Tíminn - 22.05.1992, Page 6
6 Tíminn
Föstudagur 22. maí 1992
Föstudagur 22. maí 1992
Tíminn 7
Norskir embættismenn hafa áhyggjur af því hvernig fara muni, þegar tugir þúsunda rússneskra liðsforingja verða leystir frá störfum í hernum 1. júní nk. og hafa hvorki að
störfum, húsnæði né nægum eftirlaunum að hverfa. Hvaða áhrif hefur það á efnahag Múrmansk, en þar eru mörg íbúöarhús gömul og í niöurníðslu?
Rússneska heimskautssvæðið
Síðan kalda stríðinu lauk hefur hernaðarmáttur fyrr-
um sovéska heimsveldisins í raun vaxið hóflega rétt
handan landamæranna við Kirkenes í Noregi. Vel
vopnuðu brynvörðu herdeildirnar, sem verja norður-
arm gamla sovéska hersins, hafa ekki dregið sig til-
baka eins og herdeildirnar í Mið-Evrópu.
En að öllu öðru leyti virðist
kalda stríðið jafndautt í Kirke-
nes og annars staðar, og öryggi
Norðurlanda gagnvart gamla
heimsveldinu í austri er sífellt
frekar skilgreint með öðrum
hugtökum en hernaðarlegum,
s.s. umhverfisöryggi, efnahags-
legur og félagslegur stöðugleiki
í Rússlandi og aukin viðskipti á
norðurheimskautssvæðinu. Og
ef eitthvað er, eru þessar nýju
öryggisögranir ekkert síður
ógnvekjandi en þær gömlu og
velþekktu.
Eitraða nikkelbræðsl-
an rétt við landamær-
in og kjamorkuver
Eftir hálfrar klukkustundar
keyrslu frá Kirkenes inn í Rúss-
land er komið að einu tákni
nýju skilgreiningarinnar um
öryggi. Þar ber við himin ótót-
lega þriggja reykháfa nikkel-
bræðslu, einhverja þá stærstu í
heiminum, sem dælir út í and-
rúmsloftið meira brennisteins-
tvísýringi en allar eiturspúandi
verksmiðjur í Noregi saman-
lagðar. Brennisteinssúrt regnið,
sem steypist niður úr reykjar-
strókunum þrem, hefur breytt
mörgum þúsundum ekra af
norsku og rússnesku skóglendi
í eyðimörk.
Það eru fleiri atriði, sem gera
það að verkum að norskir
stjórnmálamenn líta tauga-
óstyrkir yfir landamærin. T.d.
hafa rússneskir stjórnmála-
menn í heimsókn í Ósió sagt
norskum ráðherrum að rúss-
neskir liðsforingjar sjái sér ekki
fært að brauðfæða konur sínar
og börn. Þessir stjórnmála-
menn báðu félög hermanna í
Noregi um að leggja fram
mannúðarhjálp í þeirri von að
hún kynni að kæfa óánægjuna,
sem er að byggjast upp gegn
efnahagslegum umbótum rúss-
neskra yfirvalda.
Á sviði umhverfismála eru
Norðmenn, Finnar og Svíar að
vinna að því að komast að nið-
urstöðu um hvort umhverfisör-
yggi á svæðinu krefjist þess að
ríkin þrjú leggi fram fjárhags-
aðstoð til að taka þátt í þeirri
hreinsun, sem nauðsynleg er til
að koma í veg fyrir að nikkel-
verksmiðjan valdi frekari skaða.
Lengra til austurs eru tveir
staðir til viðbótar, sem valda
Norðmönnum stöðugum
áhyggjum: tveir fyrrum sovésk-
ir kjarnakljúfar, sem hafa fram-
leitt gufu til raforkuvinnslu í
meira en 20 ár. Ríkisstjórn Nor-
egs hefur stöðugar áhyggjur af
því hversu öruggir þeir séu, og
ekki aðeins vegna þess að hrein-
dýrakjöt af vissum fjallasvæð-
um í Noregi er enn ekki neyslu-
hæft vegna geislamengunar eft-
Að utan
ir skýið frá Tsérnóbýl, sem fór
yfir Noreg 1986.
Ef þessum kjarnorkuverum
yrði lokað, missti 1,2 milljón
hermanna og óbreyttra borgara
í norðvesturhluta Rússlands
raforku, en þar er ekki hægt að
lifa veturinn af án þess að hafa
stöðugan aðgang að orku. Þess-
ar kringumstæður vekja ekki
aðeins umhyggju af mannúðar-
ástæðum, heldur líka ótta um
að flóðbylgja innflytjenda kunni
að skella á Noregi.
í aprílmánuði viðurkenndu
rússneskir embættismenn að
sjóher og ísbrjótafloti íýrrum
Sovétríkja hefðu losað sig við
stóran hluta geislavirks úr-
gangs á grynni í Norður-íshaf-
inu, sem tilheyra auðugum
fiskimiðum á þessum slóðum.
Hópur vísindamanna ætlar að
gera tilraun til þess í sumar að
leggja mat á skaðann.
Efnahagsleg og fé-
lagsleg röskun líka
ógnvekjandi
Fyrir utan þá ógn, sem að um-
hverfinu steðjar, halda norskir
embættismenn því fram að sú
stórkostlega efnahagslega og fé-
lagslega röskun, sem vofir yfir
handan landamæranna, hafi í
för með sér ógnun við stöðug-
leika, sem skipti ekki minna
máli.
í næsta mánuði ætlar fyrrum
sovéski herinn að hefja mesta
samdrátt, sem sögur fara af í
liðsafla á þrem áratugum, og
fæstir eru reiðubúnir að segja
fyrir um félagslegar og efna-
hagslegar afleiðingar þess fyrir
norðvesturhluta Rússlands.
í aprílmánuði kallaði norski
utanríkisráðherrann, Thorvald
Stoltenberg, rússneska og
norska embættismenn á svæð-
inu til fundar í Tromsö, til að
mæla fyrir að komið verði á
sameiginlegum markaði á
svæðinu og því að byggja brýr
yfir fjögurra áratuga tortryggni
og hernaðarhugsunarhátt.
„Ef sá dagur rennur upp þegar
mörg hundruð þúsunda rúss-
neskra flóttamanna koma yfir
landamærin okkar, verður það
ekki bara vandamál Norð-
manna, heldur mun það hafa í
för með sér stórkostlegt vanda-
mál í Evrópu og annars staðar í
heiminum,“ sagði hann aðvar-
andi.
Ivan I. Menshikov, sem er
einkastjórnmálafulltrúi Borisar
Jeltsín í Múrmansk, en þangað
er aðeins þriggja stunda akstur
frá Kirkenes, spáir því að tugir
þúsunda rússneskra liðsfor-
ingja, sem verða látnir yfirgefa
herinn ófúsir, eigi eftir að leggj-
ast á efnahaginn frá og með 1.
júní, án þess að hafa störf, íbúð-
arhúsnæði eða nægileg eftir-
laun, og að ástandið eigi eftir að
verða, eins og hann sagði,
„ljótt“.
Á hvaða hátt þetta gæti haft
áhrif á Noreg er enn að mestum
hluta einungis þungbúnar
vangaveltur.
„Við þekkjum ekki félagslegt
og hagfræðilegt ástand rúss-
neska hersins í norðurhlutan-
um, og það er þrennt sem við
höfum áhyggjur af,“ segir Johan
Jörgen Holst varnarmálaráð-
herra í viðtali í Ósló. „I fyrsta
lagi er það hreinlega frá mann-
úðarsjónarmiði. Við viljum ekki
að konur og börn svelti. í öðru
lagi viljum við ekki eirðarlaus-
an rússneskan her og í þriðja
lagi viljum við koma á sam-
bandi við rússneska herinn til
langs tíma á þann hátt að það
verði til þess að halda honum
utan við stjórnmál.11
Til viðbótar öðrum erfiðleik-
um Rússlands segir Menshikov,
sem er fyrrum ofursti í sovéska
hernum, að herstjórnin, sem
lengi hefur ráðið lögum og lof-
um á norðursvæðunum, vinni
gegn umbótaaðgerðum Jeltsíns.
Dag nokkurn ekki alls fyrir
löngu sagði rússneski þingmað-
urinn fyrir norðurhersvæðið,
Leonid B. Gurevich, í Ósló að
hann óttaðist óróa í röðum liðs-
foringja í sumar. „Sumir hafa
beinlínis sagt við mig: Við
hrækjum á umbæturnar ykkar,“
sagði hann.
Líkurnar á að samdráttur í
herafla Rússlands gæti valdið
pólitískri ringulreið á norður-
landamærum Noregs hafa hrint
af stað umræðum í Ósló um
bón rússnesku stjórnmála-
mannanna um aðstoð frá félög-
um hermanna í þessu Nató-ríki
við hermannafjölskyldur Rússa.
Óákveðnir um aðstoð
Sem komið er hefur æðsti her-
foringi Noregs, Torolf Rein
aðmíráll, svarað því til að ráða-
menn í Moskvu ættu að hætta
að láta herflugvélar sínar
fljúga, og leggja af tilraunir
með skotflaugar, ef fé vantar til
matarkaupa.
Gro Harlem Brundtland for-
sætisráðherra er enn óákveðin
um hjálparbeiðnina, vegna
þess, að því hún sagði í viðtali,
að hún er óviss um hvaða áhrif
slík aðstoð hefði á ráðamenn í
rússneska hernum og hvort
hún yrði lýðræðisöflunum til
góðs eða ills.
Fólk í Kirkenes gerir sér grein
fyrir að kalda stríðinu er lokið,
en margir hinna fjögurra millj-
óna Norðmanna muna eyði-
legginguna, sem Þjóðverjar
skildu eftir sig þegar þeir lögðu
Noreg undir sig í síðari heims-
styrjöld.
„Við erum hrædd," sagði
Ragnar Tönder, hafnarstjóri í
Nágrannar Rússlands á heimskautssvæöinu ræða nú um hvort umhverfisöryggi ætti að felast í að bera kostnað af hreinsun á nikkel-
bræðsiu, sem spýr út meira brennisteinstvísýringi en allar eiturspýjandi uppsprettur í Noregi til samans.
Bodö, bæ sem var jafnaður við
jörðu af þýskum sprengjuárás-
um. U-2 njósnaflugvélum var
flogið þaðan yfir Sovétríkin á
sjötta áratugnum.
„Við erum hrædd um að eitt-
hvað eigi eftir að gerast, eins og
t.d. að Rússland lendi í stríði
við Úkraínu og að þá verði Nató
að fara í stríð,“ segir hann.
„Rússar eiga atómsprengjur og
eldflaugar og þeir eiga gömul
kjarnorkuver, og við óttumst
þau vegna þess að við getum
ekki enn lagt okkur til munns
hreindýrakjöt úr fjöllunum
sem urðu fýrir mengun frá
Tsérnóbýl."
Sextíu prósent langdrægra
kafbátakjarnorkuvopna Rússa
eru á Kólaskaganum. 1990
bættust við sprengjuflugvélar
frá Ungverjalandi á flugvellina í
norðurhlutanum, þegar Var-
sjárbandalagið féll. Fyrsta sov-
éska flugvélamóðurskipið
brunaði út af Svartahafi og
slóst í för með flotanum á norð-
ursvæðinu í vetur sem leið.
En jafnvel þó að hófleg upp-
bygging eigi sér stað, eru yfir-
þyrmandi merki um samdrátt.
Á strætum Múrmansk eru
rússneskir liðsforingjar á báð-
um áttum um umbótastefnuna,
en þeir eru stoltir af herarfleifð
sinni. Áætlunin um að draga
fýrrum norðurhafaflotann sam-
an um 40% á næstu þrem árum
getur varla verið nógu snemma
á ferðinni í augum þeirra, sem
þegar þyrstir eftir að komast
burt.
Hinn nýi yfirmaður norður-
hafaflotans, Oleg Yerofeyev
varaaðmíráll, sagði í staðar-
blaðinu að með því að minnka
flotann um þriðjung taki hann
25 til 30 orrustuskip úr um-
ferð. En stærsti vandi hans
verður breytingar á starfslið-
inu.
Sumir geta ekki farið
Margir liðsforingjar í norður-
hafaflotanum eru vonsviknir
yfir því að þjónusta þeirra hefur
ekki veitt þeim trausta framtíð.
„Sjálfur get ég ekki farið úr
hernum, vegna þess að ég á
hvergi heima,“ segir yfirliðsfor-
inginn Vasily Belov, 26 ára
gamall. „Ef ég ætti einhvers
staðar heima, færi ég. Mig lang-
ar til að eignast annað barn, en
hef ekki ráð á því núna.“
Ógnvænlegasta ögrunin, sem
yfirvöld í Múrmansk og Moskvu
þurfa að horfast í augu við
núna, er líklega að koma á nýju
efnahagslífi í norðvesturhluta
Rússlands. Á leiðinni milli
Norður-Noregs og Múrmansk
er umferðin 10 sinnum meiri
nú en hún var fyrir ári. Versl-
unarfýrirtæki flytja vestrænar
vörur til Rússlands og tilbaka
rússneskan fisk, timbur og
málmgrýti sem greiðslu.
En rússneska heimskauts-
svæðið er sköpunarverk sov-
éska ríkisins og það þarf meira
til en vöruskiptaverslun til að
umbreyta því. Stærstu fýrir-
tækin hafa verið sovéski her-
inn, fiskvinnsla, námugröftur,
timburiðnaður og skipaflutn-
ingar. Fiskveiðar, námugröftur
og timburvinnsla eiga eftir að
halda áfram að blómstra og afla
harðs gjaldeyris fyrir svæðið og
rússneska ríkið. En aðrar
greinar iðnaðar virðast ekki
eiga sér framtíðar von.
Rétt er hafin athugun á því
hvort og hvernig breyta megi
stóru kafbátasmíðastöðinni í
Severodvinsk til að vinna önn-
ur verkefni, en enginn í Noregi
hefur minnstu trú á að nokkurt
einkafyrirtæki gæti haldið uppi
því 120.000 manna starfsliði
sem áður vann þar.
MERKIÐ
VIÐ 13 LEIKI
24. maí 1992
Viltu gera
uppkast
að þinni
spá?
1. AIK — Göteborg BE00
2. GAIS — Öster y xise
3. Frölunda — Diurqárden y [ijHca
4. Kiruna — Hammarby 03 0[U
5. Spárvágen — LuleáN y
6. Vásby — IFK SundsvallN Q 1 i x j2 j
7. Degerfors — BrageA Ei L i ,00
8. Eskilstuna — ForwardA Qnnnrir^
9. Sirius — VasalundA □ i 1 inrnn
10. Myresjö —- Tidaholmv 0 333321
11. Skövde — Elfsborgv y 1 jst!]
12. Karlskroná — Helsingborgs EE jDEE
13. Landskrona — Mjölbys E rnrxim
■ ■
FJOLMIÐLASPAI
© o 3 m © o- cc 5 -1 Ul U- z 8 §
i > O Z z ! tr < o z 0C Z3 s O p •o </> £E e ■o 2 </> -J < O < =3 O •>- ■o. -i < SAMTALS 9 1 x vl
1 X X 1 2 1 2 1 1 2 2 4 2 4
2 X 1 2 1 2 2 X 1 X 2 3 3 4
3 1 1 1 1 1 X 1 1 2 1 8 1 1
4 1 X 1 1 1 1 X 1 2 1 7 2 1
5 1 2 2 1 X 2 1 1 X X 4 3 3
6 2 X X 2 X 1 X 1 1 1 4 4 2
7 1 X 1 1 1 1 1 1 X 2 7 2 1
8 2 1 1 1 2 1 1 1 1 1 8 0 2
9 X 2 2 1 2 X 2 1 1 X 3 3 4
10 X X X 2 X 1 1 1 2 1 4 4 2
11 2 2 X 1 2 2 1 1 X 1 4 2 4
12 1 1 2 1 X 1 1 1 2 1 7 1 2
13 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 10 0 0
SÆNSKA KNATTSPYRNAN
Staöan í
Allsvenskan
Trelleborg... 9 522 12-1017
Göteborg.....851217-7 16
Norrköping...9423 17-13 14
AIK..........8332 12-1012
Öster........8242 12-12 10
Örebro.......92 43 7-1210
MalmöFF......92 34 12-11 9
Djurgárden...82 33 16-19 9
CAIS.........8224 5-10 8
V.Frölunda 8143 4-10 7
1. deild suöur
Halsingborg .65 10 21-3 16
Landskrona ..6402 9-8 12
Karlskrona... 6 312 11-9 10
Halmstad....62 3 1 6-3 9
Hássleholm ..62 13 7-10 7
Mjölby.......62 13 6-9 7
Kalmar......6033 5-11 3
Leikin......61 05 3-15 3
1. deild norður
Sundsvall....55 00 15-2 15
IFKSundsvall 52 2 1 3-2 8
Luleá.........42 02 6-8 6
Kiruna........52 03 7-10 6
Mallarvik....41216-6 5
Spanga........5 1 22 4-8 5
Vásby.........31 02 24 3
Hammarby .... 5 012 3 3-8 2
1. deild austur
Brage.........5401 8-412
Vasalund......532 0 6-311
Gávle............5230 5-2 9
Enköping.........5212 4-7 7
Eskilstuna....52 03 64 6
Degerfors.....5113 4-7 4
Forward......5113 7-7 4
Sirius........5 104 4-7 4
1. deild vestur
Gunnilse....642 0 17-8 14
Hacken...... 6330 11-5 12
Alvsborg....532 0 13-9 11
Tidaholms.... 5221 7-7 8
Myresjö........5 2 03 6-8 6
Oddevold........5113 5-15 4
Skövde......6105 4-8 3
Motala......6 024 8-15 2