Tíminn - 08.02.1991, Page 9
8 Tíminn
Föstudagur 8. febrúar 1991
Föstudagur 8. febrúar 1991
Tíminn 9
Textar þeirra 10 laga sem keppa til úrslita í söngvakeppni Sjónvarpsins Eurovision að þessu sinni:
Annað kvöld, laugardagskvöld, verður
í sjóvarpinu lokakepnnin hér heima til
hinnar árlegu Eurovision söngva-
keppni. Þar mun það ráðast hvaða lag
verður framlag okkar til aðalkeppninn-
ar sem að þessu sinni verður haldin á
Ítalíu.
Alls bárust Sjónvarpinu 117 lög að
þessu sinni. Dómnefnd skipuð 5 ein-
staklingum, öllum úr innsta hring ís-
lenskrar dægurtónlistar, valdi síðan 10
lög sem nú keppa til úrslita. Það verður
síðan hlutverk dómnefnda, sem sitja í
öllum kjördæmum landsins, að velja
eitt lag til að keppa fyrir okkar hönd
ytra. Við sjónvarpsútsendinguna annað
kvöld munu fulltrúar ‘91 á stöðinni
leggja málinu lið. Dagskráin verður
send út samtímis á Rás 2. Sérstök
hljómsveit sér um flutning laganna
sem Vilhjálmur Guðjónsson stjórnar.
Hljómsveitina skipar John Kjell Selje-
seth, Gunnlaugur Briem, Jóhann Ás-
mundsson, Þórður Árnason, Kristinn
Svavarssorí, Einar B. Bragason og Ás-
geir H. Steingrímsson. Bakraddir
syngja Erna Þórarinsdóttir, Eva Ásrún
Albertsdóttir, Kristján Gíslason og
Ragnar Davíðsson.
Nöfnum laga- og textahöfunda verður
haldið leyndum allt þar til útslit verða
ljós. Tíminn birtir hér alla textana í
keppninni, en Sjónvarpið lét blaðinu þá
íté.
í dag
Það er leikur einn að láta sig dreyma
og vilja lifa og sjá
allt sem hugur í heimi girnist
og er ekki hægt að fá.
Sumir fortíðina dýrka,
aðrir fórna sinni sál,
því framtíðin er orðin
þeirra hjartans mál.
Söngva getum við sungið
og í sömu andrá er
allur heimur falur fyrir litla borgun,
Leitaðu ekki lengra
því lífið bíður hér
í dag, í dag, ekki á morgun.
Nú er tími til að breyta og bæta,
og við bregðum á leik.
Sumir fara villu vegar
eða vaða reyk.
Kannski gefst þér tækifæri
til að gera öllu skil
og í góðu tóm ’að njóta
þess að vera til.
Söngva getum við sungið
og við segjum þér:
Leitaðu ekki lengra
lífið bíður hér!
Söngva getum við sungið
og í sömu andrá er
allur heimur falur fyrir litla borgun.
Leitaðu ekki lengra,
því lífið bíður hér
í dag, í dag, ekki á morgun
í dag, í dag
í dag bíður lífið þín hér - ekki á morg-
un.
Lagið í dag syngja Helga Möller, Erna
Þórarinsdóttir, Arnar Freyr Gunnars-
son og Kristján Gíslason. Helga Möller
er gamalreynd sem söngkona og ef til
minnist fólk hennar í ICY flokknum
sem söng Gleðibankann, fyrsta framlag
íslands til Eurovision keppninnar árið
1986. Á undan hafði hún meðal annars
sungið með dúettinum Þú og ég. Erna
Þóarinsdóttir hefur ekki verið áberandi
í íslenskri dægurtónlist hin síðari ár en
fyrr á árum söng hún með Brunaliðinu
og eins þríeykinu Erna, Eva, Erna. Arn-
ar Freyr Gunnarsson hefur starfað með
nokkrum hljómsveitum en nafn hans
varð fyrst þekkt þegar hann sigraði svo-
nefnda Látúnsbarkakeppni Stuðmanna
árið 1989. Kristján Gíslason er Skag-
firðingur og hefur starfað með hljóm-
sveitinni Styrmingu, en höfuðpaur
hennar er Hörður G. Ólafsson, sá er
samdi Eitt lag enn er var framlag okkar
til aðalkepnninnar sem haldin var í
Júgóslavíu í fyrra
Draumur um Nínu
Núna ertu hjá mér, Nína
Strýkur mér um vangann, Nína
Ó haltu í hendina á mér, Nína
því þú veist að ég mun aldrei aftur
Ég mun aldrei aldrei aftur
Aldrei aftur eiga stund með þér.
Það er sárt að sakna, einhvers
Lífið heldur áfram, til hvers
Ég vil ekki vakna, frá þér
Því ég veit að þú munt aldrei aftur
Þú munt aldrei aftur aftur
Aldrei aftur strjúka vanga minn.
Þegar þú í draumnum mínum birtist
allt er Ijúft og gott
Og ég vildi ég gæti sofið heila öld
Því nóttin veitir aðeins skamma stund
með þér
Er ég vakna. Nína þú ert ekki lengur
hér
Opna augun. Enginn stýkur blítt um
vanga mér.
Dagurinn er eilífð, án þín
Kvöldið kalt og tómlegt, án þín
Er nóttin kemur fer ég, til þín
Því ég veit að þú munt
vera hjá mér, halda fast
í hendina á mér, Nína þú munt strjúka
vanga minn
Þegarþú í draumum mínum birtist allt
er Ijúftog gott
og ég vildi geta sofið heila öld
Því nóttin veitir aðeins skamma stund
með þér
Er ég vakna. Nína þú ert ekki lengur
hér
opna augun Enginn strýkur blítt um
vanga mér
Lagið Draumur um Nínu flytja þeir
Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Krist-
jánsson. Þeir hafa áður tekið þátt í þess-
ari keppni. Er þess skemmst að minnast
að árið 1988 fór Stefán til írlands og
söng lag Sverris Stormskers, Þú og
þeir, framlag íslands það árið. Eyjólfur
Kristjánsson hefur oft komið við sögu í
söngvakeppni Sjónvarpsins og einnig í
Landslagskeppninni á Stöð 2 þar sem
hann söng sigurlagið í fyrra, Álfheiði
Björk.
Stjama
Ég lít upp til himins sé þar stjörnu
skína skært
í leit að friði, í leit að mannsins náð.
í stríðandi heimi getur myrkrið hulið
sál
sem hrein af illsku er vondum dýrmæt
bráð.
Stjarna lýsir mönnum veginn
framhjá stríði, dauða og sorg
stjaman kallar, ég mun fegin
fylgja henni, í leit að borg,
friðarborg.
Ég horfi á barnið sofa vöggu sinni í
ég bíð og vona, það hamingju fá.
Hann stækkar og þroskast, hann mun
ganga grýtta braut.
í hörðum heimi, hann mun þar margt
illt sjá
Hatur, græðgi, illar raddir
læsast um það miskunarlaust
kom þú stjarna sem mig gladdir
gefþú barni framtíðarlausn,
framtíðarlausn.
í lífsins ölduróti, þar barnið af lífi og
sál
mun loks að landi komast, að landi
friðar og kærleik á jörð.
Ég lít upp til himins, ég sé stjörnu-
bjart
an heim.
Jóhanna Linnet sem syngur lagið
Stjarna hefur áður tekið þátt í söngva-
keppni Sjónvarpsins. Þó hefur hún ein-
beitt sér að klassískum söng og getið
sér gott orð á þeim vettvangi.
í leit að þér
Koma tímar koma ráða
kennir máltækið.
í aðra ást ég hef ei spáð
þú ert ástin fyrir mig.
Ég vil gefa þér
þá ást sem býr í hjarta mér
skrýtna kennd ég finn
hún gagntekur mig í hvert sinn
er ég hugsa um þig.
Ég vil gefa þér
þá ást sem...
Það er Rut Reginalds sem syngur lagið
í leit að þér. Hún byrjaði að syngja barn
að aldri en dró sig síðar í hlé. Hún kom
aftur fram á sjónvarsviðið fyrir all-
nokkru og tekur nú fyrsta sinn þátt í
söngvakeppni Sjónvarpsins.
Mér þykir rétt að þú
fáir að vita það
Ég get ekki að því gert
er geng ég framhjá þér,
Það er svo undravert,
ég alveg hjá mér fer
og ef þú bara tækir eftir mér
og vissir allt um ást mína á þér
já aðeins þér
Ég veit ei hvort þú veist
hve vel ég kann við þig
þín Ijúfu augu leyst
úr læðing’ hafa mig,
en ef þú bara tækir nú eftir mér
og vissir allt um ást mína á þér
Mér þykir rétt að þú fáir að vita það
að ég ég-þrái þig
með undarlegri unaðskennd og hita
þú æsir mig.
Ekkert í því ég skil,
engan annan ég vil
efþú litir bar’ á mig örlítið andartak
yrði allt svo gott.
Það varla er þó von
þú viljir lít’á mig
sem ligg hér lon og don
og læt mig dreym ’ um þig þú bara tæk
ir nú eftir mér
og vissir allt um ást mína á þér
Mér þykir rétt að þú fáir að vita það
að ég þrái
þig
með undarlegri unaðskennd og hita
þú æsir mig.
Og ef þú bara tækir lítið andarta eftir
mér,
ég vildi gjaman vita hvort ég á dálitla
von hjá þér.
Ekkert í því ég skil
engan annan ég vil,
ef þú litir bar’ á mig örlítið andartak
yrði allt svo gott
Ójá, þá yrði allt svo gott,
þá yrði allt svo gott,
svo gott.
Jóhanna Linnet, sem hefúr aðallega getið sér orð fýrir kiassískan söng, syngur lagið
Stjama.
Sigrún Eva Áimannsdóttir og Jóhannes Eiðsson dreymin á svip í laginu Lengi lifi lífið.
Á fullri ferð
Það hefur flest hundrað sinnum gerst
og heimurinn er yíirleitt á þá lund
Við fetum því gömul fótspor í,
förum langt á skammri stund.
Við sjáum enn sömu myndirnar
og syngjum dátt, ef við heyrum lög og
Ijóð,
sem áður fyrr alla heilluðu
Eru þau þá gild og góð.
Víða liggja vegamót
Veröldin er gerð
út á hraða og hér er
allt á fullri ferð
Við lítum á Ijósu hliðamar
og leggjum til að allt fái annan brag,
svo okkar leið áfram verði greið.
Allir sjá að nú er lag.
Sigríður Guðnadóttir er ekki gamal- ma U ja ó{
reynd í songnum, en ferill hennar hófst Veröidi„er aerð
þegar hún sigraði í söngkeppni í sjón- útá ðraða L ðér er
varpsþætti Hemma Gunn á síðasta ári. aUt ^ fuuri ferð
Það er gaman að gleyma sér alveg
og gefa sig draumum á vald
Víða liggja vegamót
Veröldin er gerð
út á hraða og hér er
allt á fullri ferð
Láttu engan letja þig
lífið sem þú sérð
er og verður oftast nær
allt á fullri ferð
Víða liggja vegamót
Veröldin er gerð
út á hraða og hér er
allt á fullri ferð.
Lagið syngja þær Sigríður Guðnadótt-
ur og Áslaug Fjóla Magnúsdóttir. Sig-
ríður er kynnt hér að ofan en Áslaug hóf
sinn söngferil með sigri í söngkeppni í
sjónvarpsþætti Hemma Gunn. Það var
árið 1989.
í einlægni
Hvert, hvert sem ég fer um heim
hvar sem ég fer þú finnur mig
Hvað, hvað sem ég legg mig fram
hvað sem ér geri snertir þig.
Hugur minn getur ekki hætt að hugsa
um þig
í hjarta mér leita ég stöðugt að leið-
inni
til þín
Ég fór þér frá
þráði heiminn að sjá
stærstu mistök mín
og nú get ég ekki lifað hér án þín
íbamslegri einlægni
ég óska þess eins af þér
að þú fyrirgefir mér.
Hlustaðu á minn söng
sem hljómar frá hjarta þér
ég vil vera nærri þér.
Hví, hví fór ég svo að
hvers vegna fór ég burt frá þér?
Hugur minn getur ekki hætt að hugsa
um þig
íhjarta mér leita ég stöðugt að leið
inni til þín
Ég fór þér frá
þráði heiminn að sjá
stærstu mistök mín og nú get ég ekki
lifað hér án þín
í bamslegri einlægni
ég óska þess eins af þér
að þú fyrirgefir mér
Hlustaðu á minn söng
sem hljómar frá hjarta mér
ég vil vera nærri þér
í bamslegri einlægni
ég óska þess eins af þér
að þú fyrirgefir mér.
Því nú get ég ekki lifað hér án þín
fvar Jóhann Halldórsson syngur Iagið
í einlægni. Honum skaut fyrst upp á
stjörnuhimin dægurtónlistarinnar þeg-
ar hann tók þátt í Landslagskeppninni.
Að öðru leyti er hann næsta óskrifað
blað á þessum vettvangi.
í fyrsta sinn
Hann: Þú fórst í fiýti burt
ég fann þig ekki lengur hér
Hún: Ég vildi vera frjáls
og vita hvemig lífþað er
Hann: Mig rak í rogastans
en reyndi samt að skilja það
Hún: Ég man þá myrku nótt
og morgunsár á nýjum stað
Hann: Samt sem áður var ég vinur þinn
Bæði: og vorið kemur nú í fyrsta sinn
með undrun, þrá og eftirsjá
Hér endurtekur sagan sig
Hann: Eitt lítið leyndarmál
sem lifir meðan annað deyr
Hún: Við eigum ennþá draum
sem á að rætast síðar meir
Hann: Ég mun alltaf verða vinur þinn
Bæði: og vorið kemur enn í fyrsta sinn
með undrun, þrá og eftirsjá
Hér endurtekur sagan sig
Hún:Án þín er lífmitt ekki til neins.
Hvers vegna?
Hann: Dagur og nótt virðast mér eins
Hvers vegna?
Hún: Vertu hjá mér, láttu mig sjá
að ég er ætluð þér!
Hann: Ég mun alltafverða vinur þinn
Bæði: og vorið kemur enn áný í fyrsta
sinn.
með undrun, þrá og eftirsjá.
Hér endurtekur sagan sig
-Ég elska þig
Rut Reginalds og Ingvar Grétarsson
syngja þetta lag. Ingvar er Akureyringur
og hefur starfað með hljómsveitum
nyrðra, hann hefur ekki tekið þátt í
söngvakeppni Sjónvarpsins áður. Rut er
kynnt hér að ofan.
Stefnumót
/ langþráð ferðalag ég fór einn dag
til að finna mark og mið.
Mér von í brjósti bjó, ei vissi ég þó
hvað í vændum var, skráð í stjöm-
umar.
En fögur fyrirheit - það ég nú veit- mér
fylgdu á langri leið
Ég vildi heiminn allan sjá, hamingjuna
fá sem hlaut að bíða mín.
Því kynleg ævintýraþrá kallaði mig á
að koma beint til sín.
Um löndin víð og breið lá mín leið
í leit að kyrrð og ró.
Sá margan fagran stað, en svo fann ég
að straumur fór um mig er ég hitti þig.
Sem lítil eilífð var, án merkingar
okkar eina stefnumót.
Við áttum saman stað og stund,
stuttan ástarfund sem brátt að garði
bar.
Við áttum saman stað og stund,
heitan ástarfund sem helgur okkur var.
Við áttum saman stað og stund
tuttan ástarfund sem brátt að garði
bar.
Við áttum saman stað og stund,
heitan ástarfund sem helgur okkur var.
Kristján Gíslason syngur þetta lag og
er hann kynntur hér að ofan.
Lengi lifi lífið
Lítill neisti varð að báli
með lifnaði allt að nýju
þú gafst allt, það sem skipti máli
þína ást, bros þitt og hlýju
því vil ég segja þér.
Þín ást, hún er mér allt
og hana vil ég efa
til baka þúsundfalt
já lengi lifi lífið
þín ást, hún er mér allt
í vöku og draumi
er vindar blása kalt
já, lengi lifi lífið
Þegar ég er burtu frá þér
er sérhvert nótt sem eilífð án þín
í brjósti bifast von, ég gef hana ekki frá
mér
og ég bið að þú komir aftur til mín
því mátt vita að.
Þín ást, hún er mér allt
og hana vil ég gefa
til baka þúsundfalt
já, lengi lifi lífið
þín ást, hún er mér allt
í vöku og í draumi
er vindar blása kalt
já, lengi lifi lífið
Þín ást hún er mér allt
og hana vil ég gefa
til baka þúsundfalt
já, lengi lifi lífið.
Sigrún Eva Ármannsdóttir og Jóhann-
es Eiðsson syngja lagið Lengi lifi lífið.
Þau teljast bæði til nýjustu stjarnanna í
íslenskri dægurtónlist. Þau tóku bæði
þátt í Landslagskeppni Stöðvar 2 í fyrra.
Sigrún syngur nú með hljómsveitinni
Upplyftingu og Jóhannes með íslensk-
um aðli.
-sbs.