Tíminn - 02.04.1987, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 2. apríl 1987
Tíminn 13
HIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIII ÚTLÖND .;iiilHlii;i;i!|!L ...;íííIIIIIIII!IIIIII!!!' ...................................................................................................................................................................................................................I.............................
Suður-Afríka:
Vopnaviðskipti blómgast
þrátt fyrir bann
Jóhannesarborg - Reuter
Stjórnvöld í Suður-Afríku sögðu í
gær að vopnaiðnaður þeirra væri svo
vel settur að hann væri í þriðja sæti
í gjaldeyrisöflun á eftir námuiðnaði
og landbúnaði. Nú eru tíu ár síðan
Sameinuðu þjóðirnar settu bann á
vopnaviðskipti við Suður-Afríku.
Ríkisútvarpið í landinu fjallaði í
gær um vopnaviðskiptabannið frá
árinu 1977 en sagði stjórn landsins
hafa mætt því banni svo vel að her
þess þyrfti nú engin vopn á að halda
utanlands frá.
Samkvæmt frétt útvarpsins fram-
leiðir Armscor, hið ríkisrekna
vopnafyrirtæki landsins, öll vopn
sem herinn þarf á að halda og flytur
að auki út verulegt magn af vopnum,
svo mikið að einungis námuiðnaður
og landbúnaður útvegar ríkinu meiri
gjaldeyri.
Erlendar ríkisstjórnir hafa reynd-
ar lengi verið gagnrýndar fyrir að
fara á bak við vopnaviðskiptabann-
ið, aðallega með því að halda áfram lýsingar um nýjustu tækni í vopna-
að útvega Suður-Afríkustjórn upp- framleiðslunni.
Frá Suður-Afríku: Þrátt fyrir bann SÞ á vopnaviðskipti við S-Afríku er slík
verslun með blóma
Ceaucescu Rúmeníuleiðtogi í Afríkuför:
Umhugað um skuldir
Kinshasa - Reuter
Nicolae Ceaucescu leiðtogi Rúm-
eníu hefur hvatt til að komið verði á
alþjóðlegri ráðstefnu er fjalla skuli
um skuldir ríkja þriðja heimsins og
leiðir til að eyðileggja öll kjarnorku-
vopn fyrir lok þessarar aldar.
Ceaucescu kom í opinbera heim-
sókn til Afríkurtkisins Zaire í vik-
unni og talaði hann um alþjóðlega
ráðstefnu í ræðu sem hann hélt í
matarboði er Mobutu Sese Seko
Zaireforseti hélt honum til heiðurs.
Seko tók í sama streng í ávarpi
sem hann flutti í átveislunni og
hvatti að auki til að öll ríki innan
samtakra óháðra ríkja létu aura
renna í sjóð sem stofnaður var á
síðasta ári. Sá hefur það markmið að
styðja við bakið á ríkjum í sunnan-
verðri Afríku, framvarðarríkjunum
svo kölluðu, svo þau verði ekki eins
háð Suður-Afríku í efnahagslegu
tilliti.
KAUPFELOGIN OG
ÁRMULA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900
Bændur!
BÓKIÐ PANTANIR
TÍMANLEGA FYRIR SUMARIÐ
WILD heydreifikerfi í hlöður.
Kynnið ykkur umsögn notenda!
Forsætisnefnd Norðurlandaráðs
auglýsir lausa til umsóknar
stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra
skrifstofu sinnar í Stokkhólmi
Norðurlandaráð er samstarfsvettvangur þjóðþinga og
ríkisstjórna Norðurlanda. Á milli hinna árlegu þinga
Norðurlandaráðs stýrirforsætisnefnd daglegum störfum
þess og nýtur við það atbeina skrifstofu Norðurlanda-
ráðs sem er staðsett í Stokkhólmi.
Á skrifstofunni, sem hefur stöðu alþjóðlegrar stofnunar,
starfa þrjátíu manns og fer starfið þar fram á dönsku,
norsku og sænsku.
Starfi skrifstofunnar er stjórnað af aðalframkvæmda-
stjóra (presidiesekreterare), tveimur aðstoðarfram-
kvæmdastjórum (stállföretrádande presidiesekreterare)
og upplýsingastjóra.
Starf það sem auglýst er felst meðal annars í
fjárstjórn, starfsmanna- og skrifstofuhaldi, aðstoð við
undirbúning funda forsætisnefndar og skipulagningu á
störfum ráðsins, auk þess sem viðkomanda ber að
fylgjast með stjórnmálaástandi á Norðurlöndum og vera
forsætisnefnd til aðstoðar um erlend samskipti.
Reynsla af stjórnunarstörfum er æskileg.
Forsætisnefnd leitast við að fá konur jafnt sem karla til
ábyrgðarstarfa á skrifstofur Norðurlandaráðs.
Samningstíminn er fjögur ár og hefst hann 1. ágúst
1987. Ríkisstarfsmenn eiga rétt á leyfi frá störfum
meðan á samningstímanum stendur.
í boði eru góð laun, en nánari upplýsingar um þau og
aðrar aðstæður veita aðalframkvæmdastjóri skrif-
stofunnar, Gerhard af Schultén, og aðstoðarfram-
kvæmdastjóri hennar, Áke Pettersson, í síma 9046 8
143420 og Snjólaug Ólafsdóttir, ritari íslandsdeildar
Norðurlandaráðs í síma Alþingis 11560.
Umsóknum skal beina til forsætisnefndar Norðurlanda-
ráðs (Nordiska rádets presidium) og skulu þær hafa
borist til skrifstofu forsætisnefndar (Nordiska rádets
presidiesekretariat, Box 19506, S-104 32 Stockholm)
eigi síðar en 27. apríl 1987.
Búvélar til sölu
Ford 4610 árg. ’83 og Ford 5000 árg. 73 Deutz 40
hestafla árg. ’64 MF 135 árg. ’66 og annar MF 135
með multípower og ámoksturstækjum árg. 75 og
Deutz Fahr sláttuþyrla árg. ’85 Deutz Fahrfjölfætla
árg. 74 Wegler AP 52 árg. ’80 Land Rover Diesel
árg. 70 og Datsun Diesel 220 C árg. 77.
Upplýsingar í síma 99-8175
ÖLL ALMENN PRENTUN
LITPRENTUN
TÖLVUEYÐUBLÖÐ
BVGGINGA
vðrur
• Hönnun
• Setning
• Filmu- og plötugerð
• Prentun
• Bókband
PRENTSMIDJAN .
hf.
SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGUR
SÍML45000
AUÐVELDUM VIÐ fa/i^RA?
JUJTBKUR
?/7/7
a/7/7
Þegar þú kaupir í matinn
fyrir heimilið er þægilegt að
bregða sér í byggingavöru-
deildina hjá okkur. Þar
færðu allt sem þú þarft til
endurnýjunar og viðhalds á
heimilinu.
Urval góðra verkfæra og
áhalda sem hjálpa þér til að
vinna verkin fljótar og betur.
HAGKAUP
Skeifunni