Tíminn - 07.03.1984, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1984
9
Alþingi
■ Jón Helgason landbúnaðarráðherra
hefur mælt fyrir frumvarpi um ræktun
nytjaskóga.
Hér fer á eftir meginhluti framsögu-
ræðu hans. Saga skipulegrar skógræktar
á íslandi nær nú yfir 85 ár. Upphaf
skógræktar er almennt miðað við árið
1899, en það ár fékk Daninn Karl Grúter
leyfi landsstjórnarinnar til að koma upp
trjáreit á Þingvöllum. Reitur þessi er í
brekkunum austan Almannagjár
skammt frá Öxarárfossi minnir okkur
nú á starf frumherja skógræktar hér á
landi.
Með samþykkt laga nr. 54 22. nóv.
1907 um skógrækt og varnir gegn upp-
blæstri lands var af hálfu hins opinbera
hafið skipulegt starf að skógræktarmál-
um. Markmið þess starfs hafa jafnan
verið þau hin sömu og lýst var í 1. gr.
áðurnefndra laga, en þar segir: Skógrækt
skal hefja með því markmiði að friða og
bæta skóga þá og skógaleifar, sem enn
eru hér á landi, rækta nýja skóga og
leiðbeina landsmönnum í meðferð skóg-
og gróðursetningu. Að þessu verkefni
hafa skógræktarstjóri og Skógrækt ríkis-
ins unnið en hlutur skógræktarfélaga og
einstaklinga er einnig stór. Þættir skóg-
ræktarstarfsins, sem mest áhersla hefur
verið lögð á eru verndun skógarleifa og
ræktun nýrra skóga til að bæta og fegra
landið. Reynslan hefur líka sýnt, að á
ýmsum stöðum landsins má rækta skóg
til viðarframleiðslu. Horfa menn þar
m.e. til þess árangurs, sem náðst hefur í
Fljótsdal í Norður Múlasýslu, en á árinu
1969 veitti Alþingi 500 þús. kr. fjárveit-
ingu til framkvæmda við sérstaka áætlun
um skógrækt á bújörðum þar. Skógrækt-
argirðingar sakv. Fljótsdalsáætlun eru
nú á 12 jörðum og ná um yfir um 450
hektara. Fyrst var plantað þarna 1970 og
hafa hæstu lerkitrén þegar náð 5 metra
hæð. Mikiil og vaxandi áhugi er nú fyrir
því meðal forvígismanna skógræktar-
mála að hafist verði handa um enn
frekari skógrækt í þeim tilgangi að koma
upp nytjaskógum á bújörðum og leggja
þannig grunninn að nýrri búgrein hér á
Iandi. Er fyrirhugað að unnið verði að
slíkri ræktun með skipulegum hætti og á
grundvelli sérstakra áætlana um nytja-
skóga. Með ræktun nýtjaskóga er verið
að leggja í sjóð fyrir framtíðina. Slík
fjárfesting fer oftast ekki að skila tekjum
fyrr en eftir 25-30 ár og er því talið
nauðsynlegt og eðlilegt að hið opinbera
stuðli að því að þessi nýja búgrein geti
orðið að raunveruleika líka hér á landi.
Því er þetta frumvarp flutt.
Með frv. er lagt til, að inn í skógrækt-
arlögin komi nýr kafli, IV, kafli undir
fyrirsögninni „Um ræktun nytjaskóga á
bújörðum“ og eru meinatriði frumvarps-
ins þessi:
1. Ríkissjóður styrkir ræktun nytja-
skóga á bújörðum í þeim héruðum
landsins, þar sem skógræktarskilyrði eru
vænleg eftir því sem fé er veitt til á
fjárlögum hverju sinni.
2. Styrkur ríkissjóðs má nema allt að
80% við stofnun undirbúnings skógrækt-
ar landsins.
3.Sett eru ýmis skilyrði fyrir styrkveit-
ingunni, svo sem að gerð hafi verið
skógræktaráætlun fyrir viðkomandi sviði
og fyrir liggi samningur milli Skógræktar
ríkisins og viðkomandi bónda um skóg-
ræktarlandið og framkvæmdir.
4. Settar eru reglur um meðferð
skógræktarlandsins. Aðilaskipti að rétt-
indum yfir því og umr. Skógræktar
ríkisins sé út af brugðið. Er þessum
ákvæðum ætlað að tryggja, að framlög
ríkins til ræktunar nytjaskóga nýtist til
þess verkefnis. Ræktun nytjaskóga tekur
langan tíma og því er nauðsynlegt, að
frá upphafi séu til staðar skýrar og
ótvíræðar reglur um það land, sem
ráðstafað hefur verið til slíkrar skóg-
ræktan.
5. Samkvæmt frumvarpinu skal nefnd
heimamanna vera Skógrækt ríkisins til
aðstoðar við undirbúning og framkvæmd
skógræktaráætlunar, en yfirumsjón með
ræktun nytjaskóga verður í höndum
Skógræktar ríkisins. TeEið er fram að
Alþingi skuli árlega skipta því fé sent
veitt er til ræktunar nytjaskóga milli
hinna einstöku skógræktaráætlana. Eins
og áður sagði er frv. þessu ætlað að vera
grundvöllur nýrrar búgreinar hér á
landi, en þessi búgrein verður ekki
stunduð hvar sem er á landinu svo
náttúrleg skilyrði til Skógræktar á íslandi
eru mjög misjöfn eftir landshlutum, svo
og svæðum innan landshluta. Samkvæmt
frumvarpinu er það skilyrði styrkveiting-
ar að skógræktarskilyrði séu vænleg í
Skógrækt ríkisins valið á milli þess að
endurkrefja landeiganda um hinn upp-
haflega styrk eða leysa til sín skógræktar-
landið að fengnu samþykki tilgreindra
aðila.
Þá hefur Skógrækt ríkisins jafnan
forkaupsrétt að skógræktarlandinu næst
á eftir lögboðnum forkaupsréttarhöfum,
þ.e. ábúenda og sveitarstjórn en for-
kaupsréttur verður þó ekki virkur þegar
jörðinni í heild er ráðstafað til skyld-
menna sem tilgreind eru í 21. til 26. gr.
jarðalaga nr. 65/31. maí 1976. í frv. eru
einnig sérstakar reglur um ákvörðun
kaupverðs þegar forkaupsrétti eða inn-
kaupsrétti er beitt og er þá tekið tillit til
framlags ríkisins í upphafi.
J>á er í frv. lagt til að 20. gr. skógrækt-
arlaganna frá 1955 verði felld niður, en
skv. henni er heimilt að styrkja rætun
barrskóga á jörðum og jarðaskikum og
þó tilgangur þeirrar ræktunar hafi ekki
eingöngu verið beint fjárhagslegar nytjar
er talið eðlilegra að festa þessa heimild
niður samfara upptöku ákvæða um rækt-
un nytjaskóga. Einnig er lagt til að 23.
gr. skógræktarlaganna verði breytt í þá
veru að orða greiðslu sem heimild miðað
við það fé, sem veitt er til þessa verkefnis
á fjárlögum hverju sinni.
Fyrir nokkrum árum var hafist handa
við að endurskoða skógræktarlögin frá
1953 í heild, en nefndsú sem unniðhefur
að því verkefni hefurekki lokiðstörfum.
Ég taldi hins vegar ekki rétt að láta
lagasetningu um ræktun nytjaskóga á
bújörðum bíða hugsanlegrar endur-
skoðunar skógræktarlaganna í heild.
Ég nefndi hér fyrr að áhugi bænda og
skógræktarinnar á því að hefjast handa
um ræktun nytjaskóga er mikill. Þannig
hafa 40 bændur í Eyjafirði lýst sig
reiðubúna til að hefja slíka skógrækt á
900 hekturum lands. Hópur bænda í
Árnessýslu er einnig tilbúinn til að
hefjast handa og í Suður-Þingeyjarsýslu
og Borgarfirði hefur verið unnið að
könnun á möguleikum ræktunar nytja-
skóga. Á öllum þessum stöðum hafa
búnaðarsamböndin og skógræktarfélög-
in unnið að málinu í samráði við Skóg-
rækt ríkisins. Alþingi hefur líka þegar í
verki sýnt áhuga sinn á framgangi þessa
máls með 500 þús. kr. framlagi til
ræktunar nytjaskóga við afgreiðslu fjár-
lagafyrirárið 1984. Þaðerþví mikilvægt,
að þetta frv. hljóti afgreiðslu á þessu
þingi, þannig að unnt verði að hefjast
handa á komandi vori. Vil ég því biðja
þá nefnd, sem fær þetta til meðferðar að
reyna að vinna þannig að meðferð
málsins að slíkt megi takast.
Með ræktun
nytjaskóga er
lagt í sjóð fyrir
framtíðina
■ Jón Helgason landbúnaðarráðherra
ur, að ræktendur þurfi ekki sjálfir að
leggja fram verulegt eigið fé í upphafi,
heldur geti hann með eigin vinnufram-
lagi að mestu greitt sinn hlut. Mikilvægt
er líka, að bændur og fólkið í sveitum
vinni að þessu skógræktarstarfi undir
handleiðslu kunnáttumanna og þekking
á þessari nýju búgrein dreifist út í
sveitunum og verði grundvöllur aukinna
atvinnutækifæra þar, en ræktandinn
verður sjálfur að annast viðhald og
hirðingu skógarins og girðingar eftir að
plöntun er lokið og bera kostnað af því.
Þá er rétt að undirstrika, að frumvarp-
ið gerir ekki ráð fyrir sjálfvirku framlagi
ríkisins til nytjaskóga, hcldur þarf Al-
þingi hverju sinni við afgreiðslu fjárlaga
að ákveða hversu miklu fé verði varið til
þessa málaflokks. Ég rek hér ekki efni
einstakra ákvæða frumvarpsins en vil þó
vekja sérstaka athygli á þeim ákvæðum
þess, sem lúta að meðferð á því landi
sem ráðstafað hefur verið til ræktunar
nytjaskóga. í sumum tilvikum eru þetta
ströng ákvæði og leggja kvaðir á skóg-
ræktarlandið og eiganda þess. Slíkt er
hins vegar nauðsynlegt með tilliti til þess
langa tíma sem ræktun nytjaskóga tekur
og framlags samfélagsins sem heildar við
upphaf ræktunarinnar. Sinni eigandi
skógræktarlandsins ekki skyldum sínum
varðandi hirðingu og viðhald er Skóg-
rækt ríkisins skv. frv. heimilt að gera
nauðsynlegar aðgerðir á kostnað land-
eiganda og sé um ítrekaðar vanefndir að
ræða eða brotið er gegn ákvæðum laga
um meðferð skógræktarlands, getur
viðkomandi héraði og verður við gerð
skógræktaráætlana að leggja mat á þetta
atriði.
f greinargerð frumvrpsins eru nefnd 5
svæði sem vænlegust þykja til skógræktar
með viðarframleiðslu að markmiði, en
önnur svæði kunna þar einnig að koma
til greina. Gerð sérstakra skógræktar-
áætlana skv. frv. á að tryggja, aö íramlög
til ræktunar nýjaskóga verði veitt til
þeirra staða þar sem árangur af skóg-
ræktinni er sem öruggastur hvað varðar
náttúruleg skilyrði og veðurfar.
Erlendis hefur víða verið farin sú leið
á þeim stöðum þar sem skilyrði til
skógræktar eru áþekk því sem hér gerist,
að hið opinbera hefur með sérstökum
framlögum styrkt menn til að koma upp
skógi. Horfa menn þá ekki síst til þeirra
jákvæðu áhrifa, sem skógræktin hefur á
umhverfi sitt og þess að langur tími mun
líða þar til skógræktin fer að skila
viðkomandi skógareigendum tekjum. 1
flestum tilvikum er ræktandinn að leggja
í sjóð fyrir komandi kynslóðir. Hann
friðar land sitt og leggur í kostnað við
skógræktina og umhirðu skógarins. I
þessu frv. er lagt til að ríkið veiti sérstök
framlög er geti numið allt að 80% af
stofnkostnaði við ræktun nytjaskóga.
Frá Norður-Noregi og Norður-Svíþjóð
höfum við dæmi um að slík framlög nemi
alit að 90%.
Eins og framkemur í fylgiskjali með
frv. er kostnaður við að koma upp
nytjaskógi umtalsverður. Þar eru plöntu-
kaup stærsti kostnaðarliðurinn eða rúm'
50% af stofnkostnaði. Sú viðmiðun frv.
að framlag ríkisins geti numið allt að
80% af stofnkostnaði er við það miðað-
Úrbætur í húsnæðis-
málum námsmanna
■ 'Stefán Guðmundsson hefur mæit
fyrir þingsályktunartiilögu um húsnæðis-
mál námsmanna, sem hann lagði fram
ásamt fimm öðrum þingmönnum Fram-
sóknarfiokksins, þeim Davíð Aðal-
steinssyni, Olafi Þ. Þórðarsyni, Guð-
mundi Bjarnasvni, Páli Péturssyni og
Þórarni Sigurjónssyni.
I tillögunni er lagt til að kannað verði
sérstaklega á hvern hátt megi bæta úr
þeim mikla húsnæðisvanda sem náms-
menn utan Reykjavíkur og nágrennis
búa við vegna staðsetningar Háskóla
íslands og flestra sérskóla.
í framsöguræðu sinni sagði Stefán
Guðmundsson: Stærstu árgangar ís-
landssögunnar eru það æskufólk sem nú
er á aldrinum 18-25 ára. Menntun og þá
sérstaklega framhaldsmenntun, er orðin
mun algengari en nokkru sinni fyrr.
Menntastofnanir framhalds og sérnáms
eru aðallega staðsettar á Reykjavíkur-
svæðinu eins og öllum er ljóst. Námsfólk
utan af landsbyggðinni leitar því í
miklum mæli til höfuðborgarinnar eftir
menntun sinni. Þannig hefur skólakerfið
verið byggt upp.
Á undangengnum árum hafa verið
settir á stofn fjölbrauta- og menntaskólar
víða um landið auk menntaskólanna
sem voru fyrir. Á skólaárinu 1982-1983
voru 5733 nemendur utan Reykjavíkur í
þessum skólum, þar með taldar fram-
haldsdeildir grunnskólanna. í grg. eru
taldir upp 19 framhaldsskólar sem stað-
settir eru á höfuðborgarsvæðinu, sem
um 1800-2000 landsbyggðarnemendur
sækja. Sem dæmi um hlutfall nemenda í
þessum skólum má nefna að í einum
skóla sem telur um 400 nemendur eru
168 af landsbyggðinni. í öðrum skóla eru
nemendurnir alls 285, þar af 125 utan
höfuðborgarsvæðisins. Einnig þekkjum
við hlutfallið (80:4), 84:50,44:29, einnig
230:100, svo að aðeins nokkuð sé nefnt.
en það segir okkur samt sína sögu.
Í Háskóla íslands munu skráðir nem-
endur nú vera um 4013, þar af utan
höfuðborgarsvæðisins 923 nemendur.
Það er hins vegar alveg ljóst að fjöldi
landsbyggðarnemenda er í raun miklu
hærri en þessar tölur gefa til kynna þar
sem mikill fjöldi þeirra hefur flutt lög-
heimili sitt til Reykjavíkur meðan á
náminu stendur. Öllum er ljóst að hús-
næði er ein af forsendum þess að hægt sé
að stunda nám hér í Reykjavík. Álitið
er að um 5500-6000 íbúðir séu til leigu í
Reykjavík. Ásókn í þær er gífurleg sbr.
umfjöllun Leigjendasamtakanna svo og
skýrslur sem Félagsmálastofnun stúd-
enta frá árinu 1982 lét gera um húsnæðis-
aðstöðu háskólastúdenta sem er mjög
fróðleg skýrsla. Samkeppni um of fáar
íbúðir gerir það að verkum, að mikil
fyrirframgreiðsla og tiltölulega há húsa-
leiga er oft forsenda fyrir því að íbúðir
fáist á leigu. Þetta eykur mjög allan
tilkostnað landsbyggðarnemenda við
öflun menntunar í Reykjavík og mis-
munar þess vegna fólki vegna búsetu
sinnar. Stór hluti þeirra 5733 nemenda
sem nú stunda undirbúningsnám utan
höfuðborgarsvæðisins á eftir að leita á
þennan þrönga húsnæðismarkað. Ég sé
ekki ástæðu hér við framsögu málsins að
nefna hugsanlegar leiðir til úrbóta. Þar
koma sjálfsagt nokkrir kostir til greina.
Ég veit að skólastjórar viðkomandi skóla
hafa velt þessu máli mjög fyrir sér og
sumir þeirra hafa nokkuð ákveðnar
skoðanir þar um.
Með tillöguflutningi þessum ef sam-
þykkt verður treysti ég á skilning og vilja
núv. ríkisstj. til að bregða skjótt við og
leita sem skynsamlegastra leiða til úr-
bóta. Það er ástæða að fagna því alveg
sérstaklega að í því frumvarpi um Hús-
næðisstofnun ríkisins sem félagsmála-
ráðherra hefur lagt fram. er farið inn á
þá athyglisverðu braut að opna náms-
mönnum leið inn í húsnæðislánakerfið
vegna félagslegra íbúðabygginga. Eftir
að hafa átt viðræður við marga skóla-
menn og fjölda nemenda er þessi mál
snerta, er mér ljósara en áður hversu
brýnt það er að hefjast nú handa um
úrbætur. Það er sorgleg staðreynd að á
hverju ári verður nokkur hópur nem-
enda að hverfa frá námi vegna þess
ástands sem nú er ríkjandi í húsnæðis-
málum námsmanna. Hér verður að
sporna gegn þeirri óheillaþróun. Það eru
í dag sjálfsögð mannréttindi að hafa sem
jafnasta aðstöðu til mennta og við það
■ Stefán Guðmundsson alþingismaður
verður að sjálfsögðu að standa. Efnahag-
ur nemenda og/eða þeirra er þeim næst
standa á ekki að geta skipt sköpum um
möguleika víðkomandi nemenda til
framhaldsmenntunar.
Ég geri mér ljósa grein fyrir því að
margir telja að nú sé ekki efni til mikilla
átaka í þessum málum. Minnkandi þjóð-
artekjur blasa við sem þýðir minni
framkvæmdagetu þess opinbera. Árang-_
ur breyttrar stefnu efnahagsmála hefur
þó þegar skilað jákvæðum árangri. Því
hefur ástandið í þjóðfélaginu nú um
skeið verið á nokkuð annan og betri veg
en fyrr. Því tel ég, að nú sé lag til að
hugsa og kanna á hvern hátt megi hér
best að vinna. Með flutningi þessarar
till. til þál. er reynt að vekja til umr. og
leita leiða til að bæta úr því slæma
ástandi, sem nú ríkir og búa betur í
haginn.