Tíminn - 16.05.1992, Qupperneq 16
16 Tíminn
Laugardagur 16. maí 1992
Kornungur morðing
Þegar dóttir Phyllis Chapman ætlaöi aö færa móöur sinni
mat á vinnustaðinn, fann hún hana sundurskotna í blóðpolli
á gólfinu. Þaö tók lögregluna tvö ár aö finna morðingjann
og þaö heföi eflaust ekki tekist ef hann heföi ekki framið
annað morö.
Phyllis June Chapman starfaði sem
gjaldkeri í ólöglegum veðbanka í
borginni TVinity í Norður-Karólínu.
Launin voru betri en hún hefði getað
fengið annars staðar og ef hún yrði
handtekin fyrir að stofna til ólöglegra
veðmála var aðeins um minniháttar
afbrot að ræða og refsingin tiltölulega
lág sekt.
Phyllis opnaði veðbankann kl. 9 eins
og venjulega að morgni þess tíunda
ágúst 1987. Hitinn úti var steikjandi
og Phyllis velti því fyrir sér hvenær
dóttir hennar kæmi með morgun-
verð handa henni.
Þegar klukkan átti eftir nokkrar
mínútur í tíu kom dóttir Phyllis og
fann móður sína liggjandi á bak við
afgreiðsluborðið í blóðpolli. Hún
greip heljartaki í borðbrúnina og
hrópaði á hjálp.
Skotin sex skotum
Lögreglan kom fljótlega á staðinn og
í ljós kom að Phyllis hafði verið skot-
in sex sinnum með .22 kalibera byssu
í brjóst og upphandleggi. Skot og
skothylki voru á víð og dreif um her-
bergið.
í veðbankanum fundust 22. kalibera
skammbyssa og riffill en rannsókn
leiddi í ljós að þar var ekki um morð-
vopnið að ræða.
Lögreglumenn veltu því nú fyrir sér
hver kynni að standa á bak við morð-
ið. Var það óánægður viðskiptavinur,
samstarfsmaður eða einhver hærra
settur sem stóð á bak við veðbank-
ann?
Ránmorð kom ekki til greina, að því
er lögreglan taldi, því handtaska
Phyllis var ósnert og í henni voru
meira en 400 dollarar og í bílnum
hennar fundust 1000 dollarar til við-
bótar. Lögreglan taldi að það væru
peningar til vara ef á þyrfti að halda.
Erfitt hverfi
Svæði það sem veðbankinn er á er
morandi í alls kyns ólöglegri veð-
málastarfsemi. Lögreglan vissi vel af
þessu en hafði gefist upp við að berj-
ast gegn því, þar sem starfsmennimir
vom komnir aftur til starfa klukku-
stund eftir að þeir höfðu verið hand-
teknir.
Samkeppnin var því mikil í þessari
starfsgrein og þar kom til einn mögu-
leikinn enn. Vera kynni að einhver
samkeppnisaðilinn hefði viljað
klekkja á keppinaut sínum. Eða þá að
missætti hefði komið upp á milli
tveggja veðbanka. Fólk sem hefúr lifi-
brauð sitt af ólöglegri starfsemi er
ekki mikið fyrir að leysa sinn ágrein-
ing fyrir dómstólum, heldur kýs að
útkljá sín mál á sinn sérstaka hátt
Undanfarin tuttugu ár hafði verið
framið mikið af morðum í borginni
og mörg þeirra mátti rekja til veð-
bankastarfseminnar. En veðmangar-
amir höfðu víða sambönd í undir-
heimum stórborganna og höfðu því
aðgang að leigumorðingjum víðs veg-
ar að og því voru mörg morðmál
óleyst hjá lögreglunni í TVinity. Óeirð-
ir þessar höfðu líka verið í þeirri
mynd að bfiar og hús voru sprengd í
loft upp.
Aldrei hafa sannast tengsl milli þess-
arar veðmangarastarfsemi og skipu-
lagðra glæpahringa í öðrum borgum
eða jafnvel löndum, en orðrómurinn
um að svo sé verður seint niður
kvaddur.
Lögreglan hafði ekki mikið á að
byggja í morðmáii Phyllis Chapman.
Engin vitni höfðu fundist að atburð-
inum og ekkert vopn fannst Lögregl-
an vissi ekki einu sinni hvort um
skammbyssu eða riffil var að ræða.
Lögreglan komst að því að Phyllis
hafði verið boðuð til að vitna í morð-
máli en ekkert kom í ljós sem sýndu
tengsl þess máls og morðsins á Phyll-
is.
Fé til höfuðs
morðingjanum
Tíminn Ieið og í ágúst lofaði fjöl-
skylda Phyllis Chapman 10.000 doll-
ara verðlaunum þeim sem gæti gefið
upplýsingar sem leiddu til þess að
morðingi hennar yrði handtekinn.
Lögreglan hóf nú að þjarma meira
en venjulega að veðbankastarfsem-
inni og hafði morðið á Phyilis að yfir-
varpi. Ekki fékkst þó mikið út úr því,
þar sem eins og áður segir er litið á
ólöglega veðstarfsemi sem smáglæp í
Kalifomíufylki, þó litið sé á það sem
alvarlegt mál í mörgum öðrum fylkj-
um.
En Allred lögregluforingi sannfærð-
ist æ meir um það að morðið ætti
ekkert skylt við þá starfsemi sem
Phyllis hafði starfað við. Yfirmanni
hennar virtist mjög brugðið vegna
þessa atburðar. Aðrir í bransanum
kváðust ekkert vita hvað átt hefði sér
stað og ekki var annað að sjá en þeir
segðu satt. Veðmangarar gera út á
peninga og myndi einhver þeirra láta
freistast til að vinna sér inn verð-
launaféð ef hann vissi eitthvað um
málið?
Þó svo að lögreglan hefði ekki fund-
ið morðvopnið hafði Allred það á til-
finningunni að um viðvaning hefði
verið að ræða. Allt benti til þess að
um skipulagðan glæp hefði ekki verið
að ræða. Þetta styrkti enn grun hans
um að veðmangaramir ættu ekki
hlut að máli. En hann vissi ekki enn
hver morðinginn gæti hugsanlega
verið.
Það eina sem lögreglan hafði til að
þreifa sig áfram eftir var orðrómur og
falskar vísbendingar. Og á meðan
hlóðust önnur morðmál og sakamál
af öllum sortum á skrifborðum Iög-
regiumannanna.
Annað morð framið
En lánið átti eftir að snúast þeim í
vil.
í desember 1988 fann lögreglan í
High Point, sem er bær skammt frá
'IYinity, lík í skurði við fáfarinn veg.
Lögreglan þar var ekki lengi að
tengja málið við ungan mann að
nafni Jeffrey Tucker og tvo kunningja
hans. Það var lítið mál að hafa uppi á
kunningjunum, en Tucker var öllu
erfiðari viðfangs.
Kunningjamir skýrðu frá því að þeir
hefðu verið á fylliríi með hinum 17
ára gamla Jeífrey TUcker þegar hann
hefði lent í stælum við mann. TUcker
varð mjög reiður og kvaðst skyldi
„ganga frá“ manninum. Að þeim orð-
um sögðum dró hann upp .22 kali-
bera skammbyssu og skaut manninn
þremur skotum.
Að því loknu sögðu þeir TUcker hafa
dregið lík mannsins að skurðinum og
hent því þar ofan í. Lögreglan komst
að því að fómarlambið, sem var
óvopnað, hefði verið hinn 32 ára
gamli Donald Ray Logan, fjölskyldu-
maður sem vann eins og skepna og
var á leið úr einni vinnu til annarrar
er hann rakst á morðingja sinn á
fömum vegi.
Jafnvel þaulvönum lögreglumönn-
um, sem þó höfðu séð sitt af hverju
um dagana, ofbauð þessi tilgangslausi
glæpur.
Það gekk ekki vel að finna Tlicker.
tffiUT DYti 50 O smTi — SÝStJ HfiSftR ?U\T- 4BA f?UNG. Bú JA/ ST AC (
I HUtftiA — /I , • •• GDÐ
l fjt vt 1 500 1
9í
rv» 1 -fí£ ivVkvy l /,v h íí SKKAIK 5 BfiSLfi S
Asf// / 1 & \íu>—, f i hLT LIT/W
Jjr h DUÖ' Lffi/m 5 'f\(\ ' fft Fl- H
L . '.k! tf/Ri LEIDI ÆSlR tfRÍV 1/7" R T YElR LEIT 5
Þ GLSÐI iSftMT
K'ÓÐ { ÍTT- SK4KK/1 REtZfi fij—- KoÐ 7 BL in\ L
Tl 3) nei m- REfÐ/J VEG6 7
í/Xi LfiOT SKMF Y£T£>fl kym ~S
bOR SÁK HA/í'FA
STRti K /»* d Fús - LEötf SKfP/Vu krikm riL D £rti5 5 i r/MA YfT/Y/ (j> • • Y ♦
SYÐJft UíúfilK
tém z.i 0 - MÚHS /3 goR- bTfflKl UMK/ /0
■RV/K. tYJfl K0R fV H
'eÍFUt VFoTP MLTl DK- íTflNCr
r í -—^ • LÉLE& fuK I 12
• hrr £FNI
F/MM So 6 - VFNAR * íjðTir HfiLu /3
e> S AMT. TÍMl sTfi-F
P/0Ð1 ' mw zm 'rtSflKI TfiLfí tí (H
TÓbH 50
ruöT. flST í I • ,• ", SflLlR /5 TdUU QUIU EJM *■ l (5
1 i'ii tjÍH& X 'juBáaiáÍaÚf SÆBfflMSSWSB*