Tíminn - 22.05.1992, Page 9
Föstudagur 22. maí 1992
Tíminn 9
DAGBÓK
Félag eldri borgara Kópavogi
Spilað og dansað í kvöld, föstudags-
kvöldið 22. maí, að Auðbrekku 25 kl.
20.30. Húsið öllum opið!
Minjar og saga:
Aöalfundur
Minja og sögu verður haldinn í Norræna
húsinu þriðjudaginn 26. maí 1992 og
hefst kl. 17 stundvíslega. Dagskrá fund-
arins:
1. Ársskýrsla stjómar.
2. Framlagning endurskoðaðra reikn-
inga til samþykktar.
3. Kosningar.
4. Kjör tveggja endurskoðenda.
5. Önnur mál.
Kynningarferð
f framhaldi af aðalfundi er gert ráð fyr-
ir að líta inn í Geysishúsið (við Aðal-
stræti). Þar verða líkön af Grjótaþorpi,
gamlar ljósmyndir o.fl. skoðað. Nikulás
Úlfar Másson arkitekt mun spjalla um
„sögu byggðar". Boðið verður upp á létt-
ar veitingar. Áætlað er að þessu ljúki kl.
19-19.15.
Reykjanes —
Leiðarþing
Steingrlmur Hermannsson alþm., fonnaður Framsóknar-
flokksins, heldur leiðarþing á eftirtöldum stöðum:
Mosfellsbæ 25. mal ki. 20.30 i Hlégaröi.
Hafnarfiröi 26. mal í félagsheimili framsóknarmanna að
Hverfisgötu 25.
Kópavogi 27. mal kl. 20.301 Framsóknarhúsinu v/Digra-
nesveg.
Stjóm Kjördæmissambandsins.
Steingrímur
Hermannsson
Sumartími skrifstofu
Framsóknarflokksins
Frá 18. mal er skrifstofa okkar I Hafnarstræti 20, III. hæð, opin frá kl. 8.00 til 16.00
mánudaga-föstudaga.
Verið velkomin.
Framsóknarflokkurinn.
Framsóknarvist í Kópavogi
Spiluö verður Framsóknarvist að Digranesvegi 12, sunnudaginn 24. mai og hefst
kl. 15.
Kaffiveitingar og verðlaun.
Freyja - félag framsóknarkvenna.
Létt spjall á
laugardegi
REYKJAVÍK
Léttspjallsfundur verður haldinn á skrifstofu Framsóknar-
flokksins f Hafnarstræti 20, laugardaginn 23. mal kl. 10.30.
Rætt veröur um stöðuna f stjómmálum við þinglok.
Spjallið innleiðir Finnur Ingólfsson alþingismaður.
Fulltrúariöló. Finnur
Sjávarútvegsráðstefna
Endar kvótinn hjá
Kolkrabbanum?
Haldinn af SUF, FUF-Reykjavík og Framsóknarflokknum í Rúgbrauðsgerðinni, Borg-
artúni 6, laugardaginn 23. mai kl. 13.00-17.00.
Dagskrá:
Ávarp formanns SUF.
13.00-13.20 Einar Oddur Kristjánsson, formaður VSl.
13.20- 13.40 Umræður og fyrirspumir.
13.40- 14.00 G. Valdimar Valdemarsson, fulltnji SUF.
14.00-14.20 Umræöur og fyrirspumir.
14.20- 14.40 Þröstur Ólafsson, aðstoðarmaður utanrlkisráðherra.
14.40- 15.00 Umræður og fyrirspumir.
15.00-15.20 Kaffihlé.
15.20- 15.40 Ámi Gíslason, skipstjóri og formaður undirbúningshóps að félagi um
breytta fiskveiðistjómun.
15.40- 16.00 Umræður og fyrtrspumir.
16.00-16.20 Halldór Ásgrfmsson alþingismaöur.
16.20- 16.40 Umræður og fyrírspumir.
Ráðstefnustjóri Gunnar Bragl Guðmundsson, formaður FUF-Reykjavík.
Ráðstefnan er öllum opin.
Guömundur
Bjamason
Valgeröur
Sverrísdóttir
Jóhannes Geir
Sigurgeirsson
Norðurland eystra
Fundir með alþingismönnum
Þingmenn Framsóknarflokksins I kjördæminu boða til almennra stjórnmálafunda,
sem hér segin
Félagsheimilið Árskógur sunnudaginn 24. mal kl. 16.00.
Félagsheimiliö í Grímsey mánudaginn 25. maí kl. 17.00.
Bergþórshvoll, Dalvík, þriðjudaginn 26. mai ki. 20.30.
Félagsheimlliö Tjamartoorg, Ólafsfirði, miðvikudaginn 27. mai kl. 20.30.
Þingmenn verða til viðtals I Bergþórshvoli kl. 18.00-19.00.
Framsóknarflokkurinn.
Hattahóf SUF
Hattahóf SUF verður haldið á Fógetanum, 2. hæð, laugardaginn 23. mal n.k. Þeir,
sem vilja borða á staönum, mæti kl. 20.30, en aðrir kl. 23.00 eöa slöar.
Sá, sem ber frumlegasta hattinn, verður valinn hattmann ársins og hlýtur hann
hattaorðuna.
Mætum öll og skemmtum okkur eins vel og slðast.
Framkvæmdastjóm SUF.
Litli fiöluieikarinn í vöfflusaumaða kjólnum gæti eins veriö afhoidi og blóöi.
Brúðurnar líkjast
lifandi börnum
og þykja listaverk
Þegar fólk lítur augum sköpun-
arverk frönsku listakonunnar
Anne Mitrani, spyr það sig fyrst
hvort hér séu á ferðinni börn
eða listaverk. Brúðurnar virðast
svo náttúrlegar og líflegar, í
stellingum sem börn taka sér
gjarna og svipurinn, fötin og
hárið á 50-60 cm háum brúðum
er allt svo eðlilegt að sjá.
Anne Mitrani styðst ekki við
fyrirsaetur né ljósmyndir, heldur
sækir fyrirmyndir sínar í mann-
lífið á götunum. Hún hóf
brúðugerðina fyrir ellefu árum,
þegar hún hafði nýverið misst
fóstur. Enda segir listakonan að
fyrstu brúðurnar hafi borið með
sér hvernig skapara þeirra leið,
þær voru vansælar og niður-
brotnar að sjá. Það liðu nokkur
ár áður en þær urðu kátari,
jafnframt því sem skap listakon-
unnar léttist.
Anne Mitrani líkir vinnu sinni
við höggmyndalist, brúðurnar
séu listaverk en ekki leikföng.
Engar tvær brúður eru eins. Og
hún er ófáanleg til að lýsa
vinnubrögðum sínum.
Listakonan Anne Mitrani býr til
brúöur, sem þykja fádæma
eölilegar og vel geröar.
Stóra brúöan leikur sér aö litlum brúöum og hefur gaman af.
Eftirspurn eftir listaverkum
Anne er mikil og fer vaxandi.
Verðið er þó sæmilega hátt, eða
allt frá tæpum 600.000 ísl. kr.
til tæplega 900.000 kr. Og safn-
arar eru fúsir til að greiða allt
að þrjár milljónir króna.