Tíminn - 28.03.1984, Blaðsíða 6

Tíminn - 28.03.1984, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 1984 6 — sér til heilsubótar ■ Ósköp hefur okkur nú oft lciðst snjórinn í vetur og ekki alltaf hugkvæmst, að hann er ekki bara til erfiðis og leiðinda, heldur má líka hafa af honum nokkurt gagn og jafnvel heilsubót. Suður í Þýskalandi heufr líka mátt sjá snjó, og þar tóku þessir karlar á myndinni upp á því að notfæra sér hann í heilsuræktarskyni. Þeir eru starfsmenn Siemens-verksmiðjanna, sem hann haft það á stefnuskrá í 28 ár að bjóða starfsfólki sínu upp á heilsuræktarkúra, sem standa alls í þrjár vikur. Þeir eru haldnir á eins konar heilsuræktarhælum, sem fyrirtækið á. Rétt til þessara kúra eiga konur á aldrinum 30-55 ára og karlar á aldrinum 35-65 ára, en skilyrði er, að þau hali unnið hjá fyrirtækinu í a.m.k. 10 ár. Á þessum 28 árum hafa 40.000 starfsmenn notað sér þessi hlunnindi. Heilsuræktarkúra þessa hafa læknar og íþróttakennarar sett saman í náinni samvinnu. Þeir hafa tekið mikluin breytingum á þessum langa tíma, eins og eðlilegt er, en markmið þeirra hefur alltaf verið að aflétta þeirri streitu, sem fólkið býr við endranær, og bæta heilsufar þess almennt. I leiðinni er því kennt að meta hollt og heilsusamlegt líferni og að fylgjast með heilsufari sínu. Til að auka þrek og úthald er það látið stunda langhlaup, skíðagöngur og sund t.d. En þar fyrir utan má oft bregða á ieik, eins og þeir gera herrarnir á myndinni, það bætir líka heilsuna. NYRA TEKH) UR 0G GRÆTT í AFTUR Hvað er Paul Newman að fela? ■ Paul Newman hefur til þessa ekki þótt sérlega feiminn maður. Samt brá svo við hér um daginn, að honum fannst ástæða til að hylja andlit sitt, þegar honum fannst fréttaljósmyndarar einum um of ágengir. Hver var ástæðan? Var hann með glóðarauga, eða kannski áblástur eða bólu, svona rétt eins og venjulegt fólk á til að verða fyrir? Skýringin fékkst von bráðar. Paul Newman er að safna yfírskeggi og þótti víst árangurinn ekki sýningarhæfur, þegar myndin var tekin. En kona hans Joanne Woodward tekur ekki mjög alvarlega á þessu mikla máli. Hún skellihlær að þeirri klemmu, sem bóndi hennar hefur komið sér í. Sennilega hefur bíllinn ekki verið á mikilli ferð, annars hefði getað farið illa, og þá er ótrúlegt að frúin hefði hlegið svona dátt. ■ Þessi einstæða skurðaðgerð var framkvæmd í nýrnaígræðslu- stöðinni í Minsk í Hvítarúss- landi. Stóð hún yfír í sex klukku- stundir. Komið var með sjúklinginn, sem var sex ára gömul stúlka, Sasja L., til rannsóknar og með- ferðar á þvagfærasjúkdómadeild barna á sjúkrahúsi nr. 4 í Minsk, en þar fara uppskurðir á vegum stöðvarinnar fram. Við greiningu sjúkdómsins komust sérfræðingarnir að þeirri niðurstöðu, að um væri að ræða „pyelonephritis", sem veldur al- varlegri óreglu á starfsemi nýrn- anna. Ákveðið var að fram- kvæma skurðaðgerð. í fyrstu virtist skurðaðgerðin ósköp venjuleg, en að því kom, að hið sýkta nýra var fjarlægt úr líkama litlu stúlkunnar og sett á bakka skammt frá skurðarborð- inu, þar sem sérfræðingarnir söfnuðust saman umhverfis þetta lifandi líffæri í því skyni að lækna það og græða það aftur í líkama stúlkunnar. Lokaþáttur aðgerðarinnar virtist einfaldur en var í reynd erfiðasti hluti hennar, þ.e. þegar dr. Izookas saumaði hið frá- skilda nýra aftur í með ósyni- legum þræði. En skurðlæknirinn varð að sjá hann og það gerði hann reyndar með hjálp smásjár. Þegar hann hafði tekið síðasta sporið í sauminn, voru klemm- urnar á æðunum fjarlægðar, nýr- að tengt öðrum líffærum að nýju og það hóf að gegna sínu hlut- verki. Nú er litli sjúklingurinn kom- inn heim til ssín aftur og líður vel. Igræðslan tókst vel. Strax daginn eftir aðgerðina gat Sasja brosað framan í lífgjafa sína, dr. Izookas Skobejus og Valerí Pil- otovitsj en þeim nöfnum mun hún aldrei gleyma. ■ Dr. Izookas Skobejus, í miðið, saumar nýrað í sjúklinginn aftur og horfír á sauminn í gegnum smásjá. ■ Það er ekki vel sniðugt að keyra með bendir svipurinn á Joanne Woodward. fyrir augu, en hér er sennilega lítil hætta á ferðum. Til þess ■ Starfsfólk Siemens-verksmiðjanna á kost á heilsuræktarkúrum, að uppfylltum vissum skilyrðum. Þeir standa alls í 3 vikur og eiga að byggja upp bæði andlega og líkamlega hreysti. Þar er því bæði blandað saman gamni og erfiði, eða kannski má segja, að erfíðið sé bara skemmtilegt. ÞEIR LEIKfl SÉR í SNJÓNUM e ; viðtal dagsins ,Á ISLANDIER SÓLSKIN 06 HMBSAMA DAGINN” - segir sovéski myndlistamaðurinn og íslandsvinurinn Orest Vereiskl ■ „Ibókmenntumsínumstyðj- ast íslendingar afskaplega mikið við söguna og því má ekki gefa ímyndunaraflinu of lausan taum- inn við myndskreytingu ís- lenskra bóka", segir rússneski grafíklistamaðurinn Orest Ver- eiskí sem hér er staddur í boði Menningartengsla íslands og Ráðstjórnarríkjanna. Orest Vereiskí er viðurkenndur meist- ari í sínu heimalandi og kunnast- ur er hann fyrir myndskreytingar sínar á bókmenntaverkum. Meðal þeirra bóka sem hann hefur myndskreytt eru rússnesk- ar þýðingar á bókum Halldórs Laxness og barnabókum Stefáns Jónssonar. Þá er eitt binda af Hjalta bókum Stefáns Jónssonar á íslensku myndskreytt af Ver- eiskí. Þetta er fjórða heimsókn lista- mannsins til íslands en eftir fyrstu ferð sína hingað gaf hann út bók um íslandsferðina sem myndskreytt er með vatnslita- myndum sem bera vott þeirrar lífsglöðu fegurðar sem hann seg- ist sjá í þessu landi andstæðn- anna. A myndunum gefur að líta brot úr þjóðlífi og landslagi íslands. „ísland er óvenjulegt Iand fyr- ir Evrópubúa og kannski alveg sérstaklega Rússa. Það er hafið. fjallahringurinn og þessi mikla nálægð náttúrunnar sem vekur hrifningu mína á landinu", sagði Orest Vereiski. „Þegar maður er staddur í Reykjavík sér allstaðar til hafs og hús og skip eru í stöðugri nálægð hvert við annað. Fjarlægðirnar í þessu landi og byggingarnar eru svo litlar en fólkið svo stórt. Samt eru þessar miklu víðáttur og loftið er svo tært að maður getur séð landslag ■ Orest Vereiskf með bókina Hjalti kemur heim eftir Stefán Jónsson en Vereiski myndskreytti bókina. Tímamynd GE

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.