Tíminn - 23.01.1988, Qupperneq 3

Tíminn - 23.01.1988, Qupperneq 3
Laugardagur 23. janúar 1988 Tíminn 3 „De Ark“ á samning við Maxi Tour til 1992 og samið við lánadrottna: Kemst Orkin hans Helga á flot í næsta flóði? Hótel Örk í Hveragerði virðist ætla að rétta úr kútnum og komast á flot í næstu flóðum eftir orðum eiganda hennar að dæma, Helga Þórs Jónssonar. Þann 2. febrúar n.k. rennur greiðslustöðvunin út og þá kemur í Ijós hvort þau ráð halda sem gripið hefur verið til síðustu fimm mánuði. Sagðist Helgi Þór ekki vera í nokkrum vafa um að rekstrinum væri borgið og kvaðst hann hafa notað tímann vel til að afla skuldbreytinga og ná samningum við lánardrottna sína. Auk ýmis konar hagræðingar í rekstrinum, hefur Helga Þór tekist að gera samning við belgísku ferðaskrifstofuna Maxi Tour til ársins 1992 um heilsuhótelagistingu eftir hókunum. „Ég hef notað tímann vel og lagt allar eigur mínar í Örkina til að auka lausafé hennar. Það nemur mörgum milljónum," sagði Helgi Þór Jónsson, hóteleigandi í viðtali við Tímann. „Ég hef gert samninga við alla þá aðila sem ég skulda og ýmist greitt upp skuldir eða samið um skuldbreytingar og gengið frá mín- um málum.“ Þá sagði hann að hann væri ekki í nokkrum vafa um að öll skilyrði rekstrarins hafi batnað á þessum tíma og að þessir mánuðir í greiðslustöðvun væru eins mikið upphaf hjá sér og það væri endirinn hjá mörgum fyrirtækjum. „Það er fyrst núna sem ég hef haft tækifæri og næði til að koma rekstrinum í horf og í raun og veru er rekstur Arkar nú fyrst að fara í gang af fullum krafti.“ Sagði hann að skulda- kröfurnar væru búnar að vera sér allt of mikill fjötur um fót frá upphafi og að enginn tími hafi verið til að skipuleggja reksturinn nægilega vel. Samdi við Maxi Tour f síðustu viku voru fulltrúar belg- ísku ferðaskrifstofunnar Maxi Tour á ferð í Hveragerði til að skoða Hótel Örk með tilliti til þess hvort það fullnægði kröfum sem þeir gerðu til heilsuhótela. Niðurstaða þessarar heimsóknar varð samningur til ársins 1992 um gistingu samkvæmt bókun- um. Ferðaskrifstofa þessi hefur sér- hæft sig í þjónustu við fólk, sem sækist eftir gistingu á heijsuhótelum og er í flestunr tilfellum leitað eftir þessari þjónustu samkvæmt læknis- ráði. Fram til þessa hefur Maxi Tour aðallega verið á samningum við heilsuhótel í Júgóslavíu, en eftirsókn eftir heilsudvöl þar hefur dregist mjög saman eftir kjarnorkuslysið í Tjernóbyl. í tengslum við þessa samninga er Helgi Þór að búa leikfimisal hótels- ins mun ríkulegar að tækjum og auk þess vinnur hann þessar vikurnar að Helgi Þór Jónsson hóteleigandi fyrir framan Örkina í Hveragerði. smíði fleiri gufubaða og laugarpotta. Fyrir eru leirböð og annar búnaður, sem nauðsynlegur er hverju heilsu- hóteli. Mun aðstaða þessi jafnan standa öllum gestum Arkar til boða líkt og nú er háttað um séraðstöðu og sundlaug. Daggjaldaleiðin í fyrravetur sótti Helgi Þór um til þáverandi heilbrigðisráðherra, Ragnhildar Helgadóttur, að hótelið fengi greidd daggjöld með ákveðn- um fjölda gesta, sem þar myndu dvelja af heilsufarsástæðum og sam- kvæmt læknisráði. Ekki tókust samningar við ráðuneytið þá og komst málið reyndar aldrei á það stig að það færi til daggjaldanefndar. Helgi Þór sagði að mál þessi hafi að nýju verið rædd, enda hafi hann ekki talið þessa leið fullreynda. Allar slíkar hugmyndir væru þó enn á umræðustigi og ekki komnar langt. Aðrar leiðir til að auka fjölbreytni í rekstri hótelsins hafa og verið til athugunar. Sagðist Helgi Þór binda talsverðar vonir við heilsuræktar- hugmyndir af ýmsu tagi, en nefndi sérstaklega svokallaða megrunar- kúra sem nú er ætlunin að bjóða upp á. Væri það reyndar aðeins eitt af mörgu sem tengdist hugmyndinni um heilsuhótel. KB Ullarvöruviðskipti íslands og Sovét rædd í Moskvu: Björninn stífur Tímamynd BREIN Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar Russinn er stifur í samningum. Það hafa fulltrúar síldarútvegsnefndar oft fengið að reyna, og það fá samningsmenn Álafoss h.f. að reyna þessa dagana í Moskvu. Enn sem komið er hefur ekki náðst samkomulag við Rússann um ullarvöruviðskipti fyrir þetta ár, en næsti samningafundur er boðaður á mánudaginn. Að sögn Jóns Sigurðarsonar, for- stjóra Álafoss h.f., er nauðsynlegt að ná samningum á allra næstu dögum, að öðrum kosti þurfi að grípa til viðeigandi ráðstafana. Að- spurður vildi Jón ekki skýra þessi orð frekar, en sagði þó að samningur við Sovétmenn væri auðvitað spurn- ing fyrir íslenskan ulláriðnað í heild sinni, því að hér væri um að ræða langstærsta eina samningsaðilann. „Það ber mikið á milli, en meðan menn sitja og ræða er von um samninga. Ég er ekki bjartsýnn, en heldur ekki svartsýnn. Menn hafa nálgast í þessum viðræðum, og í raun eru flest tæknileg atriði klár. Það sem er óljóst enn í þessum viðræðum lýtur að magni og verði.“ Jón sagði að fulltrúar Álafoss stæðu fast við að fá hærra verð fyrir ullarvörurnar, enda staðfestu versl- unarskýrslur að Sovétmenn keyptu nú ullarvörur frá öðrum Evrópu- þjóðum fyrir mun hærra verð en þeir greiddu fyrir íslenskar ullarvörur á síðasta ári. „Við verðum að semja um verð sem gerir þennan rekstur arðbæran. Ég yrði óánægður ef ekki næðust magnsamningar upp á 8 milljónir dollara," sagði Jón Sigurð- arson. óþh Tvö alvarleg umferðarslys í gær: Banaslys á Snæfellsnesi Tvö ungmenni létust í bílslysi slys skammt frá gatnamótum síðdegis í gær þegar þau voru á leið Grænássvegar og Reykjanesbrautar til Stykkishólms á Snæfellsnesi. í Keflavík í gærmorgun. Þar lentu Bifreið þeirra rann út af veginum fjórar bifreiðir í harkalegum við brúna yfir Hraunsfjörð og lenti árekstri. Þrettán voru í bílunum og í sjónum. Talið er að ökumaður voru sex fluttir á sjúkrahús. Tveir hafi misst stjórn á bílnum í hálk- voru fluttir á spítala í Keflavík en unni. aðrir á slysadeild Borgarspítalans, Ekki er unnt að birta nöfn hinna með mjög alvarlega áverka. látnu að svo stöddu. Tíldrög slyssins eru óljós og ekki Sömuleiðis varð mjög alvarlegt unnt að skýra frekar frá. þj Fundir stjórnarandstöðunnar með borgarbúum 3) Mánudaginn 25. janúar kl. 20.30 á Hótel Borg fyrir íbúa Þingholta, Miðbæjar og Vest- urbæjar sunnan og norðan Hring- brautar. Reykvíkingar eru hvattir til að mæta og koma skoðunum sínum á framfæri Borgarfulltrúar stjórnar- andstöðunnar taka við ábendingum og veita upplýsingar ídagkl. 13:00 íÁr- seli fyrir íbúa Sel- áss, Árbæjar og Ártúnsholts. ?) I dag kl. 16:00 í Glæsibæ (kaffiter- íu) fyrir íbúa Austurbæjar innan Sætúns, Elliða- vogs, Suðurlands- brautar/Lauga- vegs.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.