Tíminn - 01.04.1989, Síða 4
4 Tíminn
Laugardagur 1. apríl 1989
1 _jj
r ■ «nr j
Sigrún Magnúsdóttir
Létt spjall á laugardegi
Er sameiginlegt framboö stjórnarandstööunnar í borgarstjóm Reykja-
víkur vænlegur kostur 'í næstu borgarstjórnarkosningum sem veröa
vorið 1990?
Þetta og margt fleira munum við taka til umræöu á léttum spjallfundi
laugardaginn 1. apríl n.k.
Fundurinn verður haldinn í Nóatúni 21 og hefst kl. 10.30. Stefnt er aö
því aö fundinum sé lokið kl. 12.00.
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi mun á fundinum reifa þær hug-
myndir sem uppi hafa verið aö undanförnu um hugsanlegt sameigin-
legt framboö stjórnarandstöðuflokkanna í borgarstjórn Reykjavíkur.
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Reykjavík.
JonHelgason, Guðni Ágústsson, Unnur Stefansdottir,
alþingismaður alþingismaður varaþingmaður
Árlegur stjórnmálafundur og viötalstími þingmanna Framsóknar-
flokksins veröur haldinn aö Borg, Grímsnesi mánudaginn 3. apríl
n.k. kl. 21.00.
Aratungu föstudaginn 7. april kl. 21.00.
Allir velkomnir.
Fundarboðendur.
Árnesingar
Sunnlendingar
Framsóknarfélögin í Árnessýslu halda sína árlegu árshátíö síðasta
vetrardag 19. apríl í Hótel Selfoss.
Allir velkomnir. Nánar auglýst síöar.
Nefndin.
Suðurland
FUF I Árnessýslu
og Félag framsóknarkvenna í Árnessýslu áformar aö halda félags-
málanámskeiö í lok mars og í april. Um er aö ræöa byrjenda- og
framhaldsnámskeið. Námskeiöin eru öllum opin sem áhuga hafa.
Þátttaka tilkynnist sem fyrst til formanna félaganna.
Sigurðar Eyþórssonar í síma 34691
og Ólafíu Ingólfsdóttur í síma 63388.
FUF og FFÁ.
Páskahappdrætti SUF 1989
Útdráttur í Páskahappdrætti SUF er hafinn.
Vinningsnúmer eru sem hér segir:
20. mars, vinningur nr. 1, 5242
vinningur nr. 2, 3145
21. mars, vinningur nr. 3, 1995
vinningur nr. 4, 144
22. mars, vinningur nr. 5, 538
vinningur nr. 6, 7401
Vegna fjölda áskorana eru númerin fyrir dagana 23. til 26. mars í
innsigli hjá borgarfógeta til 5. apríl 1989.
Vinsamlegast gerið skil fyrir þann tíma.
Enn er tækifæri til að hljóta glæsilega vinninga.
Hvert rriiðanúmer gildir alla útdráttardagana þaö er 20. til 26. mars
1989.
Munið, ykkar stuöningur styrkir okkar starf.
SUF
Reykjanes
Skrifstofa Kjördæmissambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi er
opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 17 til 19. Sími 43222.
K.F.R.
Ol á útsölu
eftir helgi
Tíminn hafði spurnir af því í gær, að áfengisversiunin hefði
í hyggju að selja eina af þekktari tegundum innflutts bjórs á
útsöluverði eftir helgina. Ódýra ölið verður aðeins selt í
útsölunni nýju við Lyngháls, þar sem hið nýja ölhús
áfengisverslunarinnar hefur risið.
Áfengisversluninni mun hafa bor-
ist skeyti í gær frá framleiðanda, þar
sem varað var við sölu ölsins úr
ákveðinni sendingu vegna þess að
álitið var að ölið í einum framleiðslu-
tanki, þar sem mjöðurinn var látinn
gerjast hefði spillst. í gær vörðust
mcnn allra frétta af þessu tilviki, en
blaðið fékk þó upplýst, að kæmi á
daginn að ölið hefði skemmst hvað
bragð og áfengismagn snerti myndi
tiltekinn hluti sendingarinnar verða
seldur á niðursettu verði.
Blaðið bað fréttamann sinn í
Austurríki að kanna hvaða ástæður
liggja til grundvallar þeirri varúð,
sem hér er fyrirhugað að viðhafa
vegna sölu ölsins. Hann hringdi
síðan seint í gærkvöldi og sagði, að
slys það, sem framleiðendur bæru
fyrir sig væri ekki stórvægilegt.
í stuttu máli kvaðst hann hafa
fengið þær upplýsingar hjá blaðafull-
trúa fyrirtækisins, að nýlega hefðu
verið ráðnir þrír arabar sem m.a.
áttu að gæta tankanna, sem eru
opnir. „Þetta eru samviskusamir
menn,“ sagði blaðafúlltrúinn, „og
enginn þeirra vék frá tönkunum
enda ölið á viðkvæmu gerjunarstigi.
Það leiddi til þess að þeim gafst ekki
tækifæri til að ganga þarfinda sinna,
og gripu því til þess ráðs að kasta af
sér vatni í einn tankinn." Blaðafull-
trúinn sagði, að um leið og uppvíst
varð um þctta tilvik, sem ckki varð
þó fyrr en búið var að setja ölið á
dósir og senda það til Islands, hefði
kaupandi verið látinn vita.
Ekki er Ijóst hvort búið er að selja
eitthvað af þessum blönduðu birgð-
um nú þegar. En það sent eftir er af
sendingunni verður selt á niðursettu
verði eftir helgi eins og áður getur.
Blaðið sneri sér til landlæknisem-
bættisins og spurðist fyrir hvort
nokkuð illt hlytist af því að drekka
þetta blandaða öl. Þar var því
svarað, að þar á bæ vissu menn engin
dæmi um slíkt. Nýlegt tilvik vestur á
fjörðum benti hins vegar til þess, að
drykkju menn þvagblandað öl gæti
þeim orðið laus höndin, og væri það
ekki gott einkum ef hnífur væri í
hendinni. Hins vegar væri altsvo
ekkert vitað um hver styrkleikinn
væri hjá aröbum. enda heyrði slík
athugun ekki undir embættið.
Sjá frekari umfjöllun bls. 30.
■ É
R> Atr. | puini, a ii n'" f -
Þessir félagar og nokkrir fleiri hafa farið, fyrsta apríl, á hverju ári um langt skeið og veitt í Varmá. Þeir heita f.v.
Rúnar Sigurðsson, Sigurður Rósarsson og Rósar Eggertsson. Tímamynd:Pjetur
Vorveiðin hefst í dag
í dag, fyrsta apríl hefst vorveiði
stangaveiðimanna samkvæmt venju.
Tíminn hafði í tilefni þessa samband
við Hauk Haraldsson, en hann og
félagar fara árlega á þessum degi og
veiða í Þorleifslæk sem er nokkru
fyrir neðan Hveragerði.
„Við erum nú orðnir hálfgerð
antik þarna á bökkunum félagarnir.
En við höfum farið reglulega fyrsta
apríl á hverju ári frá því 1956,“ sagði
Haukur. Undanfarin ár hafa veiði-
skilyrði verið góð á þessunt tíma og
mikið hefur veiðst. I fyrra til dæmis
vciddu Haukur og félagar hans um
hundrað fiska á fimm stengur á
einum degi. „Frekar lítið vatn hefur
verið í læknum en þá getur maður
gengið að fisknum í stærri hyljunum.
Ölfusáin hefur líka verið á ís og þá
leitar fiskurinn frekar upp í Þorleifs-
lækinn. En það hafa heldur betur
skipast veður í lofti þessa síðustu
daga ognúerflóð þarna. Áinereinn
strengur og kolmórauð," sagði
Haukur.
Hann sagði sig og félagana engu
að síður ætla að fara og veiða en var
vantrúaður á að veiðin yrði mikil.
„Ég er nú frekar svartsýnn á þetta.'
Það er verst þegar maður Iendir í
svona vatnavöxtum. Mikið hefur
rignt undanfarna daga og veður
verið frekar hlýtt þannig að lítil
sakleysisleg á hefur heldur betur
tekið stakkaskiptum. En auðvitað
fer maður og athugar málið. Þetta er
venjulega mjög gjöfult veiðisvæði
og gaman að veiða þarna. En inn á
milli koma auðvitað ár sem maður
lendir í flóðunt og veiðist þá sáralítið
svo við erum frekar stúrnir núna en
lækurinn á eftir að jafna sig og við
förum aftur síðar," sagði Haukur.
Þeir fara venjulega með um sex
stengur saman og veiða einna helst
á rækju og flugu, svokallaða gula
„streamera". „Það er vont að fá
maðk um þetta leyti. Sumir ala að
vísu maðk og geyma hann en við
höfum helst verið með rækju og
flugu og spún. „Streamerarnir" gáf-
ust mjög vel," sagði Haukur.
Nokkuð mikil ásókn hefur verið í
veiðileyfi á þessum stað og færri
fengið en viljað. Leyfin eru seld hjá
Landssambandi veiðifélaga. Dagur
með eina stöng kostar rúmlega tólf
hundruð krónur. Mestmegnis veiðist
sjóbirtingur þarna en þó hefur einnig
nokkuð af laxi gengið upp ána.
Þegar mest hefur verið um laxinn
hafa veiðst allt að tvö hundruð laxar
á einu sumri. Fiskurinn hefur oft
verið vænn. allt upp í fimm pund þó
meirihlutinn sé auðvitað nálægt
pundinu. jkb