Tíminn - 02.11.1991, Blaðsíða 10

Tíminn - 02.11.1991, Blaðsíða 10
10 Tíminn Laugardagur 2. nóvember 1991 ARNAÐ HEILLA Sólveig Eyjólfsdóttir áttræð f dag er merkisafmæli að Miðleiti 7 í Reykjavík. Það er Sólveig húsmóðir sem nú fyllir áttunda tug æviára. Ég ætla að litainn til hennarafþví tilefni. Það kem- ur þó ekki með því tunglinu að ég drepi á dyr hjá Sólveigu og eiginmanni hennar, Eysteini Jónssyni. í hálfa öld hefur heim- ili þeirra góðu hjóna staðið mér opið. Og hlýjar minningar einar eru bundnar komum mínum og lengri eða skemmri viðdvöl í þeim ranni. Sólveig Eyjólfsdóttir er fædd í Reykjavík 2. nóvember 1911. Foreldrar hennar voru hjónin Eyjólfur Jónsson múrari og Þorbjörg Mensaldursdóttir. Var hún ætt- uð úr Austur-Skaftafellssýslu, hann er úr vestursýslunni að móður, en faðir Eyjólfs átti kyn hér syðra. Æskuheimili Sólveigar var að Berg- staðastræti 46. Hún átti sín uppvaxtarár í Skólavörðuholtinu og gekk í Miðbæjar- bamaskólann. Þar voru mætir skóla- menn að störfum, Morten Hansen skóla- stjóri, Helgi Hjörvar kennari og fleiri og fleiri. Sólveig var tápmikill unglingur og fór snemma að finna fyrir sér. Ýmis störf komu til greina í bænum á vetrum og á sumrin réðst hún kaupakona austur í Rangárvallasýslu. Leiklistin heillaði Sól- veigu. Hún fór í leiklistarskóla Haraldar Bjömssonar og hóf að leika hjá Leikfé- lagi Reykjavíkur. Þótt sá ferill yrði ekki langur fór hún með allmörg hlutverk, smá og stór, hið síðasta 1938. Mun henni hafa farist það vel úr hendi. En örlögin (get ekki orðað það öðruvísi) tóku í taumana og fengu henni nýtt hlutverk og nú á „stóra" sviðinu. Sagt er að lífið fari stundum krókaleið- ir. En það á einnig til að falla í fastmótað- an farveg með miklum straumþunga. Tvítug giftist Sólveig, Eysteini Jónssyni, þann 20. febrúar 1932. Hann hafði þá þegar haslað sér völl í eldlínu íslenskra stjómmála og átti þaðan ekki aftur- kvæmt um sinn. Hann var kosinn al- þingismaður 1933 og skipaður fjármála- ráðherra árið eftir. Og gafst ekki upp í fjörutíu ár, „hart líf en aldrei Ieiðinlegt“, eins og hann komst sjálfur að orði á eft- irminnilegri kveðjustund á Alþingi 1974. — Hin straumþunga og síkvika röst landsmálanna hreif ekki aðeins með sér einstaklinginn Eystein Jónsson heldur og heimili hans, næstum eins og það lagði sig til að byrja með. Ungu hjónin hófu búskap í leiguhús- næði að Ásvallagötu 5. En tveimur árum seinna fluttu þau í eigið hús, nr. 67 við sömu götu. Frá fyrsta degi voru sex manns í heimili Sólveigar og Eysteins, auk þeirra aldraðir foreldrar hans, séra Jón Finnsson og frú Sigríður Hansína Beck og tvær fósturdætur þeirra. En þau voru þá nýlega flutt í bæinn austan af Djúpavogi þar sem séra Jón hafði verið þjónandi prestur í fjörutíu ár. Gömlu hjónin dvöldust hjá syni sínum og tengdadóttur síðustu æviárin, en ungu stúlkumar fóru að eiga með sig sjálfar þegar þar að kom. Nýtt fólk leit dagsins Ijós, en böm Sólveigar og Eysteins eru sex. Heimili þeirra var því allfjölmennt fyrstu áratugina og alveg frá byrjun. Um skeið hafði Sólveig hjálparstúlku og varð vel til hjóna, eins og segir um vistráðn- ingar til foma. Hlutverk húsfreyjunnar að Ásvallagötu 67 var nokkuð sérstætt og í reynd marg- slungið. Annars vegar voru hin hefð- bundnu húsmóðurstörf, uppeldi bama í víðustu merkingu, húshald, saumaskap- ur og matseld, allt leyst af höndum af fullri alúð, atorku og myndarskap. Við bættist síðan allt það er leiddi af þrot- lausu starfi húsbóndans á vettvangi þjóð- málanna, beint og óbeint. — ,Allan okk- ar búskap hefur hún orðið að sjá um heimilið nálega að öllu leyti, vinna venjuleg húsbóndastörf auk heimilis- verkanna," sagði Eysteinn Jónsson um hlutverk konu sinnar í samtali við Val- geir Sigurðsson fyrir allmörgum ámm. Og bætti við: „Þetta má skoða sem fram- lag hennar til þjóðmálabaráttunnar." Það var orð að sönnu, eins og kunnugir vita mætavel. Án þessa „framlags“ hefði Eysteinn ekki getað einbeitt sér í stjóm- málunum eins og raun bar vitni. En það var vissulega þýðingarmikið fyrir mál- stað samherjanna og framvindu íslenskr- ar sögu á örlagatímum. Sólveig gerði gott betur en bæta á sig húsbóndastörfunum hjá venjulegri ís- lenskri fjölskyldu. Heimilið, sem hún stóð fyrir, varð frá upphafi og um langt árabil einskonar pólítískt hreiður þar sem samherjar úr flokki og úr kjördæmi Eysteins sérstaklega hittust og réðu ráð- um sínum, þótt hinir formlegu fundir væru haldnir í stærra húsnæði. Hversu oft skyldi Sólveig líka hafa svarað í sí- mann þegar við hringdum félagamir — og allir hinir — að spyrja um mann hennan alþingismanninn, ráðherrann og flokksforingjann? Því getur enginn svarað, en ég er þess fullviss að hressileg andsvör hennar hvert eitt sinn sem hún svaraði í síma vom síður en svo þýðing- arlaus fyrir þann sameiginlega málstað sem maður hennar var í forsvari fyrir. Og MINNING *"T? ■!£ 'ý" \ ,1 Unnur Tryggvadóttir Fædd 18.júní 1921 Dáln 26. október 1991 Þú andi lífsins, alheims mikla sál, orku mér gef að flgtja hjartans mál, leiðsögn mér veittu, helga sólar sýn, sannleiks að fínni veginn upp til þín. (Valdimar Jónsson frá Hemru) Söngfélagi okkar og vinur, Unnur Tryggvadóttir, er látin. Nú kemur hún ekki lengur á æfingar eða í ferðalög með okkur í þessum heimi. Við viss- um sum hver að hún hafði fengið „hjartaaðvörun", en að hún yrði svo brátt kölluð frá okkur óraði okkur ekki fyrir, hún sem var svo kát og hress fyr- ir stuttu. Nú er stórt skarð í altröddinni og það skarð verður vandfyllt, því Unnur var einn af þeim félögum sem mynduðu þann sterka kjama er hefur haldið Söngfélagi Skaftfellinga starfandi í nærri 20 ár. Unnur var Önfirðingur, en hún var gift öðlingnum Bimi Sigurðs- syni frá Hvammi í Skaftártungu. Bjöm lést fyrir rúmum 5 ámm. Björn söng einnig með Söngfélaginu í mörg ár og var meðal annars formaður þess á þeim tíma er félagið gaf út plötuna ,J4ín sveitin kær“. Að vera formaður á þeim tíma er plötuútgáfa stendur yfir er tímafrekt starf. Það leysti Bjöm af hendi með einstakri prýði og víst er að heimili þeirra hjóna var langan tíma undirlagt af því sem fylgir plötuút- gáfú, og allt fram á síðasta ár geymdi Unnur plötur fyrir kórinn. Sá brennandi áhugi, sem þau Björn og Unnur höfðu á starfi Söngfélagsins, smitaði dætur þeirra og hafa þær sett svip sinn á starf kórsins nú hin síðustu ár, og starfað þar af sama krafti og samviskusemi og foreldrar þeirra. Unnur var ákveðin kona og hafði sína meiningu á hlutunum. Afstaða hennar var alltaf hrein og bein. Með slfku fólki er gott að starfa. Þá var samviskusemi hennar einstök, t.d. hélt hún alla tíð mætingaskrá yfir altröddina. Við félagar hennar í Söngfélaginu þökkum henni fyrir samfylgdina og samstarfið í gegnum árin. Hennar verður sárt saknað. Við vottum Möggu, Sigríði, Hönnu og fjölskyldum þeirra, Önnu systur og öðmm ættingjum okkar innilegustu samúð. Guð styrki ykkur í sorg ykkar. Þér frjálst er að sjá hve ég bólið mér bjó ef bömin mín smáu þú lætur í ró. Þú manst að þau eiga sér móður. Og ef að þau lifa þau sgngja þér söng um sumarið blíða og vorkvöldin löng. Þú gerir það, vinur minn góður. (Þorsteinn Erlingsson) Félagar í Söngfélagi Skaftfellinga Magnús Steinar Ágústsson Fæddur 5. ágúst 1967 Dáinn 14. september 1991 Ég veit eitt hljóð svo heljar þungt, sem hugans orku lamar. Með helstaf lýstur hjartað ungt, og hrœddþað tungan stamar. Það dauðaklukku geymir glym og gnýr sem margra hafa brim, þau dómsorð sár með sorgarym: Þið sjáist aldrei framar. (Stgr. Th.) Það hefur löngum verið í frásögur fært þegar þau náttúruundur gerast að blíð- viðri breytist á andartaki í fárviðri, og æði oft eiga einhverjir um sárt að binda er því slotar. Á nýliðnum haustdögum, þegar hæglát golan svifaði föllnu laufi, brast á stórviðri hér í byggðarlaginu. Þar misstu hjónin í Brekku son sinn. Og hver vill ekki hjálpa þegar vandræði ber að höndum? Hvað er til ráða? Enginn fær neinu um þokað og í úrræðaleysi sínu reikar hugurinn víða. Auga hug- skotsins nemur staðar við ungbörn aö leik — dreng og stúlku sem una tilver- unni vel, í hæglátu dundi sínu, og þá gat maður verið að „spyrja og spá, hvar spor þeirra lægi yfir heiminn". Þetta er löngu liðin tíð, en bæði þessi böm hafa lotið sínum örlögum. Eitt ofviðrið færði drenginn til grafar og nú sneið það grein af stúlkunni, húsmóðurinni í Brekku. Áfram mun lífið halda, strítt og blítt að vanda. Hve fegin vildum við, sem álengd- ar stöndum, ekki geta linað kvöl foreldr- anna og annarra sem um sárt eiga að binda, en það nær skammt. Ég og mín fjölskylda öll kveðjum Stein- ar með orðum skáldsins: Dæm svo mildan dauða Drottinn þínu bami. Eins og léttu laufi lyfti blær frá hjami. Eins og lítill lækur, ijúki sínu hjali, þarsem lygn í leyni liggur marinn svali. (M. Joch.) Sigurbjartur Guöjónsson ekki ætti ég að gleyma gistinóttum aust- anmanna. Þær urðu stundum nokkuð margar hjá sumum og fylgdi fæði og öll aðhlynning. Auk alls þess lagði Sólveig flokksstarfi framsóknarmanna allt það lið er hún mátti. Mér hefur á seinni árum sýnst að pólit- íski þátturinn f ævistarfi húsfreyjunnar að Ásvallagötu 67 hafi hlotið að reynast henni þungur í skauti. En Sólveig sagði sjálf í það eina skipti, sem ég vissi til að hún svaraði spumingum blaðamanns (Valgeirs Sigurðssonar): „Nei, mér fannst það aldrei neitt sérstaklega erfitt. Ég leit alltaf á það sem sjálfsagðan hlut að þetta væri svona. Auk þess hef ég aldr- ei þekkt neitt annað, ég var svo ung þeg- ar við Eysteinn giftumst...“ Þetta er vafalaust satt og rétt. En ég held nú samt að æði oft hafi reynt á kjark Sólveigar, útsjónarsemi hennar og at- orku, í því margslungna hlutverki sem lífið sjálft færði henni í fang þegar á unga aldri. Og eitt var að vinna verkin frá degi til dags, ár frá ári, annað að taka þeim grófu árásum sem eiginmaður hennar sætti framan af árum. En þegar farið var út í þá sálma, sagði Sólveig blátt áfram: „Sú brynja, sem ég smíðaði mér þegar í upphafi, hefur dugað mér ágætlega. Þetta hefði verið margfalt erfiðara ef ég hefði tamið mér að vera alltaf að hugsa og tala um það sem misjafnt var sagt og skrifað um Eystein. En auk þess hefði það ekki verið hollt, því þá hefði vel get- að farið svo að mér hefði orðið illa við pólitíska andstæðinga hans, en það er engri manneskju hollt að bera óvildar- hug til annarra." Þeir, sem lengi lifa, muna tímana tvenna. Það fækkaði í heimili að Ásvalla- götu 67, þegar bömin komust á legg og fóru að búa. Hin pólitísku umsvif tóku á sig nokkuð breytta mynd þegar árin liöu og úr þeim dró fyrir alvöru þegar Ey- steinn lét af þingmennsku, þá hálfsjö- tugur. Hér myndaðist þó ekkert tóma- rúm. Tengsl vð fjölskyldu og annað fólk, áhugamá! mörg og stór, komu í veg fyrir það. En nú gafst þeim rýmri tími að lesa góða bók. Og Sólveig gat líka varið fleiri stundum til hannyrða sem hún hefur ætíð haft yndi af og líklega aldrei lagt al- veg á hilluna, þrátt fyrir annríkið fyrr- um. Það er nú alltaf einu sinni svona með annríkið að skynsamt fólk finnur alltaf einhverjar stundir fyrir sig og fjöl- skyldur sínar og þannig var því háttað hjá Sólveigu og Eysteini. Þau kunnu að meta slíkar stundir og nýta þær inni á heimilinu, við útiveru og í örfáum kynn- isferðum til annarra landa. Það þekki ég vel. Sólveig og Eysteinn færðu sig um set í minna og hægara húsnæði í Miðleiti 7 um áramótin 1984-85 og hafa búið þar síðan. Og nú þegar Sólveig fyllir áttunda tuginn er skammt til 85 ára afmælis bónda hennar. Börn þeirra sex eru búsett innan seilingar, Sigríður og Finnur í Reykjavík, Ólöf og Þorbergur í Kópavogi og Eyjólfur og Jón í Keflavík. Og það eru komin til sögu bamaböm og barna- bamaböm. Sjálfkrafa og að réttu lögmáli náttúrunnar verður heimili hinna öldnu hjóna áfram einskonar miðdepill ættar- samfélagsins. Það hugsa margir hlýtt til Sólveigar og Eysteins á þessum tímamótum. Ég hlýt að þakka þeim sameiginlega alla elsku- semi í minn garð og minnar fjölskyldu, því gestrisni þeirra og góðvildar hafa sannarlega fleiri notið úr þeim hópi en ég einn. Kynni við Sólveigu Eyjólfsdóttur eru í senn hlý og uppörvandi, því enga mann- eskju veit ég ólíklegri til að draga kjark úr viðmælendum sínum og slæva dáð þeirra. Og það verður vart þakkað sem ber að eiga þess kost að hitta þau fyrir, Sólveigu og Eystein. sívökul sem fyrr og brennandi í andanum. Við gömlu hjónin á Brekku, Margrét mín og ég, sendum Sólveigu hugheilar ámaðaróskir á hennar áttugasta afmæl- isdegi. Manni hennar og fjölskyldu allri sendum við alúðar kveðjur. Vilhjálmur Hjálmarsson xKvöld-, nætur- og helgldagavarsla apó- teka I Reykjavlk 1. til 7. nóvember or I Laugames-apótekl og Árbæjarapótekl. Það apótek sem fyrr er nefnt annast eitt vörsl- una frá kl. 22.00 aö kvöldi til kl. 9.00 að morgni vlrka daga en kl. 22.00 á sunnudög- um. Upplýsingar um læknis- og lyfjaþjón- ustu eru gefnar I sima 18888. Neyðarvakt Tannlæknafilags Islands er starfrækt um helgar og á stórhátiðum. Slm- svari 681041. Hafnarljörður: Hafnarijarðar apótek og Norð- urbaejar apólek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laug- ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00- 12.00. Upplýsingar i simsvara nr. 51600. Akureyrl: Akureyrar apótek og Stjömu apótek eru opin virka daga á opnunartima búða. Apó- tekin skiptast á sina vikuna hvort að sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er opið I því apóteki sem sér um þessa vörslu, til kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00- 12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum timum er lyfja- fræðingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar i síma 22445. Apótek Keflavíkur: Opið virka daga frá k. 9.00-19.00. Laugardaga, helgidaga og al- menna frídaga kl. 10.00-12.00. Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl. 8.00-18.00. Lokað i hádeginu milli kl. 12.30- 14.00. Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á laugardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00. Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga til kl. 18.30. Opið er á laugardögum kl. 10.00- 13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00. Garðabæn Apótekið er opið rúmhelga daga kl. 9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00. Alnæmisvandlnn. Samtök áhugafólks um alnæmisvandann vilja styðja smitaða og sjúka og aöstandendur þeina, slmi 28586. Læknavakt fyrir Reykjavfk, Seltjamames og Kópavog er í Heilsuvemdarstöð Reykjavikur alla virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugar- dögum og helgidögum allan sólarhringinn. Á Seltjamamesl er læknavakt á kvöidin kl. 20.00-21.00 oglaugard. kl. 10.00-11.00. Lokaðá sunnudögum. Vitjanabeiðnir, simaráðleggingar og timapantanir i sima 21230. Borgarspítalinn vakt frá kl. 08-17 alla virka daga fyrir fólk sem ekki hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (simi 696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysa- deild) sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sól- arhringinn (sími 81200). Nánari upplýsingar um lyflabúðir og læknaþjónustu enjgefnar í sím- svara 18888. Ónæmlsaögerðlr fyrir fullorðna gegn mænusótt fara fram á Heilsuvemdarstöð Reykjavikur á þriðjudögum kt. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér ónæmisskirteini. Garðabær: Heilsugæslustöðin Garðaflöt 16-18 er opin 8.00-17.00, simi 656066. Læknavakt er I síma 51100. Hafnarfjöröun Heilsugæsla Hafnarfjarðar, Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00- 17.00, simi 53722. Læknavakt sími 51100. Kópavogun Heilsugæslan er opin 8.00-18.00 virka daga. Sími 40400. Keflavik: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á Heilsugæslustöð Suðumesja. Simi: 14000. Sálræn vandamál: Sálfræðistöðin: Ráðgjöf I sálftæðilegum efnum. Simi 687075. Landspítalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til kl. 20.00. Kvennadeildin: kl. 19.30-20.00. Sængurkvennadeild: Alla daga vikunnar kl. 15-16. Heimsóknartimi fyrir feður kl. 19.30- 20.30. Barnaspítali Hringsins: Kl. 13-19 alla daga. Öldrunariækningadeild Landspítal- ans Hátúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomu- lagi. - Landakotsspitali: Alla virka kl. 15 til kl. 16 og kl. 18.30 til 19.00. Barnadeild 16-17. Heimsóknartimi annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. - Borgarspitalinn i Fossvogi: Mánu- daga til föstudaga kl. 18.30 til 19.30 og eftir samkomulagi. Á laugardögum og sunnudögum kl. 15-18. Hafnarbúöir: Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvita- bandið, hjúkrunardeild: Heimsóknartími frjáls alla daga. Grensásdeild: Mánudaga ti föstu- daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnudaga kl. 14-19.30. - Heilsuvemdarstöðin: Kl. 14 til kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavikur: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspitali: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19.30. - Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á helgidögum. - Vífilsstaðaspítali: Heim- sóknartími daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - SL Jósepsspitall Hafnarfirði: Alla daga kl. 15-16 00 19-19.30. Sunnuhlíð hjúknjnarheimili i Kópavogi: Heim- sóknartimi kl. 14-20 og eftir samkomulagi. Sjúkrahús Keflavikuriæknishéraðs og heilsugæslustöðvar: Vaktþjónusta allan sólar- hringinn. Simi 14000. Keflavik-sjúkrahúsið: Heimsóknartimi virka daga kl. 18.30-19.30. Um helgar og á hátíðum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00-19.30. Akureyrl - sjúkrahúsið: Heim- sóknartími alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00- 20.00. Á barnadeild og hjúkcunardeild aldraðra Sel 1: Kl. 14.00-19.00. Slysavarðsstofusimi frá kl. 22.00- 8.00, slmi 22209. Sjúkrahús Akra- ness: Heimsóknartími Sjúkrahúss Akraness er alla daga kl. 15.30- 16.00 og kl. 19.00-19.30. Slökkvilið - Lögregla Reykjavík: Neyðarsími lögreglunnar er 11166 og 000. Seltjamames: Lögreglan simi 611166, slökkviliö og sjúkrabifreið simi 11100. Kópavogur: Lögreglan sími 41200, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100. Hafnarfjörður: Lögreglan sími 51166, slökkvi- lið og sjúkrabifreiö simi 51100. Keflavík: Lögreglan slmi 15500, slökkvilið og sjúkrabill simi 12222, sjúkrahús 14000, 11401 og 11138. Vestmanneyjar: Lögreglan, sími 11666, slökkviliö simi 12222 og sjúkrahúsiö simi 11955. Akureyrí: Lögreglan simar 23222, 23223 og 23224, slökkvilið og sjúkrabifreið simi 22222. Isafjörður: Lögreglan simi 4222, slökkvilið simi 3300, bnjnasimi og sjúkrabifreið simi 3333.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.