Tíminn - 07.01.1989, Page 10
20 V
m
HEtGIN
í TÍMANS RÁS
llllllllll!
ÞÓR
JÓNSSON
Laugardagur-7. janúar 1989
Snælduvitlaust um Laxá í Kjós
Víst er um það að kreppan
margfræga hefur ekki teygt anga
sína inn á heimili landsmanna, sem
síst minnkuðu við sig jólagjafa-
kaupin og sprengdu svo vikukaup
þjóðarinnar í loft upp á gamlárs-
kvöld.
Kreppunnar gætir ef til vill ekki
fyrr en krítarkortanóturnar bcrast!
En það má sosurn kosta nokkru til
að þjóðin verði áfram sú hamingju-
samasta í heimi?
Altént varð ég hinn ánægðasti,
þegar ég reif jólapappírinn utan af
myndbandssnældu um laxveiðar í
Laxá í Kjós, sem íslenski mynd-
bandaklúbburinn gaf út fyrir jólin.
Ég vissi að hún hafði létt pyngju
gjafarans um tæpar fjögur þúsund
krónur, enda velt því fyrir mér
sjálfur hvort ég ætti ekki að gefa
einhverjum veiðifélaga minna
þessa snældu að gjöf.
En ánægjan var skammvinn og
eftirsjá í krónunum, sem snældan
kostaði. Það verður að segjast eins
og er að illa er með gott efni fariö!
Áhugamenn unt stangaveiði eru
mýmargir og sólgnir í bækur um
laxveiði í svartasta skammdeginu.
Margir misjafnlega snjallir pennar
hafa því róið á örugg mið, þegar
þeir gefa út bækur um liðið lax-
veiðisumar.
Ég syndi á þessum miðum og bít
nær alltaf á krókinn og læt mér
aldrei segjast, frekar en aðrir á
hinurn örugga markaði, þótt illa sé
að verki staðið. Ég var fullur
eftirvæntingar, þegar gafst færi á
að sjá og heyra helstu snillinga
laxveiðinnar í fengsælustu á
landsins, Laxá í Kjós.
Þórarinn Sigþórsson, tannlæknir
var til viðtals um veiði í Laxá og
sýndar voru af honum kvikmyndir
við veiðina. Það leyndi sér ekki að
þann er fimur með stöngina, en þó
hefði ég viljað sjá hvernig hann
færi að í glímunni við laxinn víðar
en í Höklunum og undir brúnni.
Einnig voru kvikmyndir af Jóni
Ólafssyni í Skífunni, dugnaðar-
forki í verslun, en varla mikið
augnayndi á árbakkanum fyrir
áhugamenn um laxveiði.
Ekki einasta voru tilburðir hans
við laxveiðina klaufalegir heldur
keyrði um þverbak, þegar hann
kallaði til sín brennivínskútinn í
miðjum drætti.
Sumum þykir sopinn ómissandi
við laxveiðar. En það kemurokkur
áhorfendum ekki við!
Myndbandssnælda þessi getur
ekki talist kynning á Laxá í Kjós,
eins og ég taldi að hún væri áður
en égsetti hana í myndbandstækið.
Á snældukápu er mikið fjallað
um óspillta náttúru fslands. En
þáttagerðarmenn sýna einungis frá
neðstu veiðisvæðunum allt í kring-
um óspilltan þjóðveginn. Svo er
skyggnst í Bugðu, en öll svæði ofan
Laxfoss látin eiga sig.
Hallgrímur Thorsteinsson á
Bylgjunni rabbaði við Þórarin. Það
gerði hann í afar óskemmtilegu
umhverfi. Mætti halda að þeir
hefðu hist á tannlæknastofunni.
Og þar að auki er vart hægt að
greina hvað Þórarinn segir og er
tæknimönnum það um að kenna.
Þó verður ekki reynsluleysi Hall-
gríms á sviði fjölmiðla um kennt að
honum tókst illa upp. Því er ekki
að heilsa. Miklu heldur slæmum
undirbúningi eða virðingarleysi
fyrir verkefninu.
Hér eru nokkur dæmi um orð-
askiptin.
Hallgrímur: Laxinn var stór í
sumar!
Þórarinn: Nei, meðalvigt var
með minnsta móti!
Hallgrímur: Er fluguveiði að
sækja á orðið?
Þórarinn: Nei, égsegi það ekki.
Hallgrímur (um leið og dreginn
cr fiskur á land); Þetta er 15 punda
fiskur!
Þórarinn: Nei, þetta er ekki
nema 9 til 10 punda fiskur.
Inngangur þularins var sömu-
leiðis greinilega óundirbúinn. Líkt
og hann væri að spjalla við sím-
hringjanda í nöldurþætti í útvarpi.
Og niðurlagsorðin voru sama
marki brennd, - út í bláinn og hafa
varla valdið handritshöfundi
óþægilegum hejlabrotum.
í heilum myndbandsþætti eru
mest spennandi atriðin í auglýsingu
frá Veiðihúsinu, sem er framan og
aftan við þáttinn.
Mér hefur verið sagt að þessi
snælda sé síst af fjórum, sem út
komu. Hinar fjalla um Laxá í
Dölum, Miðfjarðará og Vatns-
dalsá.
Má vera að svo sé. En Laxá í
Kjós á engu að síður betra skilið.
Þór Jónsson
GETTU NU
Fossinn á myndinni
fyrir hálfum mánuði var
írárfoss undir Eyjafjöll-
um, skammt frá Skálbæj-
unum svonefndu.
En nú er það fjall sem
við spyrjum um, 453
metrar að hæð og mikil
prýði í landslagi á sínum
slóðum. Hvert er fjallið?
■■■■■■■ SafSSOBB H3BH3 HQ □ BEJaEC
□□□£gg □□□ E
pajjp iHjEagiFÍB B s B X 1, —
l-l<- X öTgxlc IX [ie
RS S O r
eaa BB i> B 73 —
S i \ m m i i C 3
aa > <-^ HHJ- □
us [F|» * =** £-• 73 -T| a * ?
eis felÉö C- cT ■ 2 c z c: 2 2 s s -n Tn —
UÍ3 jö yi 2 C 3 -T ln
TnJÉ:* C~* x>' 2 21 X> FFF
Ni. ~~3[q b* V * ** ~
KROSSGÁTA