Tíminn - 16.06.1988, Síða 4
4 Tíminn
Bóklegt atvinnuflugnám
Flugmálastjórn mun í samstarfi við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja standa fyrir bóklegu atvinnuflugnámi
á næsta skólaári, ef næg þátttaka verður. Námið
skiptist í tvær annir, haust- og vorönn.
Inntökuskilyrði eru einkaflugmannsskírteini og
stúdentspróf með a.m.k. þremur einingum í eðlis-
fræði.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Flugmála-
stjórnar í flugturninum á Reykjavíkurflugvelli. Um-
sóknir þurfa að hafa borist þangað fyrir 15. júlí n.k.
Umsóknum skal fylgja:
Staðfest Ijósrit af stúdentsprófi
Ljósrit af einkaflugmannsskírteini
1. flokks læknisvottorð frátrúnaðarlækni Flug-
málastjórnar.
Flugmálastjórn.
Skattskrá Reykjavíkur
árið 1987
Skatta-, útsvars-, launaskatts- og söluskattsskrár
vegna álagðra gjalda árið 1987, liggja frammi á
Skattstofu Reykjavíkur dagana 16. til 29. júní 1988
frá kl. 9 til kl. 16 alla virka daga nema laugardaga.
Athygli er vakin á því að enginn kæruréttur
myndast þótt álögð gjöld séu birt með þessum
hætti.
Reykjavík 15. júní 1988
Skattstjórinn í Reykjavík
Gestur Steinþórsson.
!■! Útboð
'I'
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
garðyrkjudeildar borgarverkfræðings, óskar eftir
tilboðum í frágang gæsluvallar við Hringbraut.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000.- skilatrygg-
ingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn
30. júní kl. 14.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Sveitarstjóri
Breiðdalshreppur auglýsir hér með eftir umsókn-
um um starf sveitarstjóra í Breiðdalshreppi. Um-
sóknir sendist til Lárusar Sigurðssonar oddvita
fyrir 30. júní, sem jafnframt gefur nánari upplýsing-
ar í síma 97-56660 og 97-56791.
Hreppsnefnd Breiðdalshrepps
Frá Hafnarfjarðarkirkju
Aðalsafnaðarfundur verður haldinn í Veitingahús-
inu Gaflinum eftir messu kl. 11.00 sunnudaginn
19. júní.
Safnaðarstjórnin
Til sölu traktorsgrafa
Ford 4550 árg. 1975. Tilvalið fyrir bændur. Upplýs-
ingar á kvöldin í síma 97-31216.
Fimmtudagur 16. júní 1988
Ferskfisksölur erlendis:
GÓÐ SALA HJÁ
SÓLB0RGINNI
Sólborg SU var eina skipið sem
seldi afla sinn í Bretlandi í síðustu
viku. Aflinn, samtals 56,5 tonn seld-
ust á 3,6 milljónir króna, eða á 63,79
krónur hvert kíló.
Gott verð fékkst fyrir aflann, sem
mestmegnis var ýsa og blandaður
afli. Þannig fengust 88,84 krónur
fyrir þorskkílóið, en 4,1 tonn var af
honum. 22,5 tonn voru af ýsu sem
fór á 96,13 krónur kílóið. 6,7 tonn
voru af ufsa sem seldist á 28,65
krónur. 6,5 tonn voru af kola sem
fór á rúmar 40 krónur og loks voru
16,6 tonn af blönduðum afla sem fór
á 37,51 krónu.
Þau voru hins vegar tvö skipin
sem seldu í Þýskalandi, bæði í Brem-
erhaven. Þorlákur ÁR seldi 128,6
tonn fyrir 7,8 milljónir, eða 60,70
krónur hvert kíló og Ljósafell SU
seldi 154,6 tonn á 10,1 milljón, eða
65,74 krónur hvert kíló. Heildarsala
skipanna var því 283,1 tonn og
fengust rétt tæpar 18 milljónir fyrir.
Aflinn var mestmegnis karfi,
þorskur og grálúða og fékkst gott
verð fyrir karfann.
Annars seldist kílóið af þorski á
53,78 krónur, en 66 tonn voru af
honum. Af ýsu voru 14,2 tonn og fór
kílóið af henni á 64,19 krónur. 36,4
tonn voru af ufsa sem seldist á 53,75
krónur. 117,1 tonn var af karfa sem
seldist á 76,53 krónur. 43,5 tonn
voru af grálúðu sem seldist á 47,89
krónur og loks voru tæp 6 tonn af
blönduðum afla sem fór á 83,77
krónur kílóið.
Loks voru 1.133,4 tonn af fiski
seld í gámum til Bretlands í síðustu
viku fyrir 73,86 milljónir. Meðal-
verðið var því 65,17 krónur.
Rétt tæp 470 tonn voru af þorski
sem fór á 64,25 krónur. 278,8 tonn
voru af ýsu sem fór á 81,43 krónur.
23,5 tonn voru af ufsa sem fór á
23,23 krónur. Rúm 18 tonn voru af
karfa sem fór á 34,37 krónur. 37,6
tonn voru af grálúðu sem fór á 42,03
krónur og 117 tonn voru af blönduð-
um afla sem fór á 68,38 krónur hvert
kíló.
-SÓL
Bíldudalur:
Sígandi lukka best
„Það hafa verið mjög þægilegir
vetur hjá okkur núna nokkur ár í
röð, snjóalög lítil og samgöngur
góðar,“ sagði Flosi Magnússon sveit-
arstjóri á Bíldudal í samtali við
Tímann. Sagði Flosi að rækjuvertíð-
in hefði gengið mjög vel og mikil
rækja væri í firðinum, en það er
aðalviðfangsefni smærri báta hér á
Bíldudal.
„Héðan er töluvert langt á mið
fyrir báta og við staðsett þannig að
bátarnir eru tvo til þrjá tíma á miðin,
sem er of langt til þess að það sé gott
að róa hér á trillum eða minni
bátum, enda lítið um það. Bátarnir
eru yfirleitt um 10 til 20 tonn,“ sagði
Flosi.
Bíldælingar fengu í mars nýjan
togara, Þröst, og er hann gerður út
á rækju sem stendur. Þetta er annar
togari í flota Bíldælinga, en togarinn
sem þeir eiga fyrir heitir Sölvi
Bjarnason. Það gekk heldur erfið-
lega hjá þeim til að byrja með, sagði
Flosi en þetta er allt á uppleið. „Hér
er mikið meira en næg atvinna. Það
sem okkur vantar frekar er hús-
næði,“ sagði FIosi, en í fyrra voru
teknar í notkun fjórar nýjar íbúðir á
Bíldudal og er eitt hús til viðbótar
óklárað. Okkur er að fjölga hægt og
þétt, sagði Flosi og það myndu
eflaust fleiri koma hingað ef það
væri húsnæði fyrir hendi, enda höf-
um við næga atvinnu og ágætis
samfélag.
Flosi sagði að helstu framkvæmdir
í sumar tengdust framkvæmdum síð-
astliðins árs, þegar allar götur bæjar-
ins voru klæddar með varnalegu
slitlagi. Nú ætlum við að ganga frá
kantsteinum og gangstéttum að stór-
um hluta og sagði hann að stefnt
væri að því að Ijúka því á næstu
þrem árum að þessu meðtöldu.
Einnig eru fyrirhugaðar dýpkunar-
framkvæmdir í höfninni og unnið er
að gerð glæsilegs íþróttasvæðis.
Aðspurður hvort fyrirhugað væri
að byggja íbúðahús á vegum bæjar-
félagsins á næstu árum, svaraði Flosi
því til að ekki hefði verið mörkuð
nein stefna í þá átt. Hann sagði að á
svona litlum stöðum væru samfélög-
in mjög viðkvæm og menn almennt
sammála því að sfgandi lukka sé
best, að íbúafjölgunin verði sem
jöfnust. - ABÓ
Framkvæmdastjóri
Búvörudeildar
Árni S. Jóhannsson hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri Búvöru-
deildar Sambandsins. Tekur hann
við af Magnúsi G. Friðgeirssyni sem
ráðinn hefur verið framkvæmda-
stjóri Iceland Seafood Corporation í
Bandaríkjunum.
Árni S. Jóhannsson er fæddur árið
1939 í Sólheimum í Skagafirði. Hann
lauk prófi frá Samvinnuskólanum
1961, var gjaldkeri og fulltrúi hjá Kf.
Húnvetninga á Blönduósi næstu sex
árin en var sfðan um eins árs bil
kaupfélagsstjóri Kf. Steingríms-
fjarðar á Hólmavík. Árið 1968 tók
hann við starfi kaupfélagsstjóra hjá
Kaupfélagi Húnvetninga á Blöndu-
ósi og varð jafnframt framkvæmda-
stjóri Sölufélags Austur-Húnvetn-
inga, og þeim störfum hefur hann
gegnt samfellt síðan. Árni hefur
einnig gegnt ýmsum öðrum trúnað-
arstörfum fyrir samvinnuhreyfing-
una, og m.a. er hann núverandi
formaður Félags sláturleyfishafa
sem starfar við hlið Búvörudeildar.
Ámi er kvæntur Bryndísi R. Ár-
mannsdótturfrá Myrká í Hörgárdal.
-esig
Árni S. Jóhannsson frkvstj.
Foreldraráð Ölduselsskóla:
Stórlega misboðið
„Við erum vonsvikin yfir að ekki
hafi verið tekið tillit til óska foreldra
í þessu sambandi," sagði Ingibjörg
Sigurvinsdóttir sem sæti á í fulltrúa-
ráði foreldrafélags Ölduselsskóla, en
fulltrúaráðið sem skipað er 36 for-
eldrum, einum fyrir hvern bekk,
kom saman til fundar á mánudag,
þar sem mótmælt var þeirri ákvörð-
un menntamálaráðherra að ráða
Sjöfn Sigurbjörnsdóttur skólastjóra
við Ölduselsskóla.
f ályktuninni kemur fram að for-
eldrunum finnist sér stórlega mis-
boðið þegar eindreginn vilji þeirra
er virtur að vettugi, eins og kom
fram við undirskriftasöfnun til
stuðnings Daníel Gunnarssyni og
92,3% foreldra skrifuðu undir. Enn-
fremur kemur fram að foreldraráðið
leyfi sér að draga í efa að Fræðsluráð
Reykjavíkur hafi fjallað um um-
sóknimar á faglegan hátt og bendir
á að hluti af slíkri faglegri umfjöllun
hefði átt að vera að kanna aðstæður
í skólanum. Því þetta umhverfi sé
mjög flókið samspil kennara, nem-
enda og foreldra og ekki megi miklu
muna að það umhverfi raskist, segir
í ályktuninni.
Aðspurð hvort foreldrar hefðu
íhugað að taka börn sín úr skólanum
sagði Ingibjörg að upp hefðu komið
raddir um það en hins vegar væru
það hagsmunir barnanna og ekkert
annað sem réði því, og bætti því við
að þau tækju þau ekki úr skólanum
á meðan þeim liði vel. - ABÓ