Tíminn - 03.01.1987, Blaðsíða 3
Laugardagur 3. janúar 1987
Tíminn 3
Vigdís Finnbogadóttir óskar Nirði
P. Njarðvík til hamingju með styrk
Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins.
Rithöfundasjóöur
Ríkisútvarpsins:
Njirður P.
Njarðvík
fékk 200
þús. krónur
-í styrk viö hátíðlega athöfn í
Þjóöminjasafninu
Njörður P. Njarðvík fékk árlegan
styrk úr Rithöfundasjóði Ríkisút-
varpsins, að upphæð 200.000
krónur. Styrkurinn var afhentur við
hátíðlega athöfn í Þjóðminjasafninu
á gamlársdag. Jónas Kristjánsson
prófessor og formaður rithöfunda-
sjóðsins afhenti Nirði styrkinn.
Þetta mun vera fyrsta sinn sem
Njörður P. Njarðvík hlýtur styrk til
ritstarfa, en hann hefur samið tólf
bækur á 23 ára ritferli sínum. Njörð-
ur hlaut hins vegar verðlaun Reykja-
víkurborgar fyrir þýðingu á barna-
bókinni Jóakim eftirTormaul Haug-
en sl. vor, en Njörður hefur þýtt tíu
bækur á íslensku.
Njörður er 61. rithöfundurinn sem
fengið hefur styrk úr Rithöfunda-
sjóði Ríkisútvarpsins frá því hann
var stofnaður árið 1956. - HM
SVR hækkar
Strætisvagnar Reykjavíkur hafa
ákveðið hækkun á gjaldskrá sinni.
Tekur hin nýja gjaldskrá gildi á
morgun. Einstök fargjöld fyrir full-
orðna hækka úr 25 krónum í 28.
Fargjald fyrir börn hækkar í átta
krónur. Farmiðaspjöld með 28 mið-
um fyrir börn hækka í 150. Spjöld
fyrir fullorðna, með 26 miðum
hækka í 530 krónur. Farmiðaspjöld
fyrir aldraða og öryrkja, með 26
miðum hækka í 265 krónur.
Leiðrétting
í áramótagrein Steingríms Her-
ntannssonar, forsætisráðherra sem
birtist í Tímanum 31. des. 1986,
varð sú prentvilla í kaflanum um
stjórnarmyndun, að í stað alþýðu-
bandalagsmanna var ritað alþýðu-
flokksmanna.
Málsgreinin átti að vera svo:
„Lengi verður eftirminnilegt, hve
óraunsæir alþýðubandalagsmenn
reyndust í þessum viðræðum. Þeir
lögðu til að fresta vandanum í einn
mánuð! Þeim átti þó að sjálfsögðu
að vera vel ljóst hvert stefndi. Tillög-
ur þeirra voru kák eitt. Reyndar
hcfði þetta ekki átt að koma á óvart
eftir allt þjarkið um nauðsynlegar
aðgerðir í fyrri stjórn á árinu 1982.“
Hlutaðeigendur eru beðnir vel-
virðingar á þessum mistökum.
Ritstj.
Verðlagsráð sjávarútvegsins:
FISKVERÐID HÆKKADI
UM 8% AÐ MEÐALTALI
- ákvörðunin á að greiða fyrir sjómannasamningum
Almennt fiskverð var ákveðið á
gamlársdag með samkomulagi í
yfirnefnd. Fiskverð hækkaði að
meðaltali um 8%, en hækkunin var
þó misjöfn eftir tegundum.
Samkomulagið í yfirnefndinni
náðist eftir að niðurstaða frá degin-
um áður, er fengist hafði með
fulltingi oddamanns og kaupenda,
hafði verið endurskoðuð að ósk
seljenda. Útgerðarmenn og sjó-
ntenn óskuðu eftir þessari endur-
skoðun til þcss að freista þess að
ná santkomulagi sem myndi grciða
fyrir lausn kjaradeilu þeirra. Petta
tókst og var verð á karfa, ufsa, og
grálúðu hækkað umfrarn það sem
áður hafði verið gcrt ráð fyrir og
samstaða varð um að verð á þorski
hækkaði urn 7% í stað 5% sem
áður hafði verið talað um. Fisk-
verðshækkunin sem ákveðin var er
sem hér segir: Þorskur hækkaði að
meðaltali um 7%, ýsa um 6%, og
karfi um 5%. Hækkunin var hins
vegar mest á grálúðu eða um 27%
og ufsa stærri en 75 cm um 20%.
Fiskverð þetta gildir frá áramót-
unt til 31. maí.
- BG
, r
STDÐVUN
KAUPSKIPA-
FLÖTANS
Vegna yfirvofandi verkfalls undirmanna á kaupskipum vekur EIMSKIP athygli viöskiptavina sinna á eftirfarandi:
# Boðað verkfall Sjómannafélags Reykjavíkur hjá undirmönnum á kaupskipum hefst á miðnætti aðfarar-
nótt þriðjudagsins 6. janúar 1987 hafi samningar þá ekki tekist.
# Á undanförnum mánuðum hafa ítrekaðar tilraunir verið gerðar til þess að
ná samningum við forystumenn Sjómannafélags Reykjavíkur og afstýra vinnustöðvun.Þær tilraunir hafa
ekki borið árangur. Komi til verkfalls munu íslensk kaupskip stöðvast eitt af öðru í janúar.
# EIMSKIP bendir viðskiptavinum sínum á að vera viðbúnir verkfalli, og gera ráðstafanir til að vörur
komi meö þeim skipum félagsins sem lesta í erlendum höfnum á næstunni.
# Af hálfu EIMSKIPS verður áfram lagt kapp á að sanngjarnir samningar náist sem allra fyrst við viðsemj-
endur fyrirtækisins. Vonast er til þess að óþægindi af væntanlegri vinnustöðvun verði sem minnst og að
flutningsþjónusta EIMSKIPS komist sem fyrst í eðlilegt horf.
EIMSKIP
*