Tíminn - 03.04.1984, Blaðsíða 1

Tíminn - 03.04.1984, Blaðsíða 1
I 'VAWÉNNTÍRSUÍ: ■ Litlu munaði að Haukar slægju Valsmcnn út úr bikarkeppni KKÍ, er liðin mættust í Laugardalshöll í gærkvöld. Framlengingu þurfti tU að knýja fram úrslit þvi jafnt var eftir venjulegan leiktíma, 83-83. Valsmenn voru ívið sterkarí í fram- lengingunni og trjggðu sér sigur, 93-92 og þar með rétt tU að leika gegn KR í úrslitum bikarkeppninn- at á fimmtudagskvöld Það voru Valsmenn sem höfðu yfirhöndina allan fyrri hálfleikinn og í leikhléinu var staðan 41-30 Val í vil. Haukarnir voru ekki á því að gefast upp og þeir minnkuðu stöð- ugt muninn þar til þeir jöfnuðu 73-73, þegar 5 mínútur voru til leiksloka. Allan þann tíma sem eftir var var leikurinn í járnum og jafnt á öllum tölum, svo var einnig þegar leiktiminn var úti, 83-83, og því þurfti að framlengja leikinn. Þrátt fyrir að Valsmenn misstu einn sinn besta mann út af um miðja framlenginguna, Kristján Ágústs- son, höfðu þeir betur. Áður, eðá þegar 3 mínútur voru eftir áf venju- legum leiktíma, hafði Torfi Magn- ússon þurft að yfirgefa völlinn af sömu ástæðu. En Valsmenn voru samt sterkari á endasprettinum og sigruðu 93-92, í leik sem var leiðin- legur mest allan tímann, eða þar til Haukar jöfnuðu. Sigurkörfu Valsmanna í leiknum skoraði Björn Zoéga, 13 sekúndum fyrír leikslok. Mikið kæruleysi var ríkjandi hjá Valsmönnum í þessum leik og hefði það hæglega getað kostað þá sigurinn. Fjórmenningarnir Kristján Ágústsson, Tómas Holton, Jón Steingrímsson og Leifur Gústafsson voru atkvæðamestir að þessu sinni þótt sigurvissan og kæruleysið riði þeim næstum að fullu eins og öðrum Vaismönnum í þessum leik. Hjá Haukur var baráttan í algleym- ingi eins og svo oft áður og er gaman að fylgjast með lióinu því vitað er að þeir gefast aldrei upp. Þeirra bestu menn að þessu sinni voru þeir Eyþór Árnason, sem átti mjög góðan leik, en þeir Pálmar Sigurðsson og Kristinn Kristinsson voru einnig ágætir. Kristinn gerði sig þó sekan um aö brenna af auðveldum skotum undir körfunni.' Stig Valsmanna skoruðu: Jón St. 18, Leifur 17. Tómas 16, Kristján 15, Jóhannes 10, Torfi 7, Einar 6 og Björn 4. Stig Hauka skoruðu: Pálmar 20, Eyþór 19, Kristinn 16, Sveinn 12, Ólafur 11, Hálfdán 8, Kári 4 og Reynir 2. Dómarar voru þeir Jón Otti Ólafsson pg Gunnar Bragi Guðmundsson og dæmdu þeir mjög illa að þessu sinni. -BL STÓRKOSTLEGT MÓT - FRÁBÆR ÁRANGUR 18 Islandsmet voru sett á Innanhússmeistaramótinu f sundi ■ „Þetta var stórkostlegt mót, frábær árangur og ótrúlega mikil breidd er oröin í sundinu“, sagði Guðmundur Árnason stjórnarmaður hjá Sundsambandi Islands eftir Innanhússmeistaramót íslands í sundi, sem fram fór í Sundhöll Reykjavíkur um helgina. „Það lögðust allir á eitt um að mótið væri sem giæsilegast og færí sem best fram, og það tókst mjög vel, skipulagningin stóð öll, samvinna allra frábær, og árangurinn undirstrikaði svo allt saman“, sagði Guðmundur. Alls voru 18 Islandsmet sett á mótinu. I sumum greinum voru metin tvíbætt, og árangur margra glæsilegur. Keppendur sem æft höfðu erlendis komu vel út á mótinu, og eins þeir sem æft hafa heima. Mikið af mjög ungum keppendum komu fram og náðu prýðisárangri. Eðvarð Þ. Eðvarðsson frá Njarðvík var duglegastur við að setja met. Hann setti alls 5 íslandsmet, í þremur grein- um, tvíbætti metið í tveimur. Hann hóf að setja met á laugardag, setti þá met í 200 metra baksundi, 2:10, 69 mín, en gamla metið átti hann sjálfur 2:12,49 mín. í úrslitum sama dag bætti Eðvarð metið enn, synti á 2:09,90 mín. Eðvarð setti íslandsmet í 50 metra baksundi er hann synti fyrsta sprett í boðsundi á laugardag, synti á 28,25, en fyrra metið var Inga Þórs Jónssonar ÍA, 28,85. í sama sundi bætti Eðvarð einnig íslandsmetið í 100 m baksundi, synti á 59,97 og rauf þar með mínútu múrinn, fyrra metið átti hann og var 1:00,71 mín. í úrslitum 100 m baksundsins á sunnudag bætti Eðvarð metið enn, synti á 59,53 sek. Eðvarð hlaut alls 2 gullverðlaun og ein silfurverðlaun. Bryndís Olafsdóttir frá Þorlákshöfn var og iðin við kolann. Hún setti þrjú íslandsmet, sem einnig eru stúlkna- met, því hún er aðeins 14 ára gömuL Bryndís setti met í 100 m skriðsundi á laugardag, 1:00,43 mín, en fyrra metið, 1:00,90, átti hún sjálf. Bryndís bætti enn um betur á sunnudag, þá braut hún mínútumúrinn og synti 100 m skriðsund á 59,79 mín, sem er glæsilegur árangur svona ungrar stúlku. Metið setti Bryndís er hún synti fyrsta sprett fyrir HSK í boðsundi. Bryndís setti einnig íslandsmet í 100 metra flugsundi, synti á 1:06,66. Gamla metið átti Þórunn Alfreðsdóttir Ægi, 1:07,83, og var það sett árið 1978. Það vakti athygli í þessu sundi, að Anna Gunnarsdóttir Ægi, sem varð önnur, synti einnig undir gamla met- inu, synti á 1:07,65 mín. - Bryndís Ólafsdóttir vann til tveggja gullverð- launa og tveggja silfurverðlauna, auk einna gullverðlauna í boðsundi með sveit HSK. Tryggvi Helgason frá Selfossi setti þrjú íslandsmet, í 50 m bringusundi 31,33 sek (gamla metið átti hann sjálfur, 31,50 sek), í 100 metra bringu- ■ Ingi Þór setti íslandsmet. sundi 1:05,51 mín (gamla metið átti hann sjálfur 1:06,61) og 200 metra bringusundi, 2:24,27 (gamia metið átti hann sjálfur, 2:26,0 mín). Annar í 200 metra bringusundinu varð Árni Sigurðsson frá Vestmannaeyjum, hann synti á 2:25,37, einnig undir gamla metinu, og veitti Tryggva harða keppni. Tryggvi fékk tvenn gullverð- laun, tvenn silfurverðlaun og ein brons- verðlaun á mótinu, auk tveggja gull- verðlauna fyrir boðsund. Guðrún Fema ÁgústsdóttirÆgi setti tvö íslandsmet á mótinu. Hún synti 200 metra bringusund á 2:41,12 mín (gamla metið átti hún sjálf, 2:41,70 mín, og 50 metra bringusund á 34,84 mín. (gamla metið átti hún sjálf 35,44) Önnur í 200 metra bringusundinu varð 00T7UEB MESI1HARÐJAXUNN ■ Gottlieb Konráðsson - sigraði í Þingvallagöngunni. Tímamynd MÓ ■ Þingvallaganga Skíðafélags Reykjavíkur 1984 var haldin á laugar- dag. Gengið var frá Hveradölum aust ur Hellisheiði, yfir Fremstadal og aust ur fyrir Hengil niður að Nesjavöllum Þaðan eftir Grafningsvegi að Heiðar bæ og í mark, niður í Almannagjá Alls 42 kílómetra leið. 17 harðjaxlar gengu leiðina, 15 karl- ar og 2 konur. Gottlieb Konráðsson reyndist mesti harðjaxlinn, hann tók forystuna strax í upphafi og hélt henni alla leiðina í mark. Keppnin um næstu sæti var öllu harðari. Halldór Matthí- asson var sterkur á endasprettinum og tryggði sér annað sætið. Guðni Stef- ánsson, sem farið hafði rólega af stað í göngunni, átti einnig góðan enda- sprett og skaut sér upp í þriðja sætið. Mjög góður tími þeirra Guðbjargar Haraldsdóttur og Sigurbjargar Helga- dóttur vekur athygli, og gefa þær karlmönnunum ekkert eftir. Keppendur voru hinir hressustu þeg- ar á markið kom og léttir á sér, enda sumir allt að 5 kg. léttari en þegar þeir lögðu af stað. Verðlaun í þessari Þingvallagöngu voru gefin af Toyota- umboðinu og Búnaðarbankanum. Urslit urðu annars þessi. Karlar: 1. Gottlieb Konráðsson ... 3 klst.00 mín. 2. Halldór Matthiasson ... 3 klst.27 mín. 3. Guðni Stefánsson .... 3 klst.32 inín. 4. Halldór Halldórsson .... 3 klst.35 mín. 5. Rúnar Pálsson ....... 3 klst.38 mín. 6. Magnús Helgason ..... 3 klst.38 mín. 7. Stefán Stefánsson ... 3 klst.41 mín. 8. Eiríkur Stefánsson .. 3 klst.42 mín. 9. Gylfi Árnason ....... 3 klst.44 mín. 10. Kristján Þ. Halldórsson ......................... 3 klst.52 mín. 11. Magnús Bárðarson .... 4 klst. 17 mín. 12. André Bridde........ 4 klst.38 mín. 13. Haraldur Haraldsson . 4 klst.58 mín. 14. Kárí Jónasson ...... 5 klst.12 mín. 15. Einar Óiafsson ..... 5 klst. 12 mín Konur: 1. GuðbjörgHaraldsdóttir . 3klst.40mín. 2. Sigurbjörg Helgadóttir . 4 klst.04 mín. -BL Tímamynd Ari Ragnheiður Runólfsdóttir IA, og var hún aðeins 2/100 hluta frá gamla íslandsmetinu, sem bætt var. í 100 metra bringusundinu, þar sem Guðrún setti metið í 50 m , var hún aðeins 3/100 frá íslandsmetinu, synti á 1:14,43, og Ragnheiður varð önnur á 1:14,82 mín. Guðrún Fema hlaut tvenn gullverðlaun á mótinu, og ein með sveit Ægis. Ingi Þór Jónsson frá Akranesi kom skemmtilega á óvart á mótinu með pottþéttri frammistöðu, en hann telst, þrátt fyrir að vcra aðeins 22 ára, vera orðinn „gamall" á íslenska vísu sem sundmaður. Ingi Þór setti nýtt íslands- met í 200 metra flugsundi, synti á 2:09,76 mín (gamla metið setti hann sjálfur árið 1982, 2:10,70 mín). Ingi Þór vann þrenn gullverðlaun á mótinu. Ragnheiður Runólfsdóttir IA setti nýtt íslandsmet í 200 metra baksundi, 2:31,52 mín. Gamla metið átti hún sjálf, 2:32,46 mín. Ragnheiður sigraði í tveimur greinum, og varð önnur í tveimur. Þrjú íslandsmet voru sett í boðsund- um. Glæsilegast þeirra var met sveitar HSK í 4x100 metra skriðsundi kvenna, 4:15,03, en gamla metið var 4:20,40, og í eigu Ægissveitarinnar frá 1981. Metið því bætt um 5 sekúndur sem er gott. í þessu sundi setti Bryndís Ólafs- dóttir íslandsmet sitt í 100 metra skriðsundi, 59,79 og rauf mínútumúr- inn. Þá setti kvennasveit Ægis í 4x100 metra fjórsundi íslandsmet, synti á 4:49,97, gamla metið átti Ægissveitin frá 1982, 4:51,94 mín. Sveit HSK í 4x100 metra fjórsundi karla setti ís- landsmet synti á 4:13,30, gamla metið, 4:13,90 átti sveit ÍS frá 1983, 4:13,90. Alls voru 25 verðlaunahafar á mót- inu í einstaklingsgreinum, og er það mjög góð dreifing. Alls eru 20 einstakl- ingsgreinar, og því 60 verðlaun. Þau systkin, Ragnar Guðmundsson og Þórunn Kristín Ægi settu ekki íslandsmet á mótinu, enda sjálfsagt bæði þreytt eftir erfiða keppni á danska meistaramótinu um síðustu helgi, þar sem þau settu bæði íslands- met í sínum greinum, Þórunn eitt og Ragnar tvö. Þórunn Kristín vann þrenn gullverðlaun á mótinu um helg- ina, og Ragnar þrenn gullverðlaun og ein silfurverðlaun. Þá vann Guðbjörg Bjarnadóttir HSK þrenn silfurverð- laun og tvenn bronsverðlaun, auk einna gullverðlauna með sveit HSK. -SÖE -Greint verður frá úrslitum í hverri grein í blaðinu á morgun. ■ Staðan í úrslitakeppni 1. deildar í handknattleik, efri hluta, ásamt úr- slitum helgarinnar: FH-Stjarnan ................ 33-26 Valur-Víkingur ............. 26-22 Stjaman-Valur............... 22-20 FH-Víkingur................. 30-29 FH-Valur.................... 27-21 Stjarnan-Víkingur........... 23-28 FH .......... 6 6 0 0 168-144 12 Víkingur..... 6 3 0 3 150-145 6 Valur........ 6 2 0 4 128-134 4 Stjarnan..... 6 1 0 5 133-148 2 i ÍS GEGN HAUKUM Það verða IS og Ilaukar sem I leika til úrslita í bikarkeppni kvenna í körfuknattleik á fimmtu- I® dagskvöld. í gærkvöld sigruðu ÍS- stúlkurnar lið Njarðvíkinga i • undanúrslitum keppninnar með 47 j stigum gegn 39. í hálfleik var staðan 25-16 ÍS ívil. Þórunn Rafnar I skoraði mest fyrír ÍS eða 12 stig en Sigríður Guðbjömsdóttir og Ilelga Friðriksdóttir skoruðu 10 stig hvor fyrír UMFN. í hinum undanúrslita- leiknum í keppninni unnu Haukar B-lið ÍR, 64-43, (31-22). Sóley Indriðadóttir skoraði mest Hauka- stúlkna eða 26 stig, en Svanhildur Guðlaugsdóttir gcrði 12. Hjá ÍR-B skoraði Anna Eðvardsdóttir mest eða 14 stig, en Hildigunnur Hilmarsdóttir gerði 13. -BL j

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.