Tíminn - 28.02.1986, Page 5

Tíminn - 28.02.1986, Page 5
Föstudagur 28. febrúar 1986 ÚTLÖND Tíminn 5 Vinstrimenn vilja gefa Aquino tækifæri Maniia-Kcuter Vinstri hreyfingin á Filippseyjum ætlar að fylgjast vcl með hvernig hinn nýi forseti landsins Corazon Aquino og ríkisstjórn hennar tekur á málunum næstu vikurnar. „Við munum styðja stjórn hennar en á sama tíma vcra gagnrýnin á alla stefnumörkun og stjórnaraðgerðir." sagði Mariano Miranda í viðtali við fréttamann Rcuters en Miranda er háttsettur innan Nýja þjóðernis- bandalagsins. Prcstur einn sem sat í fangelsi ásakaður um að hafa starfað fyrir Lýðræðislega þjóðernisbandalagið (NDF) sagði í samtali er hirtist í við- skiptadaglilaði einu í Maniluborg að vinstri hreyfingin í landinu efaðist ckki um einlæga lýðræðisást for- setans. Hann bætti því við að stað- bundnar kröfur yrðu vafalaust settar frant en ckki yrði farið fram á að skipta völdum í landinu. NDF eru regnhlífarsamtök allra vinstri hópa landsins og er þar með- talinn hinn útlægi kommúnista- flokkur. Hermenn kommúnista er mýnda Nýja þjóðarherinn (NPA) hafa haft hægt um sig að undanförnu. Sá her telur um 25.000 manns. þar af eru 15.000 fastamenn og allir vel vopn- unr búnir. Þeir eru virkir í 62 af 74 hcruðum landsins. Einn af talsmönnunt Nýja þjóð- ernisbandalagsins sagði við frétta- menn að mögulegt væri fyrir Aquino að ná vopnahléi við hersveitir kommúnista ef vilji væri fyrir því innan ríkisstjórnar hennar. Hersveitir kommúnista eru öflugar á Filippseyjum. Reyna stjórnvöld að semja uin vopnahlé? Enn flengt í breskum skólum I.undúnir-Reuter Breskir kennarar sem andsnúnir eru líkamlegum refsingum hafa hvatt Evrópuráðið til að vísa Bret- um úr því þar sem flengingar eru leyfðar í skólum þar í landi. Kennararnir skrifuðu bréf til utanríkisráðherra 21 ríkis sem ráð- ið skipa og hvöttu þá til að fá bresk stjórnvöld til að fara eftir samþykkt þeirri er Mannréttindadómstóll Evrópu gerði fyrir fjórum árum. Þar var foreldrum gefið vald yfir hugsanlegum refsingum barna sinna í skólurri. Bretland ereina landið í Evrópu þar sem kennurum eru fengin völd til að löðrunga ellegar Bengja nem- endursína. Ríkisstjórnin breska undir for- sæti Margrétar Thatchers hefur lagt fram tillögu sem rniðar að því að fara eftir samþykkt Mannrétt- indadómstólsins. Líkamlegar refs- ingar eru samt sem áður enn vin- sælt kennararáð í skólum bæði í Englandi og Wales. Konur á pólinn: Karlavígin falla hvert á fætur öðru Osló-Reutcr. Fyrsti heimskautaleiöangur- inn sem eingöngu er skipaöur konunt hcfur lagt af stað til norðurpólsins á skíðum. John Harrington, sendiherra Kanada í Noregi, sagöi viö frcttamenn aö tvær kanadískar og fjórar franskar konur væru lagðar af stað frá aðalstöðvum sínum við Ny Aalesund á Spitz- betgen og liygöust ná til norður- pólsins í byrjun sumars. Hitastig var —35 gráöur er konurnar lögðu íhann. Þærgera ráð fyrir að feröin til pólsins taki um hundraö sólarhringa. Vcga- lengdin sem þær þurfa aö leggja að baki á þessum tíma er um 1100 kílómetrar. Hver kona dregur um 100 kg þungan sleöa en birgðir fá þær reglulega frá flugvél. Þæreru till- ar læröar vísindákonur. Norðmaöurinn Ragnar Tolseth, sem fór til norðurpóls- itis fyrir nokkrum árum, sagöist hafa af því nokkrar áhyggjur hversu seint konurnar legöu upp í fcrðina. Sagöi hann ísbráönun geta valdiö þeim miklum vand- ræðum og e.t.v. seinkað för þcirra eitthvað umfram þessa hundraö daga. Vinnutími aukinn á ný í Póllandi Varsjá-Reuler Pólsk stjórnvöld hafa ákveðið að koma aftur á laugardagsvinnu í þar- lendum verksmiðjum. Afnám þessa vinnudags var eitt það merkasta sem hin óháðu verkalýðssamtök komu í gegn áður en þau voru bönnuð. Tilkynnt var um þessa breytingu í fjölmiðlum landsins nú nýlega en bæði Samstaða og OPZZ, hin nýju opinberu verkalýðssamtök landsins, eru andvíg þessari ákvörðun. í stað þess að vinna einn laugardag í mánuði þarf nú að vinna þrjá laug- ardaga í verksmiðjum þar sem þessi breyting kemur til með að virka. Talsmaður OPZZ sagði samtök sín hafa mótmælt þessari ákvörðun stjórnvalda og kvað þau ætla að reyna að fá undanþágu fyrir ein- hverjar verksmiðjur sem þurfa að hlíta þessum lögum. Stjórnvöld landsins hafa að undanförnu verið dugleg við að benda á að minnkandi vinnutími hefði ekki skilað sér í betri afköstum eins og margir reiknuðu með þ.á.m. forsvarsmenn Samstöðu. Ákvörðun- in kemur í kjölfar þessarar umræðu. Breyting þessi kemur til með að gilda í þriðjungi af hinum scx þúsund iðnaðarverksmiðjum landsinsen listi yfir nákvæman fjölda og hciti verk- smiðjanna er væntanlegur á næst- unni. Lech Walesa og félagar hans í Sam- stöðu komu í gegn laugardagsfríum. Stjórnvöld hyggjast nú afncma þau að miklu leyti. Hald lagt á hamp Islamabad-Reuter Lögreglan í Pakistan gerði í gær upptæk meira en tíu tonn af hassi og var þetta kallaður næst mesti hass- fundur sögunnar af hinni opinberu fréttastofu þar í landi. Atburðarásin var hröð. Lögreglan stöðvaði vöruflutningabifreið nálægt bæ einum í héraðinu Kohat sem er við norð-vestur landamærin. Bíl- stjóranum var að vísu meinilla við að stöðva en varð samt að gera þaö þeg- ar lögreglan hafði skotið í sundur alla hjólbarðana. í bifreiðinni fann síðan lögreglan tíu tonn af hassi sem greinilega átti að fara með til hafnarborgarinnar Karachi. Bílstjórinn og þrír fylgdar- menn hans sluppu. Árið 1977 komust tollverðir í Ko- hathéraði yfir 10,1 tonn af hassi að sögn fréttastofunnar. BÆNDUR Graskögglarnir eru góður kostur, ódýrt og kjarnmikið íslenskt fóður Vekjum sérstaka athygli á graskögglum blönduðum innlendum fóðurefnum, svo sem meltu, fiskimjöli og byggi Leitið nánari upplýsinga ; / verksmiðiunum oa hiá söluaðilum

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.