Tíminn - 05.08.1987, Síða 10
10 Tíminn
Miðvikudagur 5. ágúst 1987
Miðvikudagur 5. ágúst 1987
Tíminn 11
Gamlar bækur
til sölu
í bókakjallaranum á Vatnsstíg 4,
hefur Bókavarðan komið sér
skemmtilega fyrir og raðað upp
hundruðum hillumetra af gömlum
og nýjum bókum í öllum greinum
fræða, vísinda og fagurfræða.
Hér er til mikill fjöldi erlendra útvalinna skáld-
sagna, leikrita, Ijóðabókaog þúsundirspennu-
sagna og leynilögregluþrillera eftir alla helstu
höfunda þessarar aldar.
Við kaupum og seljum nær allar íslenskar
bækur, eldri og yngri. Af nýkomnum bókum
má nefna:
íslenskt fornbréfasafn 1-12 bindi, Almanak Þjóð-
vinafélagsins 1875-1940, allt frumprent, Vesalingarn-
ir eftir Victor Hugo, Sagnaþættir úr Húnaþingi,
margar bækur um sögu Reykjavíkur, Þjóðsögur og
munnmæli Odds Björnssonar, frumútg., Skrá um rit
háskólakennara 1911-1970, Dropar 1-2, Austantór-
ur 1-3 bindi, Völuspá, útg. dr. Sigurðar Nordals,
Norrön Litteraturhistorie eftir Jón prófessor Helga-
son. Islándische Dichter der neuzeit eftir prófessor
Poestion, í verum eftir Theódór Friðriksson, gamla útg,
í handbandi, Andvökur Stephans G. Stephanssonar
1-4 bindi, Flensborgarskólinn 1882-1932, Tímarit
um uppeldi og menntamál 1-3, allt, Tímarit Máls og
menningar frá upphafi, allt innbundið, ýmsir erlendir
leksikonar, gamlir og nýrri, sáraódýrir, Oldnordisk
Ordbog eftir Erik Jónsson, íslenzkar bókmenntir í
fornöld eftir Einar Ólaf Sveinsson, hið bráðskemmti-
lega kvikmyndatímarit Stjörnur 1945-1953, allt í
skinnbandi, með „gömlu“ stjörnunum, íslenzk bók-
menntasaga 1918-1948 eftir Kristin E. Andrésson, hin
umdeilda bók, Skólameistarasögur Sögufélagsút-
gáfan, íslendingasaga próf. Jóns Jóhannessonar,
Saga Hafnarfjarðar eftir Sigurð Skúlason, Byggð og
saga eftir Ólaf Lárusson, Sögur og sagnir úr Vest-
mannaeyjum, frumútg. 1-2 bindi, Vefnaðarbók Hall-
dóru Bjarnadóttur, Veröld sem var eftir Stephan Zweig
og María Antoinetta eftir sama, Listin að lifa eftir
André Maurois, Þættir úr sögu Reykjavíkur, Um
Njálu eftir Einar Ól. Sveinsson, Hið kynngimagnaða rit
Lífið, útg. Jóhannes Birkiland, Die Stellung der
freien Arbeiter in Island, doktorsrit Þorkels Jóhannes-
sonar, Fra Islands Næringsliv eftir Bjarna frá Vogi,
Saga Skagstrendinga og Skagamanna e. Gísla
Konráðsson, Lestrarkver handa heldri manna börn-
um eftir Rask, Kh. 1830, skjöl, handskrifuð af Einari
Benediktssyni skáldi og sýslumanni og ótal, ótal
margt annað skemmtilegt og fróðlegt.
Við gefum reglulega út bóksöluskrá með
úrvali af lagerum okkar og sendum þessar
skrár ókeypis til allra, sem þess óska utan
Stór-Reykjavíkursvæðis.
Kaupum og seljum bókasöfn, stór og lítil og
komum hvert á land sem er til að athuga
bækur og bókasöfn. Við kaupum einnig gömul
íslensk blöð og tímarit, smáprent, póstkort
með og án frímerkja, gamlan íslenskan
tréskurð, minni handverkfæri og húsmuni o.fl.
Vinsamlega hringið, skrifið - eða lítið inn.
BÓKAVARÐAN
— GAMLAR BÆKUR OG NYJAR —
VATNSSTÍG 4 - REYKJAVÍK - SÍMI 29720
ÍÞRÓTTIR
llllll
ÍÞRÓTTIR
llilllllll
llllllllllll
Illllllllllllllllllllllllll
Illlllllllll
Knattspyrna:
Upton þjálfar ÍBK
út keppnistímabilið
Ákveðið hefur verið að Frank
Upton þjálfi 1. deildarlið ÍBK út
þetta keppnistímabil. Upton kom til
iandsins síðastliðinn laugardag og
stjórnaði fyrstu æfingu Keflavíkur-
liðsins á mánudagskvöld. Samkomu-
lag varð um ráðningu hans út sumar-
ið. Að sögn Kristjáns Inga formanns
knattspyrnuráðs ÍBK var það Hall-
dór Einarsson (HENSON) sem
hafði samband við Keflvíkinga og
benti á þennan möguleika en Kefl-
víkingar hafa sem kunnugt er verið
þjálfaralausir síðan Peter Keeling
hætti.
Frank Upton hefur verið þjálfari
hjá Aston Villa og Wolves og einnig
aðstoðarframkvæmdastjóri Chelsea,
Coventry og fleiri liða. Hann var
sjálfur í atvinnumennskunni, spilaði
m.a. með Northampton, Derby,
Chelsea og Notts County. Upton
lýst vel á aðstæður hér, telur þær síst
verri en hjá 2. deildarliðunum úti.
Kjartan Másson verður Upton að
öllum líkindum innan handar með
þjálfun og stjórnun liðsins.
Ekkert hefur enn verið ákveðið
með framhaldið en líki Upton og
Keflvíkingum samstarfið má búast
við að hann þjálfi lið ÍBK áfram
næsta sumar. - ms/HÁ
Enska knattspyrnan:
Góðgerðarskjöldurinn
féll Everton í skaut
Reuter
Deildarmeistararnir Everton sigr-
uðu bikarmeistara Coventry í leikn-
um um góðgerðarskjöldinn um helg-
ina og var það Wayne Clarke sem
skoraði eina markið rétt fyrir hálf-
leik eftir góðan undirbúning Adrian
Heath. Hann komst inn á vítateig og
renndi boltanum stutt á Trevor Stev-
en sem sendi fyrir og Clarke skoraði
með góðu skoti frá markteig.
Úrslitin voru sanngjörn miðað við
gang leiksins en leikmenn Coventry,
studdir af um 50.000 af 88.000 áhorf-
endum á leiknum, gáfust aldrei upp.
David Speedie sá um að vörn Ever-
ton hefði nóg að gera en það var
Nick Pickering sem átti besta færi
Coventry þegar hann skaut í slá eftir
hjólhestaspyrnu þegar Bobby
Mimms markvörður var fjarri.
Everton átti einnig færi og
minnstu munaði að þeim tækist að
bæta við öðru marki rétt fyrir leiks-
lok en Steve Ogrizovic varði glæsi-
lega.
Úlfar Jónsson kom mjög á óvart þegar hann sigraði á landsmótinu í golfi
sigur hans engum ■ opna skjöldu. Forystan var átta högg þegar 72 holum
Þýska knattspyrnan:
Schumacher fékk á sig fimm
mörk gegn Hamburger SV
- Ásgeir skoraði gegn Homburg
Reutcr
Síðasti hálftíminn í leik Hambur-
ger SV og Schalke var hálfgerð
martröð fyrir markvörð síðarnefnda
liðsins. Hann fékk á sig fimm mörk
á þeim tíma, í sínum fyrsta deildar-
leik í fimm mánuði. Maðurinn er
enginn annar en Tony Schumacher,
sá hinn sami og var rekinn frá Köln
eftir að hann skrifaði bókina sína
frægu um lyfjanotkun knattspyrn-
umanna og fleira.
Það voru Manfred Kastl með
þrennu, Tomas Hinz og Bruno
Labbadia scm skoruðu mörk Harnb-
orgarliðsins.
Ásgeir Sigurvinsson skoraði ann-
að marka Stuttgart þegar liðið vann
2-1 sigur á FC Homburg, úrslit sem
ekki koma á óvart.
7A
■ .i.fetr" w éí' * sim'a*1 i-tám
-% Stft. icS; '
' ; tthjj?' ' J* Vj0’ p’ '
Alptrstetcíier Klos terbrau i
Ásgeir Sigurvinsson byrjaði keppnistínmbilið á fullri siglingu og skoraði strax
í fyrsta leik. Hinir íslendingarnir í Þýskalandi, Atli Eðvaldsson og Lárus
Guðmundsson léku ekki um helgina.
Bayern Múnchen, deildarmeistar-
arnir, byrjuðu keppnistímabilið ein-
nig vel, þeir sigruðu Borussia
Dortmund 3-1 og hefur liðið nú
unnið 23 sigra í röð. Michael Rum-
menigge skoraði fyrsta mark Bayern
snemma í leiknum og Roland Wo-
hlfarth bætti við öðru marki snemma
í síðari hálfleik. Bayern réði lögum
og lofum á vellinum allan tímann en
eigi að síður tókst Frank Mill að
minnka muninn á 60. mín. Það var
svo Daninn Lars Lunde, nýliðinn í
liði Bayern sem skoraði þriðja mark-
ið undir lok leiksins.
Eintracht Frankfurt náði aðeins
2-2 jafntefli við Kaiserslautern og
þóttu þau úrslit nokkuð óvænt,
kannski ekki síst þar sem milljóna-
maðurinn Lajos Detari var meðal
leikmanna Frankfurt. Sá er taiinn
besti knattspyrnumaður Ungverja-
lands og er þó af nógu að taka þar.
Hann var keyptur fyrir um 80 millj.
ísl. kr. fyrr í sumar en skoraði ekki
í leiknum. Lárus Guðmundsson lék
ekki með liði Kaiserslautern. Atli
Eðvaldsson lék heldur ekki með
Uerdingen sem tapaði 0-2 fyrir
Núrnberg, óvænt þar.
Úrslitin uröu þessi í 1. umferð
þýsku knattspyrnunnar:
Kaiserslautern-Frankfurt . .
Stuttgart-FC Homburg . . .
Uerdingen-Núrnberg ....
Dortmund-Bayern Múnchen
Karlsruhe-Köln............. 1-1
Honover-Werder Bremen ... 0-1
Hamburg SV-Schalke..........5-2
Leverkusen-Mannheim........ 1-0
Bochum-Gladbach............ 1-2
2-2
2-1
0-2
1-3
íþróttimar í kvöld:
Landsleikur
gegn Finnum
Fram og Völsungar í Laugardalnum
íslenska landsliðið í knattspyrnu skipað leikmönn-
unt 21 árs og vngri leikur gegn Finnum í Evrópukeppni
landsliða í kvöld. Lcikurinn verður á Akureyri og
hefst kl. 19.00.
Eftirtaidir lcikmenn skipa tslenska liðið:
Markverðir:
Haukur Bragason KA
Páll Ólafsson KR
Aðrir leikntenn:
Andri Martcinsson KR
Ágúst Már Jónsson KR
Gauti Laxdal KA
Haraldur Ingólfsson ÍA
Hlynur Birgisson Þór
Jón Grétar Jónsson Val
Júlíus Tryggvason Þór
Ólafur Þórðarson ÍA
Rúnar Kristinsson KR
Siguróli Kristjánsson Þór
Sævar Jónsson Val
Þorsteinn Guðjónsson KR
Þorsteinn Halldórsson KR
Þorvaldur Örlygsson KA
Einn leikur verður í 1. deildinni í kvöld, Framarar
og Völsungar mætast á Laugardalsvellinum ki. 19.00.
Leiknum var frestað fyrr f sumar eftir að flugvél
Völsunga bilaði á síðustu stundu.
Körfuknattleikur:
Valur áfram með
Njarðvíkingana
Gengið hefur verði frá endurráðingu Vals Ingi-
mundursonar sem þjálfara úrvalsdeildarliðs UMFN.
Valur þjálfaði íslandsmeistarana i fyrra og mun hann
hafa sama hópinn með sér áfram. Einn liðsmaður
bætist þó væntanlega í hópinn, það er Sturla Örlygsson
sem hefur leikið með Valsmönuum undanfarin ár.
Hann hefur æft með Njarðvíkingum upp á síðkastið
og mun að öllum líkindum leika nieð þeim næsta vetur.
- ms/HÁ
Landsmótið í golfi:
Ulfar í efsta sæti
annað árið í röð
- Þórdís Geirsdóttir sigraði í meistaraflokki kvenna
Það kom líklega fáum á óvart að
Úlfar Jónsson Golfklúbbnum Keili
skyldi leika sjötíu-og-tvær holurnar
á fæstum höggum á Landsmótinu í
golfi sem lauk á Jaðarsvelli við
Akureyri um helgina. Úlfar hefur
einbeitt sér að golfinu og æft mjög
vel og átti hann ekki í vandræðum
með að sigra alla keppinauta sína á
mótinu. Hann lék samtals á 294
höggum en fyrsta daginn setti hann
vallarmet á Jaðarsvellinum, fór þá
18 holur á 69 höggum. Sigur Úlfars
virstist aldrei í hættu en keppnin um
2. sætið var þvf harðari og raunar
skildu aðeins 5 högg annað og 9.
sætið. Hannes Eyvindsson Golf-
klúbbi Reykjavíkur varð í 2. sæti á
302 höggum, Ragnar Ólafsson GR
þriðji á 303 og Gylft Kristinsson
Golfklúbbi Suðurnesja í 4. sæti á 304
höggum.
Keppni í meistaraflokki kvenna
var mjög spennandi. Það var Inga
Magnúsdóttir GA sem hafði foryst-
una framanaf og setti m.a. vallarmet
fyrsta daginn er hún lék 18 holur á
79 höggum. Þórdís Geirsdóttir
tryggði sér hinsvegar sigurinn með
góðum „endaspretti“ og hafði fjög-
urra högga forystu að keppni íok-
inni, lék á 335 höggum. Jóhanna
Ingólfsdóttir GR varð önnur á 339
höggum og Inga kom svo þriðja,
einnig á 339.
Viggó Viggósson GR sigraði í L
flokki karla en Ólafur Skúlason GR
varð í 2. sæti á santa höggafjölda,
sannarlega hörð keppni þar því
þriðji varð svo Haraldur Ringsted
GA á 318 höggum, einu höggi mcira
en efstu menn.
Jónína Pálsdóttir GR vann 1.
flokk kvenna mcð yfirburðum, Iék á
369 höggum. Björk Ingvarsdóttir
GK varð önnur á 376 og Erla
Adolfsdóttir GG þriðja á 385.
Jóhann P. Andersen Golfklúbbi
Grindavíkur fór á fæstum höggum í
2. flokki karla. Hann lék á 328 en
Guðmundur Sigurjónsson GA kom
næstur á 331.
Árný L. Árnadóttir GA vann 2.
flokkinn hjá kvenfólkinu og hafði
ótrúlega yfirburði. Þegar hún lauk
síðasta hringnum var forystan orðin
15 högg. Árný lék á 358 höggum,
Hildur Þorsteinsdóttir GK varð önn-
ur á 373 og Rósa Páisdóttir GA
rriðja á 376. - HÁ
Þórdls Geirsdóttir sigraði í meistara-
flokki kvenna.
Evrópumeistaramótið í sundi:
Gross ekki með?
Reuter
Heims- og Ólympíumeistarinn
Michael Gross sagði í gær að hann
myndi draga sig úr keppni í öllum
þeim einstaklingsgreinum sem hann
var skráður í á Evrópumeistaramót-
inu í sundi sem hefst í Strassbourg
í fyrra en nú kom
var lokið.
''***%#&*%& **£!*$& x»méi
Michael Gross á heimsmetið í 200 m flugsundi en fær samt ekki að keppa í
greininni á Evrópumeistarainótinu. Því ætlar hann að mótmæia en hér er
hann í öllu kunnuglegri aðstöðu, að fagna heimsmeti.
síðar í þessum mánuði. Sagðist
Gross gera þetta til að mótmæla því
að hann fengi ekki að keppa í 200 m
flugsundi á mótinu.
V-þýska sundsambandið valdi
Gross ekki til keppni í 200 m flug-
sundinu þar sem hann á heimsmetið
vegna þess að hann gat ekki keppt í
greininni áúrtökumóti fyrirskömmu
vegna axlameiðsla. „fyrst ég má ekki
synda 200 flug þá sé ég mig tilneydd-
an til að draga mig útúr hinum
einstaklingsgreinunum" sagði Gross
í gær og var illur en bætti því við að
hann myndi keppa í boðsundunum.
Gross var einnig skráður í 100 m flug
og 200 m skriðsund.
„Formsatriðin skipta öllu máli hjá
(v-þýska) sundsambandinu, árang-
urinn virðist vera aukaatriði“ sagði
Gross.
Forráðamenn v-þýska knatt-
spyrnusambandsins segja að sam-
bandið liefði getað átt von á máls-
sókn frá þeim sem tryggðu sér lands-
liðssætið á úrtökumótinu ef niður-
stöðum þar hefði á einhvern hátt
verið breytt, jafnt þótt þar ætti
sjálíur heimsmethafinn í hIut. — HÁ
, Islandsmótið í knattspyrnu, 4. deild:
Urslitakeppnin að byrja
Golflandsmótið:
Urslit
Röð efslu keppenda í cinstök-
um flokkum á Landsniótinu í
golfi 1987:
Meistaraflokkur karia:
1. Úlfar Jónsson GK...........294
2. Hunnes Eyvindsson GR . . 302
3. Ragnar Ólafssyn GR .... 303
4. Gylfi Krístinsson GS......304
5. Magnús Birgisson GK .... 305
6. Siguröur Pétursson GR . . . 306
7. Siguröur Sigurðsson GS . . . 306
8. Arnar M. Olafsson GK . . . 307
9. Tryggvi Traustason GK . . . 307
10. Geir Svansson GR...........310
Meistaraflokkur kvenna:
1. Þórdis Geirsdóttir GK . . . 335
2. Jóhanna Ingólfsdóttir GR . 339
3. lnga Mugnúsdóttir GA . . . 339
4. Kugnhildur Sigurðard. GR . 340
5. Kristín Þorvaldsdóttir GK . 350
6. Kristin Pétursdóttir GK ... 353
7. Karen Sarvarsdóttir GS . . . 354
8. Kristín Pálsdóttir GK .... 362
9. Ásgerður Sverrisdóttir GR . 367
10. Sjöfn Guðjónsdóttir GV . . 371
l.flokkurkarla:
1. Viggó Viggósson GR.........317
2. Ólafur Skúlason GR .........317
3. Haraldur Kingsfed GA...........
4. Jón ö. Sigurösson GR .... 320
5. Viðar Þorsteinsson GA .... 320
1. flokkur kvenna:
1. Jónina PálsJóttir GR.......369
2. Björk lngvarsdóttir GK . . . 376
3. Erla Adolfsdóttir GG .... 385
4. Aðalheiður Jórgensen GR . . 392
5. Guöbjörg Sigurðard. GK . . 393
2. flokkur karia:
1. Jóhann P. Andersen GG . . 328
2. Guðmundur Sigurjónss. GA . 331
3. Kúnar Gíslason GR...........334
4- Tryggvi Þ. Ingvarsson GS . . 338
5. Víöir Bragason GK...........338
2. flokkur kvenna:
1. Árný L. Árnadóltir GA . . .^358
2. Hildur Þorstcinsdóttir GK . . 373
3. Rósa Pálsdóttir GA..........376
4. Sólveig Birgisdóttir GA . . . 376
5. Kristine Eide NK ...........394
3. flokkur karla: 1
1. Hjörvar Jensson GE .......350
2. Ámi Kctill Eriöriksson GA . 362
3. Þórir Sigurðsson GÍ.......363
4. Guðni Þ. Magnússon GE . . 365
5. Eiríkur Haraldsson GA . . . 366
UMSJÓN:
Árnadóttir
IBLAÐAMAÐUR
Úrslitakeppnin í 4. deild íslands-
mótsins í knattspyrnu hefst um
næstu helgi. Riðlakeppninni er ný-
lokið en í flestum riðlum var orðið
ljóst íyrir nokkru hvaða liö færu í
úrslitakeppnina. Úrslit í síðustu
leikjum riðlakeppninnar urðu þessi:
Bolungarvík-BÍ ...................... 7-3
Geislinn-Bíldudalur.................. 3-2
Bíldudalur-Höfrungur................. 0-6
Huginn-Leiknir ...................... 4-3
Hrafnkell-Hötturr ................... 1-0
Valur-Súlan.......................... 2-0
Lokastaðan í riðlakeppninni varð
þá þannig:
A-ríðill:
Arvakur............... 8 5 3 0 19-5 18
Ármann.................8 4 1 3 20-11 13
Grundarfjördur.........8 3 2 3 10-16 11
Stokkseyri............ 8 2 1 5 12-22 7
Augnablik............. 8 1 3 4 15-22 6
B-ríðill:
Grótta ............... 8 7 1 0 31-9 22
Hvatberar............. 834 1 16-8 13
Skotfélag R............ 8 3 3 2 20-11 12
VíkingurÓl............ 8 2 1 5 17-20 7
Reynir Hellis..........8 0 1 7 3-39 1
C-ríðill:
Víkverji.............. 8 7 0 1 31-7 21
Hveragerði ........... 8 7 0 1 22-5 21
Snæfell .............. 8 3 0 5 27-30 9
Hafnir ............... 8 2 0 6 23-30 6
Léttir................ 8 1 0 7 11-42 3
D-ríðill:
Bolungarvik .......... 10 9 0 1 47-10 27
Reynir Hn.............. 10 9 0 1 30-10 27
Geislinn................10 5 1 4 16-18 16
Badmintonfél.í....... 10 2 3 5 12-23 9
Höfrungur............. 10 2 1 7 12-28 7
Bíldudalur............. 10 0 1 9 8-36 1
E-riðill:
8
.. . 8
. . . . 8
Hvöt......
Svarfdælir
Neisti ....
Kormákur
Árroðinn .
F-riðill:
HSÞ-c.................. 6 5
Æskan.................. 6 3
Vaskur................. 6 3
Austri R............... 6 2
G-riðill:
Huginn ...............10 8
Hrafnkell..............10 5
Valur Rf..............10 4
Höttur ...............10 4
Leiknir F.............10 4
Súlan................ 10 1
33-4
29-6
7-22
15- 33
9-28
21-9
16- 12
13-14
15-16
6
34-11 25
19-22 16
15-17 15
21-12 14
14-17 13
1
1
3
2
1
0 9 13-37 3
Sigurvegarar livers riðlis keppa tii
úrslita um 3. deildarsætin tvö og er
liðunum skipt í fjögur riðla í úrslita-
keppninni. í riðíi 1 keppa Árvakur
(Reykjavík), Bolungarvík, Grótta
(Seltjarnarnesi) og Víkverji
(Reykjavík) en í riðli 2 HSÞ-c (S-
Þingeyjasýslu), Huginn (Seyðisfirði)
og Hvöt (Blönduósi). Úrslitakeppn-
in hefst sem fyrr sagði um næstu
helgi en úrslitaleikurinn verður
sunnudaginn 6. september. -HA
Vinningstölurnar 1. ágúst 1987
Heildarvinningsupphæð: 3.322.667,-
1. vinningur var kr. 1.663.407,-
Aðeins einn þátttakandi var með 5
tölur réttar.
2. vinningur var kr. 498.200,-
og skiptist hann á 235 vinningshafa,
kr. 2.120,- á mann.
3. vinningur var kr. 1.161.060,-
og skiptist á 6.276 vinningshafa, sem
fá 185 krónur hver.
532
Upplýsingasími:
685111