Tíminn - 07.03.1984, Blaðsíða 5
MJÐV|KUDAGUR7.iMARS 1984
fréttir
Ný könnun á þjónustufyrirtækjum og dagvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu:
MEIRA EN ÞRIÐJUNGUR HÆTTI
REKSTRINUM A TÆPUM ARATUG
■ Meira en þriðjungur af þjónustufyr-
irtækjum (einkaþjónusta) og dagvöru-
verslunum sem rekin voru á höfuöborg-
arsvæðinu áriö 1974 höfðu hætt rekstri
árið 1983, samkvæmt könnun sem gerð
var á síðasta ári.
Könnun þessi var gerð af iandfræði-
nemum og frá henni skýrt í fréttabréfi
Landfræðifélagsins. Hún náði til 500
fyrirtækja sem starfandi voru í Reykja-
vík, Kópavogi og Seltjarnarnesi árið
1974, sem valin voru þá með tilviljana-
kenndu úrtaki. Tíu árum síðar voru 112
(22,4%) þessara fyrirtækja hætt rekstri,
144 (28,8%) höfðu flutt, en 244 (48,8%)
voru enn á sama stað. Hlutfallslega
höfðu flest fyrírtæki hætt starfsemi í
dagvöruverslun, tæp 39% og einkaþjón-
ustu þar sem 29 af alls 87 fyrirtækjum
höfðu hætt starfsemi, eða réttur þriðj-
ungur.
Mest var um brottflutning fyrirtækja
úr eldri hverfum Reykjavíkur vestan
Kringlumýrarbrautar, þar sem fækkaði _
um 43 fyrirtæki samkvæmt úrtakinu.
Gamli bærinn missti 18 verslunarfyrir-
tæki og 9 þjónustufyrirtæki umfram þau
er þangað lluttu. Mest aukning fyrir-
tækja varð hins vegar í Ármúlahverfi,
þar sem fyrirtækjum fjölgaði um 16
umfram aðflutt, í Ártúnshöfðahverfi og
Smiðjuvegshverfi í Kópavogi. Athygl-
isvert þótti að enginn aðflutningur fyrir-
tækja varð aftur á móti í miðbæ Kópa-
vogs.
Það kom á óvart að jafn mörg iðnfyr:
irtæki fluttu í gamla bæinn og þaðan'
fluttu, öfugt við þjónustu- og verslunar-
fyrirtæki, eins og áður er getið. Mest
fækkun iðnfyrirtækja vegna flutninga
var hins vegar úr Rauðarárholti.
Bankar og tryggingafyrirtæki voru öll
enn í starfi og stöðugust á sínum gömlu
stöðum.
Menningarstofnun
Bandaríkjanna:
Video-
mynda
dagar
■ í dag sýnir Menningarstofnun
Bandaríkjanna tveggja klukkustunda
þátt frá ABC sjónvarpsstöðinni um sam-
skipti Bandaríkjanna og Sovétríkjanna
næstliðin 50 ár. Er þetta þriðja sýningin
í röð myndbandasýninga sem verða alla
miðvikudaga klukkan 17:30 í húsi Menn-
ingarstofnunarinnar, Nesvegi 16. Stefnt
er að því að sýna þarna nýjar frétta-
myndir sem þjónað geti fréttamönnum
og öðrum þeim sem sérstakan áhuga
hafa á alþjóðamálum. Sérstök áhersla
verður lögð á efni skylt forsetakosning-
unum í Bandaríkjunum sem verða síðar
á þessu ári. -ð-
Guðrún Jónsdóttir
Ráðin til að
vinna að
skipulagi
miðbæjarins
■ Guðrún Jónsdóttir, sem undanfar-
in 5 ár hefur starfað sem forstöðumað-
ur Borgarskipulags Reykjavíkur hefur
verið ráðin til að vinna að gerð skipu-
iags fyrir miðbæinn í Reykjavík, og er
það starf hluti af þeirri endurskoðun á
aðalskipulagi höfuðborgarinnar, sem
stendur yfir og á að Ijúka árið 1986.
Ráðning Guðrúnar í þetta starf varð
staðfest í borgarráði í gær.
Guðrún var ráðin til 5 ára sem
forstöðumaður Borgarskipulagsins, og
hafði lýst yfir því að hún væri fús tii að
gegna starfinu áfram. Hins vegar var
ákveðið að auglýsa stöðuna iausa tii
umsóknar, enda hafa verið úfar með
meirihluta borgarstjórnar og borgar-
yfirvöldum, aðallega vegna hins um-
deilda skipulags Skuggahverfís, sem
lyktaði m.a. með því að Borgarskipu-
lag var ekki látið auglýsa skipulagið,
né fjalla um athugasemdir við það.
JGK
■ Mikið af munum var boðið upp í verksfæðishúsi Kofra h.f., en vinnuvélar, bflar og ýmisskonar járnadót var boðið upp
utandyra. Fólk lét snjó og kulda ekki aftra sér frá að fylgjast með og bjóða í góssið, enda væntanlega ýmsir gert góð kaup.
Tímamyndir Finnbogi.
■ Uppboð virðast enn vera áhugaverð-
ar „samkomur" ef marka má þann mikla
mannfjölda sem sótti uppboð er fram fór
tvo laugardaga í röð á ísafirði nú fyrir
nokkru. Að sögn Péturs Hafstein, bæjar-
fógeta á ísafirði var þar um að ræða
lausafjáruppboð, þar sem m.a. voru
seldar eignir úr þrotabúi Kofra h.f. -
vinnuvélarfyrirtækis sem úrskurðað var
gjaldþrota á síðasta vori. Auk þess var
boðinn upp tollvarnjngur ýmisskonar og
hinir og þessir lausamunir sem lög-
fræðingar höfðu gert fjárnám í til ljúkn-
ingjar skuldakröfum. Pétur sagði upp-
boð þetta raunar hafa verið svo yfirgrips-
mikið að fresta varð því fyrri daginn og
tók þannig tvo laugardaga að Ijúka því.
Allt seldist lík'a, sumt á sæmilegu verði,
en annað fyrir lítið eins og gengur og
gerist á uppboðum. _ jj£|_
■ Sigurður Þóroddsson, fulltrúi bæjarfogeta á ísaflrði varð að grípa til gjallarhorns-
ins til að mannfjöldinn sem uppboðið sótti heyrði til hans.
ísfirðingar:
FJÖLMENNA fl UPPBOÐ!
Alþjóðlegur baráttu-
dagur kvenna á morgun
Konur efna til
baráttuf undar og
mótmælagöngu
■ Konur úr fjölda kvcnnasamtaka
munu efna til mótmælagöngu og aðgerða
í kjölfar þeirra á ntorgun 8. mars, sem
er alþjóðlegur baráttudagur kvenna, til
að mótmæla því misrétti sem ríkt hefur
og ríkir enn á kjörum karla og kvenna.
Hvetja konurnar kynsystur sínar til að
mæta á Hallærisplaninu fimmtudaginn
8. mars og taka þátt í þessum mótmæl-
um.
Um kvöldið verður síðan efnt til opins
baráttufundar í Félagsstofnun stúdenta.
Að fundinum standa: Kvennaframboðið
í Reykjtivík, Kvennalistinn, Miðstöð
kvenna í Alþýðubandalaginu, Lands-
samband framsóknarkvenna, Samband
alþýðuflokkskvenna, konur úr Banda-
lagi jafnaðarmanna, Samtök kvenna á
vinnumarkaðinum og Menningar- og
friðarsamtök ísl. kvcnna.
Dagskrá fundarins verður fjölbreytt:
Fluttir verða söngvar eftir Bertold
Brecht, Edga Velés frá Nicaraqua flytur
ávarp, Guðfinna Friðriksdóttir verka-
kona flytur ræðu, kvennahljómsveitin
Dúkkulísur leikur og Kvennasönghóp-
urinn leiðir fjöldasöng. Pá verður flutt
brot úr leikriti Nínu Bjarkar „Súkkulaði
handa Silju“ og Eddu Björgvinsdóttir og
Helgu Thorberg koma í heimsókn í
„afmæli Ella“.
- HEI.
Háskólatónleikar í dag
Verk fyrir
blásarakvintett
■ Sjöttu háskólatónleikarnir á vor-
misseri verða haldnir í dag í Norræna
húsinu og hefjast kl. 12.30.
Að þcssu sinni verða flutt verk fyrir
málmblásarakvintett eftir Arthur Fra-
ckenpohl og Vaclav Nelhybel. Flytjend-
ur eru Lárus Sveinsson, trompett, Jón
Sigurðsson, trompett, Þorkell Jóelsson,
horn, William Gregory, básúna og
Bjarni Guðmundsson, túba. -JGK.
Rauði kross íslands
Merkjasala og barnaskemmtun á öskudaginn
■ Eins og veríð hefur er öskudagur
merkjasöludagur Rauða kross Islands. I
dag verður Rauði krossinn með uppá-
komu fyrir börn í Reykjavík og Kópa-
vogi og taka félagsmiðstöðvar sveitarfé-
laganna þátt í henni. Skemmtun þessi
■ Á þessari mynd sjást skyndihjálpar-
púðar sem Rauði kross íslands hefur
látið gera sérstaklega til notkunar í
bílum. Þessir púðar voru gerðir í tilefni
af Norrænu umferðaröryggisárí og hefur
þeim veríð dreift til deilda RKÍ víða um
land.
verður niður á Lækjartorgi og hefst
kiukkan 10:30 og stendur eitthvað fram
yfir hádegi. Þarna verður svo kölluð
kamivalganga, köttur sleginn úr tunn-
unni og farið verður í leiki.
Af öðru sem á döfinni er hjá Rauða
krossinum er helst að-nefna námskeið í
skyndihjálp. Stendur eitt slíkt yfir hjá
Reykjavíkurdeildinni um þessar
mundir. Námskeið þessi verða sífellt
veigameiri þáttur í starfi samtakanna.
Þannig héldu heildarsamtökin 27 slík á
síðasta ári auk fjölmargra sem haldin
voru á vegum deilda félagsins um allt
land.
Fyrir tíu árum tók RKÍ að sér, með
samningi við almannavarnir, forystu og
umsjón með skyndihjálparnámskeiðum.
Hefur félagið síðan séð til þess að ávallt
sé á boðstólunum það nýjasta á sviði
skyndihjálparkennslu og að full sam-
ræming sé á kennslunni um allt land.
í tilefni af Norrænu umferðaöryggisári
bauð RKÍ fram aðstoð við skyndihjálp-
arkennslu fyrir bílstjóra sem margir
urðu til að notfæra sér. Með nýjum
umferðalögum er gert ráð fyrir að þeir
sem taka bílpróf kunni eitthvað fyrir sér
í skyndihjálp og er í nýútkominni
námskrá fyrir ökupróf birtur ítarlegur
kafli úr kennslubók RKÍ um skyndi-
hjálp.