Tíminn - 13.03.1992, Blaðsíða 9
Föstudagur 13. mars 1992
Tíminn 9
Varla er hægt aö segja aö þau feöginin séu glaöleg. Eina manneskjan íþessum hópi, sem viröist nálg-
ast þaö aö kunna að brosa, er Maria Maples.
Donald
Trump
í fylgd
tveggja
Ijóska í
fyrirsætu-
samkeppni
Donald Trump mætti með tvær
uppstrílaðar dömur sér við hlið
þegar Elite-keppnin um útlit árs-
ins var haldin í New York á haust-
dögum. 58 fyrirsætur frá öllum
heimshomum tóku þátt í keppn-
inni þar sem 150.000 dollarar
voru í boði sem verðlaun.
Keppnin fór fram í danssal Plaza-
hótelsins, sem er í eigu Donalds,
og klæddust gestirnir hátíðar-
klæðnaði. Þeir gáfu fyrirsætunum
lítið eftir í klæðaburði og þótti eft-
irtektarvert að Ivanka litla virðist
hafa svipaðan fatasmekk og
mamma hennar. En ekki er hægt
að segja að blessað bamið sé glað-
legt. Kannski hefur henni bara
ógnað öll dýrðinl
Margar frægustu fyrirsætur
heims voru áhorfendur að keppn-
inni, svo og tennisstjarnan Monica
Seles. Sigurvegari varð Ingrid
Seynhaeve og bíður hennar nú
áreiðanlega skjótur frami í þessu
eftirsótta starfi.
Ivanka litla Trump þykir hafa sama fatasmekk og móöir hennar.
Kjóllinn er gylltur eins og allt sem fylgir honum.
Joan Collins
skálar í
kampavíni
Leikkonan Joan Collins er bresk að uppruna,
en hefur um langt skeið gert garðinn frægan
vestur í Ameríku. Mesta frægð hefur hún get-
ið sér fyrir hlutverk glæfrakvendisins Alexis í
sjónvarpsþáttunum Ættarveldið, en nú hefur
hún snúið sér að öðrum verkefnum.
Joan hefur að undanförnu unnið glæstan sig-
ur á sviði í hlutverki Amöndu í leikriti Noéls
Coward, Private Lives. Sýningin sló upphaflega
í gegn í London, en er nú komin á Broadway
eftir tveggja mánaða flakk um Bandaríkin. Joan
hefur því fulla ástæðu til að skála í kampavíni
þessa dagana. *
Hún Joan Collins hefur svo sannarlega ástæöu til aö
skála I kampavlni þessa dagana, og kann fljótlega aö-
ferö til aö fylla sem flest glös í einu.
Ivana og Riccardo voru aöalstjömurnar á óperuballinu I Prag, enda
átti Ivana mestan þátt I þvl aö koma þvl á laggirnar.
Ivana Trump í
essinu sínu á
æskuslóðum
Ekki alls fyrir löngu heimsótti Iv-
ana Trump æskuslóðir sínar í
Tékkóslóvakíu. Að hluta til var
heimsóknin þangað til að sýna
vininum, Riccardo Mazzuchelli,
Prag, sem Ivana segir rómantfsk-
ustu borg veraldar, og að öðrum
hluta til að taka þátt í óperudans-
leiknum mikla sem haldinn var í
Smetana- leikhúsinu.
Þetta var fyrsta glæsiballið, sem
haldið hefur verið í Tékkóslóvakíu
síðan 44 ára valdaseta kommúnista
hófst, og Ivana var potturinn og
pannan í því að koma því á laggirn-
ar. Ivana segist eiga ljúfar endur-
minningar frá bernskuárunum í
Prag nema þar sem kommúnista-
yfirvöldin komu við sögu. Föður-
systir hennar hafði verið svo ósvíf-
in að stinga af til Vesturlanda og
varð fjölskyldan að gjalda þess.
Pabbi Ivönu, bráðgáfaður raf-
magnsverkfræðingur, fékk þannig
aldrei stöðuhækkun, þó að hann
hefði átt það margfaldlega skilið.
Og hún átti sjálf í mestu erfiðleik-
um með að komast í skíðalandslið-
ið, þó að hún hafi verið ein besta
skíðakona Tékkóslóvakíu. Enda
beið hún ekki boðanna, þegar hún
komst loks út lýrir landamærin og
settist að í Ameríku, þar sem hún
hefur gert það gott.
Sem frægt er orðið, giftist hún
peningamanninum Donald TVump
og átti með honum 3 börn áður en
hann asnaðist til að halda framhjá
henni með þeim afleiðingum að
hann varð að greiða henni stórfé
við skilnaðinn. En Ivönu hefur
vegnað vel eftir að hún varð ein á
báti og hefur ávaxtað sitt pund.
Enda segir nýi kærastinn að hún sé
alveg frábær, fyrsta flokks móðir,
fjármálamanneskja og skíðakonal