Tíminn - 16.06.1988, Síða 2
2- Tíminn
Fimmtudagur -16. júrní 1988
Páfi kemur
í júní 1989
Jóhannes Páll II páfi kemur í
heimsókn til íslands dagana 3. og 4.
júní 1989 á för sinni um Norðurlönd.
Jóhannes Páll II mun í ferð sinni
hingað til lands hitta söfnuð kaþ-
ólskra, auk þess sem hann mun eiga
viðræður við fulltrúa Þjóðkirkjunnar
og annarra kristinna safnaða og
embættismenn stjórnvalda. Fyrir-
hugaðar eru tvær útisamkomur á
meðan páfi dvelur hór, önnur á
Þingvöllum og hin í Reykjavík.
Þetta er í fyrsta sinn í sögu
kristinnar kirkju að páfi heimsækir
Norðurlönd. Dagskrá heimsóknar-
innar hefur verið undirbúin í Páfa-
garði í samráði við kaþólska biskupa
Norðurlanda og stjórnvöld ríkjanna
sem páfi heimsækir. Samkvæmt
dagskránni byrjar páfi ferðina í Nor-
egi þann 1. júní, heldur síðan til
íslands þann þriðja, en fer héðan til
Finnlands þann fjórða. Sjötta júní
kemur páfi til Danmerkur, en heldur
þaðan 8. júní til Svíþjóðar sem er
síðasti viðkomustaður hans í ferð-
inni sem lýkur að kvöldi 9. júní.
Einkunnarorð páfaheimsóknar-
innar eru úr Markúsarguðspjalli
16,15: „Farið út um allan heim og
predikið fagnaðarboðskapinn öllu
mannkyni." Páfi er í þessari heim-
sókn sinni fyrst og fremst að vitja
kaþólskra safnaða sem eru minni-
hlutahópar á norðurslóðum.
-ABÓ
Viöræöur um nýtt álver í Straumsvík sem yröi komið í gagniö 1992:
Af kastageta eykst
um 90-110 þús. t
„Þeir sýna mikinn áhuga á sam-
starfi við okkur íslendinga um að
kanna hagkvæmni þess að stækka,
eða hyggja nýtt álver í Straumsvík
með afkastagetu upp á 90 til 110
þúsund tonn,“ sagði Friðrik Sophus-
son iðnaðarráðherra í samtali við
Tímann, en fulltrúar ríkisstjórnar-
innar áttu viðræður við fulltrúa
fjögurra fyrirtækja um stækkun ál-
versins.
Fundurinn fór fram í Lundúnum
á þriðjudag með fulltrúum Alu-
suisse, Alumined Beheer í Amster-
dam, Austria Metall í Austurríki og
Gránges í Stokkhólmi.
Friðrik sagði að annar fundur
hefði verið boðaður 4. júlí nk. í
Reykjavík og vonast væri til að þá
yrði hægt að ná samkomulagi um
samstarfið og ganga frá stofnun >
sameiginlegrar verkefnisstjórnar til
að gera hagkvæmnisathugun um
nýja álverið. Ef það tekst, sagði
iðnaðarráðherra, þá er áætlað að
það taki um það bil ár að ganga úr
skugga um hvort þetta sé hagkvæmt.
Friðrik Sophusson, iðnaðarráðherra.
Ef svo reynist, og ákveðið verður að
fara út í þessar framkvæmdir þá ætti
að vera hægt að byrja byggingafram-
kvæmdir, jafnvel í ársbyrjun 1990 og
framleiðslu 1992.
Á þessum tíma kemst Blöndu-
virkjun í gagnið, en auk þess eru
fyrir hendi útreiknaðir virkjunar-
kostir t.d. á Pjórsársvæðinu sem eru
tiltölulega ódýrir og myndu henta
vel, en aukning á aflþörf við stækkun
sem þessa er áætluð um 150 MW,
sem þýðir að orkuþörfin verður um
1300 til 1400 gw stundir á ári.
Sagði iðnaðarráðherra að einnig
hefði verið rætt um enn meiri stækk-
un álversins í framtíðinni, en þau
áform myndu ekki líta dagsins ljós
fyrr en 4 til 6 árum eftir fyrri
áfangann. Aðspurður um kostnað-
inn, sagði Friðrik að ekki væru til
neinar haldbærar tölur, en fyrir
nokkrum árum var gerð kostnaðar-
áætlun fyrir helmingi stærra álver en
nú er á umræðustigi og nam sá
kostnaður um 20 milljörðum króna,
þannig að ætla mætti að kostnaður-
inn yrði, gróflega áætlað um 10
milljarðar og kostnaður við virkjan-
aframkvæmdir annað eins. -ABÓ
Plöntuhlífuuii er komið varlega fyrir umhverfts
plöntuna og hún fest. Annaðhvort með því að
þrýsta henni vel niður í jarðveginn og/eða fergja
hana með grjóti eða jarðvegi.
Einnig rná
haria hana
niður. Það er
mikilvægt að
vindur nái
ekki að feykja
henni í burtu
cða að ljós
komist undir
hana.
Gamall pappír
verndar trén
f vor hóf Landvernd sölu á tveimur
vörutegundum úr endurunnum
pappír, en það eru plöntuhlífar til
verndar nýgróðursettum trjám og
runnum og pappír til ljósritunar og
prentunar. Plöntuhlífar eru
pappaplötur sem lagðar eru á jörð-
ina umhverfis trjáplöntur þegar
þær eru gróðursettar. Hlífarnar
veita vörn gegn grasi og illgresi.
Plöntuhlífarnar eru seldar á ýms-
um plöntusölustöðum í Reykjavík
og úti á landi. Fyrirtækið Silfurtún
framleiðir plöntuhlífarnar.
Þá er Landvernd að hefja innf-
lutning og sölu á endurunnum
pappír í ýmsum stærðum, gerðum
og litum til ljósritunar og prentun-
ar. Við endurvinnslu á pappír er
notað miklu minna af efnum sem
eru skaðleg umhverfinu en við
vanalega framleiðslu á pappír úr
skógartrjám. Auk þess sem við
notkun á einu tonni af endurunn-
um pappír sparast um það bil fimm
og hálft skógartré. IDS
Forsætisnefnd Norðurlandaráðs:
Aukaþing um mengun
Forsætisnefnd Norðurlandaráðs undir forystu Jan P. Syse forseta,
boðaði til aukafundar með samstarfsráðherrum Norðurlanda og ráðherr-
um, sem fara með mengunarmál í hafinu, í Kaupmannahöfn 13. júní, segir
í fréttatilkynningu frá Samgönguráðuneytinu.
Tilefni fundarins voru aðkallandi aðgerðir vegna mengunar í hafinu, senv
orsakað hefur mikinn vöxt þörunga við strendur Noregs, Svíþjóðar og
Danmerkur. Einnig skyldi rætt hvernig bregðast ætti við afleiðingum
þessa.
Af háifu íslendinga voru á fund-
inum Páll Pétursson, alþingismað-
ur frá forsætisnefnd, Matthías Á.
Mathiesen samstarfsráðherra, sem
fer með málefni mengunarvarna í
hafinu,
Snjólaug Ólafsdóttir ritari Norður-
landaráðs og Magnús Jóhannesson
siglingamálastjóri en siglingamála-
stofnun annast framkvæmd laga og
reglna um varnir gegn mengun
sjávar. Samkvæmt tillögu forsætis-
nefndar varð niðurstaða fundarins
í fyrsta iagi að boðað skuli til
aukaþings Norðurlandaráðs til
sérstakrar umfjöllunar um um-
hverfismál. Og í öðru lagi að lögð
verði áhersla á að fyrir 15. sept-
ember n.k. liggi fyrir af hálfu
ráðherranefndarinnar samstarfs-
áætlun um umhverfismál og sér-
stök áætlun um varnir gegn meng-
un í hafinu.
ísland hefur tekið mikinn þátt í
samstarfi um varnir gegn mengun
sjávar. Siglingamálastofnun hefur
haft náið samstarf við Hafrann-
sóknarstofnun, Hollustuvernd
ríkisins og Geislavarnir ríkisins.
Þá hefur fulltrúi landbúnaðarráð-
uneytisins, dýralæknir fiskisjúk-
dóma, komið til þessa samstarfs.
Forsætisnefndin og ráðherrarnir
lögðu áherslu á alþjóðlega kynn-
ingu á ástandi hafsins sem þörunga-
vöxturinn endurspcglar. Matthías
Á. Mathiesen ráðherra, lagði til að
fulltrúar Norðurlanda á 10. árs-
fundi Parísarsamningsins um vam-
ir gegn mengun sjávar frá lands-
töðvum, sem nú stendur yfir í
Lissabon, veki athygii á því vanda-
máli sem skapast hefur og reyni að
ná samstöðu um alþjóðlegar að-
gerðir til takmörkunar á losun
hættulegra efna í hafið með sér-
stöku tilliti til lífríkis þess.
Var einróma fallist á tillögu ráð-
herrans, en af hálfu íslands taka
þátt í fundinum Magnús Jóhannes-
son, siglingamálastjóri og Gunnar
Ágústsson deildarstjóri mengunar-
deildar. Þá kom og fram hugmynd
um að stofnaður yrði mengunar-
varnasjóður fyrir Evrópuríkin.
Rætt var og um aukið eftirlit með
þörungavexti í sjó með hliðstæðum
hætti og eftirlit með olíumengun
sjávar á grundvelli samningsins frá
1970, sem kenndur er við Kaúþ-
mannahöfn, en ísland hefur átt þar
áheyrnarfulltrúa.
Ákveðið hefur verið að Norður-
löndin hafi náið samstarf um upp-
lýsingamiðlun um mengunarmál
sjávar og sérstök nefnd með tveim-
ur fulltrúum frá hverju landi skipuð
til starfa þar að lútandi. Af hálfu
Islands eru í nefndinni Ragnhildur
Hjaltadóttir, deildarstjóri í sam-
gönguráðuneytinu og Gunnar
Ágústsson deildarstjóri frá Sigl-
ingamálastofnun.
Að dómi sérfræðinga er það
ljóst að aukinn styrk næringasalts í
sjó megi rckja m.a. til aukinnar
áburðanotkunar í landbúnaði, fóð-
urgjafa tii að örva eggjahvíturíka
framleiðslu, loftmengunar frá bíl-
um og skolps frá almannaveitum.
Mikil úrkoma hefur síðan valdið
því að óvenju mikið af næringar-
söltum hafa skolast úr jarðvegi til
sjávar. IDS
Listahátíð
í kvöld verða kammertónleikar í
íslensku óperunni, Black Ballet Jazz
í Þjóðleikhúsinu, myndlistarfyrir-
lestur í Listasafninu og popptónleik-
ar í Laugardalshöll.
Á kammertónleikunum í fslensku
óperunni verða ungir íslenskir tón-
listarmenn alls ráðandi. Tónleikarn-
ir hefjast klukkan 20.30. í Listasafni
íslands flytur Folke Lalander fyrir-
lestur um konkretlist í Svíþjóð og
hefst hann kl. 20.30.
Black Ballet Jazz danshópurinn
sýnir í Þjóðleikhúsinu kl. 20.0Ö og
klukkan 21.00 hefjast popptónleikar
í Laugardalshöll. IDS
Leiðrétting
1 gær birtist í blaðinu umsögn um
tónleika Norræna kvartettsins á
Listahátíð. Var þar rangt farið með
höfund verksins Silkitromman, sem
sýnt var í Þjóðleikhúsinu. Hið rétta
er að Atli Heimir Sveinsson er
höfundur tónlistar og Örnólfur
Árnason samdi textann. Óperan er
byggð á japönsku leikriti. Heininen
hefur reyndar líka gert óperu með
nafninu Silkitromman, en það er
ekki sú sem hér var á fjölunum.
-SH