Tíminn - 09.01.1991, Blaðsíða 3
Notaö & nýtt / TÍMIN N
NOTAÐ & NYTT
Smáauglýsingablaðið Notað og
nýtt hóf göngu sína þann 7.
febrúar síðastliðinn og hefur
komið út einu sinni í viku frá
þeim tíma. Hugmyndin sem
blaðið byggir á er sú að einstak-
lingar geta fengið birtar smá-
auglýsingar í blaðinu án endur-
gjalds en það er síðan selt í
lausasölu og áskrift til að
standa undir kostnaði við út-
gáfuna.Hugmyndin eða réttara
sagt framkvæmd hennar er
þegar orðin nokkura ára gömul
alla veganna í því formi sem
Notað og nýtt byggir á. Fyrsta
blaðið sem vitað er um að hafi
byggt afkomu sína eingöngu á
ókeypis smáauglýsingum er
blaðið Buy / Sell sem gefið er út
í Vancouver í Kanada. Blaðið
hóf göngu sína árið 1971 og
verður því tvítugt á þessu ári.
Buy / Sell stækkaði hratt og
hugmyndin fór á flakk. Sams-
konar blöð spruttu upp víðar í
Kanada og í Bandaríkjunum en
það liðu meir en 10 ár þangað
til Evrópubúar tóku við sér.
Frændur okkar Danir riðu á
vaðið og stofnuðu Den Blaa Av-
is árið 1980. Mikill fjöldi íslend-
inga þekkir blaðið af eigin raun
og vita að það er orðið að veiga-
miklum þætti í lífi almennings
í Danaveldi. Den Blaa Avis er
oftast 90 til 100 síður að stærð
og selst í meira en 100.000 þús-
und eintökum í viku hverri. Á
síöustu tíu árum hafa síðan
Síðustu forvöð til að skila inn auglýsingu
Sunnudagskvöld kl.12 á miðnætti
bæst við mörg smáauglýsinga-
blöð á ári hverju út um alla
Evrópu og hafa þau áunniö sér
miklar vinsældir vegna góðrar
þjónustu við lesendur sína. Það
var varla komin glufa í Berlín-
armúrinn þegar fyrstu smáaug-
lýsingablöðin skutu upp kollin-
um í handan Járntjaldsins. í
Austur-Þýskalandi náðu Berlín-
arblaðið Zweite Hand (Second
hand) og Such und find (leitið
og finnið) sem gefið er út í
Norður-Þýskalandi fljótlega
undirtökum á markaðnum. {
Póllandi blómstrar smáauglýs-
ingablaðið Kontakt og hjálpar
til við að koma fótum undir
bágborið efnahagsástand þjóð-
arinnar. Fyrir tæpum fimm ár-
um tóku nokkur smáauglýs-
ingablaðanna sig til og bundust
samtökum um að gefa lesend-
um sínum kost á að auglýsa
ókeypis í blöðum hvers annars
óháð landamærum og vega-
lengdum. Þetta hefur mælst vel
fyrir og í dag berast tugir þús-
unda af smáauglýsingum landa
í millum í viku hverri. Skiptir
þá ekki máli hvort sendandinn
er í Sao Páló og lesandinn
Gdansk eða öfugt, skilaboðin
komast jafn auðveldlega leiðar
sinnar og milli Keflavíkur og
Kjalarnes. Að sjálfsögðu byggj-
ast gæði þjónustunnar upp á
því að blaðið seljist vel og komi
fyrir augu sem flestra. Grund-
völlur rekstursins verður að
vera vel tryggður ef að þessi frá-
bæra þjónusta á að vera mögu-
leg. Til að tryggja örugga út-
komu og betri dreifingu hefur
verið gripið til þess ráðs að
sameina útgáfu Notaðs og nýs
dagblaðinu Tímanum og vænta
allir aðilar sér mikils af samein-
ingunni. Það kann að þykja fá-
ránlegt að selja blað með ein-
tómum augiýsingum en reynsl-
an sýnir að fólk metur hagnað-
inn af því að geta auglýst ókeyp-
is hærra en kostnaðinn við að
fjárfesta í eintaki af blaðinu. Sú
staðreynd að fólk kaupir blað
eins og Notað og nýtt til að lesa
auglýsingarnar ætti að vera
hvatning fyrir fyrirtæki til að
auglýsa í blaðinu. Virknin er
ótrúlega góð eins og dæmin
sanna. Fyrir þá sem eru áskrif-
endur að Tímanum er samein-
ing blaðanna mikill hvalreki því
að þeir fá blaðið sér að kostnað-
arlausu borið út með miðviku-
dagsblaði Tímans. Með því er
öll þjónusta okkar, viðkomandi
að kostnaðarlausu. Við getum
með góðri samvisku skrifað
ókeypis með stórum stöfum
þegar við kynnum starfsemi
okkar og þjónustu. Starfsfólk
og útgefendur Notaðs og nýs og
Tímans vænta ánægjuiegra
samskipta við lesendur sína á
nýju ári.