Tíminn - 10.12.1988, Page 10

Tíminn - 10.12.1988, Page 10
HELGIN Laugardagur 10. desember 1988 10 T I BETRI SÆTUM niHHiiniiiiniu OUJ □UD KILLER IN THE MIRROR: Sagan um illu spegilmyndina „TOPP TUTTUGU“ Stjömugjöf = ★★★ Aðalhlutverk: Ann Jilian, Len Cariou, Jessica Walter Leikstjóri: Frank De Felitta Myndband Steinar „Killer in the Mirror" er góð spennumynd um ástir og örlög fagurskapaðra tvíburasystra. Önn- ur er ill og gjörsamlega samvisku- laus en hin er allt að því góð í gegn. Karen hin góða varð, löngu áður en sjálf myndin gerist, ástfangin af manni og allt virtist ganga í haginn. Hins vegar er það Samantha hin illa sem einhvern veginn giftist þessum manni á endanum og eðli- lega veldur það vinslitum þeirra systranna. Hvor í sínu lagi hafa þær búið og lifað lífinu á ólíkan hátt í þau tíu ár eða svo, sem líða frá vinslitunum og fram að þeim tíma að áhorfandinn kemur til leiks. Fljótlega eftir það liggja leiðir þeirra saman að nýju og atburðarásin verður spennandi eins og vænta mátti þegar slíkir fulltrúar góðs og ills eru á ferðinni. Leikurinn í myndinni er góður og sömuleiðis öll bygging atburða- rásarinnar. Spenna helst í mynd- inni frá byrjun og allt fram í lokaatriði myndarinnar gerast óvæntir hlutir. Myndin er mjög frambærileg sem slík og þeir sem vilja fara á videóleigu og ná sér í spennumynd geta sem hægast tekið þessa mynd og verið vissir um að fá það sem þeir ætluðu. -BG 1. ( 1) Bestseller (Skífan) 2. ( 2) The Untouchables (Háskólabíó) 3. (19) Síöasti keisarinn (Myndbox) 4. ( 4) Someoneto Watch OverMe (Skífan) 5. ( 8) Nuts (Steinar) 6. (-) PrinceofDarkness (Myndform) 7. ( 3) Flightof the Navigator (Steinar) 8. (-) Hello (Bergvík) 9. ( 7) Stakeout (Bergvík) 10. ( 6) Tough Guys Don’t Dance (Myndbox) 11. ( 9) Spaceballs: The Video (J.B. Heildsala) 12. (11) Julia and Julia (Steinar) 13. (16) MurderOne (Skífan) 14. (10) TheLostBoys (Steinar) 15. (12) The Bedroom Window (J.B. Heildsala) 16. (27) NeverToo Young to Die (Háskólabió) 17. ( 5) ET-The Extra-Terrestrial (Laugarásbíó) 18. ( - ) Backfire (Myndbox) 19. (29) FlowersintheAttic (Myndbox) 20. (13) Nadine (Steinar) ( - ) Táknar að viðkomandi myndband (titill) er nýtt á list- anum. BABY M I og II WHO’LL STOP THE RAIN: Spenn- andien of löng Stjörnugjöf: ★★Ví2 Aðalhlutverk: Nick Nolte, Tuesday Weld, Michael Moriarty og Anthony Zerbe. Leikstjóri: Karel Reisz. Myndband: Steinar Hér er á ferðinni önnur hlið á Víetnamstríðinu en maður á að venjast. Myndin er byggð á sög- unni „Dog Soldiers" sem eflaust einhverjir kannast við. Myndin segir frá því að stríðs- fréttaritarinn, sem leikinn er af Moriarty er búinn að fá sig full- saddan af öllum stríðsrekstrinum og ætlar sér að græða vel að honum loknum. Hann ætlar sér að fá bætur fyrir þann hrylling sem hann hefur þurft að horfa upp á og hefur kostað hann heilsuna. Hann kaupir tvö kíló af heróíni sem hann ætlar að selja með vænum hagnaði heima í Bandaríkjunum. Hann fær vin sinn, sem er atvinnuhermaður leik- inn af Nolte, til að smygla eiturlyfj- unum til eiginkonu sinnar, sem leikin er af Weld. Það ætlar hins vegar ekki að reynast Nolte auðvelt að afhenda henni efnið, því þegar hann kemur að heimili hennar ráðast tveir útsendarar gerspillts leyniþjónustumanns á hann. Leyniþjónustumaðurinn ætlar sér að græða sjálfur á eiturlyfjum og svífst því einskis til að komast yfir þau. En eins og sönnum vin og atvinnuhermanni sæmir þá er Nolte ákveðinn í að standa við samninginn og gefur hvergi eftir. Leikurinn berst til Klettafjallanna þar sem Nolte var áður í samfélagi við hippana og fer lokauppgjörið þar fram. Hér er á ferðinni ágætis spennu- mynd, en er helst til of langdregin, kannski ekki nema von þar sem hún er teygð upp í 122 mínútur. Mér hefur alltaf líkað ágætlega við Nick Nolte í hlutverkum hetjunnar WXRNER HOME VIDEO Who'f/StopThemn Hflfi jATii atfMfl t'A7lA ««. KAflH. NICK NOat • TUHSOAY WLLH • MlCHAR MORIARTY •WHOli STOP THE RAIN' ZERBE.«.-..LAURENCt R0SEN1HAL • Athyglisvert dómsmál í leikrænum búningi og bregst hann ekki nú frekar en fyrri daginn. Hinir leikararnir skila sínum hlutverkum einnig ágætlega. Endirinn var eins og hann átti að vera. -ABÓ Stjörnugjöf = ★★★ Aðalhlutverk: JoBeth Williams, John Shea, Bruce Weitz, Robin Strasser, Anne Jackson Leikstjóri: James Steven Sadwith Myndband: JB-myndbönd Eflaust muna margir eftir tiltölu- lega nýlegu dómsmáli í Bandaríkj- unum um umráðarétt yfir barni þar sem svokölluð leigumóðir átti í hlut. í hnotskurn snerist málið um það að vel stæð og menntuð hjón sem af læknisfræðilegum ástæðum vildu ekki taka þá áhættu að eign- ast barn gerðu samning við konu ÞAÐ 3Y íua M3Ö DflAUVNUM UM AÐ EtGNAST BARN EN ENDAEM m martroð n BABY M STAR WARS: THE EMPIRE STRIKES BACK: Fjórar klst. af stjörnustríði Stjörnugjöf= ★★ Aðalhlutverk: Mark Hamill, Harri- son Ford, Carrie Fisher, Peter Cush- ing (Star Wars), Alec Guinnes (Star Wars), Billy Dee Williams (Empire strikes back), Anthony Daniels (Empire strikes back). Leikstjórar George Lucas (Star Wars), Irvin Kershner (Empire strikes back) Myndband: Steinar hf. Það þarf nú víst ekki að kynna myndirnar um stjörnustríðið fyrir samtíðarfólki slíkt var umtalið um þær á stnum tíma og í þær var eytt óhemju fjármunum. Myndirnar tvær segja frá baráttu uppreisnarmanna við hið illræmda keisaraveldi þar sem fremstur í flokki fer hinn illræmdi Svarthöfði. Myndin hefst á að Lilja prinsessa er tekin höndum af mönnum keis- arans og er henni gefið að sök að hafa undir höndum teikningar af „Dauðastjörnunni", herstöð og bækistöð keisarans. Inn í réttlæt- isbaráttu uppreisnarmanna flækist hinn hugdjarfi Logi flugstjóri ásamt þeim kaptein Sólo, Chewie hinum loðna og vélmennatvíeyk- inu R2D2 og C-3PO. Síðari myndin er sjálfstætt fram- hald þeirrar fyrri með sömu sögu- persónum. Strax í upphafi fáum við þetta rosalega bardagaatriði með viðeigandi geislaskothríð, þar sem uppreisnarmenn bíða mikið afhroð. Logi leitar aðstoðar og fær þjálfun hjá Væringjariddara og fær þá notið AFLSINS svokallaða sem gerir hann jafnvígan Svarthöfða og verður myndin að einvígi þeirra á milli. Myndirnar eru nú svo sem ekk- ert leiklistarlegt þrekvirki, en hins vegar eru tæknibrellurnar mjög góðar og halda manni vel við efnið. Ágætis afþreying fyrir yngri kyn- slóðina. -PS um að hún léti frjóvga sig með sæði mannsins og æli honum eða hjón- unum barn sem hún síðan gerði ekkert tilkall til. Konan var m.ö.o. að leigja hjónunum afnot af líkama sínum til að ganga með barn mannsins. í staðinn fékk hún háa peningaupphæð. Samningurinn virðist einfaldur lengi framan af en síðan flækjast málin þegar leigu- móðirin fær sig ekki til að láta barnið, sem hún hefur gengið með, frá sér og vill rifta samningnum. Þessi staða er gífurlega flókin, bæði siðferðilega, lagalega og til- finningalega og um þessar flækjur fjallar myndin á ítarlegan hátt enda er myndbandið tvær spólur. Leikgerð þessarar sönnu sögu er að flestu leyti góð. Pó undirrituð- um sé ekki kunnugt um hvernig aðstæður voru í einstökum atriðum virðist þó sem raunverulegri at- burðarrás sé fylgt í megin atriðum. Spenna er í myndinni mest allan tímann þó e.t.v. megi finna að því að aðdragandi sjálfra réttarhald- anna og málflutningsins þar sé full ítarlegur og jafnvel langdreginn á köflum. Hins vegar hressist Eyjólf- ur á seinni spólunni og jafnframt því að spennan vex er einnig fróð- legt - svona eftir á - að velta fyrir sér viðbrögðum almennings og meðferðar fjölmiðla og ýmissa hagsmunahópa á málinu. Myndin vekur fólk til umhugsunar um ákveðnar grundvallarspurningar enda vandamálið sem glímt er við margslungið. Hver er réttur móð- urinnar og er til einhver grundvall- arréttur hennar til samveru með sínu eigin barni eða er slíkur réttur eitthvað sem hún getur afsalað sér í kjánaskap með því að skrifa undir samning. Hvor er meira virði, réttur móður til barnsins eða réttur föður til bamsins sem jafn- framt hefur verið styrktur með skriflegum samningi við móður- ina? Þetta eru spurningar sem velt er upp í myndinni og eru því áhugaverðari að um raunverulegt dæmi er að ræða og meira að segja mjög nýlegt. Óhætt er að mæla með þessari mynd við þá sem hafa tímann fyrir sér. -BG

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.