Tíminn - 08.02.1991, Side 14
14 Tíminn
Föstu'dágúr 8. februar 1991
WffEI MINNING
Sigurbjörg Pálsdóttir
Fædd 9. febrúar 1928
Dáin 28. janúar 1991
Hún Dilla er dáin. Þannig bárust
okkur á Suðurgötu 5 tíðindin um lát
Sigurbjargar Pálsdóttur. Svona er
lífið. Þrátt fyrir góðar óskir og bæn-
ir okkar sem stóðum Dillu næst þá
fór hún frá okkur þann 28. janúar
síðastliðinn. Farin til Guðs, eins og
Helga, þriggja ára dótturdóttir
hennar, komst að orði. Lát Sigur-
bjargar bar brátt að. Þótt hún hafi
átt við langvarandi veikindi að stríða
gaf aðgerð, sem hún gekkst undir
fyrir fimm árum, okkur góðar vonir
um varanlegan bata henni til handa.
En enginn má sköpum renna.
Sigurbjörg Pálsdóttir fæddist í
Keflavík 9. febrúar 1928, dóttir
hjónanna Ingileifar Ingimundar-
dóttur húsmóður, fædd 9. septem-
ber 1901, dáin 24. september 1962,
og Jóns Páls Friðmundssonar mál-
arameistara, fæddur 17. október
1903, dáinn 16. janúar 1986. Þeim
hjónum varð tveggja barna auðið,
systir Sigurbjargar er Þorbjörg
Hólmfríður, fædd 1. júní 1934. Sig-
urbjörg var borin og barnfædd að
LEKUR
BLOKKIN?
Suðurgötu 5 í Keflavík, en þar héldu
foreldrar hennar heimili alla tíð.
Sigurbjörg mótaðist af þeim góða
anda sem ríkti ætíð á heimili þeirra
hjóna. Skyldurækni og heiðarleiki
voru meðal þeirra eiginleika sem
þar voru í hávegum hafðir en þó var
glettni og góðlátlegt grín haft uppi á
góðum stundum. Lífsbaráttan var
hörð og vinnudagurinn langur, en
þó gafst tími til andlegra iðkana, s.s.
söngs og bókalesturs.
Að loknu barnaskólanámi í Kefla-
vík gekk Sigurbjörg til náms í Versl-
unarskóla fslands og lauk þaðan
prófi 1947. Leiðin á menntabraut-
inni var ekki jafngreiðfær þá og nú á
tímum námslána og endurgjalds-
lausrar menntunar. Það var því mik-
ið átak að setja fólk til mennta, eins
og það var kallað. Hugur Sigur-
bjargar stóð til frekara náms en efni
og aðstæður leyfðu það ekki.
Þáttaskil verða í lífi Sigurbjargar
þegar hún stígur það gæfuspor að
ganga að eiga eftirlifandi eiginmann
sinn, Þorberg Friðriksson málara-
meistara og forstjóra, þann 16. maí
1948. Þorbergur nam iðn sína hjá
SPRUNGIÐ?
föður Sigurbjargar, Jóni Páli. Bú-
skap sinn hófu þau á Túngötu 17 í
Keflavík hjá foreldrum Þorbergs, en
I reistu sér síðan hús að Sunnubraut
18 sem varð þeirra framtíðarheimili.
Jafnræði var með þeim hjónum,
samvinna þeirra og samheldni var
einstök, þannig að saman fóru þau
má segja allt, hvort sem um var að
ræða ferðalag umhverfis jörðina eða
innkaupaferð út í næstu búð. í erfið-
um veikindum Sigurbjargar sýndi
Þorbergur sérstaka umhyggju og
æðruleysi. Staðfesti það enn hversu
náið og traust samband þeirra hjóna
var.
Börn þeirra Þorbergs og Sigur-
bjargar eru: Jón Páll, flugvirki,
fæddur 1948, kona hans er Sigur-
björg Lárusdóttir sjúkraliði. Jón Páll
á son, Guðmund Liljar, móðir hans
er Ragnheiður Sigurðardóttir. Jón
Páll gekk fimm bömum Sigurbjarg-
ar í föðurstað, þau em: Láms, Vil-
hjálmur, Kristján, Emelía og Jósep
Vilhjálmsbörn. Jón Páll og Sigur-
björg ala upp Magnús Pál sem er
sonur Emelíu Vilhjálmsdóttur. Frið-
rik, málarameistari, fæddur 1949,
kona hans er Hrafnhildur Hrafn-
kelsdóttir verslunarmaður. Synir
Friðriks em: Þorbergur, móðir hans
er Hrönn Hauksdóttir, og Benjamín
Valgeir, móðir hans er Sigríður
Kristmundsdóttir. Friðrik gekk syni
Hrafnhildar, Daða Júlíusi Agnars-
syni, í föðurstað. Þómnn María,
póstafgreiðslumaður, fædd 1959,
hennar maður er Jón Halldórsson
skipasmiður og eiga þau hjónin
tvær dætur, Sigurbjörgu og Helgu.
Sigurbjörg og Þorbergur hafa alið
upp Þorberg sonarson sinn sem sinn
eigin son.
Eftirsóknarvert var að vera í návist-
um við Dillu, af henni geislaði glað-
lyndi og lífsgleði sem smitaði út frá
sér. f minningunni em margar
skemmtilegar og áhugaverðar sam-
. verustundir. Hún var viðræðugóð
og vel heima í dægurmálum sem og
bókmenntum og listum. Er málefni
kvenna bar á góma hélt Dilla ákveð-
ið fram málstað þeirra og talaði þá
tæpitungulaust. Félagsmál lét hún
mjög til sín taka. Sigurbjörg var
virkur félagi í Kvenfélagi Keflavíkur
og ritari þess félags í fjöldamörg ár.
Hún var einn af stofnendum Lion-
essuklúbbs Keflavíkur og um skeið
formaður hans. í félagsstarfi Sigur-
bjargar kom það henni vel hversu
auðvelt hún átti með að flytja mál
sitt með þeim skörungsskap að eftir
var tekið.
Fjölskyldan á Sunnubraut 18 var
samhent og Sigurbjörg var mið-
punktur hennar. Við á Suðurgöt-
unni töldum okkur til fjölskyldunn-
ar og systurnar Þorbjörg og Sigur-
björg voru óvenju samrýmdar. Þær
hittust nánast daglega og stundum
oft á dag. Missir Þorbjargar er því
mikill þegar hún sér nú á bak ekki
aðeins systur sinni, heldur og sínum
besta vini.
Mikil eftirsjá er að Sigurbjörgu.
Sorgin er þung hjá börnum, barna-
börnum, vinum og kunningjum
hennar. En mest þó hjá Þorbergi
sem misst hefur eiginkonu sína og
vin. Við vonum að Guð gefi þeim
huggun og styrki þau í sorg þeirra.
Við hjónin þökkum samfylgdina.
Vertu sæl, elsku systir og mágkona.
Þorbjörg Pálsdóttir og
Eyjólfur Eysteinsson
Að kvöldi hins 28. janúar síðastlið-
ins yfirgaf Sigurbjörg Pálsdóttir
þennan heim. Eftir baráttu við erf-
ið veikindi fékk ástkær frænka okk-
ar hvfid. Sorgin er mikil við fráfall
hennar en við bræðurnir erum
vissir um að frænku okkar hafi á
sinni ævi tekist það sem hlýtur að
vera eitt af hlutverkum lífs okkar
mannanna, að auðsýna og útbreiða
kærleika og manngæsku.
í Dillu frænku áttu systursynir
hennar svo sannarlega hauk í
horni. Frá fyrstu árunum og fram á
fullorðinsaldur var það Dilla
frænka sem sá um litlu ungana í
hvert skipti sem systir hennar
þurfti að bregða sér af bæ. Hvort
sem um var að ræða lengri eða
styttri ferðir dvöldumst við bræð-
urnir í góðu yfirlæti á Sunnubraut
18 undir handleiðslu Dillu frænku.
Fylgdist frænka okkar með vegferð
okkar í gegnum lífið og skóla-
göngu sem værum við hennar eig-
in synir. Var það jafnvel á þann veg
að foreldrar okkar töluðu stundum
í gríni um að Dilla ofdekraði
frændur sína. Þessi umhyggja fyrir
ungu fólki var þó ekki bundin
skyldmennum einum saman, því
börnin á Sunnubrautinni voru au-
fúsugestir hjá þeim Þorbergi og
Dillu. Dilla frænka var gjafmild
kona hvort sem um var að ræða
veraldleg gæði eða manngæsku.
Þótt Dilla sé farin þá mun hún lifa
í minningu allra þeirra sem hana
þekktu og elskuðu. Minningarbrot
þau sem Dilla kallar fram í hugann,
hvort sem um er að ræða minning-
ar um skemmtilegt ferðalag til út-
landa saman eða hversdagslega
heimsókn á Suðurgötu 5, einkenn-
ast af lífsgleði og léttlyndi.
Það er því með þungan trega í
hjarta sem við bræðurnir kveðjum
frænku okkar hinstu kveðju. Við
vottum þeim sem henni stóðu
næst, systur hennar, börnum,
barnabörnum og Þorbergi, einlæg-
ar og djúpar samúðarkveðjur.
Eysteinn og Jón Páll Eyjólfssynir
Viögeröir á öllum heddum og blokkum.
Plönum hedd og blokkir — rennum ventla.
Eigum oft skiptihedd í ýmsar geröir bifreiöa.
Viöhald og viögeröir á iönaöarvélum — járnsmíði.
Vélsmiðja Hauks B. Guðjónssonar
Súðarvogi 34, Kænuvogsmegin—Sími 84110
ER HEDDIÐ
Borgnesingar—
Nærsveitir
Félagsvist
Spiluð verður félagsvist I Félagsbae föstudaginn 8. febrúar kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Borgamess.
Guðmundur Valgerður Jóhannes Geir
Hörgárdalur
Dalvík — Nærsveitir
Almennir stjórnmálafundir verða haldnir sem hér segir:
Melum, Hörgárdal laugardaginn 9. febrúar kl. 14.
Sæluhúsinu, Dalvlk sunnudaginn 10. febrúarkl. 15.
Allir velkomnir.
Framsóknarfíokkurínn.
Reykjanes
Skrtfstofa kjördaemasambandslns að Hamraborg 5, Kópavogi, er opin
mánudaga til fimmtudaga kl. 17-19. Slmi 43222.
K.F.R.
Norðurlandskjördæmi
eystra
Skrifstofa Kjördæmissambands framsóknarmanna I Noröuriandskjör-
dæmi eystra verður opin alla virka daga frá 11. febrúar nk„ kl. 16-18, að
Hafnarstræti 90, Akureyri, slmi 21180.
Suðurland
Skrifstofa Kjördæmasambandsins á Eyrarvegi 15, Selfossi, er opin á
þriöjudögum og fimmtudögum kl. 15.00-17.00. Slminn er 22547.
Félagar eru hvattir til að llta inn.
K.S.F.S.
Kópavogur
Skrifstofa Framsóknarfélaganna I Kópavogi er opin á mánudags- og mið-
vikudagsmorgnum kl. 9-12. Slmi 41590.
Stjóm fulttrúaráðs
Kópavogur
Opiö hús að Hamraborg 5 alla laugardaga kl. 10-12. Heitt á könnunni.
FuUtmaréðU
Framkvæmdastjóm SUF
Fundur verður haldinn I framkvæmdastjóm SUF þriðjudaginn 12. febrúar
kl. 20.00 að Hafnarstræti 20, Reykjavlk.
Jón Helgason
GuðniÁgústsson Unnur Stefánsdóttir
Flóamenn
Áriegir stjómmálafundir og viðtalstlmar verða haldnir á:
Þingborg. Þriðjudaginn 12. feb. kl. 21.
Þjórsárver. Miðvikudaginn 13. feb. kl. 21.
Félagslundur. Fimmtudaginn i14. feb. kl. 21.
Keflavík -
Opin skrifstofa
Félagsheimili framsóknarmanna að Hafnargötu 62 er opið alla virka daga
milli kl. 17 og 18.
Starfsmaöur framsóknarfélaganna, Guöbjörg, veröur á staðnum.
Slml 92-11070.
Framsóknarfélögin.
Borgnesingar-
Bæjarmálefni
I vetur verður opið hús á mánudagskvöldum frá kl. 20.30-22.30 á skrifstofu
Framsóknarflokksins aö Brákarbraut 1.
Bæjarfulltrúar flokksins I Borgamesl verða á staðnum og heittá könn-
unni.
Allir sem vilja fýlgjast með og hafa áhrif á málefni Borgarnes-bæjar eru
velkomnir.
Framsóknarfélag Borgamess.
HaBdór Ásgrimsson Jón Kristjánsson
Almennir stjómmálafundir
-Austfirðir
Halldór Ásgrlmsson, Jón Kristjánsson og Karen Erta Eriingsdóttir mæta á
almennum stjómmálafundum um helgina sem hér segir:
I Valhöll á Fáskrúðsfirðl föstudaginn 8. febr. kl. 20.30.
I bamaskólanum á Stöðvarfirði, laugardaginn 9. febrúar kl. 16.00.
Á Hótel Bláfelli, Brelðdalsvfk, sunnudaginn 10. febrúar kl. 16.00.
I félagsmiöstöðinni, Djúpavogi, sunnudaginn 10. febrúar kl. 20.30.
Fundimir eru öllum opnir.
Fundarboðendur.
Norðurland vestra
Skrifstofa Einherja, kjördæmisblaös framsóknarmanna, hefur verið flutt frá
Sauöárkróki á heimili ritstjóra að Ökrum i Fljótum.
Hægt er að ná I ritstjóra alla daga I slma 96-71060 og 96-71054.
KF.N.V.
Siv.
Nú blótum viö þorrann I Norðurijósasal Þórskaffis laugardaginn 9. febrúar.
Velslustjóri verður Sfv Friðleifsdóttir og hátiðarræðu ftytur Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttír.
Minni karta og kvenna verður að sjálfsögðu á slnum stað ásamt ýmsum
óvæntum uppákomum.
Verð kr. 3500 og húsið opnar kl. 19.30.
Miöapantanir og nánari upplýsingar fást I slma 624480 hjá Þórunni eða
Önnu.
Þorra-
blót-
Reykja-
vík