Jens Einarsson
voru bestu menn KR í leiknum, en hjá
Víkingum voru Sigurður Gunnarsson,
Viggó Sigurðsson og Guðmundur
Guðmundsson bestu menn.
Mörk KR skoruðu: Guðmundur Al-
bertsson 10/2, Jakob Sigurðsson 7,
Gunnar Gíslason 3, Jóhannes Stefáns-
son 2 og Bjöm Pétursson 1.
Mörk Víkinga skoruðu: Viggó Sig-
urðsson 6/1, Steinar Birgisson 3, Sigurð-
ur Gunnarsson 3, Guðmundur Guð-
mundsson 3, Hilmar Sigurgíslason 3,
Hörður Harðarson 2, og Guðmundur B.
Guðmundsson 1.
Dómarar leiksins voru þeir Óli Ólsen
og Gunnlaugur Hjálmarsson og var
dómgæsla þeirra nokkuð góð, þó ekki
aðfinnslulaus.
-BL
GUNNAR SKORAÐI15!
— í 30-21 sigri Stjörnunnar gegn KA
■ ÞaðvarGunnarEinarssonsemkom,
sá og sigraði í leik Stjörnunnar í Digra-
nesi á sunnudag. Gunnar var ekki í
liðinu fyrir leikinn en kom inn á fyrir
Hannes Leifsson sem slasaðist og skor-
aði Gunnar fimm mörk í fyrri hálflcik og
tíu í þeim siðari. Gunnar hefur ekki
leikið neitt í vetur, var þjálfari Stjörn-
unnar fyrr í vetur en hætti og tók þá
Viðar Símonarson við liðinu. Leikurinn
endaði með sigri Garðbæinga 30-21.
Staðan í hálfleik var 13-10 Stjömunni í
vil.
Það var við það sama hjá KA í
Hafnarfirði á laugardag. Þeir voru sigr-
aðir með níu mörkum. Stjárnan var yfir
allan leikinn og aldrei var spurning hvar
sigurinn hafnaði. Mestur var munurinn
tíu mörk, 28-18. Það eina sem þeir fáu
áhorfendur sem mættu í Digranes á
sunnudag fengu að sjá, var stórleikur
Gunnars Einarssonar. Aðrir leikmenn
voru mun daufari. Þáttur KA í leiknum
var afar slakur. Leikmenn voru sískjót-
andi og þar að auki misheppnuðust
hraðaupphlaup þeirra. Ekki bætti úr
þegar vítaköstin voru líka varin. Má
segja að það hafi verið kæruleysi
Stjörnumanna sem réði því að KA-
mönnum tókst að skora 21 mark frekar
en getuleysi. KA á langt í land með að
■ Gunnar Einarsson
mörk gegn KA.
skoraði
eignast sæmilegt lið en að vísu er liðið
að mestu ungir menn, sem eru hvattir af
eldri leikmanni, Þorleifi Ananíassyni.
Auðséð er að Viðar er á réttri leið
með Stjörnuna og getur það unnið
hvaða lið sem er þegar Gunnar Einars-
son er innanborðs. Guðmundur Þórðar-
son kom Gunnari næst að getu í þessum
leik og jafnframt stóð Brynjar sig ágæt-
lega, í þau skipti sem KA-menn hittu
markið, en mörg skot fóru langt framhjá.
Mörk Stjörnunnar skoruðu: Gunnar
Einarsson 15 (4v), Guðmundur Þórðar-
son 5, Gunnlaugur Jónsson 4, Magnús
Teitsson 3, Sigurjón Guðmundsson 1,
Eyjólfur Bragason 1 og Hannes Leifsson
L
Mörk KA skoruðu: Jón Kristjánsson
4, Sigurður Sigurðsson 4, Logi Einarsson
3, Magnús Birgisson 3, Erlingur Krist-
jánsson 3, Þorleifur Ananíasson 2, Haf-
þór Heimisson 1 og Sæmundur Sigfússon
1.
-BH
AFTUR TAPADI
DUSSELDORFI
Frá Gísla Agúst Gunnlaugssyni. iþrótta-
fréttarilara í Bonn:
■ Aðeins rúmlega 100 þúsund áhorf-
endur lögðu ieið sina á knattspyrnuvelli
hér í Þýskalandi til að fylgjast með
Bundeslíguleikjum helgarinnar. Einn
leikur féll að vísu niður, leikur Bayern
Munchen og Kickers Offenbach, en
talsvert hafði snjóað í Múnchen og því
var ekki leikandi á vellinum. Annars
staðar reyndist unnt að leika þótt sums
staðar væru vellirnir erfiöir og kuldi eða
úrkoma hamlaði vallarsókn.
Úrslit helgarinnar voru þessi:
FC Köln-Werder Bremen..........1-4
Núrnberg-Frotuna Dússeldorf ... 2-1
Borrus. Möncheng.b.-Braunwcig . 6-2
Frankfurt-Armenia Bielefeld .... 1-1
Hamburger-Leverkusen............3-0
Kaiserslautern-Bayern LJerdingen . 5-2
Stuttgart-Dortmund..............3-1
Bochuum-Mannheim................1-0
Tap Dusseldorf í Núrnberg og Kölnar
á heimavelli liðsins gegn Bremcn voru
óvæntustu úrslit helgarinnar. Aðrir leikir
fóru nokkurn veginn á þann veg sem við
var að búast. Núrnberg, sem í allan
vetur hefur verið á botni deildarinnar
■ Kristján Ágústsson skorar gegn
Haukum. Kristján og félagar hans
fóru með sigur af hólmi. Það er félagi
Kristjáns, Valdimar Guðlaugsson
sem fylgist grannt með, ásamt Hálf-
dáni Markússyni, Haukamanni nr. 8.
Kristinn Kristinsson kemur ekki
vörnum við.
Tímamynd Árni Sæberg.
HAUKAR HARSBREIDD FRA SIGRI
gegn Val, sem unnu 80-79, í úrvalsdeildinni
■ Aðeins eitt stig skildi að, lið Vals og
Hauka, þegar liðin mættust í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik í Seljaskóla á
sunnudagskvöld. Haukar fengu þrjú
tækifæri til að tryggja sér sigur í lokin,
en þau fórust fyrir og Valsmenn siuppu
með skrekkinn. Eins stigs sigur var
staðrcynd 80-79. Staðan í hálfleik var
47-40, fyrir Val.
Valsmenn höfðu frumkvæðið framan
af, en um miðjan fyrri hálfleik jöfnuðu
Haukar 23-23. Valsmenn höfðu svo 7
stiga forskot í hálfleik 47-40. í síðari
hálfleik hélst svipaður munur, en á 10.
mínútu var dæmd sóknarvilla á besta
mann Hauka, Pálmar Sigurðsson, og var
það hans 4. villa. Pálmar var ekki
sammála dómaranum og mótmælti. Fyr-
ir vikið fékk hann tæknivillu og varð
hann þá að hverfa af leikvelli mcð 5
villur. Staðan var þá 67-57 fyrir Vál.
Haukar voru ekki af baki dottnir þrátt
fyrir missi Pálmars og leikmenn liðsins
börðust eins og ljón það sem eftir var af
leiknum. Þegar tvær og hálf mínúta var
eftir höfðu Haukar minnkað muninn í
6 stig 77-71. Haukar skoruðu 3 körfur
gegn einni körfu Valsmanna og minnk-
uðu muninn í tvö stig 79-77. Valsmenn
skoruðu síðan úr einu víti, en Hálfdán
Markússon svaraði fyrir Hauka, með
glæsilegri körfu, af löngu færi og minnk-
aði muninn í 1 stig 80-70, og hálf mínúta
til leiksloka. Valsmenn brunuðu í sókn,
sem endaði með körfuskoti Tómasar
Holton, boltinn rataði ekki ofan í
körfuna og Kristinn Kristinsson, mið-
herjinn sterki í Haukum, náði frákast-
inu. Haukar hófu sókn og þegar innan
við 10 sekúndur voru eftir af leiknum
skaut Hálfdán Markússon, hann hitti
ekki en boltinn barst til Kára Eiríksson-
ar, sem skaut og hitti heldur ekki, en
Haukar náðu enn frákastinu og á síðustu
sekúndu leiksins skaut ívar Ásgrímsson,
ungur og efnilegur piltur í Haukaliðinu,
en skot hans var hársbreidd frá því að
fara ofan í körfuna. Sigurinn var því
Valsmanna, 80-79, og fagnaðarlæti
þeirra mikil að leik loknum.
„Sýnir hvers við
erum megnugir"
„Það var harðfylgni og barátta í þessu
í lokin og ég er ánægður með að okkur
skyldi takast að minnka muninn þetta
mikið í lokin, þrátt fyrir að okkar besti
maður, PálmarSigurðsson, væri kominn
útaf. Þetta sýnir hvers við erum megnug-
ir“ sagði Einar BoIIason þjálfari Hauka
eftir leikinn.
I Haukaliðinu voru þeir Pálmar, með-
an hans naut við, Kristinn og Hálfdán,
HEARTS TOKST AD JAFNA
— gegn Rangers 2-2 í skosku deildinni - Enn
vinnur Aberdeen
■ Á tveim síðustu mínútunum í leik
Hearts og Rangers tókst þeim Derek
O'Connor og Joyn Robertson, jafna
2-2, en áður höfðu þeir Ally McCoist og
Bobby Williamson skoraði fyrir
Rangers.
Celtic vann stórsigur á St. Johnstone
5-2 og skoruðu þeir Brian McClair og
Murdo McLeod 2 mörk hvor og Frank
McGarvey 1, fyrir Celtic.
Dundee United vann Hibemian 2-0
og skoruðu þeir Paul Hegarty og Maur-
ice Malpas mörkin.
Mirren vann stórsigur yfir Dundee
St.
4-0.
Til óláta kom þegar Aberdeen lagði
lið Jóhannesar Eðvaldssonar, Mother-
well að velli 4-0. Gordon Strachan gerði
2 mörk, en þeir Eric Black og John
Hewitt eitt hvor.
Staðan í skosku úrvalsdeildinni er á
bls. 14.
manna bestir, en aðrir leikmenn eiga
einnig heiður skilið fyrir að gefast ekki
upp þegar á móti blés og berjast í staðinn
af margföldum krafti.
„Við voram heppnir“
„Við vorum heppnir þarna í lokin,
enda kominn tími til að heiliadísir séu
okkar megin" sagði Torfi Magnússon,
þjálfari og leikmaður Vals, eftir leikinn.
Torfi var mjög góður í Valsliðinu, ásamt
þeim Kristjáni Ágústssyni og Tómasi
Holton. Páll Arnar átti góða sprettfog
Leifur Gústafsson var traustur að vanda.
Dómarar leiksins voru þeir Sigurður
Valur Halldórsson og Gunnar Valgeirs-
son og dæmdu þeir mjög vel framan af,
en Gunnar datt niður í sitt gamla form
þegar á leið og dæmdi illa.
Stig Vals: Kristján Ágústsson 24,
Torfi Magnússon 18, Tómas Holton 16,
Páll Arnar 8, Leifur Gústafsson 6,
Valdemar Guðlaugsson 4 og Jóhannes
Magnússon 4.
Stig Hauka: Pálmar Sigurðsson 19,
Kristinn Kristinsson 17, Hálfdán Mark-
lússon 16, Ólafur Rafnsson 8, Eyþór
lÁrnason 7, Reynir Kristjánsson 6 og
Sveinn Sigurbergsson 6.
-BL
þrátt fyrir fjárfestingu í nýjum leik-
mönnum síðast liðið sumar, sýndi sinn
besta leik á keppnistímabilinu þegar
leikmenn Dtlsseldorf komu í heimsókn.
Dusseldorí liðið hefur heldur lækkað
flugið upp stigatöfluna síðast liðna viku,
en liðið hefur tapað tveimur leikjum
eftir sto'rgóða frammistöðu þar á undan.
Liðið náði sér aldrei almennilega á strik
á laugardaginn \,u. Leikmenn þess
sýndu aðvísu ekki slakan leik.cn margir
iéku langt undir getu. Leikmenn Núrn-
berg mæltu nius vegai mjug as . „ðilii til
leiks enda síðustu forvöð að forða liðinu
frá falli í aðra deild. Brunner kom
Núrnberg yfir á 13. mínútu eftir að
leikmenn beggja liða liða höfðu skapað
sér nokkuð góð marktækifæri.
Á 21. mínútu tókst Atla Eðvaldssyni
að jafna með skallamarki. Þetta var
sjöunda mark Atia i vetur og þriðja
mark hans í fjórum leikjum á þessu ári.
Það sem eftir lifði hálfleiksins var jafn-
ræði með liðunum. Dússeldorf sýndi
tekniskari og yíirvegaðri leik en leik-
menn Núrnberg börðust hins vegar vel
og bættu teknisku hliðina upp með því.
í síðari hálfleik gerðist fátt markvert í
leiknum, liðin skiptust á um að sækja án
þess að skapa sér opin færi. Á 81.
mínútu tókst heimaliðinu að gera út um
leikinn, en þá skoraði Brunner annað
mark sitt í leiknum, í þetta sinn úr
vítaspyrnu.
Atli þótti bestur leikmanna Dússel-
dorf liðsins og fékk þrjá í einkunn í
Kicker. Pétur Ormslev kont inn á á 70.
mínútu og átti hann ágætan leik.
í Köln mættu lcikmenn liðsinsákveðn-
ir til leiks gegn Werder Bremen. enda
liðið fullskipað á ný. Schumacher,
markvórður, lék að vísu lingurbrotinn
eftir að hafa slasað sig á æfingu síðast
liðinn fimmtudag. Hann var í sérstaklega
hönnuðum hanska og tók ekki í mál að
víkja úr markinu, en hringdi hins vegar
í Derwall landsliðsþjálfara á sunnudag
og afboðaði sig í landsleikinn gegn
Búlgaríu á morgun.
I leik Gladbach og Braunsweig varð
mikið markaregn eftir að staðan í
hálfleik hafði verið 1-1. Staðan var 6-2
er blásið var til leiksloka. Mörk Gla-
dbach skoruðu þeir Mill 2, Hallcs 2,
Rahn og Frontzeck. en Hollmann og
Worm skoruðu fyrir Braunschweig.
Hamburger náði að sigra Leverkusen
3-0 nokkuð fyrirhafnarlaust með
mörkum Von Heesen, Schröder og
Schatzschncider. Staðan í hálfleik var
2-0.
Kaiserslautern náði scr vel a slrik
gegn Baycr Uerdingcn, og vann góðan
sigur 5-2, -GÁG/Sjó.
KA AUDVELD BRAÐ
FYRIR HAUKA
sem sigruðu 24-15 íHafnarfirði
minnka muninn niður í tvö mörk og var
staðan þannig í hálfleik, 10-8.
í síðari hálfleik náðu Hafnfirðingarnir
■ Haukar úr Hafnarfirði og KA léku í
1. deild í handknattleik á laugardag.
Leikurinn sem háður var í Hafnarfirði,
lauk með sigri Hauka sem skoruðu 24
mörk á móti 15 mörkum Akureyringa.
Staðan í hálfleik var 10-8 Haukum í vil.
Ekki voru margir áhorfendur mættir í
íþróttahús Hafnfirðinga við Strandgötu
á laugardag. Leikurinn sem átti að
hefjast klukkan 13.00, hófst ekki fvrr en
hálftíma síðar. Var um einstefnu að
ræða frá upphafi og tókst KA-mönnum
aðeins einu sinni að jafna og var það
fyrsta mark þeirra. Forysta Hauka var
mest fjögur mörk í fyrri hálfleik, 9-5. Var
auðséð frá upphafi hvert stefndi. Samt
sem áður náðu Akureyringarnir að
að sigla fram úr og að lokum höfðu þeir
náð 9 marka mun 24 mörk gegn 15.
Leikurinn náði því aldrei að verða
spennandi frekar en- að vera skemmti-
legur. Þarna voru að berjast neðstu lið
1. deildar í handknattleik. Auðséð er
því að lið KA er það slakasta í deildinni
og mikið slakara en næstu lið fyrir ofan.
Virðist þetta vera algjör erindisleysa hjá
þeim upp í 1. deild, þó þeir slái ekki út
frammistöðu ÍR-inga frá í fyrra þegar
liðið lék allt mótið án stiga.
Haukarnir hafa enn möguleika að
bjarga sér frá falli og ættu að geta staðið
sig ágætlega í úrslitakeppni neðstu liða í
1. deild og bjargað „Handboltabænum"
frá skömm. Að vísu bæta FH-ingarnir
það margfaldlega upp. Hörður Sigmars-
son var atkvæðamestUr Hauka í leiknum
en hann skoraði átta mörk. Gunnlaugur
Gunnlaugsson varði mjög vel mark
Hauka og átti ekki síst þátt í að sigur
Haukanna yrði níu mörk. Enginn leik-
maður bar af hjá KA nema vera skyldi
Þorleifur Ananíasson sem var ávallt að
hvetja félaga sína áfram en hann var
jafnframt markahæstur KA-manna
ásamt Erlingi Kristjánssyni en'þeir settu
þrjú mörk hvor.
Mörk Hauka skoruðu: Hörður Sig-
marsson 8 (5v), Snorri Leifsson 5. Sigur-
jón Sigurðsson 3 (lv), Sigurgeir Mar-
teinsson 3, Pétur Guðnason 3, og Ingi-
mar Haraldsson 2.
Mörk KA skoruðu: Þorleifur Anan-
íasson 3, Erlingur Kristjánsson 3, Sæ-
mundur Sigfússon 2, Sigurður Sigurðs-
son 2, Jón Kristjánsson 1, Jóhann Ein-
arsson 1, Hafþór Heimisson 1, Jóhannes
Bjarnason 1 og Magnús Birgisson 1.
-BH