Tíminn - 07.01.1989, Blaðsíða 8

Tíminn - 07.01.1989, Blaðsíða 8
18 HELGIN Laugardagur 7. janúar 1989 SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁ Spákonan sá morð f ramið og athugaði málið sjálf Kristalskúlan löðraði í blóði og spákonan fylltist hryllingi. Þar sem hún taldi Iögregl- una ekki myndu trúa sér, veitti hún við- skiptavini sínum eftirför. I Ijós komu hinir ótrúlegustu hlutir og 24 ára gamalt morðmál varð loks upplýst. Djúpt í glerinu vareitthvað dökkt, eins og hringiöa af óljósum verum. Konan hafði séð slíkt áöur og stund- unt var það mikilvægt, stundum ekki. Atvinnuspákona var engin vél og til þess mátti ekki ætlast. Stund- um var eitthvað að sjá í kristalskúl- unni, stundum alls ekkert. Ef ekkert sást, nægði oftast aö grípa til annarra aðferða í grcininni. Fyrir kom líka að luin þyrfti að grípa til útúrsnúninga, jafnvel þó eitthvað birtist í kúlunni. t*að var þcgar of sársaukafullt væri fyrir viðskiptavininn aö vita hvað fram- tíðin bæri í skauti sér. Sársauki í þeim skilningi var allt annað cn sá hryllingursem viö henni blasti nú. Hún sá blóð, mikið blóð og hvassa egg kljúfa svart hár, hársvörð, höfuðkúpu og heila. Henni varö svo hverft viö að sýnin hvarf. Hin 47 ára gamla spákona Elisa Vcroncse leit upp frá kristalskúlunni og sttirði skelfingu lostin í andlit konunnar sem sat gegnt henni. - Eg sé illa fyrirboða, sagði hún. - Það erslæmt, bæði blóð ogdauði. Hin konan kinkaði kolli hin rölcg- tista. Hún var komin af léttasta skciði en vel snyrt og klædd dýrum fötum. Hún var vcl stæð. - Það er maðurinn minn, sagði hún. Ég vcit þetta. Hvað um fram- tíðina? Spákonan leit hikandi al'tur í kúl- una sem stóð á kringlóttu borði, á rauðum dúk með merkjum dýra- hringsins. Dauðaþögn var í hálfmyrkri kompunni sem hulin var hciminum með þungum, dumbrauðum flauels- tjöldum. Elisa Veronese heyrði glögglega andardrátt konunnar handan borðsins en ckki sinn eiginn og varð Ijóst að hún hélt niðri í sér andanum. Þcgar hún fékk sterkar vitranir, hafði það jafnan ntikil og crfið tilfinningaáhrif á hana og eftir 20 ár sem atvinnuspákona var hún búin að fá nóg af slíku. Aldrei hafði hún þjáðst eins og núna. Hún þorði varla að líta djúpt í kúluna. í staðinn festi hún augun á yfirborði hennar. - Þú verður heppin, sagði hún lágt. - Vandamálin leysast í bili cn þeim er ekki lokið. Þú gctur horft til betri tíma með fjölskyldu þinni. Elti viðskiptavininn Nokkur áhætta fylgdi því að nota orðið „fjölskylda". Þó konan væri augljóslega vel stæð og hefði verið aðlaðandi á yngri árum, var alls óvíst að hún væri gift og ætti fjöl- skyldu. Hvernig sem því var háttað. virtist hún ánægð með spádóminn, greiddi fyrir og fór. Elisa sat kyrr andartak og reyndi aö jafna sig, en skyndilega spratt hún á fætur, svipti af sér spákonu- skikkjunni og hljóp út á götuna. Viðskiptavinur hennar var að hverfa fyrir næsta húshorn. Elisa var fegin að konan var fótgangandi og ákvað aö fylgja henni eftir. Klukkan var rúmlega hálffjögur síðdegis þann 20. júní 1986. Það var föstudagur og sólin skein glatt á heiðum himni yfir Norður-Ítalíu. Alls staðar voru skrautleg blóm í beöum við gángstéttina og í kössum á svölum og undirgluggum. Trén viö göturnar voru órðin fulllaufguð. Þó þetta væri langt frá miðborg- inni, var margt fólk á ferli og töluvert um ferðamenn. Verona var ekkert smáþorp, með 300 þúsund íbúa, og þegar ferðamannatíminn stóð yfir mátti gera ráö l'yrir tvöfaldri þeirri tölu á staönum. Manngrúinn vildi Elisu til happs, því mun auðveldara var að leynast innan um margt l'ölk. Hinsvégarvar hún ekki viss um hvers vegna hún var eiginlcga aö clta þessa konu. Vissulega hafði hún séð morð í kristalskúlunni og konan viður- kenndi nánast að vita um það. Eitthvað innra með Elisu kom hins vegar í veg fyrir að hún gæti glcynit því. Svöna lagað átti að tilkynna lögreglun ni. Konan gekk um og virtist ekki vera að flýta sér hið minnsta. Elisu varð Ijóst að hún hlyti að vera gestur í borginni. Hún virti gjarnan fyrir sér efri hluta húsanna og skimaði el'tir hliðarstrætum. Þegar hún steig loks inn í dýran, gulan Lancia-bíl á stæöi, kom það Elisu ekkcrt á óvart að sjá að númeriö á bílnum var frá Milano. Númerið var MI1268-47. Lögreglunni myndi nægja það ogsjá um afganginn. Elisa sneri í átt að lögreglustöð- inni en staðnæmdist von bráðar. Hún fékk á tilfinninguna að henni yrði ekki vel tekið þar. Hún þyrfti að gera grein fyrir sér og skýra að hún hefði séð þetta í kristalskúlu. Þó hún vissi sjálf að þetta var heilagur sannleikur, efaðist hún stórlega unt að lögreglan tryði henni. Var framið morð? Opinberir starfsmenn eru hvar- vetna tortryggnir gagnvart spádóm- um af öllu tagi og lögreglan segðist cflaust ckki geta hafið rannsókn á Itögum manneskju aðeins vegna þess að spákona hefði þóst sjá eitthvað í kristalskúlu sinni. Hún yrði eflaust rekin burtu og svona lagað gæti cf til vill kostaö hana atvinnuleyfið. Sannleikurinn var sá, þegar allt kom til alls að hún vissi hreint ekkert um málið, ekki einu sinni hvað konan hét. Þó eiginmaður hennar hefði verið myrtur, þýddi þaö ekki að hún hefði vcriö viðriðin það. Ilver sem væri hefði getað myrt liann. Samt var Elisa ekki sannfærð. Blóðugt morð hafði verið framið og hún fann á sér að konan átti á einhvern hátt hlut að máli. Nú toguðust andstæð öfl á innra með Elisu. Hana dauðlangaði að vita meira. Hún sneri heim, hafði fataskipti, setti niður í litla gisti- tösku, hengdi upp skiltið sem á stóð: „Lokað í dag“ og steig upp í lestina til Milano. Ferðalagið var ekki ýkja langt, tæpir 200 km, en Elisa lagði seint af stað svo búið var að loka skrifstofum þcgar hún kom á leiðarenda. Hún hafði aldrei komið til Milano áður og var dálítið ráðvillt fyrst í stað. Þarna voru íbúar hálf önnur milljón enda borgin ein hinna stærstu á Ítalíu. Hins vegar var opið hjá upplýsingamiðlun fyrir gesti á brautarstöðinni og Elisu tókst að fá herbergi á sæmilegu hóteli þar sem hún skildi töskuna eftir og fór á veitingahús til að snæða kvöldverð. Eftir matinn gekk hún um göturn- ar í grennd við hótelið til aö íhuga hvernig hún ætti að snúa sér í erindum næsta dags. Loks ákvað hún að reyna að komast að nafni konunnar fyrir tilstilli bílaklúbbs borgarinnar. Auðvitað voru upplýs- ingarnar til reiðu hjá bifrciðaeftirlit- inu en Elisa var ekki viss um að livcr scm væri gæti fengiö þær þar. Hjá bílaklúbbnum væru kröfurnar ekki jafn strangar. Hún segði bara að hún hefði ekið utan í bíl með tilteknu númeri og vildi ná sambandi við eigandann. Hugsanlegt var þó að konan væri ekki í bílaklúbbnum þó nærallirsem áttu dýra bíla væru það. Fann nafn konunnar Svo tókst þó til að Elisa fékk Spákonan Elisa Veronese sá axar- morð í kristalskúlu sinni. Hvað bar henni að gera? Lina Boseggia forvitnaðist um frani- tíðina. Spákonan sá hins vegar blóði drifna fortíð hennar. upplýsingarnar hæglega. Hún var traustvekjandi útlits og virðuleg í fasi. Ungi maðurinn í afgreiðslu klúbbsins hikaði ekki andartak við að fletta upp í skræðum sínum, skrifaði síðan nafn og heinrilisfang á blað og rétti Elisu. Hún rétt leit á blaðið en stakk því síðan í veski sitt og gekk rakleitt út í næsta almenningsgarð. Þar settist hún á bekk og virti vandlega fyrir sér nafnið og heimilisfangið á blaðinu. Þar stóð: „Frú Lisa Boseggia, Via Palmanova 8.“ Elisa hafði aldrei heyrt nafnið og vissi ekki hvar gatan var. Eftir bílnum að dæma hlaut hún að vera í góðu hverfi. Hún fékk sér leigubíl sem kostaði hana stórfé og húsið reyndist rík- mannlegt einbýlishús í gríðarstórum garði. Eins og til staðfestingar því að Elisa væri á réttum stað, stóð guli Lancia-bíllinn í heimreiðinni. Nú velti Elisa fyrir sér hvað hún ætti að gera næst. Varla gæti hún gengið að húsinu, hringt bjöllunni og tilkynnt konunni: - Þú myrtir manninn þinn. Komdu með mér til lögreglunnar. Hvernig gæti hún svo sem vitað annað en eiginmaðurinn sjálfur kæmi til dyra? Ef til vill höfðu boðin í kristalskúlunni verið fölsk. Innra með sér vissi Elisa þó að svo var ekki. Dökkhærður maður, eigin- maður þessarar konu, hafði verið myrtur. Höfuð hans hafði klofnað eins og kálhöfuð fyrir axarblaðinu. Hitt var svo annað mál hvort konan vissi hver morðinginn var eða hafði sjálf framið ntorðið. Þó vissi hún af því og var hin rólegasta. Hvernig sem í pottinn var búið, vissi Elisa að hún fengi engan frið í sálina fyrr en hún vissi allar stað- reyndir. Hún yrði að byrja á að komast að hvort eiginmaður Lisu Boseggia hafði í raun verið myrtur og hver atvik höfðu þá verið. Var málið 30 ára gamalt? Nágrannarnir vissu það áreiðan- lega og Elisa gekk að nálægu húsi, full sjálfsöryggis í trausti aldurs síns og framkomu allrar. Þó laugardagur væri, var húsbóndinn ekki heima. en húsmóðirin var viðlátin. Hún var á svipuðum aldri og Elisa og hikaði ekki við að bjóða henni inn fyrir, setti fyrir hana tebolla og hlustaði með hluttekningu á frásögn hennar af vinkonu sem eitt sinn bjó í númer 8 en virtist hafa flutt burtu. Konán hét Emma Venturini og þegar Elisa lauk sögu sinni, bætti hún við að hún kynni hreint ekki við að fara að svona glæsilegu húsi og spyrja það merkisfólk sem þar byggi, hvað hefði orðið um vinkonu hennar. Emma kinkaði kolli og sagði að Boseggia-fólkið væri vissulega mcrkilegt - að eigin áliti. Hins vegar hlyti Elisu að misminna um húsnúm- erið, því Boseggia-fjölskyldan hefði sjálf byggt húsið og búið í því í nær 30 ár. - Þau höfðu ekki verið þar nema í fimm ár, þegar húsbóndinn hvarf, bætti hún við döprum rómi. - Hvarf? spurði Elisa furðu lostin. Hún hafði gert ráð fyrir að rnorðið, ef það var þá morð, hefði veriö framið nýlega. Var þetta morðmál 30 ára gamalt? Nú þegar Elisa fór að hugsa nánar um það, hafði maðurinn í kúlunni verið mun yngri en frú Boseggia útlits. Hann var svarthærður með lítið. svart yfirskegg. - Hvarf, var orðið sem notað var, svaraði Emrna Venturini. - Fólk telur að hann hafi hreinlega horfið af yfirborði jarðar. -Áttu við..? Elisa hvíslaði orðun- um og gerði sér upp eins mikla undrun og hún megnaði. Sjálf vissi hún ekkert um málið en sú von

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.