Tíminn - 05.02.1988, Síða 7

Tíminn - 05.02.1988, Síða 7
Föstudagur 5. febrúar 1988 Tíminn 7 Veggjakrotið við Safamýri: Byggingarleyfi Iðnaðaibankans fellt úr gildi í>ó borgaryfirvöld hafi á sínum tíma ekki tekið mark á veggjakroti íbúa við Safamýri þar sem mótmælt var fyrirhugaðri byggingu Iðnaðar- bankans á lóðinni á gatnamótum Miklubrautar, Háaleitisbrautar og Safamýrar, þá neyddist byggingar- nefnd Reykjavíkurborgar til að afturkalla byggingarleyfi Iðnaðar- bankans á þessum stað í bili að minnsta kosti. Eins og sagt var frá í Tímanum á sínum tíma mótmæltu íbúar í Safa- mýri harðlega ákvörðun borgaryfir- valda um að Iðnaðarbankanum yrði leyft að byggja á fyrrnefndri lóð. Töldu íbúarnir að ef þjónustustofn- un yrði byggð á þessum stað myndi umferð um Safamýri aukast til mik- illa muna, en við Safamýri standa tvö barnaheimili, grunnskóli og íþróttasvæði sem fjöldi barna sækir til æfinga og leikja. Borgaryfirvöld sinntu í engu kvörtunum íbúanna og úthlutuðu Iðnaðarbankanum lóð- ina. í kjölfar þessa kærðu íbúarnir ákvörðun borgaryfirvalda til félags- málaráðuneytisins. í kjölfar þeirrar kæru benti félagsmálaráðuneytið byggingarnefnd Reykj avíkurborgar á að samkvæmt aðalskipulagi væri svæði það sem úthlutað hafði verið undir Iðnaðarbankann ætlað undir íbúðabyggð. Því væri byggingar- nefnd óheimilt að úthluta lóðinni undir þjónustufyrirtæki. Vegna þessa neyddist byggingarnefnd til að afturkalla byggingarleyfi Iðnaðar- bankans og hefur félagsmálaráðu- neytið nú sent íbúunum í Safamýri bréf um að ekki verði byggt á þessu svæði í bili. Hilmar Guðlaugsson formaður byggingarnefndar Rey kj avíkurborg- ar tjáði Tímanum að byggingar- nefndin hefði afturkallað byggingar- Ieyfið fyrst og fremst vegna þess að farist hafi fyrir að sækja um breytta landnotkun á þessu svæði. Því hefði nefndin talið rétt að nema bygg- ingarleyfið úr gildi þar til landnotk- unarbreyting hafi gengið í gegn. Eftir það væri ekkert því til fyrir- stöðu að veita bankanum leyfið. Til þess að svo geti orðið þarf borgarráð að sækja um breytta svæðanýtingu á þessu svæði til Skipulagsstjórnar ríkisins. Þegar Tíminn hafði samband við Stefán Thors skipulagsstjóra ríkisins í gær hafði umsókn um breytta landnýtingu á þessu svæði ekki borist skipulagsstjórn. Stefán sagðist ekk- ert geta sagt til um það hvort skipu- lagsstjórn samþykkti breytta land- nýtingu á þessu svæði ef hún bærist. Skipulagsstjórn þurfi að kynna sér rök og afstöðu allra hagsmunaaðila í þessu máli og meta gildi þeirra áður en afstaða yrði tekin um breytta landnotkun. En fyrst yrði umsókn um breytta landnýtingu að berast. Eins og málið stendur í dag verður ekki byggt á þessu svæði í bili, svo íbúar í Safamýri geta andað léttar, í það minnsta þar til borgarráð hefur sent inn umsókn um breytta landnýt- ingu til Skipulagsstjórnar ríkisins. -HM Kortsnoj þræddi einstigi hengiflugsins og hélt naumlega jafntefli: Jóhann tef Idi af fullum styrk 33.Hg5t-Kh8 34.Hf6-H8b7 Fyrsta skákin í framhaldseinvígi þeirra Viktors Kortsnojs og Jó- hanns Hjartarsonar var tefld á miðvikudagskvöld. Eftir mikið taugastríð undanfarna daga féllst Gligoric yfirdómari á nær allar kröfur íslendinganna. Kortsnoj varð mjög reiður yfir þessu, sér- staklega vegna þess að nú tefldu þeir á öðrum stað á sviðinu en til þessa. Loftið var því rafmagnað er skákin hófst. Fyrst í stað þá „þrammaði" Kortsnoj um þegar Jóhann var að hugsa, en er líða tók á skákina veitti Kortsnoj ekki af öllum þeim tíma sem hann hafði svo hann sat þá sem fastast. Þegar Kortsnoj var að hugsa um sína leiki settist Jóhann út í horn með kaffibolla og einbeitti sér að skján- um þar sem stöðumyndin kemur fram hverju sinni. Jóhann náði snemma þægilegu tafli og þeir kappar eyddu miklum tíma í byrjunina. Svo kom að því að Jóhann virtist vera að vinna, en þá fann Kortsnoj kynngimagnaða vörn eftir langa umhugsun. Fórn- aði tveimur peðum, vann svo ann- að aftur og þá var komin upp staða sem var fræðilegt jafntefli. Enn er því staðan jöfn. Vissu- lega var gott að sjá Jóhann tefla af fullum styrk aftur eftir hræðilega skák um daginn. Virðist Jóhann hafa náð sér á strik á ný. Það var þó slæmt að vinna ekki þessa skák eftir að hafa náð svo góðri stöðu sem raun bar vitni og einnig var það slæmt að Kortsnoj skyldi tefla vörnina svona vel. Ég held að þetta hafi verið besta skák Kortsnojs til þessa í einvíginu. Síðasta skákin er á föstudag og þá stýrir Jöhann svörtu mönnunum og þá er að duga eða drepast. Hvítt: Jóhann Hjartarson Svart: Viktor Kortsnoj Móttekið drottningarfaragð 1. d4 Jóhann kemur í veg fyrir að Kortsnoj geti beitt caro-kann vöm með 1. -d5 2.c4-dxc4 eins og kom í þriðju skákinni. -d5 2. c4-dxc4 Þetta er ekki algengt. Oftast leikið 2. -c6. Kannske vildi Kort- snoj eyðileggja undirbúning Jóhanns. 3. Rf3-Rf6 4. e3-c5 Það þýðir lítið fyrir svartan að vakta peðið á c4 t.d. með 4. -b5 vegna 5. a4-c6 6.axb5-cxb5 7. b3- sxb3 8.Bxb5t-Bd7 9.Dxb3 Með yfirburðastöðu á hvítt 5. Bxc4-e6 6.0-0-a6 7.Bd3- Kannske ný tilraun í stöðunni. Oftast leikið 7. a4 til að koma í veg fyrir 7. -b5. 7. -cxd4 8. exd4-Be7 9. Rc3-0-0 10. Bg5-b5I? Hvass leikur en til þess gerður að geta komið biskupnum út á b7 og riddara á d7. Jóhann nýtir sér nú þennan leik í framhaldinu og veikir stöðu Kortsnoj. 11. a4-bxa4 12. Rxa4-Rbd7 Til að koma í veg fyrir að riddari hvíts komist á c5 reitinn. 13. De2-Bb7 14.Hfdl-a5 Kortsnoj varð að leika þessu til að geta komið hróknum frá a8 til c8. Jóhann hefur stillt liði sínu vel upp. Hrókurinn á dl hefur svörtu drottninguna í baksýn eins og kem- ur í ljós síðar. 15. Re5-Hc8 16.De3- Þetta er mjög skemmtilegur leik- ur. Helsta hótun hvíts er að leika drottningunni á h3 með máthótun á h7. Til að koma í veg fyrir það verður Kortsnoj að veikja stöðu sína fyrir framan kónginn og það skapar ný færi fyrir Jóhann. Tím- inn var einnig farinn að segja til sín. Kortsnoj átti nú eftir45 mínút- ur á 24 leiki og Jóhann tæpa klukkustund. Kortsnoj hugsaði nú lengi og tók svo mikla áhættu að því er virtist. 16. -RxReS 17. HxRe5-RH5 Hítur hótaði auk þess að drepa riddarann 18. Bxh7t og drottningin af. 18.De4-g6 Eina leiðin til að forðast mát á h7. Nú sjáum við að riddari svarts á d5 er leppur fyrir óvaldaða bisk- upinn á b7 og má því ekki færa sig. Jóhann hefur teflt mjög markvisst og er með mjög gott tafl núna. l B ■i # iii I ■i i ii 1111. illllllllllll i II! m 31 H 111 IIIIP illlllllll iiiiii Aii IB IH A IBI li fll ts 19. Bh6-He8 20.Bb5-Bc6 21. BxBc6-HxBc6 22. Rc3 Nú virðist hvítur vera að vinna peð því ef svartur reynir að valda riddarann á d5 með t.d 23. Hc5, þá kemur 24. Be3 og hrókurinn hrökklast burt. Kortsnoj lagðist hér í þunga þanka og fann mjög sterka vörn sem byggir í raun á stöðu biskups hvíts á h6. 22. -Dc8! Með þessum Ieik valdar svartur hrókinn, losar sig úr leppuninni og hótar að drepa á c3. Ekki mátti drepa 22. -RxRc3 23. HxDd8- Rxde4. 24. Hxhe8t-Bf8 Ólafur Helai Árnason SKÁKSKÝRANDI 25.HxBf8tmát. Nú átti Kortsnoj aðeins 12 mínútur á 18 leiki og e.t.v hefði Jóhann átt að reyna að negla gamla manninn f tímahrak- inu mað því að skipta ekki upp. Þó er sú leið sem Jóhann velur mjög álitleg. 23. RxRd5-exRd5 24. Dxd5-g5! Á þessum leikk byggir Kortsnoj. Hann býst til að tefla endatafl tveimur peðum undir. 25. e6 EF 25. Bxg5-BxBg5 og 26.e6-f6, 77. e7t fráskák Kg7. 28. Dd8 gengur ekki vegna 28. -Hc7. 25. -Dxe6 26.Bxg5-DxDd5 27. HxDd5-BxBg5 28. HxBgSt- Kf8 29. Hgxa5 Má auðvitað ekki drepa með hinum hróknum vegna mátsins í borðinu. Nú er Jóhann tveimur peðum yfir, en staðan virðist samt jafntefli. 29. -Hb6 Þetta þýðir ekki að valda með 30. Ha5a2því31HxHb2-Heltmát. Aðeins er því hægt að valda peðið með 30.Ha5a2-Heb8 31. Hbl. Því virðist Jóhann halda peðinu en hrókar hans gera ekkert annað. Því gefur Jóhann peðið og reynir að klekkja á gamla manninum í tímahrakinu. 30.Hh5-Kg7 31.g3-Hxb2 32.Ha6- Heb8! 35. Hc6-Hb8 Hótað máti! 36. Hf5-H8b7 37.h4 Hér vildu skákskýrendur meina að Jóhann hefði getað leikið Kg2 37. -Kg7 38. h5-h6 Má ekki leyfa hvítum að leika h6 vegna hættu á máti uppi í borði. 39. H5f6-H2b5 1 11111 í 111 i B 11 III2 i ■II 11111 1 r 1111 * 111 A IBI llllllllll IBI H Nú var 40. g4 e.t.v. síðasta tilraun hvíts til að sigra, því eftir að h-peð hans fer þá getur hann ekki lengur skapað sér fjarlægan frels- ingja og þá eru möguleikar á sigri gegn nákvæmri vöm engir. 40.Hxh6-Hg5 41.Kg2-Hbb5 42.Kh3-Hxh5t 43 HxHh5-HxHh5t 44.Kg4-Ha5 45.f4 Þessi staða er þekkt úr fræðibók- um sem jafntefli, en það ersjálfsagt hjá Jóhanni að „pfna“ Kortsnoj áfram. Slíka stöðu tefldi Kortsnoj áfram gegn Karpov. 45. -Hb5 46. Kh4-Hb7 47. g4-f6 48.Kh5-Ha7 49.Hb6-Hc7 50.Ha6- Hb7 51.f5-Hc7 52.g5-fxg5 53.Kxg5-Hb7 54.Hg6t-Kf8 55.Hf6t Jafntefli. Lesendur geta sannfært sig um að þetta er rakið jafntefli. Næsta skák er tefld í kvöld. Ef henni lýkur verður „bráðabani“ tefldur á laugardag. 1

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.