Tíminn - 21.02.1984, Blaðsíða 3
iþróttlr
Stúdínur
unnu KR
■ Um helgina léku ÍS og KR í 1. deild
kver.na í körfuknattleik. Leiknum lauk
með sigri ÍS 37-25, eftir að KR var yfir í
hálfleik, 17-16.
Stig ÍS: Þórunn Rafnar 16, Kolbrún
Leifsdóttir 10, Ragnhildur Steinback 9
og Hanna Birgisdóttir 2. Stig KR: Cora
Barker 9, Gunnhildur Gunnarsback 9 og
Hanna Birgisdóttir 2. Stig KR: Cora
Barker 9, Gunnhildur Gunnarsdóttir 6,
Erna Jónsdóttir 6, Erla Pétursdóttir 2 og
Margrét Árnadóttir 2.
-BL
1. deild kvenna í handknattleik
Fram vann
Víking
■ Framdömurnar í 1. deildinni í hand-
knattleik sigruðu Víking 26-21 í Selja-
skóla á sunnudag. Staðan í hálfleik var
14-11 fyrir Fram. Mörk Fram skoruðu:
Guðríður Guðjónsdóttir 10, Margrét
Blöndal 6, Hanna Leifsdóttir 5,Oddný
Sigsteinsdóttir 3 og Sigrún Blomsterberg
með 2.
Mörk Víkings: Eiríka Ásgrímsdóttir
9, Sigurrós Björnsdóttir 4, ValdísBirgis-
dóttir 4, Inga Þórisdóttir 3 og Svava
Baldursdóttir 1. -BL
Skagastúlkurnar
lögðu KR
ÍA vann KR, í 1. deild kvenna í
handknattleik, í Seljaskóla á sunnudag
með 15 mörkum gegn 14. í hálfleik var
staðan 8-5 fyrir ÍA.
Markahæstar hjá ÍA voru Laufey
Sigurðardóttir 3 Ágústa Friðriksdóttir 3,
Ragnhciður Jónasdóttir 3, Hjá KR skor-
aði Karólína Jónsdóttir 7, og Sigurbjörg
Sigþórsdóttir 2. -BL
ÍRrétt
marði Val
■ ÍR-stúlkurnar sigruðu stöllur sínar
úr Val 16-15 er liðin mættust í 1. deild
kvenna í handknattleik í Seljaskóla á
sunnudag. ÍR var yfir í hálfleik 11-7.
Mörk ÍR skoruðu Ingunn Bernódusdótt-
ir 7, Erla Rafnsdóttir 2, Katrín Friðriks-
dóttir 2, Ásta Sveinsdóttir 2 Ásta Ósk-
arsdóttir 2 og Þorgerður Gunnarsdóttir
1.
Mörk Vals: Erna Lúðviksdóttir 6,
Karen Guðnadóttir4, Soffía Hreinsdótt-
ir 2, Steinunn Einarsdóttir 2 og Harpa
Sigurðardóttir 1. -BL
FH vann Fylki
■ FH vann Fylki 25-17, í 1. deiid
kvenna í handknattleik, á laugardag. í
hálfleik var staðan 10-7 fyrir Fylki. Mörk
FH skoruðu: Margrét Theodórsdóttir 5,
Heiða Einarsdóttir 4, Sigurborg Eyjólfs-
dóttir 4, Anna Ólafsdóttir 3, Hildur
Harðardóttir 3, Kristín Pétursdóttir 2,
og þær María Sigurðardóttir, Inga Ein-
arsdóttir, Arndís Aradóttir og Kristjana
Aradóttir gerðu 1 mark hver. Mörk
Fylkis: Margrét Hjartardóttir 5, Rut
Baldursdóttir 4, Jóna Sigurðardóttir 4,
Helga Sigvaldadóttir 2, Jónína Jóhanns-
dóttir 1 og Elín Lára Jónsdóttir 1.
-BL
Staðan
í kvennadeildinni í handbotta:
Fram-Víkingur........... 26-21
KR-ÍA .................. 14-15
ÍR-Valur................ 16-15
FH-Fylkir .............. 25-17
Staðan:
Fram . 11
ÍR
FH . 11
Akranes . . . 11
Víkingur . . 11
KR , . 11
Valur . . . . . 10
Fylkir . . . . . 10
10 0 1 247-277 20
11 8 2 1 240-18
8 1 2 251-186 17
4 1 6 165-209 9
2 2 7 193-218 6
2 2 7 171-199 6
2 1 7 152-200 5
2 1 6 1164-214 5
-SÖE
FH MEB FUU.T HUS
f KILDARKEPPNINHI
unnu Hauka 34-27 í síðasta leiknum
■ FH vann einn sigurinn enn ■ 1.
deildinni í handknattleik á laugardag,
þegar þeir lögðu nágranna sína úr Hauk-
um af velli, 34-27. FH-ingar hafa því fullt
hús stiga úr deildakeppninni, sem nú er
STAÐAN
Lokastaðan í 1. deild karla í handknatt-
leik varð þessi:
KA-KR.................... 16-18
Haukar-FH ...............27-34
Þróttur-Stjarnan
Víkingur-Valur .
■ Þorgils Óttar Mathiesen og félag-
ar hans í FH fengu fullt hús í fyrstu
deildarkeppninni í handknattleik.
Þorgils Ottar átti góðan leik með FH
gegn Haukum, skoraði 8 mörk.
........21-25
........26-23
0 417-285 28
4 314-286 19
6 328-308 16
6 290-314 15
6 290-251 14
6 303-325 13
11 261-314 5
12 248-322 2
Víkingar
lögðu Val
— í 1. deild karla í
handknattleik 26-23
lokið og gaman verður að fylgjast með
þeim í úrslitunum.
Leikurinn var ekki mikill baráttu-
leikur og varnarleikur var af skornum
skammti. Hraði var mikill, og mikið um
hraðaupphlaup á báða bóga. Haukar
skoruðu fyrsta markið en FH-ingar
svöruðu með þremur mörkum, öllum úr
hraðaupphlaupum. Síðan komust FH-
ingar í 9-5, en Haukar minnkuðu í eitt
mark 9-8. Aftur dró sundur með liðunum
og í hálfleik var staðan 16-12 fyrir FH.
Áfram hélt markadellan í síðari hálf-
leik og voru FH-ingar iðnari við marka-
skorunina, minnsti munur með liðunum
var 21-18. Lokatölurnar síðan 34-27
fyrir FH og enn einn sigurinn í höfn þrátt
■ fýrir að FH-ingar geti vart verið ánægðir
með að fá á sig 27 mörk.
Þrátt fyrir markaskorunina áttu mark-
verðir liðanna ágætan leik þó sérstaklega
Gunnlaugur Gunnlaugsson í marki
Hauka. Haraldur Ragnarsson í FH
markinu átti og ágætan leik, ásamt þeim
Þorgils Óttari og Kristjáni Arasyni. Auk
Gunnlaugs áttu þeir Hörður Sigmarsson
og Ingimar Haraldsson ágætan leik.
Mörk FH: Kristján Arason 9/3, Þorgils
Óttar Mathiesen 8, Atli Hilmarsson 5,
Hans Gumundsosn 5, Guðmundur
Magnússon 3, Pálmi Jónsson 1, Guðjón
Árnason 1, Guðmundur Óskarsson 1 og
Valgarð Valgarðsson 1.
Mörk Hauka: Hörður Sigmarsson 8/5,
Ingimar Haraldsson 7, Sigurgeir Mar-
teinsson 4, Sigurjón Sigurðsson 3, Þórir
Gíslason 3 og Lárus Karl Ingason 2.
-BL.
‘V ',vA5'
FINNINN VAR
IANGBESIUR
og sigraði í stökki á 90 metra
palli f Sarajevo
■ Finninn ungi, Matti Nykaenen, hafði
yfirburði í keppni af 90 m palli á OL í
Sarajevo. Hann stökk lengst allra í
báðum stökkum sínum 116 og 111 metra.
I stigakeppninni hafði hann um 18 stiga
forskot á næsta mann, A-Þjóðverjann
Jens Weissflog, sem bar sigurorð af
Matta í keppni af 70 m palli. En
heimsmeistarinn ungi hefndi sín sem sé
í keppnini af 90 m palli og krækti sér í
gullpening.
Úrslit:
1. Matti Nykaenen Finnlandi 231.2 stig
2. Jens Weissflog A-Þýskalandi 213.7
stig
3. Pavel Ploc Tékkóslóvakíu 202,9 stig.
4. Jeffrey Hastings USA 201,2 stig.
5. Jari Puikkonen Finnlandi 196,6 stig.
-BL.
■ Thomas Wassberg, sænski skíðagöngumaðurinn sigraði í 50 km göngu á Ol í Sarajevo. Wassberg, sem sigraði í 15 km.
gpngu í Lake Placid fyrir fjórum árum, stakk landa sinn Gunde Svan, af í göngunni. Svan varð annar, og Svíar unnu því.
tvöfaldan sigur.
WASSBERG HAFÐI
GUNDE SVAN
og Svfar unnu tvöfalt í 50 km göngu
■ Svíinn Thomas Wassberg, sem varð tvöfaldur sigur í 50 km. og verðlaun í
ólympíumeistari í 15 kílómetra skíða- öllum öðrum göngum karla.
göngu á ólympíuleikunum t Lake Placid Fimmtíu keppendur luku keppninni.
Wassberg hlaut tímann 2:15.55,8, en
Gunde Svan fékk tímann 2:16.00,7.
Þriðji varð Finninn Aki Karvonen á
2:17,04,7, fjórði Finninn Kirvesiemi á
2:18.34,1 fimmti Norðmaðurinn Jan
Lindvallá 2:19.27,1
fyrir fjórum árum, sigraði um helgina
50 kílómetra skíðagöngu á ólympíuleik-
unum í Sarajevo. Wassberg sigraði
naumlega landa sinn Gunde Svan, sem
sigraði í 15 km. göngunni fyrir nokkrum
dögum, og varð annar í 30 km göngu.
Mikill sigur var þarna í höfn hjá Svíum,
-SOE
■ Víkingar sigruðu Valsmenn í 1. deild
karla í handknattleik á sunnudagskvöld
26-23 í Laugardalshöll. Víkingar tóku
leikinn strax í sínar hendur, náðu 5
marka forskoti, og þótt Valsmönnum
tækist að minnka muninn niður í 1 mark
á kafla, voru þeir ekki nógu sterkir til að
fylgja því eftir. Víkingar að komast á
flug, og léku oft mjög vel, þó í lokin færi
leikurinn mikið til út í vitleysu þar sem
boltinn gekk jafnt milli mótherja og
samherja.
Víkingar byrjuðu af miklum krafti,
komust í 7-2. Valsmenn söxuðu á þetta
forskot eftir því sem fyrri hálfleikur leið,
og þar kom að staðan var 10-11 Víkingi
í hag. Þá tóku Víkingar á sig rögg og
höfðu yfir 13-10 í hálfleik.
í síðari hálfleik héldu Víkingar upp-
teknum hætti, náðu fimm marka forskoti
strax, 15-10, og þann mun náðu Vals-
menn aldrei að minnka nema í þrjú
mörk minnst. Minnstur varð munurinn
15-18, og svo í lokin er Valur hafði
skorað síðasta mark leiksins, 23-26.
Viggó Sigurðsson átti mjög góðan leik
með Víkingi, og Guðmundur Guð-
mundsson átti sinn besta leik í vetur.
Sama gilti um Kristján Sigmundsson, og
Ellert Vigfússon félagi hans í markinu
lék líka vel. Sigurður Gunnarsson átti
góðan leik, og Ólafur Jónsson fyrrum
landsliðsfyrirliði komst vel frá sínum
fyrsta leik með Víkingi í vetur.
Júlíus Jónasson var atkvæðamestur
Valsmanna. Þorbjörn Guðmundsson lék
sinn fyrsta leik með Val í vetur,og lék
hann vel. Sama gilti um nafna hans
Jensson. Einar Þorvarðarson átti mjög
góða kafla í markinu, en hefur líklega
sjaldan hvílt eins mikið í einum leik með
Val.
Mörkin: Víkingur: Viggó %, Guð-
mundur 6, Sigurður 4, Hörður Harðar-
son 3, Steinar Birgisson 2, Karl Þráins-
son 1 og Guðmundur B. Guðmundsson
1.
Valur: Júlíus 6, Þorbjörn Jensson 4,
Þorbjörn Guðmundsson 4, Brynjar
Harðarson 4, Jakob Jónsson 2, Valde-
mar Grtmsson 2 og Steindór Gunnarsson
1.
Dómarar voru Gunnar Kjartansson
og Karl Jóhannsson og komust vel frá.
-SÖE
IR-INGAR SOTTU STIG
í Fjörðinn - unnu Hauka 89-86 í úrvalsdeildinni
■ ÍR-ingar sóttu sér dýrmæt stig í
Hafnarijörð á sunnudag, er liðið fór
þangað og lék við lið Hauka í úrvals-
deildinni í körfuknattleik. Með stórleik
í síðari hálfleik tókst ÍR-ingunum að
tryggja sér sigur í leiknum, 89-86, þrátt
fyrir að missa Pétur Guðmundsson útaf
með 5 villur nærri fjórum mínútum fyrir
leikslok. Það var öðru fremur stórleikur
þeirra bræðra, Hreins og Gylfa Þorkels-
sona, sem færði ÍR þennan sigur, þeir
skoruðu grimmt í síðari hálfleik, og
sérstaklega var Hreinn atkvæðamikill í
vörn og sókn, stal boltanum oft á
örlagaríkum augnablikum fór í hraða-
upphlaup og skoraði. Staðan í hálfleik
var 47-50 Haukum í hag.
Haukarnir fóru vel af stað í leiknum,
og átti þar stærstan þátt Ólafur nokkur
Rafnsson, sem skoraði 9 stig á fyrstu
tveimur mínútunum. Haukar komust í
9-2 og 11-4, en ÍR minnkaði muninn í
16-17. Haukar höfðu yfir 29-22, 32-24,
36-27, en þá tóku ÍR-ingar við sér. Þeir
komust fyrst yfir 45-44, en Haukar
höfðu yfirhöndina í hálfleik, 50-47.
í síðari hálfleik höfðu Haukar yfir
56-53, en síðan ekki söguna meir og þeir
Hreinn og Gylfi Þorkelssynir skoruðu
næstu 20 stig fyrir ÍR. ÍR náði forystu
73-64, og hafði yfir 5-8 stig þar til Pétur
Guðmundsson fékk sína fimmtu villu
þegar eftir voru tæpar 4 mínútur. Þá var
staðan 85-76 ÍR í hag. Við þetta áfall
kom hik á leikmenn ÍR, og Haukarnir
með þá Pálmar Sigurðsson og Ólaf
Rafnsson fremsta í flokki minnkuðu mun-
inn í 84-85 á svipstundu. IR-íngar tóku
þá tíma, og náðu meiri yfirvegun í leik
sinn. Gylfi Þorkelsson skoraði mikilvæga
körfu 87-84 einni mínútu fyrir leikslok,
ÍR komst svo í 89-84, og Haukar áttu
síðasta orðið, 89-86.
STJARNAN SKAUST í ÚRSUT
Þrótt 25-21 á sunnudagskvöld
vann
■ Stjarnan gerði sér lítið fyrir á sunnu-
dag og tryggði sér sæti í úrslitakeppni
Ijögurra efstu liða í 1. deild karla í
handknattleik. Stjarnan sigraði Þrótt
örugglega í leik liðanna á sunnudag, og
með þessum sigri náði Stjarnan sæti í
úrslitakeppninni. Sigur Stjörnunnar var
nokkuð öruggur, 25-21. Staðan var 11-10
Þrótti í hag í hálfleik. Það var einkum
betra úthald Stjömumanna, ekki síst
andlega, í lokin sem tryggði sigurinn,
þrjú gullfalleg mörk í röð, eftir að
munurinn var aðeins eitt mark. Eyjólfur
Bragason fór á kostum í liði Stjörnunnar,
hamfarir hans og góð vöm liðsins
sköpuðu sigurinn ásamt betra úthaldi.
Leikurinn var í járnum lengst af.
Liðin fóru jafnt af stað, jafnt á öllum
tölum í fyrri hálfleik, nema að Þróttarar
komust yfir 7-5 og 8-6, síðan varð jafnt
aftur. Þróttur hafði yfir 11-10 í hálfleik.
í síðari hálfleik var jafnt 11-11 og
12-12, en þá skildu leiðir. Stjörnumenn
komust í 14-12. 18-15 og 22-19. Þá tóku
Þróttarar góðan sprett og skoruðu tvö
mörk, en þrjú mörk Stjörnunnar í lokin
tryggðu góðan og verðskuldaðan 25-21
sigur.
Maðurinn bak við sigur Stjörnunnar
var Eyjólfur Bragason, sem fór í gang í
síðari hálfleik svo um munaði, skoraði
öll sín 7 mörk þá. Þá átti hinn ungi og
bráðefnilegi Sigurjón Guðmundsson
stórleik, og Magnús Teitsson og Gunnar
Einarsson fyrrum þjálfari liðsins léku
vel, mörg mörk Gunnars stórfengleg.
Páll Björgvinsson og Konráð Jónsson
.voru langbestu menn Þróttar. Páll Ólafs-
son náði sér ekki á strik í leiknum, og
kórónaði leikinn með því að láta vísa sér
útaf í lokin þegar mest lá við.
Mörkin:Stjarnan: Eyjólfur 7, Sigurjón
4, Magnús 4, Gunnar 4, Bjarni Bessa 1,
Gunnlaugur Jóns 1 og Skúli Gunnsteins-
son 1. Þróttur: Páll Björgvinsson 7,
Konráð Jónsson 6, Páll Ólafsson 5/3,
Birgir Sigurðsson 1, Gísli Óskarsson 1
og Lárus Lárusson 1.
Leikinn, sem var spennandi og
skemmtilegur lengst af, dæmdu Árni
Sverrisson og Hákon Sigurjónsson og
gerðu það þokkalega, þó ekki svo öllum
líkaði.
-SÖE
■ Eyjólfur Bragason leiddi félaga
sína til sigurs gegn Þrótti, og þar með
í úrslit Ijögurra efstu liða á Islands-
mótinu í handknattleik.
Besti maður ÍR var Hreinn Þorkels-
son, og bar hann af öðrum í þessum leik
sem gull af eiri. Gylfi bróðir hans lék
mjög vel, og Pétur Guðmundsson spilaði
þá bræður vel uppi í síðari hálfleik.
Pétur var þó daufur í leiknum.
Ólafur Rafnsson átti stórleik með
Haukum, en fékk fjórðu villu sína strax
í fyrri hálfleik. Hann var síðan ekkert
notaður fyrr en of seint í síðari hálfleik.
Hann hefði mátt koma inn fyrr. Pálmar
Sigurðsson var og góður, en að öðrum
ólöstuðum var Kristinn Kristinsson best-
ur Haukanna, hann var maðurinn á bak
við vörslu Péturs, og flestar villur Péturs
fiskaði Kristinn. Ef Kristinn væri betri
sóknarmaður en hann er væri hann einn
besti miðherji sem hér er til.
Stigin
ÍR: Hreinn 25, Pétur 19, Gylfi 16,
Ragnar Torfason 9, Benedikt Ingþórs-
son 8, Hjörtur Oddsson 6 og Kolbeinn
Kristinsson 6.
Haukar: Pálmar 19, Ólafur 16, Reynir
14, Kristinn 14, Eyþór Árnason 4,
Hálfdán Markússon 2 og Sveinn Sigur-
bergsson 2.
Dómarar voru Gunnar Bragi Guð-
mundsson og Gunnar Valgeirsson.
Komust þeir þokkalega frá leiknum, en
voru fullfljótir að dæma villur á köflum.
- SÖE
Stadan
■ Staðan í úrvaldsdeildinni í körfuknattleik
ásamt ursliturn helgarinnar.
Njarðvik-Valur.............89-90
Haukar-ÍR....................86-89
KR-Keflavik................85-73
Staðan
Njarðvík.... 17 13 4 1369-1265 26
Valur....... 17 9 8 1404-1230 18
KR ......... 17 9 8 1252-1236 18
Haukar...... 17 8 9 1257-1262 16
Keflavík.... 17 6 11 1053-1188 12
ÍR.......... 17 6 11 1229-1271 12
Næsti leikur er i kvöld en þá leika IR og
Keflavík í Seljaskóla kl. 20.
nmHn
Tvíburasigur
í sviginu
Phil Mahre fyrstur - Steve annar
■ Bandarísku tvíburamir Phil og Steve
Mahre, lentu í efstu sætum í svigakeppni
Ólympíuleikanna. Phil hreppti gullverð-
launin, en Steve hlaut silfrið. 104 kepp-
endur hófu keppnina, en 57 þeirra féllu
úr keppninni, þar á meðal íslendingamir
Ámi Þór Ámason og Guðmundur Jó-
hannsson. Meðal þekktra kappa sem
féllu úr keppninni má nefna Andreas
Wenzel, Max Julen, Pirmin Zurbriggen,
IS vann Fram
á möguleika á úrvalsdeildarsæti
■ Efstu lið 1. dcildar i körfuknattleik, ÍS og
Fram léku í Hagaskóla á sunnudag. Framarar
voru vfir allan tímann, en ÍS tókst þó að sigra
61-60, með vítaskotum Kristins Jörundssonar
eftir að leiktíma lauk.
Framarar höfðu forystu þar til um miðjan
fyrri hálfleik að ÍS jafnaði 14-14. Framarar
höfðu síðan þriggja stiga forystu í hálfleik
33-30. 1 síðari hálfleik bættu Framarar jafnt
og þétt við forskot sitt og þegar um 6 mínútur
voru til leiksloka höfðu þeir 10 stiga forskot
54-44. Þá skoruðu Stúdentar 7 stig í röð og
breyttu stöðunni í 54-51. Þegar 2 mínútur
voru eftir var stðan 59-53 Fram í vil, og allt
útlit fyrir sigur Fram. En pressuvöm Stúaenta
síðustu mínúturnar gerði það að verkum að
ÍS minnkaði muninn í 1 stig 60-59 þegar 30
sekúndur vom eftir. Framarar hugðust halda
boltanum þann tíma sem eftir var og það
tókst þeim þar til á síðustu sekúndum
leiksins, er Þorvaldur missti boltann. Þjálfari
ÍS, Kristinn Jörundsson náði fyrstur til knatt-
arins. Þorvaldur Geirsson var of seinn að ná
til boltans, og braut á Kristni. Á sama
augnabliki og dómarinn dæmdi villuna á
Þorvald gall flauta tímavarðar og leiktíminn
var liðinn. IS hafði skotrétt (bonus) og tvö
vítaskot til góða. Mikil spenna ríkti meðan
Kristinn Jörundsson tók skotin, en taugar
Kristins voru í lagi og vítaskotin rötuðu rétta
leið. Þar með voru Stúdentar komnir yfir í
fyrsta sinn í leiknum, 61-60, en það var nóg
og sigurinn í höfn, sannkallaður heppnis-
sigur.
Stúdentar áttu ekki góðan leik að þessu
sinni þrátt fyrir sigurinn, eini maðurinn sem
lék af eðlilegri getu var Guðmundur Jóhanns-
son, en Eiríkur Jóhannesson átti einnig góða
spretti. Þá var þáttur Kristins Jörundssonar
ákaflega stór í lokin t þeirri erfiðu aðstöðu
að hafa úrslitin algjörlega í eigin höndum,
með tveimur vítaskotum eftir leiktíma.
Með þessum sigri, þá vænkast hagur Stú-
denta mjög, þeir hafa nú lokið leikjum sínum
A-þýsk vann
í listhlaupi
■ 18. ára A-þýsk stúlka, Katarína Witt
sigraði í Listhlaupi kvenna á 01. Hún
sigraði eftir harða keppni við bandarísku
stúlkuna Rosalyn Summers sem varð önnur.
Witt hlaut 3,6 stig, en Summers 4,6 stig.
Þriðja varð sovesk stúlka, Kira Ivonova
með 9,2 stig. í fjórða sæti lenti Tiffany
Chin frá Bandaríkjunum með 11,0 stig.
-BL.
við Fram og unnið tvo og tapað tveimur, en
stigahlutfallið er ÍS 7 stigum í hag. Ef liðin
tvö vinna þá leiki sem eftir eru þá fara
Stúdentar upp í úrvalsdeildina, á hagstæðara
stigaskori í innbyrðis viðureignum. ÍS á nú
fjóra leiki eftir í deildinni, gegn Þór fyrir
norðan, Skallagrím, og tvívegis gegn Laug-
dælum. ÍS er nú með 24 stig. Framarar hafa
nú 18 stig en eiga 7 leiki eftir, 2 gegn
Grindavík, 2 gegn Laugdælum, 2 gegn
Skallagrími og einn.gegn Þór fyrir norðan.
Framarar áttu nokkuö góðan leik á sunnu-
daginn og voru mjög óheppnir að tapa, áttu
það alls ekki skilið. Bestu menn þeirra í
leiknum voru þeir Ómar Þráinsson, Davíð
Arnarog Þorvaldur Geirsson. Lárus Thorlac-
ius átti einnig þokkalegan leik.
Dómarar í leiknum voru þeir Davíð
Sveinsson og Karsten Kristinsson. Þeirra
frammistaða var ekki góð og dæmdu þeir
mjög furðulega.
Stig IS: Guðmundur Jóhannsson 20, Krist-
inn Jörundsson 14, Eiríkur Jóhannesson 10,
Árni Guðmundsson 8, Björn Leósson 7, og
Gunnar Jóakinsson 2.
Stig Fram: Ómar Þráinsson 19, Þorvaldur
Geirsson 12, Lárus Thorlacius 11, Davíð
Arnar 8, Guðbrandur Lárusson 5, Örn
Þórisson 4 og Jóhann Bjarnason 1. -BL
Paul Frommelt, Jury Franko, Hans
Enn, Antón Steiner og Bengt Fjellberg.
Röð 5 efstu manna og tímar þeirra:
1. Phil Mahre USA 1:39,41 mín.
2. Steve Mahre USA 1:39,62 mín.
3. Didier Bouvet Frakklandi 1:40,20
mín.
4. Jonas Nielsson Svíþjóð 1:40,25 min.
5. Oswaldo Tötsch Ítalíu 1:40,48 mín.
-BL.
■ Phil og Steve Mahre sigruðu í
svigi á Ol, Phil varð fyrstur, Steve
annar.
KR skellti
Keflavík
í úrvalsdeildinni 85-73
■ KR vann Keflavík í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik 85-73, er liðin mættust í
Hagaskóla á sunnudagskvöld. í hálfleik
var staðan 40-29 KR-ingum í vil.
Það var aldrei nein spurning hvoru-
megin sigurinn lengi. KR-ingar réðu
lögum og lofum á vellinum og juku
forskot sitt jafnt og þétt allan leikinn.
Lokatölurnar 85-73 var mesti munur
sem KR-ingar náðu. í hálfleik höfðu
KR-ingar 11 stiga forskot 40-29.
Þessi leikur skipti KR ekki miklu máli
þar sem þeir voru þegar orðnir öruggir í
fjögurra liða úrslitin. Það er erfitt fram-
undan hjá Keflvíkingum og fallið blasir
við, ef þeim tekst ekki að leggja iR að
velli í kvöld, en sá leikur verður í
íþróttahúsi Seljaskóla. Keflavík og ÍR
n- "i-r*, ■' V-i, - •-' - . InPiiVrji *
hafa nú 12 stig hvort og leikurinn í kvöld
er nokkurs konar úrslitaleikur um fallið.
Hjá KR átti Jón Sigurðsson mjög
góðan leik og þeir Garðar Jóhannsson
og Guðni Guðnason áttu einnig góðan
leik. Hjá Keflvíkingum var Jón KR
Gíslason besti maður, en Þorsteinn
Bjarnason átti þokkalegan leik.
Stig KR: Jón Sigurðsson 23, Garðar
Jóhannsson 18, Guðni Guðnason 14,
Ólafur Guðmundsson 10, Kristján
Rafnsson 8, Páll Kolbeinsson 6 og Þor-
steinn Gunnarsson 4.
Stig ÍBK: Jón KR. Gíslason 29, Þor-
steinn Bjarnason 21, Pétur Jónsson 7,
Sigurður Ingimundarson 6 Guðjón
Skúlason 4, Björn Víkingur Skúlason 2
og Matti Stefánsson 2. -BL
■ Wolfgang Hoppe og félagar
hans, Roland Wetzig, Andreas Kirc-
hner og Dietmar Schauenhammer
unnu gullverðlaun á fjögurra manna
bob-sleða. Hoppe sigraði einnig á
tveggja manna sleða á Ol.
Sigraði aftur
í bob-sleða-
keppninni
■ Wolfgang Hoppe og félagar hans í
A-sveit A-Þýskalands, þeir Roland
Vetzig, Dietmar Schauerhammer og
Andreas Kirchner, sigruðu í keppni á
fjögurra manna bob-sleðum. Þeir fengu
tímann 3:20,22 mín. í öðru sæti varð
B-sveit A-Þýskalands á 3:20,78 mín og í
þriðja sæti varð sveit Sviss á 3:20,78 mín.
-BL.
Féllá
lyfjaprófi
■ Einn keppenda Mogólíu i 4x10 km
skíðagöngu, á OL á fimmtudag var
útilokaður frá frekari keppni í leikunum
eftir að jákvæð niðurstaða fékkst úr
lyfjapróft sem hann gekkst undir. Mon-
gólinn, Purevjal Batsukh mun hafa neytt
örvandi lyfja fyrir keppnina. Mongólinn
er sá eini sem fallið hefur á lyfjaprófi á
leikunum. Alls hafa verið tekin 312 sýni
úr keppendum. -BL
Þriðja gull
Marja Liisu
■ Finnska stúlkan Marja Liisa Hama-
lainen vann sín þriðju gullverðlaun á
leikunum, er hún bar sigur úr bítum í 30
km skíðagöngu á laugardag. -BL.
Ungur Rússi
vann í 10 km
skautahlaupi
■ Igor Malkov, 19 ára gamall Sovét-
maður sigraði í 10 km skautahlaupi á OL
í Sarajevo. Hann sigraði Svíann Tommy
Gustafsson á æsispennandi lokaspretti,
fékk tímann 14:39,90 mín, en Svíinn
hljópá 14:39,95 mín. þriðji varð A-Þjóð-
verjinn Rene Schöefisch, hann fékk
tímann 14:46,91 mín. -BL.
Schiister átti
stórleik
Frá Gísla Á. Gunnlaugssyni íþrótafrétta-
manni Timans í V-Þýskalandi:
■ Bern Schúster „ljóshærði engillinn"
frá V-Þýskalandi, átti stórleik með Bar-
celona um síðustu helgi gegn Real
Valladolid. Schúster, sem átti fremur
slappan leik á miðvikudag í landsleik
V-Þýskalands og Búlgaríu, sýndi nú
allar sínar bestu hliðar, lagði upp 2 mörk
■ í 5-0 sigri og skoraði 1 mark sjálfur. Hin
mörkin skoruðu Diego Maradona, sem
greinilega er kominn á skotskóna aftur,
2, og Carrasco og Marcos.
Juanito, landsliðsmaður Spánverja,
þó ekki síðasta árið, skoraði sigurmark
Real Madrid gegn Salamanca. Juanito
er nú markahæstur á Spáni með 14 mörk.
Real Madrid er nú efst á Spáni með 35
stig, Atletico de Bilbao er með 33 stig og
Barcelona hefur 31 stig. -GÁG/SÖE