Tíminn - 16.06.1988, Page 10
10 Tíminn
Fimmtudagur 16. júní 1988
Hver er Hafez Assad?
Oft heyrum við nefnt í fréttum nafn Sýrlandsforseta, Hafez
Assad. Þá er ýmist farið um hann fögrum orðum eða Ijótum, allt
eftir því hvaðan fréttimar koma. En það fer ekki milli mála að
hann er maður sem lætur til sín taka í hinum viðkvæmu
deilumálum fyrir botni Miðjarðarhafs og pólitískt langlífi hans
sýnir að hann hefur til að bera meira en meðalklókindi. Pólitísk
morð era nefnilega daglegt brauð á hans slóðum. En hver er þessi
maður? Nýlega var sagt frá honum í breska blaðinu The Sunday
Times og fylgir sú frásögn hér á eftir.
Þegar vamarmálaráðherra Sýr-
lands var spurður hvað hefði komíð
yngri bróður Assads forseta til að
þjóta fyrirvaralaust í sjálfvalda út-
legð eftir að hafa gert ótímabæra
tilraun til að koma sjálfum sér í
valdastöðu, stóð ekki á svörum hjá
vamarmálaráðherranum.
„Ef forsetinn skipar einhverjum
að yfirgefa Sýrland og sá neitar,
verður hann fljótlega höfðinu
styttri,“ svaraði Mustapha Tlas.
Þetta svar er staðfesting á því
algera valdi sem Hafez Assad Sýr-
landsforseti hefur í landi sínu.
Hann hefur fengið þá umsögn að
hann sé klókur og miskunnarlaus
stjórnmálamaður sem hafi gert
Sýrland álíka valdamikið og ísrael
á hinu órólega svæði fyrir Miðjarð-
arhafsbotni. Hann hefur m.a. tek-
ist á við hið ómögulega verkefni að
koma á röð og reglu í Líbanon.
Núna hefur hann sent sveitir sínar
inn í suðurhverfi Beirút þar sem
álitið er að sumir vestrænu gíslarnir
séu í haldi.
Samdóma álit
vina og fjandmanna:
Assad snjallasti
pólitíkusinn!
Assad hefur þegar átt lengri
lífdaga en nokkur annar sýrlenskur
leiðtogi á síðari árum og bæði vinir
hans og fjendur líta svo á að hann
sé snjallasti stjórnmálamaðurinn í
Mið-Austurlöndum.
Assad var rúmliggjandi eftir al-
varlegt hjartaáfall þegar yngri
bróðir hans, Rifat, ætlaði að steypa
honum af stóli 1983. Rifat og
félagar hans álitu að Assad væri að
missa völdin og veðjuðu á að
skammt væri í að aftur rynnu upp
sömu stjórnarbyltingadagarnir í
Sýrlandi og ríktu áður en hann
komst til valda. Rifat hafði látið
skriðdreka sína umkringja varn-
armálaráðuneytið í Damaskus og
hindrað hersveitir tryggar bróður
hans í að komast í miðborgina.
Á einhvern óútskýrðan hátt
tókst Hafez Assad að koma valda-
ræningjunum á óvart og afstýra
hættuástandi. En það sýnir best
hvílíks álits hann nýtur að íbúar
Damaskus trúa enn þeirri ótrúlegu
sögu að hann hefði risið af sjúkra-
beði og ekið sjálfur bifreið sinni á
móti skriðdrekum bróður síns.
Assad forseti vekur hrifningu
allra sem hitta hann. Hann er
greindur og varkár og framkoma
hans er stiliileg, jafnvel hátíðleg.
Richard Nixon lýsir honum þannig
að hann hafi „snert af snilligáfu"
og Henry Kissinger sagði hann
vera „áhugaverðasta manninn í
Mið-Austurlöndum“.
Hafez Assad fæddist 1930, einn
níu bama bændahjóna í Qardaha,
fjallaþorpi í grennd Latakia í norð-
vesturhluta Sýrlands. Hann breytti
ættarnafni sínu úr Wahsh, sem
þýðir villidýr á arabisku, í Assad,
sem þýðir ljón. Hann sótti skóla á
heimaslóðum sínum og gekk í
Ba‘ath flokkinn þegar hann var 16
ára.
Að loknu námi í herskóla var
hann sendur til Sovétríkjanna til
frekari þjálfunar, og þegar hann
sneri aftur var honum fengin stjóm
sýrlenskrar næturbardagasveitar í
Kaíró frá 1958-1961, þegar Sýrland
og Egyptaland mynduðu saman
skamma hríð Sameinaða Araba-
lýðveldið.
Eftir stjórnabyltingu í Sýrlandi
1966 undir forystu Salah Jadid,
aðalritara Ba'ath flokksins, var
Assad gerður vamarmálaráðherra
og yfirmaður flughersins. Af mik-
illi nákvæmni byggði hann upp
valdagrunn með stuðningsmönn-
um úr hernum.
Assad tók við
valdataumunum 1970
1970 skarst í odda. Jadid skipaði
sýrlenskum skriðdrekum að halda
inn í Jórdaníu til að aðstoða Palest-
ínumenn í baráttu gegn Hussein
konungi. Assad sagðist ekki taka
þátt í að grípa til vopna gegn öðru
Arabaríki og flugherinn fór hvergi.
Sýrlenski herinn sneri sneyptur og
sigraður heim, Jadid var niður-
lægður og Assad tók við valda-
taumunum í byltingu án blóðsút-
hellinga.
Pólitísk hernaðartækni Assads
beinist að þrem markmiðum, þ.e.
að gera Sýrland að meira stórveldi,
sameina Araba í eina þjóð og sýna
ósveigjanlega andstöðu við ísrael.
Fyrirmynd hans er Saladin, hin
mikla hetja múslíma sem sigraði
krossafarana í Jerúsalem 1187.
Málverk af þeirri orrustu hangir á
skrifstofu hans. Kissinger minnist
þess hvernig Assad vísaði til þess
meðan á samningaviðræðum þeirra
stóð eftir stríðið gegn fsrael 1973.
„Assad benti hvað eftir annað á að
fyrr eða síðar biðu ísraels sömu
örlög“.
Assad kom stjórn á óróleg
innanríkisstjómmál með því að
hafa algera stjóm á hernum og
öryggiskerfinu og með raunsærri
pólitískri tilfinningu. Hann jók
völd félaga sinna, Alawita, sem
ero af sama minnihlutatrúflokki og
hann, og setti þá til æðstu metorða.
Alawitarnir, sem eru 12% íbúa
landsins, rækja trúarbrögð sín í
leyni. Aðrir múslímar álíta þá
villutrúarmenn og þeir hafa orðið
að sæta illri meðferð af hendi
súnnftameirihlutans í Sýrlandi.
Þeir fylkja sér því fast um leiðtoga
sinn.
Þrátt fyrir mistök
á alþjóðavettvangi...
Á stundum hefur Assad gert
mistök á alþjóðavettvangi, en hon-
um hefur alltaf tekist að bjarga
málunum. Einna verst var hann
staddur þegar þjóðir heims voro í
uppnámi vegna svokallaðs Hind-
awi-máls í London fyrir tveim
árum. Sýrlandi var útskúfað eftir
að upp komst að sýrlenskur leyni-
þjónustumaður hafði reynt að nota
vinkonu sína, óvitandi, til að
sprengja í loft upp flugvél frá EIA1
og notið við það aðstoðar sýrlenska
ambassadorsins í London.
Bretland rauf þá stjórnmálasam-
band við Sýrland og Bandaríkin
kölluðu sendiherra sinn þar heim.
En þó að Assad viðurkenndi aldrei
opinberlega að Sýrland hefði átt
þarna hlut að máli, gerði hann þær
ráðstafanir sem Vesturlandabúar
kröfðust, hann lækkaði ambassa-
dorinn í tign, lokaði skrifstofum
Abu Nidal í Damaskus og aðstoð-
aði við að fá lausa nokkra vestrænu
gíslanna í Beirút. Nú er bandaríski
sendiherrann kominn aftur og enn
á ný ganga Vesturlönd á eftir
Assad með grasið í skónum.
Maðurinn Assad
er ráðgáta
Hann er dulur maður og er enn
ráðgáta jafnvel í augum þeirra sem
eiga nánast samstarf við hann.
Æðstu embættismenn hans sjá
hann sjaldan, hann talar oftast við
þá símleiðis. Hann er hávaxinn, en
eftir hjartaáfallið er hann álútur.
Veikindin neyddu hann til að stytta
vinnudaginn niður í 15 klst.
Assad gengur með ofsóknar-
kennd í garð samanþjappaðra
óvinahópa sem umkringja hann.
Hann stóð í þeirri trú að veikindi
hans gætu örvað þá sem vildu bola
honum frá völdum, svo að hann
gaf þá skipun að hreysti og lífsorka
skyldi koma fram í myndum af
honum sem setja svip sinn á götur
Damaskus.
Assad er fjölskyldumaður og
faðir einnar dóttur og fjögurra
sona. Hann lifir fábrotnu lífi,
dreypir á ávaxtasafa og kaffi en
sniðgengur algerlega áfengi og
tóbak. Eini munaðurinn sem hann
neitar sér ekki um er að aka um í
Cadillac bílum. Þó að ýmsir sam-
verkamenn hans hafi verið sakaðir
um spillingu og mútuþægni hefur
enginn bendlað hann sjálfan við
slíkt athæfi.
Stjóm hans einkennist af hörku
og markvissri þolinmæði og þessir
eiginleikar kunna að gera það að
verkum að hann sé eini forystu-
maðurinn sem eigi möguleika á að
greiða úr ringulreiðinni í Líbanon.
Það mátti sjá áhrif þessarar stríðs-
tækni hans þegar hann ögraði írön-
um í sl. mánuði og sendi sveitir
sínar til úthverfa í suðurhluta Beir-
út, skömmu eftir að íranar höfðu
lýst yfir að það myndu þeir ekki
líða, án þess að neyðast til að slíta
bandalagi sínu við stjóm ayatollans
Khomeinis.
Assad greip til aðgerða vegna
þess að hann lítur á Líbanon sem
hluta af stórveldinu Sýrlandi og
Hafez Assad Sýrlandsforseti.
hann álítur að velgengni hinriar
herskáu Hezbollah-hreyfingar,
sem nýtur stuðnings írana, geti
veitt írönum varanlega fótfestu í
Líbanon. Þegar þessar aðgerðir
voro hafnar hófst hann handa um
að reyna að fá úr haldi a.m.k.
einhverja gíslanna, þar sem hann
gerir sér ijóst að ef það tækist
myndi álit hans aukast að mun á
Vesturlöndum.
Aðgerðirnar í
sígildum Assad-stíl
Sjálfar aðgerðimar voro í sígild-
um Assad-stíl. Sveitir hans um-
kringdu úthverfin í suðri og tóku
sér biðstöðu. Iranar lögðu við
hlustir, að sumu leyti vegna þess að
í fyrra gerði Assad það öllum ljóst
hversu hrottalegur hann getur ver-
ið ef hann er reittur til reiði.
Bardagamenn Hezbollah-hreyf-
ingarinnar náðu á sitt vald sýr-
lenskri varðsveit, rakaði hár mann-
anna og skegg af helmingi höfuðs-
ins og neyddu þá til að skrfða eftir
jörðinni. Viðbrögð Assads létu
ekki á sér standa. Sýrlenskir her-
menn smöluðu saman 23 bardaga-
mönnum Hezbollah og skutu þá
aftan í hálsinn. Assad var of önnum
kafínn til að tala við sendimanninn
sem franar sendu til Damaskus til
að bera fram mótmæli.
Enn miskunnarlausari var Assad
þegar kæfð var uppreisn súnníta,
sem höfðu leitað hælis í borginni
Ham. Liðsveitir Assads, undir
stjóm Rifats bróður hans, tóku sér
einfaldlega stöðu utan borgar-
markanna og létu rigna sprengikúl-
umyfirborgina. Álitiðerað 15.000
til 20.000 manns, flestir óbreyttir
borgarar, hafí þar látið lífíð.
A komandi mánuðum kemur
Assad til með að þarfnast allrar
sinnar pólitísku leikni. Erfiðust
verður siglingin milli skers og báru
varðandi bandalagið við fran, en
þar er samkomulagið þegar þanið
til hins ýtrasta vegna ögrunarinnar
í Beirút. Það bandalag var reyndar
heldur undarlegt hvort sem var,
þar sem Sýrland er veraldlegt ríki
sem sækist eftir framförum og þar
býr Arabaþjóð. fran aftur á móti
lýtur klerkaveldi, þar ríkir íhalds-
semi og þjóðin er persnesk.
Assad gekk hins vegar til þessa
bandalags með eigin hagsmuni í
huga, stuðningur hans við fran
hefur dregið á langinn hið þreyt-
andi stríð við keppinaut hans í
frak, Saddam Hussein, sem er
foringi annars arms Ba‘ath
flokksins, flokks Assads í Sýrlandi,
og Assad hefur persónulega mikla
skömm á Saddam Hussein. fran
aðstoðar líka við að lina efnahags-
legar þrengingar Assads með því
að sjá Sýrlendingum fyrir regluleg-
um olíusendingum á niðursettu
verði eða jafnvel ókeypis.
Assad verður að taka til nánari
athugunar aðild sina að þessu
bandalagi til að komast að raun um
hvort það hefur verið of dýrkeypt.
En Assad, hinn fullkomni stjóm-
málamaður, slítur aldrei endanlega
bönd við óvini sína né tekur alger-
iega í faðminn vini sína. Það er
enginn vafi á því að hann á eftir að
komast af úr margri þolrauninni
framundan.
/