Tíminn - 16.06.1988, Blaðsíða 20
M # *
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarhúsinu v/TrYggvagöfu,
S 28822
Auglýsinsadeild hannar
auglýsinguna fýrir þig
Ókeypís þjónusta
tjjj
HRESSA
KÆTA
Það vcrða 45 leðurklæddir mótorhjólakappar í járnbentum stígvélum
sem munu gæta friðarins á stórtónleikum Listahátíðar sem fram fara í
Laugardalshöllinni á morgun og föstudag. Þetta eru ekki félagar úr Hells
Angcls, scm á sínum tíma stóðu vörð um Rollings Stones á tónleikum í
Bandaríkunum, og frægt er orðið í tónleikasögunni, heldur eru hér á
ferðinni félagar úr Bifhjólaklúbbi lýðveldisins, Sniglunum.
Bifhjólakapparnir verða ekki
vopnaðir í gæslunni öðru en ber-
um en kraftmiklum höndunum
og járnhörðum vilja. „Þess gerist
ekki þörf þar sem fólk er almennt
ekki með mikil læti,“ sagði Ragn-
ar ísaksson einn liðsmaður sam-
takanna. „Að minnsta kosti ekki
svo að við getum ekki þaggað
niður í því,“ bætti hann við.
Jafnframt tók hann fram að ekki
væri þaggað niður í fólki með
neinum róttækum aðgerðum
heldur einungis reynt að tala fólk
til. „Ef um meiriháttar ólæti yrði
að ræða myndi lögreglan væntan-
lega skerast í leikinn, en til þess
hefur aldrei komið,“ sagði Ragn-
ar ennfremur.
íþrótta- og tómstundaráð mun
annast sölu veitinga á meðan á
tónleikunum stendur, en Bif-
hjólasamtök lýðveldisins og
starfsfólk íþrótta-og tómstundar-
áðs mun í sameiningu sjá um
gæsluna. Bifhjólasamtök Iýðveld-
isins hafa séð um gæslu á mörgum 1
tónleikum. Ragnar ísaksson
sagði Tímanum að fyrst væri
tónleikagestum hleypt inn í port
við Laugardalshöllina. Við inn-;
göngudyrnar verður svo fjöldi
stígvélaðra vélhjólakappa sem
mun sjá um að enginn gestanna
komist inn á tónleikana með vín
auk þess sem allar myndavélar
verða gerðar upptækar. Á meðan
á tónleikunum stendur munu bif-
hjólakapparnir standa vörð fyrir
framan sviðið og umhverfis
húsið. Mannþröngin fyrir framan
sviðið er gífurleg á slíkum tón-
leikum. Að sögn Ragnars er full
þörf á því að hafa mikið lið
manna í því að draga tónleika-
gesti upp á sviðið þegar liðið
hefur yfir þá eða þeir eru um það
bil að kremjast í troðningnum.
í Laugardalshöllinni er þessa
dagana verið að undirbúa tón-
leika sem þar verða haldnir annað
kvöld, 16. júní og föstudags-
kvöld, 17.júní Listapopp er á
vegum Listahátíðar. fþrótta- og
tómstundaráð og Skífan standa
fyrir tónleikunum. Jónas Krist-
insson framkvæmdastjóri Lista-
popps sagði í samtali við Tímann
að undirbúningur gengi mjög vel.
í dag og á morgun er fyrirhugað
að prófa hljómflutninginn í Laug-
ardalshöllinni. Sjö hljómsveitir
Hann var hreint ekki svo ógnvekjandi Sniglahópurinn, sem var samankominn í Hafnarfirðinum í gær til þess
að ræða tilhögun gæslunnar í Laugardalshöllinni. Tímamynd: Gunnar
munu koma fram á tónleikunum,
þar af tvær 'erlendar.
Fyrra kvöldið leika Kátir piltar,
Síðan skein sól, Strax og The
Christians. Síðara kvöldið leika
Bjarni Arason og búningarnir,
Hunanstungl, Strax og Blow
Monkeys. Ekkert aldurstakmark
verður á tónleikunum en að sögn
Jónasar Kristinssonar er miðað
við að unglingar sem sækja tón-
leikana einir síns liðs hafi lokið 7.
bekk. í sérstökum tilfellum t.d.
ef foreldrar koma með ung börn
með sér verður séð til þess að
hleypa þeim upp á svalirnar svo
allir geti notið tónleikanna, að
sögn Jónasar. - IDS
Kjartan Lárusson segir nauðsyn á fjárframlögum til ferðamála, annars verði Ferðamálaráð
Nátttröll í tilverunni
Sólstöðuganga
Sólstöðudagurinn 21. júní er
að þessu sinni þriðjudagur. Þenn-.
an lengsta dag ársins verður
stofnað til sólstöðugöngu með
svipuðu sniði og í fyrrasumar.
Boðið verður upp á gönguferð
sem hægt verður að koma í og
fara úr hvenær sem er allan
sólarhringinn, miðnæturbál verð-
ur kveikt á leiðinni kl. 1.00,
safnast verður saman og horft á
sólarupprás um óttuskeið, nánar
tiltekið kl. 2.54. Þá verður boðið
upp á siglingu hluta leiðarinnar.
Þegar hefur verið haft samband
við ýmsa til þáttttöku í göngunni,
en ef einhver félög, klúbbar,
stofnanir, fyrirtæki eða einstakl-
ingar telja sig hafa eitthvað fram
að færa í anda sólstöðugöngunn-
ar, er beðið um að þeir láti vita í
síma 29475 milli kl.17.00 og 19.00
virka daga til 17. júní. IDS
Polgarsigur
Polgarsysturnar Judith og Zsuza
urðu efstar og jafnar í A-flokki á
Opna Austurlandsmótinu sem lauk
í Valaskjálf á Egilsstöðum í gær-
kvöldi. Báðar náðu þær 5 1/2 vinn-
ingi og skipta því með sér 1.-2. sæti.
Systir þeirra Sofhie Polgar sigraði í
B-flokki og náði 8 1/2 vinningi af 9
mögulegum.
Þessa dagana eru ferðaþjónustu-
fyrirtækin að vakna af vetrardvalan-
um og byrja að þjónusta innlenda
sem og þá erlendu ferðamenn sem
leggja leið sína hingað til lands í
sumar. Á þessari stundu er að sögn
fróðra manna erfitt að segja til um
fjölda erlendra ferðamanna hér á
landi á þessu ári, en áætlað er að tala
þeirra verði, þegar upp er staðið um
áramót, svipuð og á síðastliðnu ári,
eða nálægt 130 þúsundum.
Ef þetta gengur eftir verða erlend-
ir ferðamenn nokkru færri en bjart-
sýnar spár gerðu ráð fyrir. Að sögn
Kjartans Lárussonar, formanns
Ferðamálaráðs, helgast það ekki síst
af nýafstöðnu verkfalli verslunar-
fólks. Hann sagði að þetta verkfall
hefði komið mjög illa við ferðaþjón-
ustuna, í fyrsta lagi vegna tekjutaps
flutningafyrirtækja, t.d. flugfélaga, í
öðru lagi vegna mikilla afpantana á
ferðum til íslands og þarmeð afpant-
ana á hótelgistingu, og í þriðja lagi
vegna þess álitshnekks sem ísland
hafi orðið fyrir. Varðandi síðast-
nefnda þáttinn sagði Kjartan að í
ljósi fenginnar reynslu settu t.d.
erlendir ráðstefnuhaldarar nú stórt
spurningamerki við að halda stórar
alþjóðlegar ráðstefnur á íslandi.
„Þetta er vitaskuld mikil synd því til
þessa hefur ríkt mikil almenn ánægja
með ráðstefnuhald hér. Og við eig-
um örugglega mikla möguleika á því
sviði, nema því aðeins að við
skemmum sjálfir fyrir okkur," sagði.
Kjartan.
Á undanförnum árum hefur æ
meir verið klipið af lögbundnum
tekjustofnum Ferðamálaráðs. Sam-
kvæmt lögum ber því 10% af sölu-
verðmæti Fríhafnarinnar. Fyrir síð-
asta ár þýðir þetta að Ferðamálaráð
hafi átt að fá 95,5 milljónir króna
vegna sölu í Fríhöfninni. Niðurstað-
an varð hinsvegar 15 milljónir króna.
Á fjárlögum yfirstandandi árs fær
Ferðamálaráð 28 milljónir af sölu-
verðmæti Fríhafnarinnar í stað ríf-
lega 100 milljóna, ef farið væri að
lögum. Kjartan Lárusson segir að
fjárskortur Ferðamálaráðs setji ón-
eitanlega stóran hemil á nauðsynlega
starfsemi þess, menn verði að spila
af veikum mætti úr því sem til er.
Hann segir að menn hafi tékið þann
pól í hæðina að nýta þá litlu fjármuni
sem til eru til sölu- og kynningar-
starfs. Árangurinn af því sé smám
saman að koma í ljós en eftir standi
að uppbyggingu ferðaþjónustunnar
innanlands hafi ekki verið unnt að
sinna sem skyldi. Kjartan segist telja
að ríkinu beri að sinna þessum þætti,
enda skili ágóði ferðaþjónustunnar
sér að lokum í ríkiskassann. Vert er
að hafa í huga í þessu sambandi að
gjaldeyristekjur þjóðarbúsins af
þjónustu við erlenda ferðamenn á sl.
ári nam um 6 milljörðum króna.
Lengi hefur verið rætt um mark-
vissa uppbyggingu ferðamannaþjón-
ustu við Gullfoss. Síðastliðið sumar
sendi Ferðamálaráð ásamt fleiri
hagsmunaaðilum erindi til fjárveit-
ingavaldsins um fjárframlög til bygg-
ingar snyrtihúss og aðstöðu fyrir
veitingarekstur. Afgreiðsla Alþingis
hljóðaði upp á 200.000 krónur, sem
að sögn formanns Ferðamálaráðs er
einungis dropi í hafið til að bæta
aðstöðu fyrir ferðamenn við
Gullfoss. Kjartan segir því ljóst að
áfram verði þrýst á fjárveitingavald-
ið um fjárframlög til að bæta þarna
verulega úr. Hann segist vonast eftir
jafn jákvæðum viðbrögðum og við
fjárbeiðni vegna úrbóta við Geysi,
en þar verður meðal annars unnið í
sumar að lagningu gangstíga.
Að sögn Kjartans Lárussonar eru
vonir bundar við að endurskoðun á
gildandi lögum um Ferðamálaráð
miðist við að gera því kleift að sinna
betur sínu hlutverki. Ef ekki sé stór
hætta á því „að Ferðamálaráð verði
í framtíðinni eins og nátttröll í
tilverunni“.
Að öllu óbreyttu ætti þessari lag-
aendurskoðun að ljúka á haustmán-
uðum.
óþh