Tíminn - 07.03.1984, Síða 11
10
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1984
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1984
19
agiwwnwaffliiwa
msssscftsíwsK&sstsiismsiKSBmzBia&iasxtaissxemsxxstiiœemxi&æ&fSfestsa
iþróttir
IBV komið í
1. deild
- aukinn ferðakostnaður kvennalið-
anna
■ Hæu cr við að ferðakostnaður liða í
1. deild kvenna í hundknattleik aukist
verulega á næsta kcppnistímabili. Um
helgina tryggði lið ÍBV sér ncfniiega rétt
til að leika í I. deild að ári, mcð því að
gulltryggja annað sætið f annarri deild
kvenna. Eyjastúlkurnar sigruðu Kcfl-
avík 19-12 í Eyjum, óg hefur þar með
hlotið 20 stig í II leikjum. Það lið sem
áður hafði tryggt sér leikrétt í I. deild að
ári er Þór frá Akureyri, sem hefur verið
ósigrandi í vetur. Þaö er því hætt viö að
ferðakostnaður liðanna sem halda sér í
1. deild kvenna í vetur, aukist verulega
á næsta ári. -SÖE
Ítalía vann
Tyrkland
ítalir unnu Tyrki í landsleik þjóð-
anna í Istanbúl uni síðustu hclgi. Aless-
andro Altobelli og Antonio Cabrini
skoruðu mórk ítala. en llias skoraði
mark Tyrkja. -SÖE
ÍS lagði KR
í kvennakörfunni
■ IS sigraði KR í fyrrakvðld í I. deild
kvenna í körfuknattleik. en lcikið var í
íþróttahúsi Kennaraháskólans. ÍS vann
44-24, eftir að staðan var 12-11 ÍS í hág
i hálíleik. Fyrri hálfleikur var afspyrnu-
lélegur eins og tölurnar bcrlega sýna. -
Ragnhildur Steinback skoraði flest stig
IS-stúlknanna. 12, og Kolbrún Lcifsdótt-
ir og l'órunn Rafnar skoruðu 10 stig
hvor. Gunnhildur Gunnarsdóttir var
langstigahæst hjá KR með 13 stig.
-SÖE
Staðan í
úrvalsdeildinni
■ Staðan í úrvalsdeildinni í körfuknatt-
leiker nú þessi, eftir leiki síðustu helgar:
Njarðvík ... 19 15 4 1546-1414 30
Valur ...... 19 10 9 1577-1401 20
Haukar .... 19 9 10 1416-1438 18
KR....... 19 9 10 1400-1402 18
ÍR ......... 19 8 11 1.337-1344 16
Kcflavík ... 19 6 13 1131-1314 12
Nú er aðeins ein umferð eftir í
úrvalsdcildinni, og verður leikin um
næstu hejgi.
Hvassaleitis-
strákar
í maraþonkörfu
■ Strákar í 9. bekk Hvassaleitisskóla í
Reykjavík léku maraþonkörfuknattleik
helgina 25.-26. febrúar. Piltarnir léku í
24 klukkustundir, frá klukkan 8 á
laugardagsmorgni til 8 á sunnudags-
morgni. 6 piltar léku,3 í hvoru liöi. ogað
auki vareinn „rcddari" aðsögn piltanna.
- Strákarnir söfnuðu áheitum fyrir þol-
raunina, og mun féð rcnna í sktðaferða-
sjóð. -SÖE
Tap og jafntefli
- hjá kvennalandsliðinu
■ íslcnska kvennalandsliðið í hand-
knattleik tapaði þriðja leik sínum við
bandaríska landsliðið í handknattleik á
laugardag 16-20. en gcröu svo jafntefli á
sunnudag 18-18. Áðurhöfðuþærbanda-
rísku unnið einn leik og þær íslensku
einn.
I leiknum á laugardag var jafnt i
hálfleik 10-10. I síðari hálfleik náðu svo
þær bandarísku að komast yfir, og
sigruöu 20-16. Margrét Theódórsdóttir
var atkvæöamest íslensku stúlknanna t
leiknum, skoraði 4 mörk.
I leiknum á sunnudíig náðu íslensku
stúlkurnar að jafna leikinn síðari hálf-
leik, eftir að þær bandarísku höfðu haft
yfij 9-7 íhálfleik. Leiddu þærbandarfsku
með mest fjórurn mörkum í síðari hálf-
leik, en íslensku stúlkunum tókst eins og
áður sagði að jafna 18-18.
Litlar upplýsingar hafa borist hingaö
á Frön um dvalarstaði stúlknanna. og
því ekki verið hægt að ná sambandi við
þær. -SÖE
umsjón: Samúel Örn Erlingsson
Mágnús skoraði
- jöfnunarmark fyrir Santander
■ Magnús Bergs skoraöi sitt annað
mark fyrir lið sitt, Saritander Raeing á
Spáni urn helgina. Santander lék þá við
Royo Vallccano á útivelli í annarrar
deildar keppninni. og varð jafnlelli 3-3.
I’tiö var Magnús sem bjargaöi stiginu.
skoraði jöfnunarmarkið. en Vallecano
hafði komist i 3-1 í leíknúm.
v -SÖE
Atli og Pétur
í S-Kóreu
- Erá Gísla A Gunnlaugssyni íþróttafrélta-
manni lúnaus í V-Hskalandi:
■ Fortuna Dússeldorf, með þá Atla
Eðvaldsson og Pétur Ormslev innan-
horð. notaði 14 dagtt frí sem liðið átti í
þýsku Búndesligumii. til þess að lara til
S-Kóreu í hoði kHattspyrnusambands
landsins.
Dússcldorf lék tvo leiki viö ólympíulið
S-Kóreu. og lauk þeim fyrri mcð jafn-
tcfli. 1-1. og skoraöi Thicle mark Dúss-
cldorl'. Síðari leiknunt sem var nú um
helgina lauk mcðsigri Kóreu, 2-0.
-GÁG/SÖE
Jafnt hjá Karli
gegn Bordeaux
■ Karl Póröarson og félagttr í Laval
gerðu um helgina jafntcfli viöefsta liöiö
í Frakklandi, Bordcaux. Leiknum lauk
(1-0, og var leikið í Bordeaux. Bordeaux
er cnn cfst í Frakklandi mcð 42 stig.
Monaco hefur 39 stig og Auxerre og
París St Germain hafa 37 stig. -SÖE
Þórsarar stein
lágu fyrir ÍA
■ Þörsarar steinlágu fyrir Akranesi í
leik liðanna í 3. deild handboltans á
Akureyri um hclgina. Með þessuni sigri
gulltryggöu Skagamenn sæti sitt í úr-
slitum 3. deildarinnar, en þarvcrða lyrir
Týr, Árrnann og Fór Akurcyri.
Orslit leiksins urðu 35-2.3. 58 mörk
skoruð á 60 mínútum, með þvf mesta
scnt gerist. Pétur lngóllssoii skoraði II
mörk fyrir Akrancs, ogGuðjón Magntis-
son 6 fyrir Pór. -gk Akureyri
Þór vann 1.
deildarlið ÍA
■ Um lcið og Þór Akureyri og Akranes
leiddu saman hesta sína i 3. dcildinni á
Akurcyri um helgina, áttust við kvenna-
iiö fclaganna j vináttul.cik. Þórsstúlkurn-
ar, sem nýlega unnu sig upp í 1. dcild,
sigruðu örugglega i leiknunt gegn 1.
deildarliöinu 15-7. Það ætti þvi að verða
fróðlegt að fylgjast mcð Þórsstelpunum
í I. deild næsta vetur. -gk Akurcyri
Sá endurráðni
var rekinn
■ Jolm Toshack, framkvæmdastjóri
Swansea. var rekinn í fyrradag. Toshack
sagði stöðu sinni laustri snemma á þessu
ári og hætti, en kom fyrir þrábeiðni aftur
til starfa fyrir 10 vikum. Fyrir helgina var
svo farið frani á.að hann segði stöðu
sinni lausri. og þegar hann samþykkti
það ekki, var hann rekitin. -SÖE
■ Páll Kolbeinsson átti stórleik með
KR í gærkvöld, en KR-ingar slógu
Njarðvíkinga út úr bikarkeppninni,
89-75. Hér sést Páll í „háloftabardaga"
við Sturlu Örlygsson Njarðvíking.
Tímamynd Róbert
■ Preben Elkjær Larsen, fyrirliði
Lokeren í Belgíu, er nú allt eins á
förum til Ítalíu. Inter Mílanó vill
kaupa hann, enda síðustu forvöð að
breyta málum þar, bann gegn er-
lendum knatlspyrnumönnum gengur
í gildi í júlí, og þá getur enginn bæst
við næslu tvö árin.
ANDERLECHT VANN
— Pétur lék einn
■ Anderlecht, lið Arnórs Guðjohnsen
í Belgíu, sigraði um helgina lið Péturs
Péturssonar, Antwerpen 3-0. Pétur lék
með, og var eini Islendingurinn sem lék
með í Belgíu um helgina.
Waterschei lið, Lárusar Guðmunds-
sonar, lá fyrir Lokeren, 1-3. Sagt var að
leikmenn liðsins hefðu lítt verið með á
nótunum, enda mútumálið nú í algleym-
ingi. Lárus lék ekki með, var í leikbanni
vegna áminninga. Sama gilti um Sævar
Jónsson, hann lék ekki með CS Brugge
gegn AA Gent, jafntefli varð 1-1.
Úrslit urðu þessi:
Antwerpen-Ánderlecht...............0-3
Mechelen-Courtrai..................2-1
Beringen-Seraing...................2-0
Bcveren-FC Brugge..................1-2
Lokeren-Waterschei.................3-1
Waregem-FC Liege...................5-2
Molenbeek-Lierse...................4-0
Standard Liege-Beerschot...........5-1
CSBrugge-AA Gent ..................1-1
Sigur FE Liege 2-1 á efsta liðinu.
með í Belgíu
Beveren vakti athygli. Daninn Preben
Elkjær Larsen skoraði öll mörk Loker-
en. Tahamata, Hrubesch og Plessers (2)
skoruðu mörk Standard, en eitt var
sjálfsmark.
Staðan er nú þessi:
Beveren . 24 16 6 2 47-26 38
Anderlecht ... . 24 13 7 4 56-30 33
Searing . 24 13 5 6 45-27 31
FC Brugge .... . 24 11 8 5 41-26 30
Stand. Liege .. . 24 12 5 7 40-26 29
FC Antwerpen . 24 9 8 7 40-31 26
FC Mechlin ... . 24 8 10 6 29-32 26
Waregem . 24 10 5 9 37-31 25
CS Brugge .... . 24 9 6 9 26-23 24
Lokeren . 24 8 6 10 36-32 22
Waterschei . .. . 24 8 6 10 31-36 22
Kortrijk . 24 7 7 10 25-35 20
FC Liege . 24 7 6 11 25-35 20
Beerschot .... . 24 5 9 10 36-50 19
RWDM . 24 4 10 10 24-31 18
Lierse . 24 7 3 14 28-46 17
Beringen . 24 6 4 14 22-48 16
AA Gent . 24 5 5 14 24-36 15
INTER MÍLANÓ
VILL ELKIÆR
— og hann hugsar gott til
glóðarinnar
■ ítölsku knattspyrnufélögin leita nú
logandi Ijósi að nýjum erlendum
stjörnum. I júlí gengur í gildi tveggja ára
bann við útlendingum í knattspyrnu á
Ítalíu, og þá má ekki næstu tvö árin bæta
við útlendingum í ítölsku knattspyrn-
una. Einungis þeir sem þá eru ásamningi
þar mega vera áfram. Nú hefur heyrst að
Inter Mílanó vilji kaupa danska lands-
liðsmanninn Preben Elkjær Larsen frá
Lokeren í Belgíu.
Larsen, sem skoraði þrennu fyrir Lok-
eren gegn Waterschei um helgina, er víst
meira en fús til að fara, bæði orðinn
hálfleiður á Lokeren og Belgíu. Hann
langar í nýtt andrúmsloft, eins og hann
orðar það. Það spillir sjálfsagt ekki fyrir,
að hvergi hafa knattspymumenn hærri
laun né betri „bónusa" en á Ítalíu.
Hjá Inter Mílanó eru fyrir tveir út-
lendingar, svo annar þeirra verður að
víkja, ef Larsen verður keyptur. Þeir eru
V-Þjóðverjinn frægi Hansi Múller, hvers
stöðu hjá Stuttgart Ásgeir Sigurvinsson
fyllti, og belgíski landsliðsmaðurinn
LudoCoeck. -SÖE.
— sagði Jón Sigurdsson eftir að KR vann Njarðvfk
89-75 fbikarkeppni KKÍ í gær
■ Jón Sigurðsson þjálfari KR-inga í
körfuknattleik hélt uppá afmæli sitt í
gær með því að slá Njarðvíkinga út úr
bikarkeppni KKÍ. KR-ingar unnu örugg-
an sigur í leiknum 89-75, eftir að staðan
i hálfleik var 44-42 Njarðvíkingum í vil.
Leikurinn fór rólega af stað og stiga-
skor var í lámarki. Hressastur manna
framan af var þó Kristján Rafnsson KR,
en hann skoraði 7 stig á fyrstu mínútum
leiksins. Þegar líða tók á hálfleikinn
færðist aukinn hraði í leikinn og hittni
leikmanna varð betri. Fyrri hálfleikurinn
var mjög jafn og í hálfleik var staðan
44-42 Njarðvíkingum í vil.
Valur Ingimundarson, sem fengið
hafði 4 villur í fyrri hálfleik varð af þeim
sökum að hvíla sig á bekknum í byrjun
síðari hálfleiks og freista þess að leika í
staðinn á Iokamínútunum. Valur kom
inná rétt fyrir miðjan hálfleikinn en varð
fljótlega fyrir meiðslum og varð að fara
aftur út af. KR-ingarvoru mjögákveðnir
í síðari hálfleiknum og léku vel. Þcir
náðu fljótlega forystunni og henni héldu
þeir til leiksloka þrátt fyrir að Njarðvík-
ingar klóruðu í bakkann. Lokatölurnar
89-75 og komast KR-ingar þar með
áfram í bikarkeppninni, en Njarðvík er
úr leik.
„Amælisbarnið" Jón Sigurðsson, lék
mjög vel í leiknum og stjórnaði hann
leik KR af mikilli röggsemi. „Þetta er
Blak í kvöld
■ I kvöld eru tveir leikir í 1. deild karla
í hlaki. Víkingur og HK keppa klukkan
18.30 í íþróttahúsi Hagaskóla, og strax á
eftir Fram og ÍS. -SÖE
besta afmælisgjöf sem ég gat fengið”
sagði Jón eftir leikinn. „Núna erum við
ákveðnir að fara alla leið og vinna
bikarinn;' sagði Jón Sigurðsson ennfrem-
ur.
En Jón var ekki einn um að eiga góðan
leik fyrir KR. Páll Kolbeinsson gjörsam-
lega brilleraði bæði í vörn og sókn, tók
meira að segja fjölmörg fráköst, bæði
varnarfráköst og sóknarfráköst. Þá átti
Garðar Jóhannsson stórleik og hitti
mjög vel úr langskotum sínum. Kristján
Rafnsson fór mjög vel af stað og átti í
alla staði góðan leik.
Hjá Njarðvíkingum var fátt um fína
■ Sigurður T. Sigurðsson stangar-
stökkvari varð fímmtándi í sinni grein á
Evrópumeistaramótinu innanhúss í
frjálsum íþróttum, sem haldið var í
Gautaborg um síðustu helgi. Gísli Sig-
urðsson sem keppti í 60 metra hlaupi
varð sjötti í sínum riðli. Eitt heimsmet
var sett á mótinu, einmitt í grein Sigurð-
ar, Frakkinn Vigneron stökk 5,85 metra.
Bætti árangur sinn um 12 sentimetra. -
Sigurður T.Sigurðsson stökk 5,20 metra.
drætti að þessu sinni. Þeir hreinlega
stóðust ekki stórleik KR-inganna. Hafa
Njarðvíkingar oft leikið mun betur en í
þessum leik. Þá komu villuvandræði
þeirra sér illa og eins var slæmt að missa
Val meiddan út af í síðari hálfleiknum.
Þeir Valur og Gunnar Þorvarðarson áttu
þó bestan leik UMFN að þessu sinni.
Stig KR: Jón 25, Garðar 24, Páll 17,
Kristján 9, Guðni 4, Birgir 4, Ólafur 4
og Ágúst 2.
Stig UMFN: Valur 21, Gunnar 17,
Sturla 12, Hreiðar 10, ísak 7, Árni 6 og
Ástþór 2.
Annar í stangarstökkinu varð annar
Frakki, Pierre Quinon. Hann stökk 5,75
metra. Enginn bjóst við risastökki Thi-
erry Vigneron, en hann sló, með því að
stökkva 5,85 metra, nokkurra vikna
gamalt met Sovétmannsins Sergei
Bubka, 5,83 metra.
Eitt Evrópumet féll á leikunum, So-
vétmaðurinn Gregory Yemets stökk
17,33 metra í þrístökki.
- SÖE.
-BL
Sigurður T.
fimmtándi
— heimsmet í stangarstökki á
EM innanhúss
— uppskurðurinn tókst ótrúlega vel
— íleiknum gegn Spartak
Moskva íkvöld - skoraði
með varaliðinu
KRISTÍN KJÖRIN
AFREKSMAÐUR UMSK
— á þingi UMSK fyrir skömmu
■ Kristín Gísladóttir flmleikakona var,
á ársþingi UMSK, sem haldið var nýlega,
kjörin afreksmaður UMSK. Var
Kristínu veitt viðurkenning á þinginu,
hinn glæsilega afreksbikar. Félagsmála-
skjöld UMSK hlaut að þessu sinni Albert
H. N. Valdimarsson formaður blak-
deildar HK, fy rir ómæld og óeigingjörn
störf í þágu blaksins og deildarinnar.
Kristján Sveinbjörnsson var endur-
kjörinn formaður UMSK á þinginu en í
stjórn voru kjörnir Sveinn Jóhannsson
UBK, Jóhannes Sveinbjömssor. Umf.
Sjörnunni, Vilhjálmur Einarsson UBK,
Katrín Gunnarsdóttir Umf. Stjörnunni.
Um fjölda mála var rætt, bar hæst
fyrirhugað landsmót UMFÍ. Eru menn
ákveðnir í að gera þátttöku UMSK sem
glæsilegasta. Þingið samþykkti ályktun
um stórátak í skógræktarmálum á lands-
svæðinu, þar er stefnt að því að plantað
verði a.m.k. jafn mörgum trjám og
ungmennafélagar eru margir.
Þingið fór vel fram í alla staði en það
var í umsjón íþróttafélagsins Gerplu. 62
þingfulltrúar áttu sæti á þinginu og var
mæting góð. Aðildarfélagar í UMSK eru
vel á sjötta þúsund, sem starfa í 16
aðildarfélögum, í sjö sveitarfélögum sem
umlykja Reykjavík. -SGG
■ Nú geta Danir, forráðamenn og
aðdáendur Manchester United og aðrir
aðdáendur Danans knáa í knattspyrn-
unni, Jespers Olsen, andað léttara. Ol-
sen er á batavegi eftir uppskurðinn
tvísýna sem gerður var á ökkla hans í
Danmörku fvrir helgina. Uppskurðurinn
tókst eins og best verður á kosið, og nú
gera þeir bjartsýnustu sér vonir um að
Olsen geti farið að æfa eftir þrjár vikur.
Venjulega eru menn í 6 vikur í gifsi
eftir slíkan uppskurð, en sérfræðingarnir
í Danmörku gera sér nú vonir um að
batinn hjá Olsens verði hraðari en oft er,
sökum þess hve uppskurðurinn tókst
vel. Vonast er til að hann geti farið úr
gifsi eftir þrjár vikur.
Olsen stendur til boða að byrja
þjálfun, er hann getur, áþremur stöðum,
hjá Ajax í Hollandi, þar sem hann er
samningsbundinn, hjá Næstved, sínu
gamla félagi í Danmörku undir yfir-
stjórn landsliðsþjálfara Dana, Sepps Pi-
ontek, og hjá Ron Atkinson í Manchest-
er United, en þangað mun hann, ef allt
fcr vel, fara í sumar á nýjan samning
hvort eð er.
Nú hvílir Olsen sig heima í Fakse.
Liðbönd sem slitnuðu í ökkla hans í leik
Dana gegn Ungverjum í undankeppni
EM. greru rangt saman, og því varð að
skera og tengja upp á nýtt. Fyrir þá sem
hafá áhuga, heitir skurðlæknirinn, sem
gerði hina frábærlega vel heppnuðu
aðgcrð á Olsen, Eilif Larsen. Hann er
einn helsti sérfræðingur Dana í slíkum
uppskurðum og vinnur á Gentofte Amts-
sygehus.
-SÖE
■ Jesper Olsen
\W
■ Arnór Guðjohnsen
■ Arnór Guðjohnsen knattspyrnu-
maður hjá Anderlecht í Belgíu, sem ekki
hefur leikið heilan knattspyrnuleik síðan
hann lék með íslenska landsliðinu gegn
írum á Laugardalsvelli í september, er í
hópnum hjá Anderlecht í kvöld í leik
liðsins í UEFA-keppninni gegn Spartak
Moskva. Arnor er ekki í byrjunarliðinu,
og reyndar fremur ólíklegt að hann spili,
en ef óvænt meiðsl koma upp á, er allt
eins líklegt að hann komi inn á.
Arnór meiddist á læri í leiknum við
íra. Hann varskorinn upp eftir dúk og
disk.og hefur verið í sjúkraþjálfun og
æfingum í framhaldi af því í nokkurn
tíma. Hann hefur nú leikið tvo leiki með
varaliði Anderlecht undanfarnar tvær
helgar. Um síðustu helgi lék Arnór við
hvern sinn fingur, og skoraði eitt mark
og lagði upp annað gegn varaliði Ant-
werpen. Þjálfari Anderlecht var mjög
ánægður með Arnór, og hefur sett hann
í hópinn fyrir Evrópuleikinn.
Arnór kveðst sjálfur ekki vera full-
komlega ánægður með það form sem
hann sé kominn í, en er þó ánægður með
batann, og er bjartsýnn á framhaldið.
Anderlecht leikur í kvöld gegn Spart-
ak Moskva í UEFA-keppninni. í kvöld
er leikið víða um Evrópu í öllum
Evrópukeppnunum þremur, og að sjálf-
sögðu mun Tíminn færa lesendum úrslit-
in í blaðinu á morgun. -SÖE
■k
OLSEN ER NU
A BATAVEGI
zumneta nær
HEIMS8IKHRMIM
■ Pirmin Zurbriggen frá Austurríki
steig í fyrradag mikilvægt skref til þess
að öðlast heimsbikarinn í skíðaíþróttum
í ár, er hann sigraöi í stórsvigi í Aspen í
Kólóradó i Bandaríkjunum. MarcGirar-
delli, Austurríkismaðurinn sem keppir
fyrir Luxemborg, varð annar, og Phil
Mahre frá Bandaríkjunum þriðji.
í Aspen var einnig keppt í bruni um
helgina Bill Jol.nson frá Bandaríkjunum
sigraði. Þa var einnig handarískur sigur
í kvennaflokki, Holly Flanders sigraði,
og varð fyrst bandarískra kvenna til að
sigra í bruni í heimsbikarkeppni. Önnur
varð María Walliser frá Sviss, og tryggði
hún sér þar með sigur í heimsbikarkepp-
■ni kvenna. I stórsvigi kvenna sigraði
einnig óþekkt stúlka, Marina Kiel frá
V-Þýskalandi.
Pirmin Zurbriggen hefur nú 231 stig í
heimsbikarkeppninni. Ingemar Sten-
mark frá Svíþjóð hefur 201 stig. Sten-
mark getur enn sigrað, og náð mest 250
stigum. Hann verður þó að sigra í öllum
fjórum keppnunum sem hann á eftir til
að ná því. - SÖE.