Tíminn - 05.08.1987, Side 19
Miðvikudagur 5. ágúst 1987
Tíminn 19
SPEGILL
Auðvitað komust alls konar
slúðursögur á kreik en eitt þýsku
vikublaðanna ákvað að komast til
botns í málinu. Blaðamenn fóru að
rekja sporin og leitin endaði í
smáþorpi rétt hjá Ríó de Janeiro,
í 9500 km fjarlægð frá Ahaus. Þar
kom til dyra í húsi einu kennarinn
og innandyra dundaði nemandinn
ungi sér. Bæði báru þau einbauga
og sögðu það vera til að flækja ckki
málin um of í Brasilíu.
Gregor Húppe ber ekki með sér
að vera ómótstæðilegt kvennagull.
Hann er 20 árum eldri en Diana og
hann er ekkert unglegri en aldurinn
segir til um. Hárið er farið að
þynnast og vottur af ístru er farinn
að koma í ljós. í Ahaus var hann
álitinn fyrirmyndarfjölskyldufaðir
og fyrirmyndarkennari. En nú sitja
þar eftir kona hans til tíu ára og
tveir synir, 7 og 9 ára, og þora varla
út fyrir hússins dyr vegna afskipta-
semi og ágengni ókunnugs fólks.
Þau skilja varla enn hvað hefur
gerst og hafa þurft að leita á náðir
félagsmálastofnunar til að hafa í
Astin greip kennarann og nemandann
heljartökum og þau stungu af til Ríó
Það varð uppi fótur og fit í smábænuni Ahaus í grennd Miinster í Vestur-
Þýskalandi cinn góðan veðurdag rétt eftir skólaslit þcgar í Ijós kom að einn
kennari kaþólska skólans, 36 ára fjölskyldufaðir Gregor Hiippe að nafni,
var horfmn án þess að láta eftir sig nokkurt spor. Þegar líka kom í Ijós að
einn nemandi skólans, fegurðardísin Diana sem er ekki nema 16 ára
gömul, var ekki heldur finnanleg fór að fara um suma.
-en nu
sig og á því að tekið var fyrir
launagreiðslur til Gregors þegar
fréttist að hann hefði stokkið úr
landi.
Á öðru heimili í Ahaus sitja
gluggasmiður og kona hans og
skilja ekki að eitt af þrem ofur-
venjulegum börnum þeirra skuli
allt í einu vera komið á þennan
hátt í sviðsljósið. Diana sagði for-
eldrum sínum daginn sem skólan-
um var slitið að hún ætlaði með
skólasystur sinni í útilegu við Rín.
Þau stungu að henni 250 mörkum
og hafa ekki séð dóttur sína síðan.
í Ríó de Janeiro eru þau Gregor
og Diana og hafa ekkert fast land
undir fótunr. Þau segjast ekki sjá
eftir því sem þau hafa gert, þau
hafi ekki ráðið við atburðarásina.
Auðvitað þyki þeint leitt að hafa
valdið fjölskyldum sínum og vinum
heima alls kyns vandræðum og
leiðindum, en hjá því hafi ekki
verið komist. Og hvað varðar alls
kyns lagalegar flækjur sem eru í
undirbúningi í Þýskalandi, m.a. er
í athugun hvort kennarinn hafi
brotið gegn ákveðinni lagagrein
með því að misnota kynferðislega
skjólstæðing sinn, þá eru þau mál
ekki brýnustu vandamál turtildúfn-
anna í Ríó.
Brýnasta vandamálið er, eins og
hjá fleirum, peningar. Gregor
Húppe hafði eytt bróðurpartinum
af þeim peningum sem hann hafði
safnað saman fyrir sumarleyfi fjöl-
skyldu sinnar til að kaupa flugmið-
ana til Ríó de Janeiro, fram og
Þaðþarfað þvo
upp í Brasilíu
eins og annars
staðar. Þau Di-
ana og Gregor
hjálpast að við
eldhússtörfin
enda eru ekki
önnur verkefni
meira knýjandi
Kennarinn og
skólastúlkan
stunguaftil Ríóde
Janeiro þegar
ástin greip
þau heljar-
tökum
Diana er brað-
falleg og sumir
segja að henni
ætti að vera all-
ir vegir færir,
a.m.k. ef hún
Iosaði sig við
kennarann!
■
Miðvikudagur
5. ágúst
07.00-09.00 Pétur Steinn og morgunbylgjan.
Pétur kemur okkur réttu megin tramúr meö
tilheyrandi tónlist og lítur yfir blöðin.
Fréttir kl. 07.00 08.00 og 09.00.
09.00-12.00 Valdís Gunnarsdóttir á léttum
nótum. Sumarpoppið allsráðandi, afmælis-
kveðjur og spjall til hádegis. Og við litum við hjá
hyskinu á Brávallagötu 92.
Fréttir kl. 10.00 og 11.00
12.00-12.10 Fréttir
12.10-14.00 Porsteinn J. Vilhjálmsson á hádegi.
Þorsteinn spjallar við fólkið sem ekki er í fréttum
og leikur létta hádegistónlist.
14.00-17.00 Ásgeir Tómasson og siðdegis-
poppift. Gömlu uppáhaldslögin og vinsælda-
listapopp i réttum hlutföllum.
Fréttirkl. 14.00,15.00 og 16.00.
17.00-19.00 Stefán Benediktsson i Reykjavík
siðdegis. Leikin tónlist, litið yfir fréttirnar og
spjallað við fólkið sem kemur við sögu.
Fréttir kl. 18.00
19.00-21.00 Anna Björk Birgisdóttir á tlóamark-
aði Bylgjunnar. Flóamarkaður milli kl. 19.03 og
19.30. Tónlist til kl. 21.00.
21.00-24.00 Sumarkvöld á Bylgjunnl - Þorgrim-
ur Þráinsson.
24.00-07.00 Næturdagskrá Bylgjunnar - Ólafur
Már Björnsson. Tónlist og upplýsingar um
flugsamgöngur.
/ FM 102,2
Miðvikudagur
5. ágúst
07.00-09.00 Þorgeir Ástvaldsson. Snemma á
fætur með Þorgeiri Ástvalds. Laufléttar dægur-
flugur frá því í gamladaga fá að njóta sín á
sumarmorgni. Gestir teknir tali og mál dagsins
í dag rædd ítarlega.
08.30 STJÖRNUFRETTIR. (fréttasími 689910).
09.00-12.00 Gunnlaugur Helgason. Jæja...
Helgason mættur!!! Það er öruggt að góð tónlist
er hans aðalsmerki. Gulli fer með gamanmál,
gluggar í stjörnufræðin, og bregður á leik með
hlustendum í hinum og þessum get leikjum.
09.30 og 11.55 STJÖRNUFRÉTTIR (fréttasimi
689910).
12.00-13.00 Pia Hansson. Hádegisútvarpið hafið.
Pia athugar hvað er að gerast á hlustunarsvæði
Stjörnunnar, bókmenntir... kynning á nýjum og
gömlum bókum og rabbað við unga sem gamla
rithöfunda.
13.00-16.00 Helgi Rúnar óskarsson. Lagalistinn
er fjölbreyttur á þessum bæ. Gamalt og gott
leikið af fingrum fram, með hæfilegri blöndu af
nýrri tónlist. Helgi fylgist vel með því sem er að
gerast.
13.30 og 15.30 Stjörnufréttir (fréttasími 689910)
16.00-19.00 Bjarni Dagur Jónsson. Þessi hressi
sveinn fer á kostum með kántrý tónlist og aðra
þægilega tónlist, (þegar þið eruð á leiðinni
heim). Spjall við hlustendur er hans fag og
verðlaunagetraun er á sínum stað milli klukkan
5 og 6, síminn er 681900.
17.30 STJÖRNUFRÉTTIR.
19.00-20.00 Stjörnutíminn á FM 102,2 og 104.
Gullaldartónlistin í einn klukkutíma. „Gömlu"
sjarmarnir á einum stað, uppáhaldið þitt. Elvis
Prestley, Johnnye Ray, Connie Francis, The
Marcels, The Platters og fleiri.
20.00-22.00 Einar Magnússon. Létt popp á síð-
kveldi, með hressilegum kynningum. Þetta er
maðurinn sem flytur ykkur nýmetiö.
23.00 STJÖRNUFRÉTTIR.
22.00-00.00 Inger Anna Aikman. Fröken Aikman
fær til sín 2 til 3 hressa gesti og málin eru rædd
fram og til baka. Þetta er þáttur sem vert er að
hlusta á.
00.00-07.00 Gísli Sveinn Loftsson (Áslákur)
Sjörnuvaktin hafin. Ljúf tónlist, hröö tónlist,
sem sagt tónlist fyrir alla.
Miðvikudagur
5. ágúst
18.20 Ritmálsfréttir
18.30 Töfraglugginn - Endursýndur þáttur frá 2.
ágúst.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli
19.30 Hver á að ráða? (Who's the Boss? 118) -
18. þáttur. Þýðandi Ýrr Bertelsdóttir
20.00 Fréttir og veður
20.40 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Ungfrú Alheimur (Miss Universe 1987) Frá
úrslitakeppninni sem háð var í Singapúr í mai sl.
21.40 örlagavefur (Testimony of Two Men)
Bandarískur framhaldsmyndaflokkur í sex
þáttum, gerður eftir skáldsögu eftir Taylor
Caldwell. Aðalhlutverk David Birney, Barbara
Parkins og Steve Forrest. Annar þáttur. Ungur
maður kemur heim úr þrælastríðinu og kemst
að því að æskuunnusta hans hefur gengið að
eiga ríkan hefðarmann. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
22.30 Pétur mikli. Sjötti þáttur. Framhalds-
myndaflokkur i átta þáttum, gerður eftir sögu-
legri skáldsögu eftir Robert K. Massie um Pétur
mikla, keisara Rússlands (f. 1672, d. 1725).
Aðalhlutverk Maximilian Schell, Lilli Palmer,
Vanessa Redgrave, Laurence Olivier, Omar
Sharif, Trevor Howard, Hanna Schygulla, Ur-
sula Andress, Elke Sommer og Mel Ferrer.
Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.
23.30 Fréttir frá Fréttastofu Útvarps.
(t
0
STOÐ2
Miðvikudagur
5. ágúst
16.45 Tvenns konar ást (Two Kinds of Love).
Bandarisk kvikmynd með Ricky Schroder og
Lindsay Wagner í aðalhlutverkum. Þrettán ára
drengur missir fótfestuna í lifinu er móðir hans
deyr úr krabbameini og þá reynir á samband
föður og sonar.
18.30 Það var lagið. Nokkrum tónlistarmyndbönd-
um brugðið á skjáinn._______________________
19.00 Benji. Myndaflokkur fyrir yngri kynslóðina.
Yubi hleypst á brott að heiman, en kemst brátt
að raun um hversu erfitt er að vera án Zax og
Benji.
19.30 Fréttir.
20.00 Viðskipti. Þáttur um viðskipti og efnahags-
mál, innanlands og utan. Stjórnandi er Sighvatur
Blöndahl.
20.15 Happ i hendi. Hinn vinsæli orðaleikur í
umsjón Bryndísar Schram, þátttakendur að
þessu sinni eru starfsmenn Ámarflugs.___________
20.55 Blóð og orkídeur (Blood and Orchids).
Bandarísk sjónvarpsmynd í tveim hlutum. Síð-
ari hluti. Myndin gerist á heitu sumri í Hawai árið
1930. Bandarikjamenn búsettir á eyjunni, sýna
innfæddum vaxandi yfirgang og mikil ólga liggur
í loftinu. Fjórir innfæddir piltar finna hvíta stúlku
sem orðið hefur fyrir líkamsárás. Þeir koma
henni á spítala en eru þegar sakaðir um
verknaðinn. I aðalhlutverk eru Kris Kristoffer-
son, Jane Alexander, Sean Young og Jose
Ferrer. Leikstjóri er Jerry Thorpe. Myndin er
bönnuð börnum.
22.25 Beach Boys. Hljómsveitin Beach Boys í
sínu rétta umhverfi á tónleikum sem haldnir
voru á Waikiki ströndinni á Hawai, í tilefni af 25
ára afmæli hljómsveitarinnar.
23.50 Blóðbaðið í Chicago 1929. (St. Valentine’s
Day Massacre). Bandarísk kvikmynd frá 1967
með Jason Robards, George Segal og Ralph
Meekre í aðalhlutverkum. Mafian réði ríkjum í
undirheimum Chicago á bannárunum og voru
Al Capone og Bugs Moran í fararbroddi tveggja
glæpaflokka. Sífelld átök flokkanna náðu há-
marki í blóðbaðinu mikla, þ. 14. febrúar 1929.
Myndin er bönnuð börnum.
01.25 Dagskrárlok.
Miövikudagur
5. ágúst
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin - Hjördis Finnbogadóttir og
Jóhann Hauksson. Fréttir sagðar kl. 8.00 og
veðurfregnir kl. 8.15. Fréttayfirlit kl. 7.30 en áður
lesið úr forustugreinum dagblaðanna.
Tilkynningar lesnar kl. 7.25, 7.55 og 8.25.
Fréttir á ensku sagðar kl. 8.30.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.05 Morgunstund barnanna: „Berðu mig til
blómanna“ eftir Waldemar Bonsel Ingvar
Brynjólfsson þýddi. Herdís Þorvaldsdóttir les
(17).
9.20 Morguntrimm . Tónleikar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Óskastundin Umsjón: Helga Þ. Stephens-
en.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur Umsjón: Edward J. Frederiks-
en. (Þátturinn verður endurtekinn að loknum
fréttum á miðnætti).
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn - Börn og myndsköpun
Umsjón: Sigrún Proppé. (Þátturinn verður
endurtekinn nk. sunnuoagsmorgun kl. 8.35).
14.00 Miðdegissagan: „Á hvalveiðaslóðum“,
minningar Magnúsar Gíslasonar Jón Þ. Þór les
(3).
14.30 Harmoníkuþáttur Umsjón: Sigurður Alfons-
son. (Endurtekinn þáttur frá laugardegi).
15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
15.20Að flytja heim Umsjón: Adolf Petersen.
(Áður útvarpað 13. apríl sl.)
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.05 Dagbókin
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.05 Síðdegistónleikar Píanókonsert nr. 2 í
c-moll op. 18 eftir Serge Rachmaninoff. Van
Cliburn leikur ásamt Sinfóníuhljómsveitinni í
Chicago: Fritz Reiner stjórnar.
17.40 Torgið Umsjón: Þorgeir Ólafsson og Anna
M. Sigurðardóttir.
18.00 Fréttir. Tilkynningar.
18.05 Torgið, framhald.
I garðinum með Hafsteini Hafliðasyni. (Þátturinn
verður endurtekinn nk. laugardag kl. 9.15).
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Tilkynningar.
Staldrað við Haraldur Ólafsson spjallar við
hlustendur.
ras
00.10 Næturvakt Útvarpsins Magnús Einarsson
stendur vaktina.
6.00 í bítið - Guðmundur Benediktsson.
Fréttir á ensku sagðar kl. 8.30.
9.05 Morgunþáttur í umsjá Skúla Helgasonar og
Sigurðar Þórs Salvarssonar. Meðal efnis: ís-
lenskir tónlistarmenn (bílskúrsbönd) - Fréttir af
tónleikum eriendis - Gestaplötusnúður - Mið-
vikudagsgetraun.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Á milli mála Umsjón: GunnarSvanbergsson
og Sigurður Gröndal.
16.05 Hringiðan Umsjón: Broddi Broddason og
Erla B. Skúladóttir.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 íþróttarásin Umsjón: Ingólfur Hannesson,
Samúel örn Erlingsson og Georg Magnússon.
22.07 Á miðvikudagskvöldi Umsjón: Ólafur Þórð-
arson.
00.10 Næturvakt Útvarpsins Magnús Einarsson
stendur vaktina til morguns.
Fréttir kl.:
7.00, 8.00, 9.00, 10.00, 11.00, 12.20, 15.00.
16.00, 17.00, 18.00, 19.00, 22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP
18.03-19.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og
nágrenni - FM 96,5 Umsjón: Kristján Sigurjóns-
son og Margrét Blöndal.
20.00 Rússnesk tónlist fyrir selló a. Sónata fyrir
selló og píanó í C-dúr op. 119 eftir Serge
Profiev. Gert von Bulow og Merete Westergaard
leika. b. „Chant du Ménestrel" (Söngur farand-
söngvarans) eftir Alexander Glazounov. Mstisl-
av Rostropovitsj leikur ásamt Sinfóníuhljóm-
sveitinni í Boston: Seiji Ozawa stjórnar.
20.30 Sumar i sveit Umsjón: Hilda Torfadóttir.
(Frá Akureyri) (Þátturinn verður endurtekinn
daginn eftir kl. 15.20).
21.10 Frá tónleikum í Saarbrucken í nóvember
1986 Fyrri hluti. Söngflokkurinn „Collegium
Vocale" syngur lög eftir Igor Stravinsky, Claudio
Monteverdi o.fl. Kynnir: Hákon Leifsson. (Seinni
hluta tónleikanna verður útvarpað föstudag 7.
ágúst kl. 20.00).
22.00 Fréttir . Dagskrá morgundagsins . Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Frá útlöndum Þáttur um erlend málefni í
umsjá Bjarna Sigtryggssonar.
23.10 Djassþáttur - Jón Múli Árnason.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur Umsjón: Edward J. Frederiks-
en. (Endurtekinn þáttur frá morgni).
01.00 Veðurfregnir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
aftur. Hann þurfti fljótlega aðselja
miðana fyrir bakaleiðina aftur, en
náttúrlega með miklum afslætti.
Þeir peningar eru löngu búnir og
L nú eru þau Gregor og Diana blönk.
fcÞví miður lifa þau varla á ástinni
feinni saman til lengdar hvað þá
loftinu, og þá þarf að grípa til
einhverra ráða.