Tíminn - 16.06.1988, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 16. júní 1988
Tíminn 11
............. ipróttir Í!;IHI»I., .................................................................................. .......... Tiiinii. -................................ 'iniii,; '1:11111111:; '!MIII!I;;: ................................................................................................ ..........................................................................................................................................................11111
Evrópukeppnin í knattspyrnu:
Rússneski björninn
náði í annað stigið
- írar hafa forystuna í B-riöli eftir jafntefli við Sovétmenn
frar og Sovétmenn eiga góða
möguleika á að komast í undanúrslit
Evrópukeppninnar eftir að gera 1-1
jafntefli í B-ríðli í gærkvöldi. Leikur-
inn var opinn og skemmtilegur og
höfðu frar forystuna í leikhléi. Það
var Ronnie Whelan sem skoraði
fallegt mark fyrir íra skömmu fyrir
leikhlé en Sovétmenn jöfnuðu með
marki Oleg Protasov 15 mínútum
fyrir leikslok.
frar léku mjög vel og áttu hættu-
legustu tækifærin, einkum í síðari
hálfleik þegar Rinat Dassajev mark-
vörður Sovétmanna varð að fara
meiddur af leikvelli. Þá vantaði þó
að reka smiðshöggið á sóknirnar til
að leggja Sovétmenn að velli. Þeir
síðarnefndu léku greinilega undir
getu en gengu þó oft hart að írsku
vörninni með skyndisóknum.
írar hófu leikinn af krafti og strax
á 6. mínútu átti Kevin Sheedy
þrumuskot sem Dassajev þurfti að
leggja sig allan fram til að verja.
Sovétmenn létu ekki sitt eftir liggja
Úrslit í gær
B-riðUI:
HoUand-England...........................3*1 (1-0)
(Marco van Basten 44., 73., 76.)-(Bryan Robson 54.)
Írland-Sovétrikin........................1-1 (1-0)
(Ronnie Whelan 39.)-(01eg Protasov 75.)
Staðan i B-riðli:
írland ........................ 2 110 2-13
Sovótríkin .................... 2 110 2-1 3
Holland........................ 2 10 1 3-2 2
England....................'.... 2 0 0 2 1-4 0
með þá Igor Belanov og AÍexander
Zavarov sem bestu menn og úrslitin
sem komu báðum liðum ágætlega
verða að teljast sanngjörn. Um
15.000 írskir áhorfendur sem þóttu
hegða sér eindæma vel á vellinum
fögnuðu úrslitunum með miklum
söng en frum var ekki spáð miklum
frama fyrir mótið.
í fyrri leik dagsins lögðu Hollend-
ingar Englendinga 3-1. Marco van
Basten gerði þrennu fyrir Holland.
Englendingar voru mjög óheppnir í
fyrri hálfleik og áttu m.a. tvö stang-
arskot en þegar á leið þyngdist sókn
Hollendinga.
Lögreglan hafði mikinn viðbúnað
á áhorfendasvæðum þar sem óttast
var að enskir „húliganar" létu reiði
sína bitna á viðstöddum. Ekkert
gerðist á vellinum og lögreglan hafði
stjórn á málum í miðborg Dússeldorf
síðast þegar fréttist. - HÁ/Reuter
Ervin „Magic“ Johnson stórstjama Lakers átti 23 stig, fjögur fráköst, 6
stoðsendingar og í vandræðum með skapið. Hann sat á bekknum meðan
Pistons gerðu 13 stig gegn fjórum.
NBA-körfuboltinn:
Enn orðið jafnt
Detroit Pistons unnu Los Angeles
Lakers 111-86 í fjórða leik liðanna
um sigurinn í NBA-deildinni. Hvort
lið hefur nú unnið tvö leiki.
Detroit var 58-51 í leikhléi og með
9 stiga forskot þegar Magic fékk sína
fjórðu villu eftir miðjan þriðja
fjórðung. Hann var settur á bekkinn
en hitnaði fremur en hitt og sló vin
sinn Isiah Thomas þegar hann var
nýlega kominn inná og fór útaf með
6 viilur.
Stigin, Detroit: Mantley 27, V.
Johnson 16, Edwards 14, Limbeer
13, Thomas 10, Mahorn 8, Rodman
7, Dumars 6, Salley 4, Lewis 2,
Nevitt 2, Russell 2. LA Lakers: E.
Johnson 23, Scott 13, Jabbar 13,
Green 9, Worthy 7, Thompson 6,
Campbell 6, Matthews 4, Cooper 3,
Rambis 2. - HÁ/Reuter
Nlolar
■ V-WÓÐVERJAR ÞEIRBNU
SEM HAFA SIGRAÐ
TVISVAR
Vestur-Þjóðverjar eru eina liðið
sem tvisvar hafa orðið Evrópu-
meistarar í knattspyrnu. Þeir unnu
Belga 2-1 í úrslitaleik árið 1980
þegar keppnin var haldin á Ítalíu
og Sovétmenn 3-0 1972 þegar
keppt var í Belgíu. Þá léku V-Þjóð-
verjar til úrslita gegn Tékkum 1976
en töpuðu í vítaspyrnukeppni eftir
að leiknum lauk með 2-2 jafntefli.
Sovétmenn hafa einu sinni unnið
(1960) og tvisvar leikið til úrslita
(1972 og 1964), Spánverjar unnu
1964 og urðu í 2. sæti 1984, Tékkar
unnu 1976 og ítalir 1968. Júgóslav-
ar hafa tvisvar leikið til úrslita
(1960 og 1968) og Belgar einu sinni
(1980).
■ HEIMALIÐIN HAFA UNNID
ÞRISVAR
Gengi heimamanna í Evrópu-
keppninni hefur verið misjafnt og
vart hægt að merkja að heima-
völlurinn hafi haft mjög mikið að
segja. Þrisvar hafa þó heimamenn
staðið uppi sem sigurvegarar, í
Frakklandi 1984, á Ítalíu 1968 og á
Spáni 1964. Árið 1980 urðu ítalir í
4. sæti, Júgóslavar urðu í í fjórða
sæti af jafn mörgum liðum 1976,
Belgar urðu þriðju af fjórum 1972
Marco van Basten
og Frakkar ráku lest fjögurra 1960.
■ VAN BASTEN ER MARK-
SÆKINN
Marco van Basten tryggði Hol-
lendingum sigur á Englendingum
með þrennu ■ gær. Hann kom inná
sem varamaður í fyrsta leiknum
gegn Sovétmönnum en þakkaði
fyrir að fá að halda sæti sínu í gær
með því að gera þrjú mörk. Van
Basten sem er 23 ára gamaU
leikmaður AC MUano var marka-
hæsti knattspyrnumaður Evrópu
1986 með 37 mörk. Hann á að baki
17 landsleiki. Van Bastcn var
meiddur mestan hluta nýliðins
keppnistímabils en var með í lokin
og skoraði mikUvægt mark sem
hjálpaði til við að tryggja AC
MUano ítalska meistaratitilinn.
Van Basten leikur við hlið landa
síns Ruud GulUt í framlínu Milano-
liðsins.
■ MANOLO MED TROMM-
UNA ER Á AUGLÝSINGASAMN-
INGI
Manolo, Spánverjinn með trom-
muna sem oft má sjá á áhorfenda-
pöUunum á stórmótum knatt-
spyrnumanna lifir á því að vera
æstasti aðdáandi spænska liðsins.
Hann er með auglýsingu frá
Pat Bonner
spænsku íþróttablaði á trommunni
og á sendibUnum hans eru einnig
auglýsingar. Að auki rekur hann
bar í Valencia. Manolo sem er 39
ára hefur fylgt Real Madrid og
spænska landsliðinu á alla leiki í 16
■' FYRSTA MARKIÐ í 9
LBKJUM HJÁ BONNER
Pat Bonner markvörður írska
landsliðsins fékk á sig mark gegn
Sovétmönnum í gærkvöld en varði
annars mjög vel. Þetta er fyrsta
markið sem hann fær á sig í 9
landsleikjum í röð. írar hafa nú
leikið 12 landsleiki í röð án taps.
Pat Bonner spilar með Glasgow
Celtic í Skotlandi. Hann er fæddur
24. maí 1960 og á að baki 26
landsleiki. - HÁ