Tíminn - 16.06.1988, Blaðsíða 12
12 Tíminn
Fimmtudagur 16. júní 1988
FRÉTTAYFIRLIT
VÍN — Samningur sá er
OPEC ríkin endurnýjuðu á
dögunum og miðaði við að
takmarka olíuvinnslu og olíu-
útflutning aðildarríkjanna hefur
að líkindum tryggt lágmark-
sverð á olíu um einhvern tíma,
en olíusérfræðingar segja að
þau vandamál sem ágreining-
ur hefur verið um á milli aðildar-
ríkjanna séu enn óleyst.
PARIS — öflugastu eldflaug
Evrópumanna, Ariane-4, var í
gær skotið á loft með þrjá
gervihnetti innanborðs. Tókst
geimskotiö í alla staði vel, en
flauginni var skotið á loft frá
Frönsku-Gíneu. Gervihnettirn-
ir þrír eru nú komnir á braut um
jörðu þar sem þeir munu dóla
í nánustu framtíð. Hönnun og
smíði Ariane-4 er unnin af
helstu ríkjum Evrópubanda-
lagsins í sameiningu.
MOSKVA — Meirihluti þings
sovétlýðveldisins Armeníu
greiddi atkvæði með tillögu um
að Nagorno-Karabakh hérað
verði sameinað Armeníu, en
héraðið sem nú tilheyrir Azer-
baijan er nær eingöngu búsett
af fólki af armenskum kyn-
þætti. Fréttir bárust einnig af
því að hermenn hafi sett upp
vegatálma á vegum er lágu ao
bæjum Armena í nánd Azer-
baijsku borgarinnar Baku þeg-
ar kynþáttamótmæli brutust
þar út á dögunum. Voru þessar
aðgerðir ætlaðar til að koma í
veg fyrir að æstir Azerar næðu
til Armena sem eru í miklum
minnihluta í Azerbaijan.
TEL AVIV — ísraelar lokuðu
skólum á hernumdu svæðun-
um á vesturbakka Jórdan til að
koma í veg fyrir stúdentaóeirðir
á sama tíma og íbúarnir hófu
allsherjarverkfall að boði upp-
reisnarleiðtoga Palestínum-
anna.
PARÍS — PierreMehaignieri,
formaður franska sósíal-
demókrataflokksins lýsti því
yfir að flokkurinn hefði klofið
sig úr bandalagi hægri manna
og myndi ekki vinna með þeim ■
í stjórnarandstöðu heldur
koma á fót eigin þinaflokki.
Fréttaskýrendur telja ao þetta
verði til að styrkja bráðabirgða-
stjórn sósíalista sem starfað
hefur eftir þingkosningarnar á
sunnudag. Þetta gæti einnig
verið fyrsta skrefið í þá átt ao
sósíaldemókratar og hugsan-
lega aðrir miðjumenn taki upp
stjórnarsamstarf viö sós í alista.
Yfirvöld í Suður-Kóreu óróleg vegna aðgerða bræðra sinna í norðri:
Mikill liðsafnaður hersveita Norð-
ur-Kóreu við landamæri Suður-Kór-
eu veldur nú miklum óróa meðal
stjórnvalda í Seoul sem nú eru
sérstaklega trekkt vegna ólympíu-
leikanna sem fram eiga að fara í
landinu síðar í sumar. Samkvæmt
upplýsingum varnarmálaráðuneytis
Suður-Kóreu er liðssafnaður Norð-
ur-Kóreumanna við landamærin nú
það mikill að ef norðanmenn gerðu
skyndiárás nú gæti Seoul verið í
hættu. Því hyggjast Suður-Kóreu-
menn hafa hersveitir sínar í við-
bragðsstöðu á næstunni.
Upplýsingar þessar komu fram á
stuttum blaðamannafundi sem hald-
inn var í kjölfar stúdentaóeirða í
Seoul, en róttækir stúdentar þar
kröfðust þess að kóreanska þjóðin
yrði sameinuð á ný í einu ríki og
mótmæltu því að Norður-Kóreu-
menn fengju ekki að halda hluta af
olympíuleikunum. Þá kröfðust stúd-
entarnir að hinir 41 þúsund banda-
rísku hermenn sem staðsettir eru í
landinu yrðu sendir til síns heima.
Yfirvöld í Suður-Kóreu saka
bræður sína í Norður-Kóreu um að
kynda undir óánægju stúdenta til að
sverta ólympíuleikana í pólitískum
og hernaðarlegum tilgangi.
Suður-Kóreumenn leggja mikla
áherslu á að ólympíuleikarnir takist
vel og hafa gert miklar ráðstafanir til
þess að hryðjverkamenn eða aðgerð-
ir Norður-Kóreumanna eyðileggi
ekki dásemdina. Tíuþúsundmanna
sérþjálfaðar öryggissveitir eiga að
gæta öryggis íþróttamanna og áhorf-
enda á ólympíulcikunum. Þá áttu
Suður-Kóreumenn í þriggja daga
viðræðum við Frank Carlucci varn-
Þessir vígalegu menn skipa sérþjálfaðar öryggissveitir sem gæta eiga öryggis íþróttamanna og áhorfenda á
ólympíuleikunum í Seoul í sumar. Suður-Kóreumenn eru sérstaklega smeykir um að bræður þeirra í norðri grípi til
ótuktaraðgerða. Liðssafnaður Norður-Kóreumanna á landamærunum veldur nú yfirvöldum í Suður-Kóreu
áhyggjum.
armálaráðherra Bandaríkjanna fyrir
stuttu og var ákveðið að Bandaríkja-
her yrði umsvifamikill í Suður-Kór-
eu og við Kóreuskagana til að halda
Norður-Kóreumönnum í skefjum ef
þeir hyggðust grípa til vopna meðan
á ólympíuleikunum stendur.
Leiðtogar stjórnarandstöðunnar í
Suður-Kóreu hafa oft sakað stjórn-
völd um að notfæra sér hættuna af
Norður-Kóreu sem grýlu á lands-
menn í þeim tilgangi að halda
völdum. Hins vegar bregður svo við
nú að stjórnarandstöðuleiðtogarnir
hafa lýst yfir fullum stuðningi við
aðgerðir stjórnvalda og hers Suður-
Kóreu.
Kim 11-Sung hinn ástsæli og guð-
dómlegi leiðtogi Norður-Kóreu, eins
og hann kallar sig sjálfur, hefur
heitið því að Norður-Kóreumenn
muni ekki trufla gang ólympíuleik-
anna, þrátt fyrir að Norður-Kóreu-
menn séu hundfúlir yfir því að fá
ekki að taka þátt í leikjahaldinu.
Engir íþróttamenn munu koma frá
Norður-Kóreu á ólympíuleikana.
Herlið Norður-Kóreu
fylkir á landamærin
íranskir pílagrímar sniðganga Haj hátíðarhöldin í Saudi-Arabíu:
Ekkert blóðbað í
Mekka þetta árið
Mikið blóðbað varð á Haj hátíðinni í Mekka á síðasta sumrí er saudískum
öryggissveitum og öfgafullum írönskum pflagrímum lenti saman. Slíkt mun
ekki henda í sumar því í ranar senda engan pflgrím tfl Mekka að þessu sinni.
Saudar geta nú andað léttar í bili
því íranar hafa ákveðið að senda
enga pílagríma til hinna heilögu
borga Mekku og Medínu á Haj
hátíðinni í sumar. Því eru litlar líkur
á að blóðbaðið frá því í Mekka í
fyrrasumar endurtaki sig á þeirri
Haj hátíð sem nú fer í hönd. Hins
vegar eru líkur á að væringar eigi
eftir að aukast milli frana og Sauda
á næstunni, en litlir kærleikar hafa
verið á milli ríkjanna frá því í fyrra
sumar. Þá hófu íranskir pílagrímar í
Mekka mótmæli gegn Bandaríkjam-
önnum og ísraelum og enduðu mót-
mælin með því til brýnu sló milli
íranska múgsins og saudískra örygg-
isvarða með þeim afleiðingum að
400 manns lágu í valnum. Kenna
hvorir aðilar hinum um.
Mehdi Karubbi sem er í forsvari
fyrir pílaagríma írana kallaði ríkis-
stjórn Saudi-Arabíu rammspillta og
á bandi Bandaríkjamanna og ísra-
ela. Hann hét því þó að andi hins
íranska trúarleiðtoga Ayatollah
Khomeinis yrði á sveimi í Mekka á
Haj hátíðinni þó íranska pílagríma
vantaði. „Það er enginn vafi á því að
múslímum mun ekki líka að sjá enga
íranska trúbræður sína á Haj hátíð-
inni. Þó fólki okkarsé haldið frá húsi
Guðs að þessu sinni, þá verður
hugmyndum þeirra haldið á lofti.
Það er engin vafi á því að raddir
múslíma er mótmæla óvinum íslam
munu hljóma í nánd við hús Guðs á
Haj hátíðinni," sagði Karubba kok-
hraustur.
Undanfarin ár hafa íranar sent
150 þúsund pílagríma á hverja Haj
hátíð, en alls hefur um ein milljón
pílagríma sótt hátíðina. í kjölfar
blóðbaðsins í fyrra settu Saudar
kvóta á pílagríma og má nú hver
þjóð senda einn pílagrfm á Haj
hátíðina fyrir hverja þúsund íbúa.
Þannig máttu íranar nú senda 45
þúsund pílagríma til Saudi-Arabíu,
en þeir höfnuðu þvt'. í kjölfar þessa
ósamkomulags slitu ríkin stjórn-
málasambandi sínu.
Stríöshrjáðar fjölskyldur
í El Salvador héldu
úr öskunni í eldinn:
Aurskriða
tók líf flótta*
fólksins
Það fór sorglega fyrir nokkrum
fjölskyldum sem flúðu undan hinni
grimmilegu borgarastyrjöld í E1 Sal-
vador og leituðu hælis í afskekktum
en tiltölulega friðsælum hluta þessa
hrjáða lands. Fjölskyldurnar höfðu
reist sér ný heimili í hlíðum eldfjalls-
ins Congchua, en á þriðjudag gerði
miklar rigningar með þeim afleiðing-
um að aurskriður féllu á hús flótta-
fólksins og létust tuttugu og þrír
þeirra.
„Við flúðum stríðið og fluttum
hingað þar sem móðir náttúra hrifs-
aði af okkur börnin okkar,“ sagði.
Santos Lima Cruz sem missti tvö
börn í náttúruhamförunum. Alls
dóu tólf börn í aurskriðunni.
Rauði krossinn og sveitir úr hern-
um hafa unnið við að grafa fólkið úr
aurskriðunni. Nítján lík hafa fundist
og er fjögurra enn saknað. Svo
blessunarlega vildi þó til að maður
og barn náðust á lífi úr leðjunni.
Gœtnl verður mörgum
að gagni f umferðinni.
UMFERÐ4R
RAÐ