Tíminn - 25.08.1992, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 25. ágúst 1992
Tfminn 3
Rússneskur listamaður gerir höggmynd af
þekktum íslendin^um:
Höggmynd af Olafi Jóh.
Um skeið hefur dvalist hér á landi
rússneskur myndhöggvari, Pyotr
Shapiro að nafni, en sýning verður
haldin á verkum hans hér á landi í
október. Shapiro hefur unnið að gerð
höggmynda af þremur þekktum ís-
lendingum, Ólafi Jóhannessyni, fyrr-
um forsætisráðherra, Halldóri Lax-
ness rithöfundi og Sveini Bjömssyni,
fyrrum forseta ÍSL
Shapiro er vel þekktur listamaður í
heimalandi sinu. Hann og fjölskylda
hans hafa þó mátt þola ýmislegt í Sov-
étríkjunum, landi kommúnismans.
Foreldrar Shapiros sátu í fangabúðum
á Stalínstímanum. Hann ólst því upp á
bamaheimili og var meinað um að
setjast í listaskóla á þeirri forsendu að
hann væri bam óvina þjóðarinnar.
Tímamymlir Arai Bjaraa
Pálmi Jónsson segist vera feginn að vera laus úr fjárlaganefnd:
Björn og Sturla nýir í
forystu fyrir nefndum
í gær var Björn Bjamason kosinn
formaður utanríkismálanefndar í
stað Eyjólfs Konráðs Jónssonar
sem ekíd hlaut kosningu í nefnd-
ina. Rannveig Cuðmundsdóttir var
endurkjörin varaformaður utanrík-
ismálanefndar. Karl Steinar Guðna-
son var endurkjörinn formaður
fjárlaganefndar, en varaformaður
var kjörinn Sturla Böðvarsson.
Hann tekur við stöðunni af Pálma
Jónssyni.
Það hefúr vakið nokkra athygli að
Pálmi Jónsson skuli hætta í fjárlaga-
neftid, en þar hefur hann átt sæti í
um 20 ár. Tíminn spurði Pálma
hvort honum hafi verið bolað úr
nefndinni. Hann sagði það af og frá.
Hann hefði getað fengið að sitja
áfram í nefndinni ef hann hefði
óskað eftir því. Pálmi sagðist hafa
óskað eftir því að fá að hvíla sig á erf-
iðum og annasömum störfum í fjár-
laganefrid. Raunar hefði hann sett
fram slíka ósk í fyrrahaust, en þá
hefði verið talið rétt að hann sæti
þar eitthvað áfram vegna þess að
aðrir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
nefndinni hefðu litla þingreynslu.
Pálmi viðurkenndi hins vegar að
það væri ókostur að með brottför
sinni úr nefndinni hefði Norður-
landskjördæmi vestra engan fulltrúa
Iengur í nefndinni. í stað Pálma
settist Árni M. Mathiesen í fjárlaga-
nefnd.
Pálmi verður nú formaður sam-
göngunefndar og sest í forsætis-
nefnd þingsins. -EÓ
BÆNDUR
Haustverkfæri
á góöu veröi
• KUHN jarðtætarar
íslenskar sumarbúðir fyrir börn í Kanada:
• HANKMO hnífaherfi
• FRASER 5 tonna sturtuvagnar
60 börn á sumri
Allt frá árínu 1974 hafa sumarbúð-
ir verið starfræktar skammt frá
Gimli í Kanada þar sem börnum er
kennd íslensk tunga og sagt frá ís-
lenskri menningu.
Bömin em á aldrinum 7-14 ára og
er þeim boðið að dvelja í búðunum í
eina viku í ágúst. Þau em yfirleitt
um 60 talsins.
„Búðimar em skipulagðar eins og
skólar, við kennum börnunum ís-
lensku, íslenska tónlist, segjum
þjóðsögur og svo er boðið upp á
íþróttir og föndur," segir Gunnvör
Daníelsdóttir, einn aðstandenda
sumarbúðanna. „Þriðja hvert ár em
jólin höfð sem sérstakt umfjöllunar-
efni í vinnu barnanna.“
Sömu bömin koma ár eftir ár f
búðirnar og margir kennaranna
sem þar starfa nú dvöldu þar sem
börn. Bömin koma alls staðar að úr
Kanada en einnig úr Bandaríkjun-
um. Flest em af íslenskum ættum
en stundum ber einhver að garði
sem svo er ekki ástatt um.
„í sumar komu tveir piltar ættaðir
frá Kólumbíu í föðurætt og Eng-
landi í móðurætt með íslenskættuð-
um vini sínum. Þeir skemmtu sér
vel en fannst allra verst að vera ekki
ljóshærðir og bláeygðir eins og hin-
ir,“ segir Gunnvör.
íslendingar em þeir einu í Winnip-
eg sem hafa barnasumarbúðir en
hinar þjóðirnar, s.s. Úkraínar, starf-
rækja fjölskyldusumarbúðir.
Gunnvör segir að í búðunum hafi
áhugi margra bama vaknað á íslandi
og síðar meir hafi sum þeirra jafnvel
sótt skóla á íslandi eða sótt sumar-
námskeið í íslensku. „Ættir þeirra
bama sem koma í búðimar hafa
stundum búið í Kanada í 5. eða 6.
JpK
verneland
RULLU-
PÖKKUNARVÉLAR
Kverneland vélarnar eru mest seldu
rúllupökkunarvélarnar hérlendis og hafa
verið lengst á markaðnum.
TVÍMÆLALAUST
BESTU KAUPIN
Á MARKAÐNUM
J@u^RDG!í)
' TUídsOttfý
ættlið og bömin verða því kanadísk.
Það er því nauðsynlegt að halda við
íslenskri þjóðernisvitund hjá þeim,“
segir Gunnvör að lokum. —GKG.
Ávinnsluherfi
BÖGBALLE áburðardreifarar
Nánari upplýsingar
hjá okkur og
umboðsmönnum.
Mldsorffý
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK ■ SÍMI 91-634000
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK • SÍMI 91-634000
ISLENSK HONNUN URISLENSKRIULL
HONNUNARSAMKEPPNI
ÍSTEX HF. efnir til samkeppni um hönnun á handprjónapeysum
úr íslenskum náttúrulitum (sauðalitum) eingöngu.
Megináhersla er lögð á hönnun úr hespu- og plötulopa, en einnig er
heimilt að nota aðrar bandtegundir, s.s. flos, einband eða tvíband.
Stefnt er að því að velja allt að 15 hugmyndir til útgáfu í handprjóna-
blaði.
Fyrir hverja hugmynd sem valin er verður greitt kr. 25.000,-
Fyrir útfærða hugmynd að peysu verður greitt kr. 10.000,- aukalega.
Þá verða veitt verðiaun fyrir 3 bestu hugmyndirnar
1. verölaun kr. 150.000
2. verólaun kr. 100.000
3. verölaun kr. 50.000,-
Þátttakendur eru beðnir um að skila inn fullprjónuðum peysum til
ÍSTEX
í Mosfellsbæ fyrir 25. nóvember 1992.
Nafn og simanúmer skal fylgja í lokuðu umslagi, merktu með dulnefni.
Vai og verðlaunaafhending er fyrirhuguð 4. desember 1992.
Peysum, sem ekki eru valdar, verður skilað aftur til eigenda.
Nánari upplýsingar ásamt litaspjöldum fást hjá ÍSTEX í Mosfellsbæ
kl. 9-16 alla virka daga.
PÓSTHÓLF 140 - 270 MOSFEKLLSBÆ - SlMI 91-6663000 - MYNDSENDIR 91-667330