Tíminn - 21.10.1989, Qupperneq 8

Tíminn - 21.10.1989, Qupperneq 8
tíma. Sú kynslóð bænda sem nú hokrar á eftir að líða undir lok. Við tekur fámenn kynslóð bænda sem býr á stórum og velreknum búum. Þessi þróun er þegar byrjuð. Hefð- bundnum búum fækkar því að enginn vill taka við búskap þar sem framleiðsluréttur er lítill og byggð er einangruð. Menn þurfa bara að bíða eftir að þessi þróun gangi yfir. Eins og ég sagði í upphafi er ég orðinn leiður á að ræða þessi mál við menn. Mér finnst að menn ræði þessi mál af allt of mikilli vanþekk- ingu. Þéttbýlisbúar vita ósköp lítið hvernig búskapur á íslandi er rek- inn í dag. Þetta er í sjálfu sér eðlilegt. Flestir hafa ekki haft önn- ur kynni af landbúnaði en þau að kaupa kjöt og mjólk úti í búð. Mér finnst að menn ættu að reyna að skoða málin í dálítið stærra sam- hengi en þeir hafa gert til þessa. Landbúnaðarmálin verða ekki leyst á einum degi. Að svo mæltu neita ég að ræða frekar um land- búnað fram yfir næstu mánaðamót. — Það var Litlanesfoss í Hengifossgili í Fljótsdal sem var á myndinnl í síðustu viku. Nú er spurt um jarð- göng. Jarðgöng á íslandi eru ekki mörg og því ætti ekki að vera erfitt fyrir fólk að þekkja þessi göng. r r - í O’ •ó7 j£ > r tr> F F Ö7 <. öv F □ — LT Ti O c. & 3> X F ■ r F F Ö* F ■ ■ !r?L F 70 <f co I 1 Z. s Q B sa — :z. aD >0 —3 70 7: R T’. C \T F cT 3> F — 7> a tn Jfl'A F Z 2. c F □ 73 > F a cn i 73 o □ 70 ■ c\ 3? 3> -d B B S D 5S F m F 3> o 7Ö H z F S □ ES B EJ ■ Co ■ F a ■ B B □B BB 1 B □ □ F oJj| T> F - a 3 75 F) - 7\ cn F 3>' 3 ■ r* r z. [c o F 3> 70 a m c F > z e £ C o> > 2 70 F \y> 2 2 1> X 121 r—■ s m rn £ KROSSGÁTA 18 fjp HELGIN Laugardagur 21. október 1989 TIMANS RAS Af EGILL ÓLAFSSON: umræðu um landbúnaðarmál Landbúnaðarmál hafa verið mjög í brennidepli upp á síðkastið og hafa reyndar verið það um langt skeið. Sífellt fleiri taka undir gagn- rýni sem í mörg undanfarin ár hefur verið sett fram á síðum DV. Ég er fyrir löngu orðinn hundleiður á því að ræða þessi mál. Ég reyni því oftast að láta fara lítið fyrir mér þegar menn fara ræða um landbún- að í fjölskylduboðum og sam- kvæmum af ýmsu tagi. Það getur þó verið erfitt að sitja á sér þegar fólk ræðir um þessi mál af full- komnu ábyrgðarleysi og vanþekk- ingu. Ég er oft þvingaður til að taka þátt í umræðunni vegna þess að menn vilja gjarnan fá álit sveita- mannsins. Menn segja oft að landbúnaðar- kerfið sé alveg kolómögulegt og að því þurfi að breyta til betri vegar. Því er svo gjarnan bætt við að Sambandið píni bændur og steli af þeim aurum og að stjórnmála- mennimir sem stjórni landbúnað- armálunum séu vitlausir. Það er auðvitað mjög erfitt fyrir mig að ræða þessi mál á þessum nótum og því reyni ég oft að skipta um umræðuefni. Alltaf þegar ég neyðist til að ræða um þessa hluti fer ég í varnarstöðu. Maður verður nátt- úrulega að verja þetta kerfi þrátt fyrir að ég viðurkenni fyrstur manna að margt mætti betur fara í landbúnaðarmálunum. Ég beiti yfirleitt þeirri tækni að spyrja við- mælanda minn hvernig hann vilji haga þessum málum. Margir reyna að skjóta sér undan spurningunni með því halda áfram að skammast út í Sambandið og Jón Helgason. Þeir sem reyna að svara spurning- unni segja að næst á eftir því að leggja niður Sambandið eigi að leggja niður búskap þar sem sé óarðbært að stunda hann. Stunda eigi kúabúskap á Suðurlandi, í Borgarfirði og í Eyjafirði. Fjárbú eigi að vera stór og aðeins þar sem graslendi sé nóg og enginn hætta sé á ofbeit. Aðalatriði sé að hafa búin stór, hagkvæm og vel í sveit sett. Ég get auðvitað ekki annað en samþykkt að svona sé best að hafa það. En þá bendi ég á að það sé ekki einfalt mál að koma þessu í kring. Eigum við að flytja fólk þar sem það býr á sínum útkjálkum og setja það niður einhvers annars staðar? Hver ætlar að taka að sér að ákveða hvaða bú eigi að ieggja niður og hvaða bú eigi að lifa? Hvað á að gera við öll húsin og allar fjárfestingarnar á jörðunum sem lagðar verða í eyði? Við þessum spurningum yppta menn öxlum og segja bara að þetta verði að gerast. Ég minni menn þá á að á sínum tíma reyndi Stalín gamli að koma almennilegu skipulagi á landbúnaðinn í Sovét og skipaði mönnum að yfirgefa jarðir sínar og vinna á samyrkjubúum. Menn eru almennt nokkuð sammála um að það hafi verið nokkuð harkaleg aðgerð að rífa menn upp með rótum með þessum hætti. Þegar búið er að ræða málin á þessum nótum um hríð segja menn gjarnan að það sé nauðsynleg að auka frjálsræði í landbúnaðarmál- unum því þetta ofskipulag sé eng- um til góðs. Þá brosi ég því að ég veit að það er eitthvað bogið við röksemdafærslu hjá fólki sem bæði vill aukna stjómun og aukið skipu- tag Ég viðurkenni þó að það þurfi að reyna að auka frjálsræði í land- búnaðarmálunum þó að ég viti satt að segja ekki hvernig eigi að fara að bví. Ég held þó að þessi mál eigi eftir að leysast að sjálfu sér með tíð og GETTU NÚ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.