Tíminn - 13.05.1989, Blaðsíða 7
Laugardagi/p 13. maí lé89 ■''
y
valdi Jónssyni og þar kynntist ég
konu minni Ingu Rögnvaldsdóttur.
Við giftum okkur haustið 1944 og
bjuggum næstu tvö árin í Reykjavík
en fluttum eftir það hingað á Sauðár-
krók. Við eigum tvær dætur og eina
fósturdóttur. Elsa er dóttir Vil-
hjálms bróður míns óg kom til okkar
nokkurra klukkutíma gömul, en
móðir hennar lést við fæðinguna.
Hún er yngsta dóttir okkar og býr í
Reykjavík, starfar þar sem skrif-
stofustúlka. Sigríður er fædd 1947.
Hún býr í Laugarási ásamt manni
sínum Pétri Skarphéðinssyni iækni
og er kennari við grunnskólann í
Biskupstungum. Ragnheiður Sigríð-
ur er fædd 1953. Hún er matráðs-
kona við sjúkrahúsið á Sauðarkróki
og býr hér ásamt manni sínum,
Sigurði Frostasyni.
Ég hef verið svo lánsamur að
eignast góða fjölskyldu og góða
konu. Sjálfsagt er það mesta gæfa
hvers manns að eiga góða konu.“
Hvað með tómstundir?
„Tómstundir mínar hafa að
visu verið fáar, en þó nokkrar.
Frítíminn hefur mikið farið í félags-
störf, bæði í félögum hér á staðnum
og einnig í stjórnmálum. Þar fyrir
Guttormur Óskarsson.
utan hef ég lagt stund á hesta-
mennsku og lestur góðra bóka.
Ég átti löngum góða hesta. Tveir
eru mér minnisstæðastir og ég get
varla gert upp á milli þeirra. Ef til
vill er það álitamál hvor var meiri
gæðingur en annar þeirra er alveg
ógleymanlegur sakir fegurðar og
vitsmuna. Hestar hafa misjafna
skapgerð og misjafna greind alveg
eins og mennirnir. Lundarfar þeirra
er mjög breytilegt og þessi hestur
sem hét Gráni var svolítill prakkari.
Hann átti það til að vera óþjáll og
óþægur á meðan knapinn var að
koma sér í hnakkinn. í fyrstu sýndu
hann mér hrekki þegar ég var að fara
á bak en lagði það fljótlega niður.
Þá stóð Gráni kyrr
Það var einhverju sinni á góðri
stund að við nokkrir hestamenn
riðum heim frá Vindheimamelum.
Pá er við áðum að vanda við Staðar-
ána fataðist mér eitthvað að komast
á bak á Grána þegar ríða átti af stað
en þá stóð Gráni kyrr og hreyfði sig
ekki fyrr en ég hafði hagrætt mér í
hnakknum. Og aldrei var hann há-
reistari og ljúfari en þá er hann tók
kúrsinn það sem eftir var leiðarinnar
á Krókinn.
Eitt sinn var ágætur hestamaður
að hjálpa mér við að járna Grána.
Er við höfðum lokið verkinu spyr
hann mig hvort hann megi ekki taka
skeifnasprettinn úr honum. Það er
nú ekki nema sjálfsagt segi ég
honum. Hann vindur sér á bak en
hesturinn gerir sér lítið fyrir og
stingur sér leiftursnöggt. Og áður en
þessi vani hestamaður vissi af lá
hann á jörðinni. Honum þótti þetta
slæmt og hann reis á fætur og gerði
aðra tiiraun. í það skipti hreyfði
Gráni sig ekki.“
Kaupfélagið mun
enn hafa forystu
Það hefur teygst úr spjallinu hjá
okkur og Inga bíður í eldhúsinu með
kaffið. Talið berst að kaupfélaginu.
Guttormur horfir fram fyrir sig hugs-
andi, honum er annt um fyrirtækið
•sitt sem hann hefur unnið fyrir í tæp
fimmtíu ár. Hann hefur helgað líf
sitt þeirn hugsjónum og markmiðum
er standa honum næst.
„Þýðing kaupfélagsins bæði í sveit
og bæ blasir hvarvetna við. Það er
og verður félag allra sem trúa á mátt
þeirra sem vinna saman; þeirra
manna sem vinna í krafti samvinnu-
hugsjónarinnar sjálfum sér og öðr-'
um til hagsbóta. Enn sem fyrr mun
Kaupfélag Skagfirðinga hafa forystu
um að sameina krafta fólksins í
héraðinu fyrir hagsmunamálum sín-
um í verslunar- og atvinnumálum og
efla menningarlífhverrarsamtíðar."
^ ■***&«»
i ^Ölnö-'ab'8 ^
enni og Svenni ?
Strandgötu 14
735 Eski
S: 97-61399
Norræna
Ferðaskrifstofan
Laugavegi 3
101 Reykjavik
s. 91-62632
ttmm
Hefur þig aldrei dreymt um aö fara í hópferð undir traustri
fararstjórn um Norðurlöndin og Þýskaland?
Benni og Svenni á Eskifirði hafa undanfarin sumur farið slíkar
ferðir og bera umsagnir farþega best vitni um ágæti þessa
ferðamáta. )
Á Sumri komandi verður enn á ný stigið á skipsfjöl, um borð í
glæsiskipið Norröna, frá Seyðisfirði og stefnan tekin á
Færeyjar og að lokinni tveggja tíma viðdvöl þar til
Hanstholm í Danmörku. Um borð getur fólk ýmist tekið
lífinu með ró, hresst sig með heilnæmu sjávarlofti, legið
í sólbaði, notið góðs matarog drykkjar, dansað eða sofið,
eftir óskum hvers og eins.
Ferðin um meginlandið hefst í Hanstholm, Danmörku.
Ferð I. 01.15. júní 1989, Danmörk — Þýskaland — Noregurog
heim frá Bergen. 2 vikur.
Ferðll. 15. júní — 06. júlí 1989, Danmörk — Svíþjóð — Álandseyjar
— Finnland — Noregur og heim frá Bergen 3 vikur.
Ferð III. 10.—31. ágúst 1989, Danmörk — Þýskaland — Austurríki —
Sviss — Noregur og heim frá Bergen. 3 vikur.
Ferð IV. 27. júlí — 03. ágúst 1989, árleg Ólafsvökuferð til Færeyja. 1
vika.
Ferð V. 24.—31. ágúst 1989, árleg haustferð til Færeyja og nú
einnig til Shetlandseyja. 1 vika.
Hringdu eða líttu inn og fáðu upplýsingar um
þessar ferðir svo og aðrar ferðir Norröna. Við
fullyrðum að verðið hefur aldrei verið lægra.
HELGIN’ • ‘ 1' *1'7< * ♦
EB
BÚIÐ
AÐ
SKOBA
BÍUHB
mm
Síðasta tala
númersins segir
til um
skoðunarmánuðinn.
Láttu skoða í tíma
- öryggisins vegna!
BIFREIÐASKOÐUN
ÍSLANDS HF.
Hægt er að panta skoðunartíma,
pöntunarsími í Reykjavík er 672811.