Tíminn - 16.05.1992, Qupperneq 7

Tíminn - 16.05.1992, Qupperneq 7
Laugardagur 16. maí 1992 Tíminn 7 Einar Þorgeirsson skrúögaröameistari og Heiörún Guömunds- dóttir garöyrkjufræö- ingur gefa lesendum Tímans góö ráö viö meöhöndlun plantna, gróðursetningu og al- menna garövinnu: vatni yfir blómin þegar þau eru sett niður og síðan ekki meir. Þá eru það margir sem setja sumar- blóm í kassa á svalir eða í ker og þá er nauðsynlegt að göt séu á botninum, til að fyrirbyggja að plönturnar drukkni þegar miklar rigningar eru. Fjölærar plöntur Á markaðnum er fjöldi fjölaerra jurta sem hægt er að raða saman í beð þannig að alltaf eru einhverj- ar í blóma, allt sumarið, bæði há- vaxnar og lágvaxnar tegundir. Lágvöxnu tegundirnar byrja yfir- ieitt fyrr að vorinu og má þar nefna blóm eins og vetrarblóm, júlíulykil, Laufeyjarlykil og fl. sem blómgast í apríl-maí. Þá má nefna hávaxnar síðsumarstegundir eins og skjaldmeyjarblóm og kúluþist- il. Tré og runnar Það er ekkert því til fyrirstöðu nú að fara að gróðursetja tré og runna og þau næturfrost sem hafa verið undanfarið minnka ekki þá möguleika sem plönturnar hafa til að vaxa og dafna, þar sem ekkert frost er í jarðveginum. Mikið úr- val er af trjám og runnum. Einar Þorgeirsson segir að þegar fólk er að hugsa um að planta trjám og runnum, þá sé það frumskilyrði að búið sé að skipuleggja garðinn og búið sé að ákveða og leggja niður fyrir sig plöntutegundir, stærð þeirra og staðsetningu. Það er því nauðsynlegt, þegar skipu- leggja á framtíðargarð, með til- heyrandi trjám og öðrum gróðri, að leita til landslagsarkitekts. Það kostar kannski einhverja peninga, en það skilar sér í glæsilegri garði. Það þarf einnig að hugsa um nýtingu garðsins. Húsið og garðurinn þurfa að vera í réttum tengslum, en það er lítil ánægja í Heiðrún Guðmundsdóttir garðyrkjufræðingur heldur hér á tveimur fjöl- ærum plöntum, t. v. sifjalykill, sem er gulur og Mörtulykill, sem er lilla- blár. Báðar eru þær snemmblómstrandi. hvort nota eigi það í skjólbelti, hvort það eigi að standa eitt stakt o.s.frv. Sé verið að bæta nýjum trjám í eldri garða, er nauðsyn- legt að skipta um jarðveg á allt að 60 sm dýpi, blanda áburði saman við hann og þá húsdýraáburði. Einnig er gott að setja húsdýra- áburðinn neðst í holuna eða beð- ið áður en tréð eða runninn er settur niður. Það er staðreynd að tré og runn- ar sem fá nógan áburð og eru í al- mennilegum jarðvegi verða síður fyrir barðinu á lús og maðki og öruggt er að plantan verður mjög falleg. Þessi sníkjudýr ráðast frek- ar á og valda meiri skaða á plönt- um sem eru ekki í góðu næring- arjafnvægi vegna þess að trjá- plönturnar leggja meiri orku í vöxt en varnarefni þegar illa árar. Stærri tré þarf að staga vandlega niður svo ekki sé hreyfing á rót- inni meðan þau er að festa sig. Ef það er ekki gert slitna fínu ræt- urnar í hvert skipti sem tréð hreyfist í vindi og tréð nær aldrei að róta sig. Ekki er sama hvar legt er að láta úða þá. Það er ekki Þess virði að taka áhættuna og úða ekki, því garðurinn verður ekki mikið augnayndi ef allt er morandi í lús og maðki og allar plöntur eru sundurétnar. Grasflötin Eitt stærsta vandamálið í grón- um görðum er mosinn illræmdi. Mosinn vex við lágt hitastig og byrjar að vaxa fyrr en grasið á vorin og myndar þannig einangr- andi lag yfir grasrótina og hindr- ar að hitageislunin frá sólinni nái í grassvörðinn og tefur á þann hátt fyrir því að grasflötin grænki. Ein aðferðin í baráttunni við mosann er sú að á vorin er best að raka mosann í burtu, sem er tilvalið að gera núna. Það er einnig hægt að kaupa mosaeyði, sem er einhvers konar brenni- steinsefni og drepur mosann, en það er miklu árangursríkara að raka mosann upp úr grasinu. Síð- an er gefið skeljakalk yfir og gras- inu er gefinn áburður tvisvar til Sérfræðingar Tímans, þau Einar og Heiörún, leggja ríka áherslu á að áöur en garðeigendur fari út I dýrar framkvæmdir fái þeir landslags- arkitekta til að skipuleggja garða sína. Einar vann þennan garð að Klapparási 3 en hann var teiknaður af Einari Sæmundsen landslags- arkitekt. Einar Þorgeirsson telur þennan gott dæmi um vel heppnaðan garð. Eins og sjá má er myndin tekin I siðastliðinni viku og er gróður litt farinn að taka við sér. trén og runnarnir eru gróðursett ef tekið er tillit til veðráttu og er mikilvægt að staðhættir séu tekn- ir inn í þegar tegundir eru valdar í garða og skiptir þá máli stað- setning garðsins, tillit skal tekið til saltroks og fleiri þátta. Það sama gildir ekki um garð á Akur- eyri annars vegar eða í Grindavík hins vegar. Það sem stutt er í sjó og mikið er um særok, þarf að velja saltþolnar plöntur og runna og þar kemur landslagsarkitekt- inn inn í dæmið. Hann myndi stýra því hvaða plöntur yrðu vald- ar og hvernig skjólgarðar yrðu ræktaðir upp með harðgerðari plöntum. Dæmi um harðgerðar og saltþolnar plöntur eru viðja, grænn alaskavíðir, brúnn alaska- víðir, sitkagreni, brekkuvíðir, strandavíðir, grávíðir, loðvíðir o.fl. Tvær af þessum tegundum hafa þó reynst best, brúnn alaska- víðir og brekkuvíðir og hafa þær reynst til dæmis ódrepandi í Vest- mannaeyjum og Grindavík. Eiturúðun í görðum á fullkom- lega rétt á sér þegar maðkurinn er kominn á gróðurinn og æski- þrisvar sinnum yfir sumarið. Samfara þessu er nauðsynlegt að að slá ekki mjög snöggt, en þess í stað að skilja eftir um það bil fjóra sentimetra. Með því að slá grasið of snöggt niður við gras- rótina veikist grasrótin og mos- inn á auðveldari aðgang á ný. Með þessum hætti er hægt að ná upp góðri og sterkri grasrót, en þar spilar mjög ákveðið inn í að gefa áburð öðru hverju. Safnkassi í öllum görðum ætti að vera safnkassi fyrir lífrænan heimilis- og garðúrgang. Vegna þess hve rotnunartíminn er langur hér á landi þarf kassinn að vera þrí- skiptur. í kassanum verður síðan til ódýr alhliða áburður og nær- ingarrík mold fyrir plönturnar í garðinum. Tfminn þakkar þeim Einari og Heiðrúnu fyrir aðstoðina og von- ar að lesendur hafi haft bæði gagn og gaman af. -PS Framhliðin á Klapparási 3, en gatan fékk ekki alls fyrir löngu fegurðarverðlaun sem fegursta gata Reykja- vlkur. Það er alveg Ijóst að þessi garður hefur ekki staöiö í vegi fyrir því að gatan fékk þessi verðlaun. Tlmamyndir Pjetur því að hafa glæsilegan garð, sem fólk hvorki sér utan frá né innan frá húsinu. Skipulagningin þarf að miðast að því að eigendurnir sjái vel yfir garðinn úr húsinu og það sem hann hefur upp á að bjóða fyrir augað og einnig fyrir vegfarendur. Heiðrún og Einar eru sammála um það að þegar fólk er að gera upp garða sína þá verði það að skipuleggja garðinn vel og það séu allt of mörg dæmi um að trjám hafi verið plantað á „ranga“ staði. Þegar þetta hefur verið gert verður mun auðveldara að velja og kaupa þau tré og runna sem til þarf, því þá veit garðeigandinn nákvæmlega hvað hann þarf. Tré er ekki keypt nema vitað sé hvað gera eigi við það, stærð og útlit,

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.